Fleiri fréttir

Brasilía vann Ísland - Sigurmarkið þrem sekúndum fyrir leikslok

Íslenska landsliðið í handknattleik tapaði með eins marks mun, 28:27, fyrir því brasilíska í vináttulandsleik í Brusque í Brasilíu í gærkvöld. Staðan var jöfn 14:14 í hálfleik en íslenska liðið var lengst af yfirhöndina í síðari hálfleik.

Arjen Robben ekki með Hollandi í fyrsta leik HM í dag

Arjen Robben er ekki í byrjunarliði Hollendinga sem mæta Japan í fyrsta leik HM núna klukkan 11.30. Robben er enn meiddur en ekki var tekin ákvörðun um að nota hann ekki fyrr en í morgun. Hollendingar stilla upp sama liði og vann Dani 2-0.

Stuðningsmaður braust inn í búningsklefa enska landsliðsins

Ensku stuðningsmennirnir sem horfðu upp á markalaust jafntefli Englands og Alsír í kvöld létu sína menn heyra það í leikslok en einn þeirra gerði gott betur því honum tókst að brjótast inn í búningsklefa enska liðsins eftir leikinn.

Didier Drogba í byrjunarliðinu á móti Brasilíu

Það er ekki að heyra annað á Sven-Göran Eriksson, þjálfara Fílabeinsstrandarinnar, en að hann ætli að setja Didier Drogba í byrjunarliðið sitt í leiknum á móti Brasilíu á sunnudaginn.

Fabio Capello: Verðum vonandi ánægðari eftir næsta leik

Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, átti 64 ára afmæli í dag en afmælisgjöfin frá ensku landsliðsmönnunum var súr frammistaða og markalaust jafntefli á móti Alsír. Enska liðið er í 3. sæti í riðlinum með tvö stig en getur tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum með sigri á Slóveníu í lokaleik sínum í riðlinum.

Steven Gerrard: Ég veit ekki af hverju við spiluðum ekki betur

Enska landsliðið átti slakan leik í kvöld þegar liðið náði aðeins markalausu jafntefli á móti Alsír í öðrum leik sínum á HM í Suður-Afríku. Englendingar eru án sigurs og aðeins búnir að skora eitt mark í fyrstu tveimur leikjum sínum í keppninni.

Markalaust jafntefli hjá Englandi og Alsír

Englendingar náðu aðeins markalausu jafntefli á móti Alsír í öðrum leik sínum á HM í Suður-Afríku í kvöld og þurfa því að bíða enn lengur eftir fyrsta sigri sínum í keppninni.

Bandaríkjamenn brjálaðir yfir markinu sem dæmt var af þeim

Leikmenn og þjálfari bandaríska landsliðsins voru mjög ósáttir eftir 2-2 jafntefli á móti Slóveníu á HM í Suður-Afríku í dag þrátt fyrir að hafa sýnt mikinn karakter með því að koma til baka eftir að hafa lent 2-0 undir. Ástæðan er að mark frá Maurice Edu á 85. mínútu leiksins var dæmt af en markið hefði tryggt Bandaríkjamönnum 3-2 sigur og lykilstöðu í C-riðlinum.

Sölvi semur við dönsku meistarana

Sölvi Geir Ottesen hefur samið við danska félagið F.C. København til þriggja ára. Sölvi var hjá SønderjyskeE í Danmörku áður en hann söðlaði um en varnarmaðurinn var mjög eftirsóttur um alla Evrópu.

Ásgeir Börkur: Tryggvi Guðmundsson er fífl

Fylkismaðurinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson er allt annað en sáttur við Eyjamanninn Tryggva Guðmundsson. Ásgeir sendi Tryggva tóninn í viðtali á fótbolti.net á dögunum og bætti um betur í viðtali við stuðningsmannasíðu Fylkis fyrr í vikunni.

Hamilton: Aldrei meiri samkeppni

Bretinn Lewis Hamilton er efstur í stigamóti ökumanna eftir tvo sigra í röð og spjallaði um stöðu mála á vefsíðu sinni samkvæmt frétt á autosport.com. Fimm mismunandi ökumenn hafa leitt stigamótið til þess, en átta mótum er lokið og ellefu eftir.

Sigurður Ragnar: Megum ekki tapa stigi

Ísland mætir Norður-Írlandi á morgun í undankeppni HM. Ísland vann fyrri leik liðanna 1-0 úti en liðið er þremur stigum á eftir Frökkum í riðlakeppninni.

Serbar sökktu Þjóðverjum

Þjóðverjar, sem mörgum fannst vera eina liðið sem sýndi sitt rétt andlit í fyrstu umferð HM, tapaði fyrir Serbum í annarri umferð riðlakeppninnar í dag.

David James í markinu í kvöld

David James verður væntanlega í markinu hjá enska landsliðinu í kvöld. Það mætir Alsír í annarri umferð HM klukkan 18.30.

Vuvuzela-lúðrar ekki bannaðir á Englandi

Félög í ensku úrvalsdeildinni ætla ekki að banna Vuvuzela lúðrana á leikjum hjá sér á næsta tímabili. Hávaðinn úr þeim hefur fengið mikla umfjöllun á HM.

Fögnuður LA Lakers - Myndasyrpa

Los Angeles Lakers tryggði sér NBA-meistaratitilinn i nótt með sætum sigri á Boston Celtics. Lokatölur 83-79 fyrir Lakers sem vann einvígið 4-3.

Sölvi Geir Ottesen til FC Köbenhavn?

Danska blaðið Ekstra Bladet segir að Sölvi Geir Ottesen sé efstur á óskalista FC Köbenhavn. Sölvi er á mála hjá SönderjyskE en er líklega á leið til stærra félags.

Mercedes á enn möguleika á meistaratitlum

Ross Brawn framkvæmdarstjóri Mercedes liðsins, með þá Michael Schumacher og Nico Rosberg innanborðs telur að enn sé möguleiki á meistaratitlum. Hann vann tvöfalt í fyrra með Jenson Button og Brawn liðinu, áður en hann seldi Mercedes lið sitt.

Miroslav Klose getur jafnað Pele

Þjóðverjar fara inn í leikinn gegn Serbíu í dag með það á bakinu að vera eina liðið sem sýndi sitt rétta andlit í fyrstu umferð HM. Það ætti að henta liðinu vel.

Cotterill ráðinn til Portsmouth

Steve Cotterill hefur verið ráðinn stjóri Portsmouth. Hann skrifaði undir þriggja ára samning og tekur við af Avram Grant sem kominn er til West Ham.

Senderos líklega ekki meira með á HM

Philippe Senderos verður að öllum líkindum ekkert meira með á HM. Það er mikið áfall fyrir Sviss sem er í góðri stöðu eftir sigurinn óvænta gegn Spáni.

Sextándi meistaratitill Los Angeles Lakers

Los Angeles Lakers vann fjögurra stiga sigur á Boston Celtics, 83-79, í úrslitaleik liðanna um NBA-meistaratitilinn í nótt. Lakers er þar með meistari eftir 4-3 sigur í einvíginu.

Endurtók afrek afa síns á HM fyrir 56 árum síðan

Javier Hernandez skoraði fyrra mark Mexíkó í 2-0 sigri á Frökkum á HM í Suður-Afríku í kvöld og lék þá eftir afrek afa síns fyrir 56 árum. Hernandez mun spila með Manchester United á næsta tímabili og hafði komið inn á sem varamaður níu mínútum áður en hann skoraði markið sitt.

Svali og Baldur lýsa leiknum saman í kvöld

Svali H. Björgvinsson og Baldur Beck hafa skipts á að lýsa frá úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta á Stöð 2 Sport í vetur og þeir ætla lýsa saman lokaleiknum í kvöld þegar Los Angeles Lakers og Boston Celtics mætast í hreinum úrslitaleik um NBA-meistaratitilinn.

Domenech orðlaus eftir tapið á móti Mexíkó í kvöld

Raymond Domenech, þjálfari Frakka, viðurkenndi að liðið þurfi á kraftaverki að halda ætli það sér að komast í sextán liða úrslitin á HM í Suður-Afríku. Frakkar töpuðu 0-2 á móti Mexíkó í kvöld og hafa ekki enn skorað eftir 180 spilaðar mínútur í keppninni.

Blanco þriðji elsti markaskorari HM-sögunnar

Cuauhtémoc Blanco skoraði seinna mark Mexíkó í 2-0 sigrinum á Frökkum í kvöld og varð þar með þriðji elsti markaskorari HM-sögunnar. Blanco er 37 ára og 151 daga gamall í dag og skoraði markið sitt í kvöld úr vítaspyrnu.

Mexíkó vann sannfærandi sigur á Frakklandi

Mexíkó vann sannfærandi 2-0 sigur á Frökkum í öðrum leik liðanna í A-riðli HM í Suður-Afríku. Frakkar hafa því ekki skorað mark í tveimur fyrstu leikjum sínum á HM, eru aðeins með eitt stig og á leiðinni úr keppni nema allt falli með þeim í lokaumferðinni.

Bochum vill kaupa hinn asíska Wayne Rooney

Tilfinningaríki Kóreubúinn Tae-Se, sem er oft kallaður hinn asíski Wayne Rooney, hefur vakið mikla athygli á HM. Ekki bara fyrir að skæla í þjóðsöngnum heldur einnig fyrir vaska frammistöðu á vellinum.

Aragones gagnrýnir leikstíl spænska liðsins á móti Sviss

Luis Aragones hætti með spænska landsliðið eftir að hann gerði Spánverja að Evrópumeisturum fyrir tveimur árum. Hann er nú einn að mörgum sem hefur gagnrýnt fyrsta leik spænska liðsins á HM í Suður-Afríku þar sem liðið tapaði 0-1 á móti Sviss.

Maradona: Ég er enginn hommi

Blaðamannafundirnir með Maradona á HM eru hreint út sagt stórkostlegir enda talar landsliðsþjálfari Argentínu í fyrirsögnum. Á því varð engin breyting í dag.

Fyrstu mörk Grikkja í lokakeppni HM - myndband

Grikkland vann góðan sigur á Nígeríu, 2-1, í skrautlegum leik í B-riðli HM í dag. Nígería var yfir 1-0 er einn leikmaður liðsins lét reka sig af velli fyrir glórulausa hegðun.

Sjá næstu 50 fréttir