Fótbolti

Eiður fékk frí til að æfa með Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári á æfingu með Barcelona.
Eiður Smári á æfingu með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Á heimasíðu Barcelona í dag segir að Eiður Smári Guðjohnsen hafi beðið Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara um frí til að einbeita sér að æfingum með Barcelona.

Á mánudag mun hann svo taka þátt í góðgerðarleik sem teflir fram úrvalsliðum Zinedine Zidane og Brasilíumannsins Ronaldo. Ágóði af leiknum rennur til baráttunnar gegn hungri.

Er það í fimmta skipti sem slík viðureign fram en leikurinn í ár fer fram á Malaga á Spáni. Ásamt Eiði Smára mun Victor Valdes, markvörður Barcelona, taka þátt í leiknum.

Á þriðjudaginn mun svo Eiður Smári snúa aftur til æfinga hjá Barcelona.

Ólafur sagði að það væru persónulegar ástæður fyrir því að Eiður Smári hefði dregið sig úr landsliðshópnum sem mætir Dönum á miðvikudag. Hvorki hann né Eiður Smári hafa viljað fara nánar út í ástæðurnar í samtölum við fjölmiðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×