Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2026 17:00 Sergio Garcia hoppar hér yfir Rae’s Creek á Mastersmótinu um síðustu helgi. Getty/Andrew Redington Spænski kylfingurinn og fyrrum Mastersmótsmeistarinn Sergio Garcia hefur beðist afsökunar á hegðun sinni á Augusta National-golfvellinum á sunnudaginn eftir að Spánverjinn braut dræverinn sinn í bræðiskasti sínu á Masters-mótinu.
Garcia vann græna jakkann árið 2017 en missti þarna algjörlega stjórn á skapi sínu á annarri holu þegar hann sló teighöggið á par-5 holunni beint í átt að brautarglompunni. Garcia var ævareiður yfir byrjun sinni á lokahringnum, sló drævernum sínum í jörðina áður en hann sló honum aftur og braut hann á kæliboxi fyrir aftan teigmerkingu. Hinn 46 ára gamli Garcica fékk „viðvörun vegna brots á siðareglum“ frá Geoff Yang, formanni mótsnefndarinnar. pic.twitter.com/HgWI8WVBXS— Sergio Garcia (@TheSergioGarcia) April 14, 2026 LIV-kylfingurinn tjáði sig um atvikið eftir hringinn og sagðist ekki vera stoltur af bræðiskastinu, en hefur nú, tveimur dögum síðar, beðist formlega afsökunar. „Ég vil biðjast afsökunar á hegðun minni á sunnudaginn á Masters-mótinu,“ skrifaði hann í yfirlýsingu. „Ég virði og met allt sem Masters-mótið og Augusta National-golfklúbburinn standa fyrir í golfíþróttinni,“ skrifaði Garcia. „Ég sé eftir því hvernig ég hagaði mér og slík hegðun á ekki heima í íþróttinni okkar. Hún endurspeglar ekki þá virðingu og þakklæti sem ég ber fyrir Masters-mótinu, áhorfendum, mótshöldurum og golfáhugafólki um allan heim,“ skrifaði Garcia. Afsökunarbeiðnin kemur í kjölfar umræðu um hvort Garcia fengi mögulega líftíðarbann frá Mastersmótinu. The Masters rules and competition committee chairman issued Sergio Garcia a code of conduct warning following an incident on the 2nd hole Sunday. Garcia also picked up Jon Rahm’s golf bag while Rahm’s caddie tended to a bunker. Garcia smashed his driver and will not be able to… pic.twitter.com/C2TZkGBDTg— TSN (@TSN_Sports) April 12, 2026
Golf Masters-mótið Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira