Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Annað jafntefli hjá piltalandsliðinu Íslenska piltalandsliðið í handbolta gerði sitt annað jafntefli á opna Evrópumótinu í dag þegar það gerði 26-26 jafntefli við Slóvena í öðrum leik sínum í milliriðli. Íslenska liðið var fjórum mörkum yfir í hálfleik en náði svo að jafna leikinn á síðustu sekúndu leiksins. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 10 mörk fyrir íslenska liðið sem mætir Norðmönnum og Eistum á morgun. 5.7.2007 15:08
Chelsea búið að bjóða í Pato Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur gert formlegt kauptilboð í brasilíska ungstirnið Alexandre Pato hjá Internacional í Brasilíu ef marka má umboðsmann leikmannsins. Real Madrid, Inter og AC Milan eru einnig sögð hafa mikinn áhuga á honum og segir umboðsmaðurinn þau öll hafa gert tilboð í hann. 5.7.2007 14:16
Eiður Smári hefur alltaf þurft að berjast fyrir sínu Arnór Guðjohnsen segir að sonur sinn Eiður Smári sé ekkert óvanur því að fá harða samkeppni um stöður í þeim liðum sem hann hefur spilað með á ferlinum og ítrekar að Barcelona hafi ekki borist kauptilboð í leikmanninn. 5.7.2007 13:41
Þriðjudagsslúðrið á Englandi Daily Mirror segir að Manchester United hafi fullan hug á að klófesta framherjann Carlos Tevez frá West Ham og blaðið segir að þeir rauðu ætli sér að klára málið fyrir helgi. Daily Mail segir framherjann þegar hafa samþykkt að fara til United, en að forráðamenn West Ham séu ekki jafn hrifnir af þeirri hugmynd. 5.7.2007 13:16
Dregið í riðla í Evrópukeppni kvenna Í morgun var dregið í riðla í forkeppni Meistaradeild kvenna í knattspyrnu. Íslandsmeistarar Vals mæta þar ADO Den Haag frá Hollandi, FC Honka frá Finnlandi og Klakksvík frá Færeyjum í riðli A2 í forkeppninni. Alls taka 45 lið þátt í keppninni í ár sem er metfjöldi. 5.7.2007 13:08
Venus í undanúrslitin Venus Williams virðist vera að finna sitt gamla form á tennisvellinum og í morgun tryggði hún sér sæti í undanúrslitaleik Wimbledon mótsins með 6-3 og 6-4 sigri á Svetlönu Kuznetsovu. Williams hefur þrisvar unnið sigur á mótinu en hefur ekki tekið þátt í nema sjö mótum á árinu og er í 43. sæti heimslistans. 5.7.2007 12:52
Chelsea fundar með Lyon fyrir helgi Breska sjónvarpið greinir frá því nú í hádeginu að forráðamenn Chelsea muni funda með kollegum sínum hjá franska félaginu Lyon um kaup enska félagsins á miðjumanninum Florent Malouda. Talið er að Lyon vilji fá 13,5 milljónir punda fyrir Malouda, sem var kjörinn leikmaður ársins í Frakklandi í vor. 5.7.2007 12:12
Robinho tryggði Brössum sigur Robinho skoraði sigurmark Brasilíumanna úr vítaspyrnu í nótt þegar liðið vann 1-0 sigur á Ekvador í B-riðli og tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitum Copa America. Þetta var fjórða mark Robinho í keppninni og er hann nú markahæstur. Í sama riðli gerðu Mexíkó og Chile markalaust jafntefli og eru bæði komin áfram í keppninni. 5.7.2007 12:08
West Ham semur við Richard Wright Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur gert samning við markvörðinn Richard Wright sem var með lausa samninga hjá Everton. Wright lék áður með Ipswich og Arsenal og á að baki tvo landsleiki. Hann spilaði aðeins tvo leiki með Everton á síðustu leiktíð og hefur átt við meiðsli að stríða. Hann er þriðji maðurinn sem West Ham kaupir í sumar auk þeirra Scott Parker og Julien Faubert. 5.7.2007 11:54
Jafnt gegn Tékkum Íslenska piltalandsliðið í handbolta gerði jafntefli við Tékka 20-20 í fyrsta leik sínum í milliriðli opna Evrópumótsins í morgun. Íslenska liðið var yfir í hálfleik 12-10. Ólafru Bjarki Ragnarsson skoraði 6 mörk fyrir íslenska liðið og Aron Pálmason 5. Þá varði Ingvar Guðmundsson 20 skot í markinu. Liðið mætir Slóvenum síðar í dag. 5.7.2007 11:52
Tottenham kaupir Kaboul á 8 milljónir punda Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham gekk í morgun frá kaupum á varnarmanninum Younes Kaboul frá Auxerre í Frakklandi. Kaboul er fyrirliði U-21 árs landsliðs Frakka og hafði verið orðaður við lið eins og Roma, Inter og Portsmouth. Hann er almennt álitinn efnilegasti varnarmaður í Frakklandi og hefur verið fyrirliði allra yngri landsliðanna þar í landi. 5.7.2007 11:43
Tevez sagður á leið til Manchester United Breska sjónvarpið greinir frá því í morgun að Manchester United sé nú komið nálægt því að fá til sín argentínska sóknarmanninn Carlos Tevez frá West Ham. Ekki hefur verið gefið upp hvort um lán eða kaup er að ræða, en viðræður munu standa yfir milli félaganna samkvæmt heimildum BBC. 5.7.2007 11:39
Einar Sigraði Einar Sverrir Sigurðarson sigraði aðra umferð Íslandsmótsins í motocross sem fram fór í Ólafsvík um síðustu helgi. Brautin var í sínu besta formi enda var búið að leggja mikla vinnu í hana. 5.7.2007 10:52
Sigurður setur heimsmet á Drífu í 150m skeiði Hrossabændurnir Siggi Sig og Sigurbjörn Bárðar eru sigurvegarar á Skeiðleikum Skeiðfélagsins og Glitnis sem fram fóru á Selfossi nú í kvöld. Sigurður gerði sér lítið fyrir og sveif yfir hundrað metrana á 7,18 sekúntum á henni Drífu sinni sem er óstaðfest heimsmet. Sigurbjörn sigraði bæði í 250m og 150m metra skeiðinu. 5.7.2007 09:17
Guðjón Þórðarson: Keflvíkingar geta sjálfum sér um kennt Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna, segir Bjarna son sinn ekki hafa ætlað að skjóta á markið þegar hann skoraði annað mark Skagamanna gegn Keflavík í kvöld. Hér er um að ræða umdeildasta atvik sumarsins til þessa og ljóst að menn eiga eftir að rífast um það lengi. 4.7.2007 22:32
Kristján Guðmundsson: Þetta var Bjarna til skammar Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga var mjög óhress með framgang Bjarna Guðjónssonar í kvöld þegar hann skoraði annað mark Skagamanna í leik liðanna í kvöld. Hann sakar Bjarna um ódrengilega framkomu og nokkrir leikmanna Keflavíkur eltu hann æfir til búningsherbergja eftir að flautað var af í kvöld. 4.7.2007 22:03
Dramatík og rauð spjöld á Skaganum Skagamenn unnu 2-1 sigur á Keflvíkingum í lokaleik kvöldsins í Landsbankadeild karla sem sýndur var beint á Sýn. Leikurinn var dramatískur í meira lagi þar sem sigurmark heimamanna var ansi vafasamt og tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið. 4.7.2007 21:46
Sannfærandi sigur Vals á HK Valsmenn eru á góðri siglingu í Landsbankadeild karla í knattspyrnu og í kvöld vann liðið góðan 4-1 sigur á nýliðum HK í Kópavogi. Birkir Már Sævarsson, Pálmi Rafn Pálmason, Helgi Sigurðsson og Hafþór Ægir Vilhjálmsson skoruðu fyrir Val í kvöld, en mark HK var sjálfsmark. Fylkir og KR gerðu markalaust jafntefli í Árbænum. 4.7.2007 21:15
Laudrup klár í að taka við af Schuster Danska knattspyrnugoðsögnin Michael Laudrup hefur tjáð fjölmiðlum í heimalandi sínu að hans bíði þjálfarastaða hjá spænska liðinu Getafe og að hann væri þegar búinn að skrifa undir ef ekki væri fyrir óvissu varðandi framtíð Bernd Schuster. 4.7.2007 21:02
Skagamenn yfir í hálfleik Skagamenn hafa yfir 1-0 gegn Keflavík á heimavelli sínum á Skipaskaga þegar flautað hefur verið til hálfleiks í sjónvarpsleiknum á Sýn. Það var Bjarni Guðjónsson sem skoraði mark ÍA úr vítaspyrnu eftir um hálftíma leik. Valsmenn hafa yfir 4-1 gegn HK þegar skammt er til leiksloka í leik liðanna í Kópavogi og enn er markalaust hjá Fylki og KR í Árbænum. 4.7.2007 20:59
Stórskyttan Navarro á leið til Washington Spænska stórskyttan Juan Carlos Navarro hjá körfuboltaliði Barcelona hefur fengið sig lausan undan samningi við félagið og hefur ákveðið að ganga í raðir Washington Wizards í NBA deildinni. Washington átti réttinn á hinum 27 ára gamla Navarro sem segir það draum fyrir sig að fá að reyna sig meðal þeirra bestu. 4.7.2007 20:48
Brasilía - Ekvador á Sýn í kvöld Tveir leikir fara fram í Copa America í kvöld og verða þeir báðir sýndir á sjónvarpsstöðinni Sýn. Klukkan 22:30 mætast Mexíkó og Chile í B-riðli og klukkan 0:35 er svo sýndur leikur Brasilíu og Ekvador í sama riðli. 4.7.2007 20:41
Hamilton bjartsýnn á heimavelli Breska ungstirnið Lewis Hamilton hjá McLaren liðinu í Formúlu 1 segist fullviss um að hans menn geti endurheimt yfirburði sína í breska kappakstrinum á Silverstone um helgina. Ferrari stal loksins senunni á Magny-Cours um síðustu helgi og náðu ökumenn liðsins fyrsta og öðru sæti. 4.7.2007 20:29
Malouda nálgast Chelsea Nú er útlit fyrir að knattspyrnumaður ársins í Frakklandi, vængmaðurinn Florent Malouda hjá Lyon, gangi fljótlega í raðir Chelsea á Englandi. Forráðamenn franska félagsins segjast hafa fengið nýtt og betra tilboð í leikmanninn og hann hefur þegar yfirgefið æfingabúðir liðsins í frönsku ölpunum. Franskir fjölmiðlar fullyrða að tilboð Chelsea sé í kring um 18,5 milljónir punda eða 2,3 milljarðar króna. 4.7.2007 20:19
Carlesimo tekur við Seattle Supersonics Seattle Supersonics í NBA deildinni virðist nú loksins hafa tekist að ráða sér þjálfara ef marka má fréttir frá Bandaríkjunum. Félagið hefur enn á ný leitað í raðir NBA meistara San Antonio til að ná sér í mannskap því í nótt gengur það frá ráðningu PJ Carlesimo, sem verið hefur aðstoðarþjálfari Spurs síðustu fimm ár. 4.7.2007 20:07
Grant Hill tekur ákvörðun í vikunni Framherjinn Grant Hill ætlar að taka ákvörðun um framtíð sína í NBA deildinni fyrir helgi, en hann er með lausa samninga eftir að hafa leikið með Orlando undanfarin ár. Phoenix þykir líklegasta félagið til að landa Hill en Detroit, San Antonio, Miami og Dallas hafa einnig borið víurnar í þennan reynda kappa. 4.7.2007 20:01
Darko úti í kuldanum Umboðsmaður Darko Milicic hjá Orlando Magic er ekki sáttur við forráðamenn NBA-liðsins eftir að þeir drógu til baka fyrirhugað tilboð um framlengingu á samningi hans. Orlando hefur boðið Rashard Lewis svo háan samning að óvíst er hvort félagið nær að halda Milicic í kjölfarið. 4.7.2007 19:54
Milliriðillinn klár hjá U-19 liði Íslands Í kvöld komst á hreint hvaða lið leika í milliriðli með íslenska U-19 ára landsliðinu í handbolta á opna Evrópumótinu sem fram fer í Gautaborg í Svíþjóð. Íslenska liðið mætir Tékkum, Slóvenum, Norðmönnum og Eistlandi í riðlinum og leiktímana má sjá hér fyrir neðan. 4.7.2007 19:49
Defoe ætlar ekki að fara frá Tottenham Framherjinn Jermaine Defoe hjá Tottenham ætlar ekki að láta það á sig fá þó liðið hafi keypt Darren Bent frá Charlton fyrir metfé á dögunum og ætlar að berjast áfram fyrir sæti sínu í liðinu á komandi leiktíð. 4.7.2007 18:53
Henin í undanúrslit Justin Henine, stigahæsta tenniskona heims, tryggði sér í dag sæti í undanúrslitaleik Wimbledon mótsins þegar hún bar sigurorð af Serenu Williams frá Bandaríkjunum 6-4 3-6 og 6-3. Williams átti við meiðsli að stríða en barðist af miklum krafti. Henin mætir Marion Bartoli í undanúrslitum. 4.7.2007 18:16
Bellamy líklega á útleið Framherjinn Craig Bellamy virðist ekki eiga mikla framtíð fyrir sér hjá Liverpool ef marka má viðtal sem tekið var við Rafa Benitez knattspyrnustjóra í dag, eftir að hann gekk frá samningi við Fernando Torres. 4.7.2007 17:18
West Ham samþykkir tilboð í Reo-Coker Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham samþykkti í dag 8,5 milljón punda kauptilboð Aston Villa í miðjumanninn Nigel Reo-Coker. Coker gengur væntanlega í raðir Villa á næsta sólarhring, en hann á eftir að standast læknisskoðun og skrifa undir samning við Villa. Hann er 23 ára gamall og gekk í raðir West Ham frá MK Dons árið 2004. 4.7.2007 17:13
Venus lagði Sharapovu Bandaríska tenniskonan Venus Williams tryggði sér í dag sæti í fjórðungsúrslitum á Wimbledon mótinu þegar hún vann baráttusigur á Mariu Sharapovu frá Rússlandi 6-1 og 6-3 eftir að leiknum hafði verið frestað vegna rigningar. Williams er þrefaldur sigurvegari á mótinu en Sharapova hefur unnið það einu sinni. 4.7.2007 17:06
Landsmótið sett annað kvöld Risalandsmót UMFÍ verður haldið í Kópavogi dagana 5. - 8. júlí. Ungmennafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu og af því tilefni er efnt til stærsta landsmóts sem haldið hefur verið hér á landi. 4.7.2007 16:52
Inter hætt við að kaupa Chivu Inter Milan hefur hætt við að kaupa rúmenska varnarmanninn Cristian Chivu frá Roma. Forráðamenn Inter segja verðmiðann á leikmanninum einfaldlega of háan en Roma vill fá 18 milljónir evra fyrir hann. Real Madrid og Barcelona eru einnig sögð hafa áhuga á varnarmanninum en ljóst er að hann fer ekki til Inter í bráð. 4.7.2007 16:00
Nördaleikurinn á föstudaginn Á föstudag fer fram stórleikur milli íslensku og sænsku nördanna á Kópavogsvelli - þar sem nýja stúkan verður jafnframt vígð. Landslið íslensku nördanna hyggur þá á hefndir, eftir ófarir A-landsliðsins í Svíþjóð á dögunum. 4.7.2007 15:11
Torres kominn til Liverpool Spænski landsliðsmaðurinn Fernando Torres hefur nú gengið formlega í raðir Liverpool á Englandi sem keypti hann fyrir metfé frá Atletico Madrid - 3,35 milljarða króna. Torres er 23 ára og skrifaði í dag undir 6 ára samning við enska félagið. Hann er dýrasti leikmaður í sögu Liverpool og ljóst að pressan verður gríðarleg á þessum unga leikmanni á næstu leiktíð. 4.7.2007 14:55
Ivanovic bráðnaði þegar hún sá Jack Bauer Serbneska tenniskonan Ana Ivanovic hefur þegar tryggt sér sæti í fjórðungsúrslitunum á Wimbledon-mótinu þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gömul. Henni varð mikið um þegar hún sá þá Kiefer Sutherland og David Beckham fylgjast með sér leggja Nadiu Petrovu. 4.7.2007 14:10
Nýtt veðmál hjá Ronaldo og Ferguson Breska blaðið The Sun greinir frá því í dag að Cristiano Ronaldo hjá Manchester United ætli að leggja enn meira undir í ár en í fyrra í árlegu veðmáli sínu við Alex Ferguson knattspyrnustjóra. Ronaldo veðjaði 400 pundum á að hann næði að skora 15 mörk í deildinni á síðustu leiktíð og vann - þar sem hann skoraði 17 mörk. 4.7.2007 14:03
Hilderbrand ætlar sér stóra hluti hjá Valencia Þýski landsliðsmarkvörðurinn Timo Hildebrand var kynntur til sögunnar sem nýr markvörður spænska liðsins Valencia í dag. Hann stefnir ótrauður á að velta Santiago Canizares úr sessi sem markvörður númer eitt hjá liðinu eftir að hann kom frá Stuttgart í dag. 4.7.2007 13:41
40 hafa náð draumahögginu í ár Það sem af er golfvertíð 2007 eru komnar 40 tilkynningar til skrifstofu GSÍ um holu í höggi. Einhverjir fleiri en þeir sem eru á listanum hér fyrir neðan hafa eflaust náð draumahögginu í ár en ekki tilkynnt það á réttu eyðublaði og sent til GSÍ. Á meðan að svo er ekki er afrekið ekki viðurkennt af Einherjaklúbbnum og því ekki skráð. 4.7.2007 13:36
Calderon vill Robben eða Malouda Ramon Calderon, forseti Real Madrid, hefur gefið það út á heimasíðu félagsins að hann sé ákveðinn í að landa annað hvort Arjen Robben frá Chelsea eða Florent Malouda frá Lyon í sumar. Chelsea hefur blásið á fullyrðingar Calderon varðandi Arjen Robben, en félögin eru bæði sögð á eftir Malouda. "Þeir spila sömu stöðu og við munum því aðeins kaupa annan þeirra," sagði Calderon brattur að vanda. 4.7.2007 13:33
Nadal fúll þrátt fyrir sigur Spænski tenniskappinn Rafael Nadal vann mjög nauman sigur á Robin Soderling á Wimbledon-mótinu í dag eftir að leik þeirra hafði verið frestað ótt og títt vegna veðurs. Nadal gagnrýndi mótshaldara fyrir lélegt skipulag í kring um rigningarnar og furðaði sig á því af hverju leikurinn var ekki kláraður fyrr. 4.7.2007 13:23
Torres mætir á Anfield í dag Dýrasti knattspyrnumaður í sögu Liverpool verður kynntur formlega til sögunnar á Anfield í dag þegar framherjinn Fernando Torres mun formlega ganga í raðir félagsins. Torres hefur þegar setið blaðamannafund í heimalandinu þar sem hann kvaddi stuðningsmenn Atletico Madrid, en heilsar rauða hernum í dag eftir að hafa verið keyptur á rúma 3,3 milljarða króna. 4.7.2007 13:17
Eriksson hitti leikmenn City í dag Sven-Göran Eriksson, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga, hitti leikmenn Manchester City í fyrsta skipti á æfingasvæði liðsins í dag. Búist er við því að Eriksson skrifi undir samning um að gerast stjóri liðsins um leið og Thaksin Shinawatra nær að klára yfirtöku sína á félaginu, en það gæti gerst í dag eða á morgun. Shinawatra þarf að eignast 75% hlut í félaginu til að svo geti orðið, en hann hefur þegar tryggt sér rúmlega 65% hlut í félaginu. 4.7.2007 13:14