Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Spánn: Valencia gerði Barcelona greiða Valencia lagði Sevilla 2-0 í kvöldleiknum í spænska boltanum með tveimur mörkum frá spænska landsliðsmanninum David Villa. Sigur Valencia þýðir að Barcelona er enn með fjögurra stiga forskot á toppnum. Valencia skaust með sigrinum í fjórða sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir Sevilla. 15.4.2007 23:05
Ítalía: Kaflaskiptur leikur hjá Inter og Palermo Fátt getur komið í veg fyrir að Inter Milan hampi meistaratitlinum á Ítalíu í ár þrátt fyrir að liðið næði aðeins jafntefli gegn Palermo á heimavelli sínum í dag 2-2. Roma styrkti stöðu sína í öðru sætinu með því að bursta Sampdoria 4-0. 15.4.2007 23:01
Ferguson: Ég þurfti að sannfæra Ronaldo Sir Alex Ferguson greindi frá því í samtali við breska blaðið News of the World um helgina að hann hafi flogið sérstaklega til Portúgal eftir HM í sumar til að sannfæra vængmanninn Cristiano Ronaldo um að það væri í lagi að snúa aftur til Englands. Ronaldo var ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum enska landsliðsins eftir að Portúgalar slógu þá úr keppni á HM. 15.4.2007 21:45
Heilladísirnar á bandi Barcelona Barcelona náði í kvöld fjögurra stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Mallorca á heimavelli. Markið var sjálfsmark á síðustu mínútu leiksins eftir að skot varamannsins Javier Saviola hrökk af stönginni í varnarmann og í netið. Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á bekknum hjá Barcelona. Sevilla getur minnkað forskot Barca niður í eitt stig með sigri á Valencia í stórleik kvöldsins sem er sýndur beint á Sýn. 15.4.2007 19:18
Hughes: Vorum fimm mínútum frá úrslitaleiknum Mark Hughes, stjóri Blackburn, var mjög sáttur við frammistöðu sinna manna í dag þó þeir hafi beðið í lægri hlut gegn Chelsea í undanúrslitaleik enska bikarsins. Hann sagði sína menn hafa verið hársbreidd frá því að ná í úrslitaleikinn. 15.4.2007 19:09
Mourinho: Úrslitaleikurinn verður ótrúlegur Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hrósaði sínum mönnum í hástert í dag þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins með 2-1 sigri á Blackburn í framlengdum leik. Hann segir úrslitaleikinn milli Chelsea og Manchester United verða stórkostlegan. 15.4.2007 19:03
Allt í járnum í Þýskalandi Werder Bremen skaust aftur í annað sætið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag eftir góðan 2-0 sigur á Dortmund. Meistarar Bayern Munchen halda í veika von um að verja titilinn eftir 2-1 sigur á Leverkusen. 15.4.2007 17:57
Fylkir og ÍR fallin - Ólafur varði 29 skot í marki Vals Gríðarleg spenna var í dag í næst síðustu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta. Toppliðin Valur og HK unnu leiki sína því ráðast úrslit í deildinni ekki fyrr en í lokaumferðinni, en Fylkir og ÍR töpuðu leikjum sínum í dag og eru því fallin úr deildinni. 15.4.2007 17:42
Draumaúrslitaleikur á Wembley Chelsea tryggði sér í dag sæti í úrslitaleiknum í enska bikarnum með 2-1 sigri á Blackburn í undanúrslitum á Old Trafford. Liðið mætir því Manchester United í draumaúrslitaleik á Wembley. Frank Lampard kom Chelsea yfir í upphafi leiks en Jason Roberts jafnaði í þeim síðari. Í framlengingu var það svo Michael Ballack sem skoraði sigurmark Lundúnaliðsins í fínum knattspyrnuleik. 15.4.2007 17:36
Dýrt tap hjá Charlton Charlton missti í dag af gullnu tækifæri til að komast af fallsvæðinu í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið lá 2-1 fyrir Everton á útivelli. Ekkert mark kom í leiknum fyrr en eftir 80 mínútur þegar Joleon Lescott kom heimamönnum yfir. Darren Bent náði að jafna fyrir Charlton á 89. mínútu, en liðið missti af dýrmætu stigi í fallslagnum þegar Skotinn James McFadden skoraði sigurmark þeirrar bláklæddu í uppbótartíma. 15.4.2007 16:07
NBA: Beðið eftir Oden Gríðarleg eftirvænting ríkir nú í NBA deildinni um hvort miðherjinn öflugi Greg Oden hjá Ohio State háskólanum gefur kost á sér í nýliðavalinu í sumar. Oden er talinn einhver efnilegasti miðherji sem spilað hefur í háskólaboltanum á síðustu árum. 15.4.2007 15:49
Björgvin og Dagný sigursæl Skíðamóti Íslands lauk í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag en mótið hefur staðið yfir síðan á fimmtudag. Fátt var um óvænt úrslit í alpagreinunum. Dalvíkingurinn Björgvin Björgvinsson varð Íslandsmeistari í stórsvigi karla og hann hampaði einnig Íslandsmeistaratitli í svigkeppninni. 15.4.2007 15:32
Kiel bikarmeistari í Þýskalandi Kiel varð í dag þýskur bikarmeistari í handbolta eftir sveiflukenndan úrslitaleik gegn Kronau Östringen. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. Östringen sem sló Hamburg óvænt út í undanúrslitunum í gær var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik þegar liðið náði mest 6 marka forystu. Staðan í hálfleik var 19-15 fyrir Kronau Östringen sem vermir áttunda sætið í þýsku úrvalsdeildinni. Oleg Velyky var markahæstur Östringenmanna með 10 mörk. 15.4.2007 15:25
Kelly fór holu í höggi á Heritage mótinu Bandaríkjamaðurinn Jerry Kelly fór holu í höggi í gær og hefur forystu fyrir lokahringinn á Heritage golfmótinu á PGA mótaröðinni. Suður Afríkumaðurinn Ernie Els hafði þriggja högga forystu fyrir þriðja hring en sú staða var ekki lengi að breytast eftir að kylfingar hófu leik í gær. 15.4.2007 15:20
Ágúst að hætta með Hauka? Enn er óvíst hvort Ágúst Björgvinsson þjálfari Íslandsmeistara Hauka í Iceland Exress deild kvenna í körfubolta verði áfram við stjórnvölinn hjá Hafnarfjarðarliðinu. Haukar urðu í gær Íslandsmeistarar annað árið í röð þegar liðið vann seiglusigur á Keflavík en Haukastúlkur unnu einvígið 3-1. Haukar hirtu þrjá stærstu titlana, Íslandsmeistaratitilinn, deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn. 15.4.2007 15:18
Þórshamar stigameistari í Kata Íslandsmeistaramótið í kata fór fram í íþróttahúsi Hagaskóla í gær. Nýr Íslandsmeistari var krýndur í kvennaflokki. Rúmlega 40 keppendur frá 16 ára aldri voru skráðir á mótið. Kata er röð fyrirfram ákveðinna hreyfinga sem iðkandinn þarf að framkvæma í réttri röð, á réttum hraða og með réttum áherslum. 15.4.2007 15:16
Jafnt hjá Wigan og Tottenham í markaleik Wigan og Tottenham skildu jöfn 3-3 í fjörugum fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Wigan er í fallbaráttu en Tottenham í baráttu um sæti í Evrópukeppni. Wigan komst þrisvar yfir í leiknum en Lundúnaliðið náði alltaf að svara. 15.4.2007 14:56
Massa sigraði í Barein - Hamilton enn í verðlaunasæti Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari kom fyrstur í mark í Barein kappakstrinum í Formúlu 1 sem fram fór í dag. Breska ungstirnið Lewis Hamilton á McLaren varð annar og þar með fyrsti nýliðinn sem kemst á verðlaunapall í fyrstu þremur keppnum sínum. Kimi Raikkönen á Ferrari varð þriðji og heimsmeistarinn Fernando Alonso á McLaren fimmti. 15.4.2007 14:41
Memphis stöðvaði Denver Neðsta lið NBA deildarinnar Memphis Grizzlies gerði sér lítið fyrir og stöðvaði átta leikja sigurhrinu Denver Nuggets í nóptt með 133-118 sigri í fjörugum leik. Chucky Atkins og Tarence Kinsey skoruðu 28 stig hvor fyrir Memphis en Carmelo Anthony var atkvæðamestur hjá Denver með 28 stig. Alls voru sjö leikir á dagskrá í nótt. 15.4.2007 14:31
Siggi stöðvaði sigurgöngu Þorvaldar á “Þeir allra sterkustu” Hrossabóndinn Sigurður Sigurðarson í Þjóðólfshaga sigraði töltkeppnina á “Þeir allra sterkustu” í Skautahöllinni í Laugardal í gærkveldi á Freyð frá Hafsteinsstöðum. Gríðarlega hörð keppni var á milli fimm efstu hestanna en Sævar Örn Sigurvinsson reið sig upp úr B-úrslitum á Þotu frá Neðra-Seli. 15.4.2007 10:50
Davíð lagði Golíat - Valuev tapaði Rússneska tröllið Nikolai Valuev tapaði fyrsta bardaga sínum á ferlinum í nótt þegar hann tapaði fyrir Ruslan Chagaev frá Úsbekistan á stigum í bardaga þeirra um WBA beltið í þungavigt. Valuev var ósigraður í 46 bardögum. Hinn hugaði andstæðingur hans lét sig ekki muna um að vera feti lægri og 40 kílóum léttari og vann verðskuldaðan sigur. 15.4.2007 01:23
Framlengt hjá Blackburn og Chelsea Undanúrslitaleikur Blackburn og Chelsea í enska deildarbikarnum hefur verið framlengdur eftir að staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma á Old Trafford í Manchester. Frank Lampard kom Chelsea yfir eftir um stundarfjórðung, en Jason Roberts jafnaði fyrir baráttuglaða Blackburn menn á 63. mínútu. 15.4.2007 16:57
Orlando skrefi nær úrslitakeppninni Einum leik er þegar lokið í NBA deildinni í körfubolta í kvöld. Orlando Magic vann auðveldan sigur á Philadelphia á útivelli 104-87 og þarf nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Dwight Howard setti persónulegt met með 35 stigum og hirti auk þess 11 fráköst fyrir Orlando. Leikur Houston og New Orleans verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf eitt í nótt. 14.4.2007 23:27
Carrick borubrattur í treyju númer 16 Miðjumaðurinn Michael Carrick hjá Manchester United skortir greinilega ekki sjálfstraustið þessa dagana og segist njóta þeirrar áskorunar að spila í treyju númer 16 hjá liðinu. Goðsögnin Roy Keane lék með númer 16 þar á undan og Carrick er hvergi smeykur þó fólk ætli honum að taka við keflinu af Íranum grjótarða. 14.4.2007 22:15
Schalke í vænlegri stöðu Schalke tók stórt skref í átt að fyrsta meistaratitli sínum í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með sannfærandi 3-0 útisigri á Mainz. Kevin Kuranyi, Gerald Asamoah og Lincoln skoruðu mörk Schalke, sem hefur nú fjögurra stiga forskot á Bremen á toppnum. Bremen á leik til góða gegn Dortmund á morgun. 14.4.2007 21:09
Súrt tap hjá Real Madrid Real Madrid missti af tækifæri til að komast á topp spænsku deildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið lá 2-1 á útivelli fyrir Racing Santander. Real hafði ekki tapað í 9 leikjum í röð, en eftir að Raul kom Madrid yfir í upphafi leiks, skoraði varnarmaðurinn Ezequiel Garay tvö mörk úr vítaspyrnum í síðari hálfleiknum. 14.4.2007 20:39
FCK deildarmeistari í Danmörku Íslendingalið FCK í Danmörku tryggði sér í dag deildarmeistaratitilinn í handbolta þegar liðið lagði meistara Kolding í næst síðustu umferð deildarinnar 35-31. Arnór Atlason skoraði tvö mörk fyrir FCK og Gísli Kristjánsson eitt. FCK mætir Viborg í úrslitakeppni fjögurra efstu liðanna um meistaratitilinn, en hin undanúrslitarimman verður milli Kolding og GOG. 14.4.2007 20:34
Öruggur sigur hjá Íslandsmeisturunum Nýkrýndir Íslandsmeistarar Stjörnunnar unnu yfirburðasigur á Fram í dag 29-17 í DHL-deild kvenna í handbolta. Kristín Guðmundsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna Sólveig Kjærnested 5 og Rakel Bragadóttir 4. Ásta Birna Gunnarsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Fram. Valur burstaði Akureyri 33-23 og Grótta vann Hauka 27-21. 14.4.2007 20:19
Coppell hrósaði Brynjari Steve Coppell, stjóri Reading, var ekki sáttur við frammistöðu sinna manna í 1-0 sigrinum á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann sagði liðið hafa slakað of mikið á eftir að það náði forystu í leiknum en hrósaði Brynjari Birni Gunnarssyni fyrir vinnusemi sína á miðjunni. 14.4.2007 19:21
Ófreskjan mætir Hvíta-Tyson á Sýn í kvöld Það verður sannkallaður þungavigtarbardagi á dagskrá Sýnar í kvöld þegar rússneska tröllið Nikolai Valuev tekur á móti Ruslan Chagaev frá Úsbekistan í Stuttgart í Þýskalandi. Valuev er handhafi WBA beltisins og hefur ekki tapað í 46 bardögum. Bein útsending Sýnar hefst klukkan 21:55. Chagaev hefur notað óhefðbundnar aðferðir við æfingar til að búa sig undir að mæta tröllinu. 14.4.2007 18:55
Manchester United í úrslit Manchester United komst í dag í úrslit ensku bikarkeppninnar með öruggum 4-1 sigri á Watford á Villa Park í dag. Wayne Rooney kom United yfir á 7. mínútu en Hameur Bouazza jafnaði fyrir Watford á 26. mínútu. Cristiano Ronaldo kom United yfir aðeins tveimur mínútum síðar og staðan 2-1 í hálfleik. 14.4.2007 18:28
Haukastúlkur Íslandsmeistarar Haukastúlkur tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta annað árið í röð eftir 88-77 sigur á Keflavík í fjórða leik liðanna í Keflavík. Haukar unnu einvígið því 3-1. Leikurinn í dag var sveiflukenndur en Haukaliðið tryggði sér sigurinn í lokin með því að hirða hvert sóknarfrákastið á fætur öðru á mikilvægum augnablikum. Helena Sverrisdóttir hjá Haukum var kjörin besti leikmaður einvígisins og kemur það engum á óvart. 14.4.2007 17:45
Einar Árni: Það verður erfitt að fara í vesturbæinn "Það var sárt að tapa þessum leik, ég verð bara að segja það, en ég hef trú á því að mínir menn mæti enn grimmari í næsta leik. Ballið er rétt að byrja og við erum búnir að tapa núna tveimur leikjum þar sem við vorum í góðri stöðu og við verðum greinilega að fara að klára þessa leiki betur" sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur. 14.4.2007 17:08
Benedikt Guðmunds: Svakalegur leikur "Þetta er einn svakalegasti leikur sem ég hef takið þátt í. Rafmögnuð spenna, frábært andrúmsloft, hraði og harka. Þetta er bara eins og þetta gerist best. Við vorum aðeins að föndra með varnarafbrigði í þessum leik og það skilaði sér ágætlega í restina. Við höfum verið að vinna á alla leikina og náum að toppa á síðustu mínútunum," sagði Benedikt Guðmundsson eftir sigur KR í Njarðvík í dag. 14.4.2007 17:06
Els í forystu á Heritage mótinu Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els náði í gær forystu á Heritage mótinu í golfi. Els er með þriggja högga forystu þegar keppni er hálfnuð. Ástralinn Aaron Baddeley sem á titil að verja á þessu móti setti niður glæsilegt 16 metra langa pútt á sautjándu holu í gærkvöldi en hann lék hringinn í gær á 5 höggum undir pari og er samtals 6 höggum á eftir Els. 14.4.2007 16:48
Magnaður sigur KR í Njarðvík KR-ingar hafa tekið 2-1 forystu gegn Njarðvík í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir frækinn 96-92 sigur í Njarðvík í dag. KR-ingar höfðu nauma forystu í hálfleik en heimamenn höfðu góð tök á leiknum þangað til í lokin þegar KR-ingar sigu framúr og tryggðu sér sigur á lokamínútunum eins og í síðasta leik. 14.4.2007 16:39
Arsenal lagði Bolton Leikjunum sex í ensku úrvalsdeildinni er lokið. Arsenal vann mikilvægan 2-1 heimasigur á Bolton og Sheffield United vann dýrmætan 3-0 sigur á West Ham í botnbaráttunni. Manchester City og Liverpool skildu jöfn 0-0 og Reading lagði Fulham 1-0 í Íslendingaslagnum. 14.4.2007 16:20
Kiel og Kronau/Östringen leika til úrslita Í dag fóru fram undanúrslitaleikirnir í þýska bikarnum í handbolta og voru báðar viðureignir sýndar beint á Sýn. Kronau/Östringen vann nokkuð óvæntan sigur á Hamburg í morgun 29-28 og Kiel vann nauman sigur á Flensburg 34-33. Úrslitaleikurinn fer fram í hádeginu á morgun og verður sýndur beint á Sýn. 14.4.2007 14:57
60. sigurinn hjá Phoenix Phoenix Suns tryggði stöðu sína í öðru sæti Vesturdeildarinnar í NBA í nótt með því að leggja LA Lakers að velli 93-85. Lakers hefur verið í vandræðum undanfarna daga og er nú aðeins hársbreidd á undan grönnum sínum í Clippers og Golden State í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. 14.4.2007 14:16
Massa á ráspól í Barein Ferrari-ökumaðurinn Felipe Massa verður á ráspól í Barein kappakstrinum í Formúlu 1 sem fram fer á morgun. Massa var með besta tímann í tímatökum í morgun og ungstirnið Lewis Hamilton hjá McLaren var annar. Kimi Raikkönen hjá Ferrari var með þriðja besta tímann og heimsmeistarinn Fernando Alonso fjórði. 14.4.2007 12:25
Mótorhjólasýning Nitro í dag Nitro heldur mótorhjólasýningu fyrir framan húsakynni sín að Bíldshöfða 9 í dag frá kl. 12 til 16. Auk ýmissa gerða hjóla, fatnaðar og aukabúnaðar sem til sýnis verður, hefur verið búin til torfæruhjólabraut á grasflöt framan við verslunina þar sem nokkrir keppnismenn í mótorkrossi munu sýna tilþrif. 14.4.2007 11:11
Chelsea vann tvöfalt í mars Jose Mourinho, stjóri Chelsea og markvörður liðsins, Tékkinn Peter Cech, fengu verðlaun ensku úrvalsdeildarinnar fyrir marsmánuð. 14.4.2007 10:45
Stigin úr teignum skipta öllu Baráttan í einvígi lokaúrslitaeinvígis Iceland Express-deildar karla snýst ekki síst um hvort liðið er að skora meira inni í teig. 14.4.2007 10:30
Nær Keflavík að jafna metin? Körfubolti Lokaúrslitaeinvígi Iceland Express-deildar kvenna heldur áfram í Keflavík klukkan 16.15 í dag þegar Haukastúlkur fá aðra tilraun til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. 14.4.2007 10:15
Mætið tímalega Þriðji leikur lokaúrslita Njarðvíkur og KR um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta fer fram í Ljónagryfjunni í dag og ljóst að mikil áhugi er fyrir leiknum. 14.4.2007 10:00