Fleiri fréttir

Sex marka stórsigur Liverpool

Nú er öllum leikjum dagsins lokið nema einum. Liverpool vann stórsigur á Derby 6-0. West Ham vann svo góðan útisigur á Reading 0-3. Úrslit dagsins og markaskorarar eru hér fyrir neðan.

Ferguson rétt marði Keane

Alex Ferguson og hans menn í Manchester United rétt mörðu sigur á Roy Kene og hans mönnum í Sunderland á Old Trafford í dag. Louis Saha skoraði eina mark leiksins og sitt fyrsta síðan hann meiddist í desember á síðasta ári. Leikmenn United voru mun meira með boltann en sköpuðu ekki mörg opin marktækifæri. United er komið með 8 stig eftir fimm leiki og tvo sigra í röð. Sunderland er hins vegar með 4 stig og hefur tapað þremur í röð.

Dregið í deildarbikarnum

Búið er að draga í þriðju umferð enska deildarbikarsins. Helstu tíðindin úr dráttinum eru sú að Manchester United mun leika gegn Coventry, Liverpool gegn Reading, Arsenal við Newcastle og Chelsea við Hull. Dráttinn í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

Beckham er með 1,3 milljónir kr. á mínútu

Nú bendir allt til þess að tímabilið sé búið hjá David Beckham. Hann meiddist á hné í úrslitaleik bikarkeppninnar í Bandaríkjunum. Strax eru farnar að heyrast raddir þar í landi sem segja að kaup LA Galaxy á Beckham hafi verið dýrt spaug. Því til stuðnings er það nefnt að Beckham fær um 414 milljónir króna á ári í laun frá Galaxy. Það eru 6.5 milljón dollarar. Beckham hefur leikið í sex leikjum fyrir LA Galaxy á þessu ári, alls í 310 mínútur.Fari það svo, eins og allt lítur út fyrir, að Beckham leiki ekki meira á þessu ári hefur LA Galaxy þurft að greiða Beckham 133 þúsund krónur fyrir hverja einustu mínútu sem hann hefur spilað. Það eru 21 þúsund dollarar.

Video: Grétar skoraði fyrir AZ Alkmaar

Grétar Rafn Steinsson skoraði skondið mark fyrir lið sitt, AZ Alkmaar, í 3-0 sigri liðsins á Excelsior í hollensku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Mark Grétars kom á 45 mínútu eftir hornspyrnu. Þú getur séð markið hér.

Öll félagaskipti gærdagsins

Á miðnætti lokaði félagaskiptaglugganum og því verða fleiri leikmenn ekki keypti né seldir þar til í janúar þegar glugginn opnar aftur. Fjölmörg viðskipti fóru fram í gær en markverðust þeirra verða að teljast kaup Arsenal á Lassana Diarra frá Chelsea. Annars er öllum viðskiptum dagsins gerð skil hér fyrir neðan.

Gylfi Einarsson hættur hjá Leeds

Landsliðsmaðurinn Gylfi Einarsson hefur verið leystur undan samningi sínum við enska 2. deildarfélagið Leeds United að því er segir á heimasíðu félagsins.

Í beinni: Öll leikmannakaup dagsins - Paul Dickov til Crystal Palace

Í dag er síðasti dagurinn sem liðin í ensku knattspyrnunni geta keypt og selt leikmenn og þvi er búist við því að nóg verði um að vera. Á miðnætti lokar félagaskiptaglugganum og opnast hann ekki aftur fyrr en í janúar. Fylgstu með öllum félagaskiptum dagsins hér. Það verður nóg um að vera. Fréttin er uppfærð um leið og eitthvað nýtt gerist.

AC Milan meistarar meistaranna

AC Milan sigraði í kvöld Sevilla í viðureign Evrópumeistara meistaraliða og Evrópumeistara félagsliða með þremur mörkum gegn einu. Þetta er í fimmta sinn sem að AC Milan vinnur þennan titil.

ÍBV sigraði Víking Ó. - Fjarðabyggð tapaði fyrir Leikni

Fjórir leikir fóru fram í fyrstu deild karla í kvöld. ÍBV heldur ennþá í vonina um að komast upp í Landsbankadeildina eftir að hafa sigrað Víking Ó. með þremur mörkum gegn einu. Fjarðabyggð tapaði fyrir Leikni á heimavelli og þar með minnkuðu möguleikar liðsins á að komast upp til muna.

Grétar Rafn skoraði í sigri AZ Alkmaar

Grétar Rafn Steinsson skoraði annað mark AZ Alkmaar þegar liðið sigraði Excelsior Rotterdam í hollensku úrvalsdeildinni með þremur mörkum gegn engu. Grétar Rafn skoraði markið á 44. mínútu. AZ Alkmaar er komið með sex stig eftir þrjá leiki í deildinni og er í fimmta sæti.

Birgir úti í kuldanum eins og er

Birgir Leifur Hafþórsson mátti sætta sig við að fá skolla á síðustu holunni sinni í dag og því bendir allt til þess að hann muni ekki komast í gegnum niðurskurðinn en fleiri kylfingar eiga enn eftir að ljúka leik. Birgir kom í hús í dag á einu höggi yfir pari eða samtals á 74 höggum en hann lék á parinu í gær eða á 73 höggum.

Nánasti aðstoðarmaður Benitez hættur hjá Liverpool

Hægri hönd og nánasti samstarfsmaður Rafael Benitez, kanttspyrnustjóra Liverpool, hefur sagt upp störfum. Paco Ayesteran hefur fylgt Benitez allt frá því að hann þjálfaði Tenerife og síðan Valencia og hefur staðið þétt við hans lið þau ár sem Benitez hefur verið við stjórnvölinn á Anfield. Þetta þykir mikið áfall fyrir Benitez sem nú leitar logandi ljósi að eftirmanni Ayesteran.

Lampard meiddist á æfingu

Frank Lampard, miðjumaður Chelsea, meiddist á æfingu í dag og talið er að hann rifið lærvöðva. Lampard þurfti að yfirgefa æfinguna þegar stutt var eftir og var sendur á sjúkrahús þar sem skoðað er hversu alvarleg meiðslin eru.

Video: Fékk 22 leikja bann fyrir að ráðast á línuvörð

Það er ekki bara á Íslandi sem að leikmenn gera sig seka um að ráðast á dómara því að fyrrverandi landsliðsmaður Rúmeníu, Ionel Ganea, hefur verið dæmdur í 22 leikja bann fyrir að ráðast á línuverð í heimalandinu. Atvikið átti sér stað í leik Politehnica Stiinta Timisoara og Rapid Bucharest en Gueana er leikmaður fyrrnefnda liðsins. Ganea var einnig dæmdur til að borga 374 þúsund krónur í sekt.

Eiður Smári ekki seldur í dag

"Eiður Smári verður ekki seldur í dag, það er alveg ljóst." Þetta segir Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, leikmanns Barcelona. Alþjóðlegi félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti í kvöld og hefur Eiður Smári verið orðaður við fjölda liða víða um Evrópu sem öll eru sögð vilja tryggja sér kappann. Meðal þeirra eru Portsmouth, West Ham, Celtic, Newcastle og Galatasaray.

Dregið í UEFA bikarnum - Tottenham fer til Kýpur

Nú rétt í þessu var dregið í UEFA bikarnum. Fjögur ensk lið voru í pottinum. Tottenham mætir Anorthosis Famagusta frá Kýpur, Balcburn mætir Larissa frá Grikklandi, Bolton mætir FK Rabotnicki frá Makedóníu og Everton mætir Metalist Kharkiv frá Úkraínu. Drátturinn í heild sinni er hér fyrir neðan.

Meiddur Eiður í landsliðshópnum

Eyjólfur Sverrisson valdi rétt í þessu 22 manna hóp sem mætir Spánverjum og Norður-Írum 8. og 12. september. Sverrir Garðarsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson eru í hópnum ásamt þeim Ólafi Inga Skúlasyni og Ármanni Smára Björnssyni. Þá er Eiður Smári Guðjohnson valinn þrátt fyrir að eiga enn við meiðsli að stríða.

Baldur farinn frá Keflavík

Hinn öflugi leikmaður Keflvíkinga, Baldur Sigurðsson, er á leiðinni til norska 2. deildar liðsins Bryn og mun ekki leika meira Keflvíkingum í Landsbankadeildinni í sumar. Faðir Baldurs staðfesti þetta við íþróttadeild Stöðvar 2 nú rétt í þessu. Heimildir íþróttadeildarinnar herma einnig að fleiri leikmenn Keflavíkur séu við það að yfirgefa félagið til að gangast til liðs við félög erlendis.

Rússi kaupir hlut Dein í Arsenal

David Dein, fyrrverandi varaformaður Arsenal, hefur selt 14,5% hlut sinn í félaginu til rússneska auðkýfingsins Alisher Usmanov fyrir 75 milljónir punda eða 9,75 milljarða íslenskra króna. Lítil ánægja ríkir meðal annarra hlutahafa Arsenal með ákvörðun Deins.

Beckham frá það sem eftir er keppnistímabilsins

Hnéskaði David Beckham virðist vera alvarlegri en í fyrstu var talið og nú berast þær fregnir úr herbúðum Los Angeles Galaxy að stjarnan muni vera frá næstu 4-6 vikurnar eða það sem eftir er af keppnistímabilinu í Bandaríkjunum.

Blackburn tryggir sér sæti í riðlakeppninni

Enska úrvalsdeildarliðið Blackburn tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni Evrópukeppnis félagsliða með 2-0 sigri á MyPa. Blackburn vann fyrri leikinn á útivelli 1-0 og því samanlagt 3-0. David Bentley og og Jason Roberts skoruðu mörk Blackburn.

Jafntefli í Laugardalnum

Fram og Keflavík gerðu 2-2 jafntefli í kvöld á Laugardalsvellinum í 15. umferð Landsbankadeildar karla. Hjálmar Þórarinsson kom Fram yfir á 7. mínútu en Guðmundur Steinarsson jafnaði fyrir Keflvíkinga á 23. mínútu. Þórarinn B. Kristjánsson kom svo Keflvíkingum í 2-1 á 52. mínútu en Jónas Grani Garðarsson jafnaði á 81. mínútu.

Gravesen aftur til Everton

Danski miðjumaðurinn Thomas Gravesen mun spila með sínu gamla félagi Everton út tímabilið. Gravesen er samningsbundinn skoska liðinu Celtic en hefur verið lánaður til Everton. Leikmaðurinn hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Celtic eftir að hann kom til liðsins frá Real Madrid í fyrra. Gravesen lék í fimm ár með Everton áður en hann fór til Real Madrid.

Ásgeir Gunnar með þrennu í stórsigri FH á KR

Þremur leikjum er lokið af fjórum í 15. umferð Landsbankadeildar karla. FH burstaði KR á heimavelli 5-1 þar sem Ásgeir Gunnar Ásgeirsson skoraði þrennu, Fylkir sigraði HK í Kópavog 2-1 og Skagamenn sigrðu Breiðablik á Akranesi með tveimur mörkum gegn einu. Fram tekur svo á móti Keflavík í síðasta leik kvöldsins og hefst hann klukkan 20:00.

Kluivert er á leiðinni til Lille

Hollenski framherjinn Patrick Kluivert er á leiðinni til franska 1. deildar liðsins Lille. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Kluivert, sem er 31 árs gamall, lék með PSV Eindhoven í heimalandinu á síðustu leiktíð en honum var ekki boðinn nýr samningur þar. Kluivert hafði einnig verið orðaður við enska liðið Sheffield Wednesday.

Barcelona dróst í riðil með Lyon og Stuttgart

Dregið var í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í Frakklandi í dag. Dregið var í átta riðla með fjórum liðum í hverjum riðli. Einnig voru veitt verðlaun fyrir besta markvörðinn, varnarmanninn, miðjumanninn og sóknarmanninn sem að þjálfarar liðanna völdu. Drátturinn var í beinni útsendingu á Vísi.is.

Birgir: Ætla mér að vera undir parinu

Birgir Leifur Hafþórsson lauk leik á parinu í dag á Johnny Walker mótinu í Skotlandi. Hann hefur einu sinni áður leikið Gleneagles völlinn sem hannaður var af Jack Nicklaus en það var fyrir sex árum sem Birgir lék völlinn síðast. Birgir sagði í samtali við Kylfing.is að aðstæður hefðu verið fínar í morgun, nánast enginn vindur og þægilegar vallaraðstæður.

Eto´o frá í tvo mánuði

Samuel Eto´o, sóknarmaðurinn sterki í liði Barcelona, verður frá í tvo mánuði eftir að hafa meiðst á hægra læri í gærkvöldi. Eto´o kom inn á sem varamaður í gærkvöldi í 5-0 sigri í vináttuleik við Inter en haltraði af velli skömmu síðar. Eto´o er 26 ára gamall og fæddur í Kamerún.

Del Nido: Puerta verður ávallt tólfti leikmaður Sevilla

Leikurinn um Super Cup, þar sem sigurvegararnir í Evrópukeppni meistaraliða og félagsliða mætast verður leikinn á morgun í Mónakó til minningar og heiðurs Antonio Puerta, sem lést á þriðjudaginn eftir hjartaáfall. Puerta var leikmaður Sevilla og hefði sjálfur spilað leikinn ef ekki hefði verið fyrir hið hrikalega hjartaáfall sem dró hann til dauða.

Enskur fótboltkappi handtekinn í heróínhúsleit

Enski knattspyrnumaðurinn Zat Knight var í gær handtekinn í húsi móður sinnar eftir að breska lögreglan hafði framkvæmt húsleit á heimili hennar vegna gruns um að þar væri heróín að finna. Eftir að hafa eytt sex klukkutímum í varðhaldi þá var hann kynntur til leiks sem nýjasti leikmaður Aston Villa.

Óheppnin eltir Beckham á röndum

Óheppnin eltir fótboltastjörnuna David Beckham en hann meiddist á hné og þurfti að fara af velli í úrslitaleiknum í Amerísku meistaradeildinni í gær. Í framhaldinu tapaði lið hans Los Angeles Galaxy leiknum á móti mexíkanska liðinu Pachuca 4:3 eftir vítaspyrnukeppni.

Arsenal í riðlakeppnina - Ajax dottið út

Þriðja umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu kláraðist í kvöld ef að frá er talinn leikur AEK Aþenu og Sevilla sem var frestað vegna andláts Antonio Puerta, leikmanns Sevilla. Arsenal komst auðveldlega áfram eftir öruggan sigur á Sparta Prag en athygli vekur að Ajax datt út á móti Slavia Prag.

Owen skoraði fyrir Newcastle

Önnur umferð deildarbikarsins á Englendi kláraðist í kvöld með þremur leikjum. Úrvalsdeildarliðin Newcastle, Manchester City og Middlesbrough tryggðu sér öll sæti í 3. umferð keppnarinnar með sigri á neðrideildarliðum.

Gummersbach tapaði fyrir Rhein-Neckar-Löwen

Þrír leikir fóru fram í þýska handboltanum í kvöld. Íslendingaliðið Gummersbach steinlá fyrir Rhein-Neckar-Löwen á heimavelli, 23-32, Göppingen sigraði Wetzlar 31-21 á heimavelli og Füchse Berlín tapaði á heimavelli fyrir Nordhorn, 26-32.

Leikmaður lætur lífið í æfingarleik í Ísrael

Framherji 2. deildar liðsins Hapoel Beer Sheva í Ísrael, Chasve Nsofwa, lét lífið í dag eftir af hafa skyndilega fallið til jarðar í æfingaleik í Suðurhluta landsins í dag. Nsofwa var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn 40 mínútum síðar. Ekki er vitað um dánarorsök mannsins.

Rafmagnslaust í Þrándheimi

Leikur Rosenborg og Tampere í forkeppni meistaradeildarinnar er ekki hafinn í Þrándheimi. Ástæðan er sú að rafmagnslaust er í stórum hluta Þrándheims. Svo gæti farið að leiknum verði frestað til morguns. Rosenborg vann fyrri leikinn 3-0 í Finnlandi og því nær öruggt með að komast í meistaradeildina.

Sunderland kaupir Jones fyrir sex milljónir

Sunderland hefur gengið frá kaupum á framherjanum Kenwyne Jones frá Southampton. Sunderland borgar sex milljónir punda fyrir leikmanninn auk þess sem framherjinn Stern John fer til Southampton sem hluti af kaupunum. Jones óskaði eftir því í síðustu viku að hann yrði seldur frá Southampton og var hann strax orðaður við Sunderland og Derby.

Gummersbach í vandræðum

Þrír leikir eru í þýska handboltanum í kvöld og er hálfleikur í öllum leikjunum. Íslendingaliðið Gummersbach er undir á heimavelli gegn Rhein-Neckar-Löwen, staðan er 10-15. Göppingen er að bursta Wetzlar 15-5 og Nordhorn hefur forystu gegn Füchse Berlín, staðan þar er 18-13.

Dynamo Kiev og Shaktar Donetsk í riðlakeppni Meistaradeildarinnar

Dynamo Kiev og Shaktar Donetsk tryggðu sér í dag þátttökurétt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Dynamo Kiev lagði Sarajevo á heimavelli með þremur mörkum gegn engu, samtals 4-0. Shaktar Donetsk sigraði Salzburg 3-1 á heimavelli í dag og því samanlagt 3-2.

Verður Cannavaro seldur til AC Milan áður en glugginn lokar?

Vaxandi orðrómur er bæði á Ítalíu og á Spáni um að Fabio Cannavaro, varnarmaður Real Madrid, gæti verið seldur til AC Milan áður en leikmannaglugginn lokar á föstudaginn. Þessi 33 ára gamli Ítali hefur margoft sagt að hugur hans sé hjá Spánarmeisturunum en oðrómur er um að hann sé falur fyrir sjö milljónir evra.

Riguelme til Madríd?

Juan Roman Riquelme, miðjumaður Villareal, hefur samþykkt að skrifa undir tveggja ára samning við Atletico Madrid samkvæmt spænsku útvarpsstöðinni Cadena Ser. Engin opinber tilkynning hefur komið frá klúbbunum en útvarpsstöðin segist hafa heimildarmann sem er náinn leikmanninum.

Úrtökumót fyrir evrópsku mótaröðina

Nokkrir af okkar bestu kylfingum hafa verið að reyna fyrir sér í atvinnumennsku og margir hafa reynt að komast inn á evrópsku mótaröðina og hafa einungis tveir einstaklingar komist þar inn með fullan þátttökurétt en það var Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir. Hvað þarf til að taka þátt í þessum mótum og hvernig er hægt að komast inn á evrópsku mótaröðina.

Hjartað í Clarke stoppaði tvisvar í gær

Hjartað í Clive Clarke, leikmanni Leicester, stoppaði tvisvar í gær eftir að hann hann féll niður í hálfleik í leik Leicester og Nottingham Forest í deildarbikarnum í gær. Leikmaðurinn er nú á sjúkrahúsi á meðan læknar reyna að komast að því hvað olli því að hjartað í honum stoppaði.

Aston Villa kaupir Zat Knight

Aston Villa er búið að kaupa varnarmanninn Zat Knight frá Fulham. Villa borgar 3,5 milljónir punda fyrir leikmanninn sem skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið. Zat Knight hefur alltaf haldið með Aston Villa enda er hann frá Birmingham, og hann segist vera himinlifandi með að hafa samið við félagið.

Sjá næstu 50 fréttir