Fleiri fréttir

Greame Storm með tveggja högga forystu á PGA mótinu

Graeme Storm, er efstur eftir fyrsta dag á PGA meistaramótinu eftir að hafa spilað á 65 höggum eða fimm höggum undir pari. Hann fékk fimm fugla og engan skolla á hinn erfiða Southern Hills völlinn en aðeins 12 kylfingar náðu að spila undir pari á fyrsta hring.

Joey Barton: Ég er bara mannlegur

Joey Barton, miðjumaður Newcastle, viðurkennir að hann hafi gert mörg mistök á ferlinum en hann vill að fólk viti að hann er góður strákur. „Ég er enginn pörupiltur,“ sagði Barton. „Fólk sem þekkir mig, fólk sem ég virði, veit hvernig persóna ég er.“ Eins og fram hefur komið gæti Barton átt allt að fimm ára fangelsi yfir höfði sér fyrir að berja fyrrverandi liðsfélaga sinn á æfingu.

Lampard segir að Robben verði saknað

Frank Lampard segir að leikmenn Chelsea muni sakna Hollendingsins Arjan Robben þegar hann yfirgefur félagið til að leita á vit ævintýranna í Madríd. Spænskir fjölmiðlar hafa haldið því fram að Robben sé búinn að samþykkja að ganga til liðs við Real Madrid en það hefur ekki verið staðfest opinberlega ennþá.

Birmingham fær Djourou að láni frá Arsenal

Birmingham hefur tryggt sér hinn unga Johan Djourou á láni frá Arsenal. Þessi tvítugi leikmaður gerði samning við Birmingham fram að árámótum, en möguleiki er að framlengja samninginn að þeim tíma loknum.

Tevez er löglegur með United

Sky Sports greinir nú frá því að félagaskipti Carlos Tevez hafi loksins verið samþykkt af enska knattspyrnusambandinu. Hann er því löglegur með Manchester United gegn Reading um helgina.

Yfirlitssýningu stóðhesta lokið á HM 07

Það voru ekki miklar breytingar á röðun stóðhesta eftir yfirlitssýningu á HM í Hollandi í morgun. Helst er að segja frá því að Þórður Þorgeirsson koma ríðandi inn á Garra frá Reykjavík í flokki 7 vetra hesta en Jóhann Skúlason hefur verið knapi á honum.

Áskriftarsala á Sýn gengur frábærlega

“Staðan á áskriftarsölunni er betri en ég þorði að vona,” segir Hilmar Björnsson sjónvarpsstjóri Sýnar en enski boltinn byrjar að rúlla aftur á stöðinni um helgina eftir þriggja ára hlé. Hann segir mikinn fjölda búinn að tryggja sér áskrift þrátt fyrir að tímabilið sé enn ekki formlega hafið.

Rooney fetar í fótspor Eiðs Smára

Í nýrri auglýsingu sem nú er dreift á netinu bregður Wayne Rooney á leik með Dirty Sanchez genginu. Auglýsingin minnir um margt á atriði sem Eiður Smári tók upp í garðinum sínum með þeim Sveppa, Audda og Pétri.

Luque að yfirgefa Newcastle

Spánverjinn Albert Luque virðist staðráðinn í að enda árs langa martröð sína hjá Newcastle. Tvö lið vilja fá hann að láni út næsta tímabil. Luque var keyptur til Newcastle í fyrra á 9.5 milljónir punda frá Deportiva La Coruna en hann hefur átt í miklum erfiðleikum á Englandi og ekki fest sig í sessi hjá Newcastle.

Voronin valinn bestur á undirbúningstímabilinu

Andriy Voronin, Úkraínumaðurinn sem gekk til liðs við Liverpool í sumar frá Bayer Leverkusen, hefur verið valinn besti leikmaður Liverpool á undirbúningstímabilinu. Kosning fór fram á heimasíðu liðsins og vann Voronin með 68% greiddra atkvæða.

Heiðar gæti spilað á laugardag

Heiðar Helguson, sem í sumar gekk til liðs við Bolton, gæti leikið með sínum nýju félögum á laugardag þegar liðið tekur á móti Newcastle. Heiðar er óðum að jafna sig á smávægilegum meislum sem hann hlaut í æfingaleik gegn Colchester.

Lampard vill bíða með nýjan samning í ár

Enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard vill bíða í eitt ár með að skrifa undir nýjan samning við Chelsea þar sem hann ætlar að einbeita sér að því að vinna ensku úrvalsdeildina með félaginu. Hann segir við breska götublaðið The Sun að það sé ástæða þess að samningaviðræður á milli hans og forráðamanna Chelsea hafi siglt í strand. Enginn ágreiningur sé um peninga líkt og haldið hefur verið fram.

Quinn fer ef Keane hættir

Niall Quinn, stjórnarformaður Sunderland, hefur lýst því yfir að hann standi 100% á bak við Roy Keane, knattspyrnustjóra liðsins. Hann hefur varað stuðningsmenn liðsins við því að ef Keane fari þá muni hann fylgja honum burt frá félaginu.

Beckham spilaði í gærkvöldi

David Beckham spilaði í gærkvöld fyrsta leik sinn í bandarísku MLS deildinni fyrir Los Angeles Galaxy. Beckham hefur átt við meiðsli að stríða á ökkla og hefur aðeins leikið fáeinar mínútur í vináttuleik við Chelsea síðan hann gekk til liðs við Galaxy.

Landsbankadeild kvenna: KR sigraði Fjölni

Einn leikur fór fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. KR sigraði Fjölni á útivelli með fjórum mörkum gegn tveimur. Þar með helst áfram mikil spenna á toppi deildarinnar þar sem Valur og KR eru að stinga af, bæði lið með 28 stig eftir 10 leiki. Valsstúlkur eru þó með betri markatölu. Fjölnir er í sjötta sæti með 11 stig eftir níu leiki.

Eggert óánægður með vinnubrögð Newcastle

Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, hefur greint frá óánægju sinni með vinnubrögð Newcastle eftir að félagið hætti við að selja Kieron Dyer til West Ham á síðustu stundu nema kaupverðið yrði hækkað um tvær milljónir punda. Eggert segist furðu lostinn yfir því að Newcastle hafi hækkað verðið á síðustu stundu.

Skagamenn, Fylkir og Blikar sigruðu sína leiki

Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild karla í kvöld. Skagamenn unnu baráttusigur á Laugardalsvellinum gegn Fram með fjórum mörkum gegn tveim, eftir að hafa lent 2-0 undir. Fylkismenn sigruðu Víking 1-0 í Árbænum og Blikar sigruðu 3-0 í Keflavík.

Alfreð: Langaði að vera með í Noregi

Alfreð Gíslason og Handknattsleikssamband Íslands komust að þeirri niðurstöðu í dag að Alfreð muni halda áfram sem þjálfari landsliðsins. Alfreð mun stjórna liðinu fram yfir EM 2008 í Noregi sem fer fram í janúar.

Gallas verður fyrirliði Arsenal

Franski varnarmaðurinn William Gallas verður næsti fyrirliði Arsenal, en þetta tilkynnti félagið í dag. Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segist hafa valið Gallas vegna reynslunnar sem hann býr yfir, en Gilberto og Kolo Toure verða varafyrirliðar.

Benedikt bjartsýnn á komandi tímabil

Benedikt Guðmundsson þjálfari Íslandsmeistara KR í körfubolta, segir í samtali við Vísi.is að hann sé bjartsýnn á komandi leiktímabil. Benedikt segir undirbúningstímabilið vera komið á fullt og að liðin séu að undirbúa sig fyrir komandi átök. KR-ingar hafa fengið til sín nýja útlendinga sem að lofa góðu.

Varaforseti FIFA: „England óvinsæl knattspyrnuþjóð“

Varaforseti FIFA, Jack Warner, heldur því fram að England sé svo óvinsæl knattspyrnuþjóð að beiðni þeirra um að fá að halda heimsmeistarakeppni landsliða árið 2018 sé dauðadæmd. England hefur einu sinni fengið að halda keppnina en það var árið 1966, eina skiptið sem Englendingar urðu heimsmeistarar.

Eggert: „Ég óska Tevez alls hins besta í framtíðinni“

Eggert Magnússon viðurkennir að hann sé ánægður með að Carloc Tevez málið sé loksins að baki. Tevez þess nú að félagsskipti hans frá West Ham til Manchester United gangi formlega í gegn. Eggert óskar Tevez alls hins besta hjá nýju félagi og er ánægður með að málið hafi verið leyst.

Helgi framlengir við Val

Helgi Sigurðsson skrifaði í dag undir nýjan samning við Val og gildir sá samningur til 2010. Helgi gekk til liðs við Hlíðarendapilta fyrir þetta tímabil og hefur gengið vel í sumar, en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar að svo stöddu. Helgi verður 35 ára þegar samningurinn rennur út.

Þórarinn toppar enn og aftur - 7,50

Þórarinn Eymundsson og Kraftur eru efstir með 7.50 eftir forkeppni í fimmgangi sem var að ljúka á HM í Hollandi. Að sögn eins áhorfanda sem blaðamaður Hestafrétta talaði við rétt í þessu var sýning Þórarinns hreint út sagt æðisleg. Í öðru sæti er Frauke Schenzel og Næpa vom Kronshof með 7.13 og í þriðja sæti er Anna Valdimarsdóttir og Fönix vom Klosterbach með 7.03 í aðaleinkunn.

Nicolau Casaus látinn

Nicolau Casaus, fyrrverandi varaforseti Barcelona er látinn, 94 ára að aldri. Í virðingarskyni fyrir Casaus verður öllum fánum liðsins flaggað í hálfa stöng í dag. Minningarathöfn þessa sterka persónuleika verður haldin á hádegi á morgun við Tanatorio de Les Corts í Barcelona.

Liverpool á eftir markverði Lens

Liverpool er í viðræðum við franska lið Lens um kaup á markverðinum Charles Itandje, og þar með greiða leið Scott Carson sem vill fara á lánssamning hjá Aston Villa út tímabilið. Liverpool ætlar að reyna að fá hinn 24 ára Itandje áður en liðið leikur við Toulouse í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í næstu viku.

Barton gæti átt von á allt að fimm ára fangelsi

Joey Barton, miðjumaður Newcastle, lýsti sig saklausan í réttarsal í dag, en hann er ákærður fyrir að berja Ousmane Dabo, fyrrverandi liðsfélaga sinn hjá Manchester City á æfingu. Barton var kærður fyrir líkamsárás og gæti átt allt að fimm ára fangelsi yfir höfði sér. Atvikið átti sér stað þann 1. maí síðasliðinn og var Barton sektaður af félaginu og að lokum seldur til Newcastle.

Aston Villa ætlar að fá Scott Carson

Aston Villa er nú við það að klófesta enska landsliðsmarkvörðinn Scott Carson út tímabilið á lánssamning frá Liverpool. Aston Villa hefur verið að leita að markverði, en aðalmarkvörður liðsins, Thomas Sörensen, er meiddur og hefur ekki ennþá skrifað undir nýjan samning við félagið.

Real kaupir Robben

Arjen Robben er genginn til liðs við Real Madrid. Þessu halda spænskir fjölmiðlar fram í dag. Þeir greina einnig frá því að Robben verði kynntur fyrir stuðningsmönnum liðsins seinna í dag ásamt Hollendingnum Royston Drenthe sem Real keypti á dögunum.

Chelsea missir af undrabarni

AC Milan hefur klófest brasilíska undrabarnið Alexandre Pato sem um langt skeið hefur verið eitt eftirsóttasta ungstirnið í knattspyrnuheiminum. Chelsea var lengi á höttunum eftir piltinum sem er 17 ára gamall og kemur frá Internacional Porto Alegre.

Rooney með tvö í gær

Manchester United lék í tvo vináttuleiki í gærkvöld. Ellefu leikmönnum var stillt upp gegn Norður-Írska liðinu Glentoran, sem faðir Alex Ferguson lék eitt sinn með, og öðrum ellefu var stillt upp gegn skoska liðinu Dunfermline. United vann báða leikina.

Björgólfur spurður um Hafskip og Rússland

Blaðamaður breska vikublaðsins The Observer er staddur á landinu þessa stundina vegna ítarlegrar úttektar sem blaðið vinnur nú að um Björgólf Guðmundsson, aðaleiganda West Ham.

Undir smásjá Viking í Noregi

Norska liðið Viking í Stavangri hefur vakandi auga á Sverri Garðarssyni, leikmanni FH. Egil Østenstad, yfirmaður knattspyrnumála, vildi sem minnst segja um málið við norska fjölmiðla í gær. „Ég veit hver hann er en það er ekki þar með sagt að við höfum áhuga á honum,“ sagði Østenstad.

Markalausir í 341 mínútu

Víkingar vonast til þess að finna loksins leið framhjá Fylkisvörninni í leik liðanna í 12. umferð Landsbankadeildar karla í kvöld. Víkingar hafa leikið þrjá deildarleiki í röð og samtals í 341 mínútu án þess að ná að skora hjá Árbæingum.

Þægilegir heimasigrar

Breiðablik og Keflavík unnu heimasigra í Landsbankadeild kvenna í gærkvöldi. Blikastúlkur sendu leikmenn Þórs/KA stigalausa heim norður á Akureyri eftir 2-0 sigur. Greta Mjöll Samúelsdóttir og Laufey Björnsdóttir skoruðu fyrir Blika.

Reynir fyrir sér í atvinnumennsku

Örn Ævar Hjartarson mun í haust taka þátt í úrtökumóti fyrir evrópsku mótaröðina í golfi. Mörg þúsund kylfingar sækja um á ári hverju en aðeins um þrjátíu komast inn á mótaröðina.

Höfuðkúpubrotnaði í Danmörku

Varnarmaðurinn Hallgrímur Jónasson í Keflavík verður ekki með sínum mönnum í kvöld er liðið tekur á móti Breiðabliki í Landsbankadeild karla. Hann höfuðkúpubrotnaði á tveimur stöðum í Evrópuleiknum gegn Midtjylland ytra í síðustu viku. Læknar segja að hann verði frá í um fjórar vikur en hann vonast til að komast fyrr af stað.

Skelfilegt gengi suður með sjó

Blikar sækja í kvöld Keflvíkinga heim í 12. umferð Landsbankadeildar karla en þeir hafa ekki sótt þrjú stig suður með sjó síðan 15. júní 1983 eða í rúmlega 24 ár.

Tryggvi orðinn markahæstur

Fótbolti Tryggvi Guðmundsson varð í gær markahæsti leikmaður íslensks liðs í Evrópukeppnum frá upphafi. Markið sem Tryggvi skoraði í gær var hans sjötta í Evrópukeppni en fyrir leikinn höfðu hann og fjórir aðrir skorað fimm mörk í Evrópu.

Eins og þrír erfiðir landsleikir

Í dag klukkan 13 mæta Íslandsmeistarar Vals finnska liðinu FC Honka Espoo í fyrstu umferð Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Riðill Vals verður leikinn í Færeyjum og klárast á þriðjudaginn kemur.

Útlitið dökkt í Vesturbænum

Valur vann í gær þrjú dýrmæt stig á KR-vellinum og hélt þar með pressu á FH á toppi Landsbankadeildarinnar. KR situr enn á botni deildarinnar og virðast þjálfaraskiptin lítinn árangur hafa borið.

Í heildina erum við með jafn gott lið

Evrópuævintýri Íslands­meistara FH er lokið í ár eftir 4-2 tap samanlagt gegn hvítrússneska liðinu BATE. Síðari leiknum í gær lyktaði með 1-1 jafntefli þar sem Tryggvi Guðmundsson kom FH yfir úr víti í fyrri hálfleik sem hann fékk sjálfur, en BATE jafnaði metin á lokamínútunni þegar FH freistaði þess að sækja annað mark.

Valur vann þrjú núll.

Valsmenn báru sigur úr býtum í viðureign sinni við KRinga í Frostaskjóli í kvöld. Leiknum lauk með þriggja marka sigri Valsmanna, 3 - 0. Það var Baldur Aðalsteinsson sem kom Valsmönnum á bragðið með tveimur mörkum á stuttu tímabili í seinni hálfleik og Helgi Sigurðsson innsiglaði sigur sinna manna með marki á 81. mínútu.

Helgi skoraði þriðja mark Valsmanna

Helgi Sigurðsson kom Valsmönnum í þrjú núll á móti KR á 81 mínútu leiksins. Markið kom eftir varnarmistök Gunnlaugs Jónssonar, varnarmanns hjá KR. Valsmenn eru því með pálmann í höndunum þegar lítið er eftir af leiknum en öll mörkin komu í seinni hálfleik.

Sjá næstu 50 fréttir