Guðjón Þórðarson: Keflvíkingar geta sjálfum sér um kennt 4. júlí 2007 22:32 Guðjón Þórðarson segir Bjarna ekki hafa ætlað að skjóta á mark Keflvíkinga markinu umdeilda Mynd/Eiríkur
Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna, segir Bjarna son sinn ekki hafa ætlað að skjóta á markið þegar hann skoraði annað mark Skagamanna gegn Keflavík í kvöld. Hér er um að ræða umdeildasta atvik sumarsins til þessa og ljóst að menn eiga eftir að rífast um það lengi. "Ég held að það liggi nokkuð ljóst fyrir. Bjarni ætlar að spyrna boltanum aftur fyrir endalínu eins og bæði lið höfðu gert áður í þessum leik en það kemur maður í hann og pressar á hann um leið og hann spyrnir sem verður til þess að hann hittir boltann ekki nógu vel," sagði Guðjón Þórðarson þjálfari Skagamanna og faðir Bjarna um markið umdeilda sem réði úrslitum á Skaganum í kvöld. "Það er alveg klárt að hann gerði þetta ekki viljandi. Þeir sem þekkja Bjarna vita að það eru fáir menn heiðarlegri og einlægari. Hann koma meira að segja til mín út á hliðarlínu og spurði mig hvort við ættum ekki að gefa þeim mark - og hann svosem gerði það, því hann gaf boltann frá sér við vítateiginn þegar þeir skoruðu markið," sagði Guðjón. "Við hefðum viljað vinna þennan leik með öðrum hætti með þessum en í sjálfu sér geta Keflvíkingar sjálfum sér um kennt, því Bjarni ætlaði aldrei að setja boltann á markið. Baldur kom og pressaði á hann og atvikið er skoðað í sjónvarpi sést það mjög glögglega. Hann ætlaði aldrei að gera þetta. Sigurinn er sigur - en ég hefði vilja gera þetta undir öðrum kringumstæðum," sagði Guðjón og sagði Keflvíkinga ekki hafa skapað sér eitt einasta færi úr opnu spili í leiknum að sínu mati. Guðjón var að lokum spurður hvort ráðist hefði verið á Bjarna í búningsklefanum eftir leikinn. "Nei, ég held að það hafi nú sloppið - en það fóru þarna fram hlutir sem eru þeim sem þar voru til lítils sóma. Ég sá ekki atvikin, en mér var sagt frá þeim," sagði Guðjón í samtali við Þorstein Gunnarsson á Sýn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hættur aðeins þrítugur Golf Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Fleiri fréttir Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Sjá meira