Fleiri
Katrín Jónsdóttir: Allt liðið var að spila frábærlega 15.6.2010 22:12 Cristiano Ronaldo ekki búinn að skora í tíu landsleikjum í röð Cristiano Ronaldo lék í dag tíunda landsleikinn sinn í röð án þess að ná að skora en Ronaldo og félagar í Portúgal náðu aðeins markalausu jafntefli á móti Fílabeinsströndinni í fyrsta leik sínum á HM í Suður-Afríku. 15.6.2010 22:07 Umfjöllun: Markasúpa í boði Valsstúlkna á Vodafone-vellinum Valsstúlkur svöruðu kallinum í kvöld eftir smá bakslag og rústuðu Aftureldingu 10-0 er liðin mættust í sjöundu umferð Pepsi-deildar kvenna. Það mætti aðeins eitt lið til leiks og það voru heimastúlkur. 15.6.2010 21:45 Úrslit kvöldsins í Pepsi-deild kvenna Eftir tvö jafntefli í röð sýndu Valskonur mátt sinn í 10-0 risasigri á Aftureldingu á Vodafone-vellinum í kvöld. Blikastúlkur komust aftur upp í annað sætið eftir 3-1 sigur á botnliði FH. 15.6.2010 21:14 Brasilíumenn í vandræðum með Norður-Kóreu en unnu 2-1 Brasilíumenn unnu 2-1 sigur á Norður-Kóreu í fyrsta leik sínum á HM í Suður-Afríku. Norður-Kóreumenn komu mörgum á óvart með góðri frammistöðu og það er ljóst á leiknum í kvöld að Norður-Kórea er sýnd veiði en ekki gefin í dauðariðlinum. 15.6.2010 20:18 Andres Iniesta getur spilað með Spánverjum á morgun Spánverjar eiga að geta teflt fram sínu besta liði í fyrsta leik sínum á HM í Suður-Afríku á morgun en Evrópumeistararnir mæta þá Svisslendingum. Andres Iniesta er orðinn góður af meiðslunum og því tilbúinn í leikinn. 15.6.2010 20:00 Sjá næstu 50 fréttir
Þrenna frá Higuain í stórsigri Argentínu Drengirnir hans Diego Maradona í argentínska landsliðinu unnu sinn annan leik í röð er liðið mætti Suður-Kóreu í dag. Argentína vann leikinn, 4-1, og er svo gott sem komið áfram í sextán liða úrslit. 17.6.2010 13:19
Domenech axlar enga ábyrgð Raymond Domenech, landsliðsþjálfari Frakka, segir að það sé undir leikmönnum sjálfum komið hvort Frakkland komist upp úr riðli sínum á HM eður ei. Frakkar gerðu markalaust jafntefli við Úrúgvæ í fyrsta leik og verða að vinna Mexíkó í kvöld. 17.6.2010 12:45
Tabarez hlær af Parreira Oscar Tabarez, landsliðsþjálfari Úrúgvæ, gefur lítið fyrir gagnrýni Carlos Alberto Parreira, landsliðsþjálfara Suður-Afríku, en sá var afar ósáttur við dómgæsluna í leik liðanna. 17.6.2010 12:15
Capello skilur ekkert í Beckenbauer Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, er ekki alls kostar sáttur við Þjóðverjann Franz Beckenbauer en hann sakar Þjóðverjann um að sýna enska liðinu ekki næga virðingu. 17.6.2010 11:36
Stórleikur í 1. umferð enska boltans Liverpool mætir Arsenal í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á næstu leiktíð. Dagskrá úrvalsdeildarinnar fyrir næstu leiktíð var kunngjörð í morgun. 17.6.2010 11:27
Ísland vann í Brasilíu Fyrri vináttuleikur Íslands gegn Brasilíu fór fram í nótt og lauk með naumum sigri íslenska liðsins, 30-33. 17.6.2010 11:21
Þjálfari Mexíkó búinn að skipta um fyrirliða fyrir Frakkaleikinn Javier Aguirre, þjálfari Mexikó, er búinn að ákveða að skipta um fyrirliða hjá liðinu. Rafael Marquez mun því bera fyrirliðabandið á móti Frökkum á morgun í staðinn fyrir Gerardo Torrado sem var fyrirliði í fyrsta leiknum á móti Suður-Afríku. 16.6.2010 23:30
Þjálfari Suður-Afríku brjálaður út í dómarann eftir leikinn Carlos Alberto Parreira var brjálaður út í svissneska dómarann Massimo Busacca eftir 3-0 tap Suður-Afríku á móti Úrúgvæ á Hm í Suður-Afríku í kvöld. 16.6.2010 23:00
Ásgeir og Ingimundur ekki með gegn Brasilíu í kvöld Ásgeir Örn Hallgrímsson og Ingimundur Ingimundarson munu ekki leika með íslenska landsliðinu í handbolta í kvöld þegar liðið mætir Brasilíu í æfingalandsleik í Balneário Camboriú í Brasilíu. Leikurinn hefst klukkan 23.00 að íslenskum tíma. 16.6.2010 22:30
Víkingar upp í annað sætið eftir sigur á Þrótti Víkingar unnu 1-0 sigur á Þrótti á Valbjarnavelli í eina leik kvöldsins í 1. deild karla en sigurinn skilaði lærisveinum Leifs Garðarssonar upp í annað sæti deildarinnar. 16.6.2010 22:05
Þjóðverjar og Serbar mega ekki æfa á keppnisvellinum "Vetrarveðrið" í Suður-Afríku er að hafa mikinn áhrif á undirbúning Þjóðverja og Serba fyrir leik þeirra í Port Elizabeth á föstudaginn. Það hefur rignt svo mikið undanfarna tvo daga að völlurinn myndi ekki þola þessar æfingar. 16.6.2010 21:30
Benítez segir að það rétta í stöðunni sé að ráða Dalglish Rafael Benítez, fyrrum stjóri Liverpool og núverandi stjóri Internazionale, segir að Liverpool eiga að ráða Kenny Dalglish sem eftirmann sinn og gleyma því að stela Roy Hodgson frá Fulham. 16.6.2010 21:00
Diego Forlan með tvö mörk í 3-0 sigri Úrúgvæ á heimamönnum Úrúgvæ vann 3-0 sigur á heimamönnum í Suður-Afríku í fyrsta leiknum í annarri umferð riðlakeppninnar á HM í Suður-Afríku í kvöld en tapið þýðir að gestgjafarnir eru komnir í mjög slæm mál í riðlinum. Diego Forlan skoraði tvö mörk fyrir Úrúgvæ í leiknum, eitt í hvorum hálfleik. 16.6.2010 20:20
Peter Crouch elskar Vuvuzela-(ó)hljóðin Peter Crouch er örugglega á annarri skoðun en flestir þegar kemur að Vuvuzela-lúðrunum því hinn stóri og stæðilegi framherji enska landsliðsins er mjög hrifinn af stemmingunni sem skapast á vellinum með lúðrunum. 16.6.2010 20:00
Yaya Toure færist nær City Yaya Toure er við það að semja við Manchester City. Gengið verður frá kaupunum á honum frá Barcelona eftir að hann kemur heim af HM. 16.6.2010 19:30
Sol Campbell: Eitt ár hjá Arsenal eða tvö hjá Celtic Sol Campbell stendur frammi fyrir þeirri ákvörðun að velja á milli eins árs samning við Arsenal og tveggja ára samnings við Celtic í Skotlandi. 16.6.2010 18:45
Phil Jackson fær 256 milljónir í bónus ef Lakers vinnur titilinn Phil Jackson, þjálfari Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta, fær veglegan bónus fyrir að gera Lakers-liðið að NBA-meisturum annað árið í röð. 16.6.2010 18:00
Diego Maradona: Pele á heima á safni Diego Maradona, þjálfari Argentínu svaraði Pele fullum hálsi á blaðamannafundi í dag. Pele hafði látið það frá sér á dögunum að eina ástæðan fyrir því að Maradona hafi tekið að sér að þjálfa argentínska landsliðið væri að hann hefði vantað peninginn. 16.6.2010 17:15
Enginn hefur tapað fyrsta leik og orðið heimsmeistari Evrópumeistarar Spánverja þurfa að endurskrifa söguna ætli þeir sér að vinna heimsmeistaratitilinn í Suður-Afríku. Þetta var ljóst eftir að spænska liðið tapaði 0-1 í fyrsta leiknum sínum sem var á móti Svisslendingum í dag. 16.6.2010 16:30
Svisslendingar lögðu Evrópumeistarana Þau ótrúlegu úrslit voru að eiga sér stað að Sviss vann Spán á HM í knattspyrnu. Úrslitin 1-0 í ótrúlegum leik. 16.6.2010 15:48
Tala ætti við markmenn við hönnun fótbolta Sven Göran Eriksson, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, segist styðja þá hugmynd að markverðir verði með í ráðum þegar fótboltar eru hannaðir. 16.6.2010 15:30
Slök vörn Englendinga er veikleikinn þeirra Slök vörn Englendinga er eitthvað sem við getum nýtt okkur. Þetta er kalt mat varnarmannsins Nadir Belhadj, sem spilar með landsliði Alsír. 16.6.2010 15:00
P. Diddy vill eignast knattspyrnufélag á Englandi Diddy, eða P Diddy nú eða Puff Daddy, Puff eða hans rétta nafn Sean John Combs, neitaði tilboði um að kaupa enska knattspyrnufélagið Crystal Palace. 16.6.2010 14:30
Veron meiddur - Eina breyting Maradona Juan Sebastian Veron verður ekki með Argentínu í leiknum gegn Suður-Kóreu á morgun. Hann er meiddur á kálfa. 16.6.2010 14:00
Dalglish lykillinn að því að halda Gerrard og Torres "Ef hetja eins og Kenny Dalglish er við stjórnvöldin er auðveldara fyrir Liverpool að halda stjörnunum Steven Gerrard og Fernando Torres." Þetta segir Peter Beardsley. 16.6.2010 14:00
Chile skoraði bara eitt í öruggum sigri á Hondúras Chile vann góðan sigur á Hondúras í fyrsta leik HM í dag. Leikmenn Chile náðu á einhvern ótrúlegan hátt að skora aðeins eitt mark gegn slöku liði Hondúras. 16.6.2010 13:20
Casillas segir engin lítil lið vera á HM Spænski markmaðurinn Iker Casillas segir að Evrópumeistararnir vanmeti engan á HM. Fyrsti leikur Spánar á HM hefst klukkan 14 þegar það mætir Sviss. 16.6.2010 13:00
Gareth Barry byrjar gegn Alsír Gareth Barry verður í byrjunarliði enska landsliðsins gegn Alsír á föstudaginn. Þetta hefur Fabio Capello staðfest. 16.6.2010 12:00
FIFA ánægt með mætinguna á HM "Við erum nokkuð ánægðir til þessa," segja forsvarsmenn FIFA um mætingu á leiki í Suður-Afríku. Hún hefur verið æði misjöfn, eins og gengur og gerist. 16.6.2010 11:30
Alonso: Erum með í titilbaráttunni Spánverjinn Fernando Alonso telur að Ferrari sé enn inn í myndinni varðandi meistaraslaginn í Formúlu 1, jafnvel þó hann hafi aðeins unnið einn sigur á keppnistímabilinu. Hann vann fyrsta mót ársins. 16.6.2010 11:23
Glæsimark Maicon: Heppni eða snilld? - Myndband Maicon skoraði frábært mark fyrir Brasilíu í 2-1 sigrinum á Norður-Kóreu í gær. Markið skoraði hann úr ómögulegri stöðu. 16.6.2010 11:00
Ronaldo kvartar - Orðsporið fer með hann Cristiano Ronaldo kvartar og kveinar í fjölmiðlum í dag yfir meðferðinni sem hann hlaut í leiknum gegn Fílabeinsströndinni. Kappanum fannst hann ekki fá næga vernd hjá dómurunum. 16.6.2010 10:30
Lykilmenn tæpir fyrir fyrsta leik HM í dag Hondúras og Chile hefja leik á HM í dag. Leikurinn hefst klukkan 11.30 en margir sterkir leikmenn eru í báðum liðum. 16.6.2010 10:00
Torres á bekknum hjá Spáni í dag Allar líkur eru á því að Fernando Torres verði að verma varamannabekk Spánverja í Suður-Afríku. Evrópumeistararnir hefja leik í dag, gegn Sviss klukkan 14.00. 16.6.2010 09:30
Niðurlæging í nótt - Boston og Lakers spila hreinan úrslitaleik Los Angeles Lakers gerði lítið úr Boston Celtics í sjötta leik liðanna í nótt. Boston gat tryggt sér titilinn en var aldrei líklegt til þess. Lokatölur 89-67. 16.6.2010 09:00
Markaveisla meistara Vals - myndasyrpa Íslands- og bikarmeistarar Vals í kvennafótboltanum sýndu mátt sinn á Vodfone-vellinum í gær þegar Valskonur unnu 10-0 sigur á Aftureldingu í 7. umferð Pepsi-deildar kvenna. 16.6.2010 08:30
Dunga: Þetta snýst bara um að ná árangri Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu var ánægður með 2-1 sigur liðsins á Norður-Kóreu í fyrsta leik sínum á HM í Suður-Afríku í kvöld. 15.6.2010 23:30
Ásgrímur Helgi: Þetta er bara slys „Nákvæmlega ekki neitt hægt að segja eftir svona leik. Við vorum hreinlega bara ekki með hér í kvöld," sagði Ásgrímur Helgi Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir að hans lið steinlá 10-0 fyrir Val í sjöundu umferð Pepsi-deildar kvenna. 15.6.2010 23:01
Boston Celtics getur unnið átjánda NBA-meistaratitilinn í nótt Boston Celtics getur tryggt sér NBA-meistaratitilinn í annað skipti á þremur árum og í 18. skipti frá upphafi þegar liðið sækir Los Angeles Lakers heim í sjötta leik liðanna í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta en leikurinn fer fram í nótt. 15.6.2010 23:00
Cristiano Ronaldo ekki búinn að skora í tíu landsleikjum í röð Cristiano Ronaldo lék í dag tíunda landsleikinn sinn í röð án þess að ná að skora en Ronaldo og félagar í Portúgal náðu aðeins markalausu jafntefli á móti Fílabeinsströndinni í fyrsta leik sínum á HM í Suður-Afríku. 15.6.2010 22:07
Umfjöllun: Markasúpa í boði Valsstúlkna á Vodafone-vellinum Valsstúlkur svöruðu kallinum í kvöld eftir smá bakslag og rústuðu Aftureldingu 10-0 er liðin mættust í sjöundu umferð Pepsi-deildar kvenna. Það mætti aðeins eitt lið til leiks og það voru heimastúlkur. 15.6.2010 21:45
Úrslit kvöldsins í Pepsi-deild kvenna Eftir tvö jafntefli í röð sýndu Valskonur mátt sinn í 10-0 risasigri á Aftureldingu á Vodafone-vellinum í kvöld. Blikastúlkur komust aftur upp í annað sætið eftir 3-1 sigur á botnliði FH. 15.6.2010 21:14
Brasilíumenn í vandræðum með Norður-Kóreu en unnu 2-1 Brasilíumenn unnu 2-1 sigur á Norður-Kóreu í fyrsta leik sínum á HM í Suður-Afríku. Norður-Kóreumenn komu mörgum á óvart með góðri frammistöðu og það er ljóst á leiknum í kvöld að Norður-Kórea er sýnd veiði en ekki gefin í dauðariðlinum. 15.6.2010 20:18
Andres Iniesta getur spilað með Spánverjum á morgun Spánverjar eiga að geta teflt fram sínu besta liði í fyrsta leik sínum á HM í Suður-Afríku á morgun en Evrópumeistararnir mæta þá Svisslendingum. Andres Iniesta er orðinn góður af meiðslunum og því tilbúinn í leikinn. 15.6.2010 20:00