Fleiri fréttir

Fjórtán leikmenn í NBA þéna yfir milljarð á ári

Bestu leikmennirnir í NBA deildinni í körfubolta eru ekki á neinum sultarlaunum. Hér fyrir neðan er listi yfir 25 tekjuhæstu leikmenn í NBA í ár, en þessar tölur eru aðeins byggðar á launum þeirra frá félögum sínum.

Bikarmeistararnir mæta Fram

Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslit í Eimskipsbikarnum í handbolta og þar verða tveir stórleikir. Þá varð ljóst að amk eitt lið utan N1 deildarinnar kemst í undanúrslitin.

Terry klár gegn Króötum?

Svo gæti farið að John Terry sneri óvænt aftur í enska landsliðið fyrir leikinn mikilvæga gegn Króötum á miðvikudaginn, en hann hefur ekki spilað síðan í síðasta mánuði vegna meiðsla.

Sms-skilaboðunum rigndi yfir Ben-Haim

Ensku landsliðsmennirnir voru vitanlega ánægðir þegar Ísraelar lögðu Rússa í undankeppni EM á laugardaginn en það þýddi að enska liðið á enn möguleika á að tryggja sér sæti á EM.

Skotar vilja framlengja við McLeish

Skoska knattspyrnusambandið er sagt hafa fullan áhuga á að framlengja samning þjálfarans Alex McLeish fram yfir árið 2010 þegar núverandi samningur hans rennur út.

Glock ráðinn ökumaður Toyota

Lið Toyota í Formúlu 1 gekk í dag frá ráðningu þýska ökuþórsins Timo Glock fyrir næsta tímabil. Glock ók fjórar keppnir fyrir Jordan liðið árið 2004 og verður félagi Jarno Trulli hjá Toyota á næsta tímabili. Hann er 25 ára gamall og var áður reynsluökumaður hjá BMW Sauber, en fyllir nú skarð landa síns Ralf Schumacher hjá Toyota.

Hafa fulla trú á Morten Olsen

Þjálfarar í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru á einu máli um að Morten Olsen eigi að sitja áfram sem þjálfari danska landsliðsins þó það tryggi sér ekki sæti á EM í knattspyrnu.

Glæsimark Kaka dugði skammt

Miðjumaðurinn Kaka skoraði glæsilegt mark af 30 metra færi í gærkvöld en það dugði Brasilíumönnum ekki í 1-1 jafntefli liðsins gegn Perú í undankeppni HM í Suður-Ameríku.

Healy stoltur af markametinu

Norður-írski framherjinn David Healy sló á laugardaginn 12 ára gamalt markamet Króatans Davor Suker þegar hann skoraði 13. mark sitt í undankeppni EM og tryggði Norður-Írum sigur á Dönum á Windsor Park.

Ofurlið Chicago féll líka fyrir Orlando

Mikið hefur verið rætt um góða byrjun Boston Celtics í NBA deildinni í haust en liðið tapaði sínum fyrsta leik fyrir Orlando í nótt. Sumir voru byrjaðir að líkja liði Boston við ógnarsterkt lið Chicago Bulls sem vann 72 leiki í deildarkeppninni fyrir 12 árum.

Fyrsta tap Boston Celtics

Boston Celtics tapaði fyrsta leik sínum í NBA deildinni í nótt þegar liðið lá naumlega fyrir Orlando á útivelli í æsispennandi og sveiflukenndum leik 104-102.

Vignir sjötti markahæsti í Danmörku

Eftir leiki helgarinnar í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta er landsliðsmaðurinn Vignir Svavarsson í sjötta sæti yfir markahæstu menn. Vignir leikur með Skjern á Jótlandi og hefur skorað 57 mörk í 10 leikjum. Hann er eini Íslendingurinn sem kemst á lista 20 markahæstu manna í deildinni.

Fram mistókst að grípa toppsætið

Haukar og Fram gerðu jafntefli í N1-deild kvenna í dag, 24-24. Fram er nú við hlið Stjörnunnar á toppi deildarinnar en með lakara markahlutfall.

Stórsigur GOG

GOG Svendborg vann í dag tólf marka sigur á Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, 37-25, á útivelli.

Fram upp að hlið HK

Fram hélt sínu striki í toppbaráttunni í N1-deild karla dag með öruggum sigri á Akureyri, 30-22.

Naumur sigur FCK á HK

HK tapaði í dag fyrir FCK frá Danmörku, 26-24, í fyrri leik liðanna í EHF-bikarkeppninni í handbolta í Digranesi.

McLeish vill setja dómarann í bann

Alex McLeish, landsliðsþjálfari Skota, er allt annað en sáttur við spænska dómarann Mejuto Gonzalez sem dæmdi leik Skotlands og Ítalíu í undankeppni EM 2008 í gær.

Viðar Guðjónsson til Fylkis

Viðar Guðjónsson hefur gengið til liðs við Fylki og skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Birgir Leifur: Fyrsta markmiðinu náð

Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur sagðist í samtali við Vísi vera afar sáttur við sína stöðu á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi.

Steve Bruce að taka við Wigan

Allt útlit er fyrir að Steve Bruce taki við Wigan á allra næstu dögum en Dave Whelan, eigandi liðsins, sagði að allir aðilar væru búnir að ná samkomulagi um það.

Donadoni réð sér ekki af kæti

Roberto Donadoni, landsliðsþjálfari Ítalíu, segir að hann hafi ekki getað haldið aftur af tilfinningum sínum eftir sigur sinna manna í Skotlandi í gær.

NBA í nótt: Phoenix vann Houston

Phoenix Suns vann sinn fimmta leik í röð í nótt þegar liðið vann góðan sigur á Houston Rockets, 115-105. Þetta var hins vegar fjórði tapleikur Houston í röð en þeir sakna greinilega Tracy McGrady sárt en hann er frá vegna meiðsla.

Fjögur sæti enn laus á EM

Vísir fylgist grannt með gangi mála á næstsíðasta leikdegi í undankeppni EM 2008, allt frá því þegar fyrsti leikurinn er flautaður á klukkan 14.00 og sá síðasti flautaður af undir miðnætti í kvöld.

Norður-Írar unnu Dani

Norður-Írland gerði sér lítið fyrir og vann Danmörku á Windsor Park í kvöld, 2-1. David Healy skoraði sigurmark leiksins, nema hvað.

McClaren í sjöunda himni

Steve McClaren er vitanlega hæstánægður með úrslit í leik Ísraels og Rússlands. Sigur Ísraela þýðir að England á enn möguleika á að komast í úrslitakeppni EM 2008.

Pólland, Króatía og Holland á EM

Þrjú lið hafa bæst í þann hóp liða sem hafa tryggt sér sæti á EM í Austurríki og Sviss á næsta ári. Aðeins eru fjögur sæti nú laus.

KR vann Hauka

Í dag fóru fram þrír leikir í Iceland Express deild kvenna. Íslandsmeistarar Hauka töpuðu á útivelli fyrir KR, 88-81.

Ísraelar redduðu Englendingum

Ísrael vann í dag 2-1 sigur á Rússlandi í undankeppni EM 2008. Sigur Rússa hefði þýtt að England ætti engan möguleika að komast í úrslitakeppnina í Austurríki og Sviss á næsta ári.

Eiður verður ekki með í góðgerðarleiknum

Eiður Smári Guðjohnsen mun ekki leika í góðgerðarleik sem fer fram á mánudag. Leikurinn er háður til stuðnings baráttunni gegn hungri, eftir því sem fram kom í fréttum RÚV í kvöld. Ástæðan er sú að Eiður hyggst einbeita sér að æfingum með Barcelona. Fram kom á vefsíðu Barcelona í dag að Eiður hefði beðist undan þátttöku í landsleik Íslendinga og Dana af sömu ástæðu.

Haukar á toppinn

Haukar tylltu sér á topp N1-deildar karla með stórsigri á ÍBV í Vestamannaeyjum, 37-23.

Afar óvænt tap hjá Stjörnunni

Afar óvænt úrslit urðu í N1-deild kvenna í dag er Íslandsmeistarar Stjörnunnar töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu er liðið lá fyrir FH, 26-25.

Finnar sluppu með skrekkinn gegn Aserum

Finnar skoruðu tvö mörk á síðasta korterinu gegn Aserbaídsjan í undankeppni EM 2008 í dag. Þar með eru vonir liðsins um að komast í úrslitakeppnina enn á lífi.

Eiður fékk frí til að æfa með Barcelona

Á heimasíðu Barcelona í dag segir að Eiður Smári Guðjohnsen hafi beðið Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara um frí til að einbeita sér að æfingum með Barcelona.

Helena lék vel í sigri TCU

Helena Sverrisdóttir átti góðan leik er háskólalið hennar í Bandaríkjunum, TCU, vann stórsigur á Delaware í gær, 66-36.

NBA í nótt: Boston enn taplaust

Tólf leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Boston Celtics vann sinn áttunda leik í röð þegar liðið vann nauman sigur á Miami Heat, 92-91, í æsispennandi leik.

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari í dag

Birgir Leifur Hafþórsson gaf aðeins eftir í baráttunni á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi en stendur engu að síður vel að vígi eftir þrjá keppnisdaga.

Tilþrifalítill sigur Englendinga - Owen meiddur

Englendingar lögðu Austurríkismenn 1-0 í æfingaleik þjóðanna í knattspyrnu í kvöld. Sigur Englendinga var ekki sérlega glæsilegur en Peter Crouch skoraði sigurmarkið með skalla á síðustu mínútu fyrri hálfleiksins.

Sjá næstu 50 fréttir