Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flamini vill fara frá Arsenal Miðjumaðurinn Mathieu Flamini, sem verið hefur í herbúðum Arsenal frá árinu 2004, segist vilja fara frá félaginu. Leikmaðurinn sagði blaðamönnum í heimalandi sínu að hann vildi reyna fyrir sér hjá öðru liði því hann væri þreyttur á að halda ekki föstu sæti í liði Arsenal. 3.4.2007 12:35
Benitez fær að versla vel í sumar Breska sjónvarpið greinir frá því í dag að Rafa Benitez, stjóri Liverpool, muni fá allt að 40 milljónir punda til að kaupa leikmenn í sumar. Hann fundaði með eigendum félagsins um síðustu helgi og kom brosandi út af þeim fundi þar sem honum var lofað fjármunum til að styrkja liðið verulega. 3.4.2007 12:31
Kaka kemur Milan yfir á ný Brasilíski miðjumaðurinn Kaka er búinn að koma AC Milan yfir á ný gegn Bayern 2-1 í leik liðanna á San Siro. Markið var það sjöunda hjá Kaka í Meistaradeildinni í vetur, en það skoraði hann úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Vítaspyrnudómurinn var afar strangur og hætt við að Þjóðverjarnir eigi eftir að láta í sér heyra eftir leikinn, enda óttuðust þeir mjög reynsluleysi rússneska dómarans fyrir viðureignina í kvöld. 3.4.2007 20:24
Bayern jafnar í Mílanó Bayern Munchen er búið að jafna metin í 1-1 gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það var Daniel van Buyten sem skoraði þetta gríðarlega þýðingarmikla mark fyrir þýska liðið og ljóst að heimamenn verða að sækja stíft síðustu 10 mínúturnar í leiknum. 3.4.2007 20:21
Crouch klárar dæmið fyrir Liverpool Liverpool er komið í 3-0 gegn PSV í Meistaradeildinni. Markið skoraði Peter Crouch með laglegum skalla eftir fyrirgjöf Steve Finnan frá hægri og nú er útlitið orðið mjög dökkt hjá hollenska liðinu, sem á útileikinn eftir á Anfield. Markið kom á 63. mínútu, en staðan í leik AC Milan og Bayern er enn 1-0 fyrir Milan. 3.4.2007 20:10
Þrumufleygur frá Riise - Liverpool komið í 2-0 Norðmaðurinn John Arne Riise hefur komið Liverpool í 2-0 gegn PSV í Hollandi. Markið kom í upphafi síðari hálfleiks og var þar á ferðinni dæmigert mark fyrir bakvörðinn knáa - bylmingsskot af löngu færi í bláhornið. 3.4.2007 19:50
Hálfleikur í Meistaradeildinni Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Liverpool hefur yfir 1-0 á útvelli gegn PSV Eindhoven með marki Steven Gerrard og Andrea Pirlo kom AC Milan í 1-0 gegn Bayern Munchen í Mílanó. Leikirnir eru sýndir beint á rásum Sýnar. 3.4.2007 19:30
Pirlo kemur Milan yfir Andrea Pirlo hefur komið AC Milan yfir 1-0 gegn Bayern Munchen í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Pirlo skoraði með góðum skalla á 40. mínútu, en skömmu áður hefði Milan líklega átt að fá vítaspyrnu þegar Kaka var brugðið í teignum. 3.4.2007 19:26
Gerrard kemur Liverpool yfir Steven Gerrard er búinn að koma Liverpool í 1-0 gegn PSV í Hollandi. Hann skoraði með skalla eftir laglega fyrirgjöf frá Steve Finnan eftir um 27 mínútur. Staðan í leik AC Milan og Bayern er enn 0-0. Báðir leikir eru í beinni útsendingu á rásum Sýnar, en áskrifendur VefTV geta séð leik Liverpool í beinni útsendingu hér á Vísi. 3.4.2007 19:13
Þrjár breytingar á liði Liverpool Rafa Benitez hefur gert þrjár breytingar á byrjunarliði Liverpool sem sækir PSV heim í Meistaradeildinni í kvöld. Alvaro Arbeloa, Jermaine Pennant og Mark Gonzalez detta út úr liðinu og í stað þeirra koma inn bakverðirnir John Arne Rise, Steve Finnan og framherjinn Dirk Kuyt. Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan. 3.4.2007 18:18
Hlynur Bærings: DHL-höllin er okkar heimavöllur Hlynur Bæringsson átti ágætan leik gegn KR í kvöld en það dugði skammt og því þurfa Snæfellingar að mæta í oddaleik í DHL-höllinni á fimmtudaginn um laust sæti í úrslitum Iceland Express deildarinnar. Hlynur hefur engar áhyggjur af oddaleiknum og segir DHL-höllina vera heimavöll Snæfells í einvíginu. 2.4.2007 22:05
Fannar Ólafs: KR vantar pening í kassann Fannar Ólafsson, miðherji KR, var að vonum kátur með sigur hans manna á Snæfelli í fjórða leik liðanna í Stykkishólmi í kvöld. Hann sagði KR-liðið loksins hafa sýnt sitt rétta andlit í einvíginu og hlakkar til að spila oddaleikinn á fimmtudaginn. 2.4.2007 22:02
Friðrik Stefáns: Er hægt að hafa þetta betra? Friðrik Stefánsson, leikmaður Njarðvíkur, sagði einbeitingarleysi hafa kostað liðið sigur í fjórða leiknum gegn Grindavík í kvöld. Liðin verða að mætast í oddaleik á fimmtudaginn og mæta þar annað hvort Snæfelli eða KR. 2.4.2007 21:57
Grindavík knúði fram oddaleik Grindvíkingar tryggðu sér í kvöld oddaleik gegn Njarðvík í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar með 81-71 sigri í fjórða leik liðanna í Grindavík. Staðan er jöfn í einvíginu 2-2 og því verða þau að mætast í hreinum úrslitaleik í Njarðvík á fimmtudaginn. 2.4.2007 21:27
KR burstaði Snæfell KR-ingar völtuðu yfir Snæfellinga 104-80 í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í Stykkishólmi í kvöld. Ef undan er skilin smá rispa heimamanna í upphafi leiks var aldrei spurning hvoru megin sigurinn lenti í kvöld og ljóst að liðin verða nú að mætast í oddaleik í vesturbænum um sæti í úrslitum. 2.4.2007 21:02
Jackson flaug inn í heiðurshöllina Þjálfarinn Phil Jackson hjá LA Lakers var í dag tekinn inn í heiðurshöllina í NBA deildinni. Hann vann sex meistaratitla með Chicago Bulls á tíunda áratug síðustu aldar og aðra þrjá með liði LA Lakers í byrjun aldarinnar. Aldrei var spurning hvort Jackson færi inn í heiðurshöllina heldur aðeins hvenær og hann hefur nú fengið þar sæti á fyrsta árinu sem hann kom til greina. 2.4.2007 22:20
Páll Kristins: Við erum ekki hræddir við neitt Páll Kristinsson átti fínan leik í kvöld þegar hans menn í Grindavík lögðu Njarðvík öðru sinni og knúðu fram oddaleik í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Hann segir Grindvíkinga klára í verkefnið á fimmtudaginn. 2.4.2007 21:54
Jafnt hjá Villa og Everton Einn leikur var á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Aston Villa og Everton skildu jöfn 1-1 á Villa Park. Joleon Lescott kom gestunum yfir í upphafi leiks en Gabriel Agbonlahor jafnaði fyrir Villa í lokin. Heimamenn hafa ekki unnið leik síðan í byrjun febrúar en eru að mestu sloppnir við falldrauginn. Everton situr í sjöunda sætinu. 2.4.2007 21:20
Cole stefnir á endurkomu á miðvikudaginn Miðjumaðurinn Joe Cole hjá Chelsea hefur sett stefnuna á að vera með liði sínu á ný í Meistaradeildarleiknum gegn Valencia á miðvikudagskvöldið. Cole hefur verið frá keppni í fjóra mánuði og vonast til að fá að spila nokkrar mínútur sem varamaður í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitunum. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra. 2.4.2007 20:20
Hetja Snæfellinga spilar ekki í kvöld Fjórði leikur Snæfells og KR er nú að hefjast í undanúrslitum Iceland Express deildinni í körfubolta. Snæfellingar geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í kvöld, en þeir verða að gera það án hetju sinnar Martin Thuesen sem er meiddur. Thuesen skoraði sigurkörfu Snæfells í öðrum leiknum í Stykkishólmi. Leikur Grindavíkur og Njarðvíkur verður sýndur beint á Sýn klukkan 20 í kvöld. 2.4.2007 19:11
Federer íþróttamaður ársins þriðja árið í röð Tenniskappinn Roger Federer var í dag kjörinn íþróttamaður ársins þriðja árið í röð á Laureus hátíðinni. Stangastökkvarinn Yelena Isinbayeva var kjörin íþróttakona ársins. Það er nefnd íþróttafréttamanna frá 128 löndum sem stendur að valinu ár hvert. 2.4.2007 18:38
Rooney hefur ekki áhyggjur af markaskorun Wayne Rooney hjá Manchester United segist ekki hafa stórar áhyggjur af því þó hann hafi aðeins skorað 3 mörk í síðustu 13 leikjum sínum í öllum keppnum. Hann segir mestu máli skipta að liði sínu gangi vel og að það sé í toppsætinu. 2.4.2007 17:57
Rafa: Vanmetum ekki PSV Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur komið þeim skilaboðum áleiðis til leikmanna sinna að láta ekki blekkjast af slöku gengi PSV Eindhoven í hollensku deildinni undanfarið. Liverpool sækir PSV heim í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. 2.4.2007 16:45
Enginn þorði í framboð gegn Blatter Í dag varð ljóst að Sepp Blatter verður forseti Alþjóða Knattspyrnusambandsins næstu fjögur árin, en þá rann út frestur til mótframboðs til forseta hjá sambandinu. Blatter hefur verið í forsetastóli hjá FIFA síðan 1998 og verður þetta því þriðja kjörtímabil hans í valdastóli. 2.4.2007 15:35
Vidic er viðbeinsbrotinn Nú hefur verið staðfest endanlega að varnarmaðurinn Nemanja Vidic hjá Manchester United er viðbeinsbrotinn eins og óttast var í fyrstu. Þetta þýðir að leikmaðurinn verður frá keppni í að minnsta kosti 4-5 vikur og því verður að teljast ólíklegt að hann geti hjálpað liði sínu mikið á lokasprettinum í vor. 2.4.2007 15:28
Villa: Mitt hlutverk að nýta færin Spænski landsliðsframherjinn David Villa hjá Valencia segir að hann og hans menn séu meira en klárir í slaginn við Chelsea í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 18:30. 2.4.2007 15:23
Rummenigge ósáttur við dómaraval Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, hefur lýst yfir áhyggjum sínum í kjölfar þess að lítt reyndur rússneskur dómari var settur á leik liðsins gegn AC Milan í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinna. Rummenigge segir rússneska dómara ekki hafa reynst liði sínu vel í keppninni til þessa. 2.4.2007 14:59
Fyrstur til að ná þrisvar sinnum fullkomnum leik Hafþór Harðarson úr Lærlingum varð í gær fyrsti Íslendingurinn til þess að ná þrisvar sinnum fullkomnum leik í keilu, eða 300 stigum, þegar hann sigraði á Sjóvámótinu sem fram fór í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. 2.4.2007 13:51
Inter setur stefnuna á 100 stig Inter Milan hefur 20 stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu og ekkert nema stórslys getur komið í veg fyrir að liðið lyfti bikarnum á ný. Varnarmaðurinn Marco Materazzi segir liðið setja stefnuna á nýtt met í deildinni - 100 stig og ekkert tap. 2.4.2007 13:45
Enn hefur Zidane ekki samband við Materazzi Ítalski landsliðsmaðurinn Marco Materazzi segist enn vera að bíða eftir því að Zinedine Zidane biðji sig afsökunar á að hafa skallað sig í úrslitaleik HM í Þýskalandi síðasta sumar. Hann er þó bjartsýnn á að Frakkinn geri það einn daginn. 2.4.2007 13:34
Finnan með annað augað á úrslitaleiknum Varnarmaðurinn Steve Finnan hjá Liverpool segist ekki geta neitað því að hann sé kominn með annað augað á úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Liverpool mætir PSV Eindoven í fjórðungsúrslitum keppninnar annað kvöld í leik sem sýndur verður beint á Sýn klukkan 18:30. 2.4.2007 13:08
Van Gaal framlengir við AZ Alkmaar Þjálfarinn Luis van Gaal hefur framlengt samning sinn við hollenska liðið AZ Alkmaar um tvö ár eða til ársins 2010. Van Gaal hefur náð frábærum árangri með liðið síðan hann tók við fyrir tveimur árum. Liðið náði öðru sæti í deildinni í fyrra og er sem stendur í því þriðja. Þá er liðið komið í fjórðungsúrslit UEFA keppninnar þar sem það mætir fyrnasterku liði Bremen á fimmtudag. Grétar Rafn Steinsson leikur með AZ Alkmaar. 2.4.2007 13:02
Sagði Steve Nash hafa verið handtekinn fyrir ölvunarakstur Mike D´Antoni, þjálfari Phoenix, var mjög sáttur með sigurinn á Dallas í NBA deildinni í gær. Dagurinn endaði því á mun betri nótum en hann byrjaði, því eigandi liðsins lét hann hlaupa apríl. 2.4.2007 12:43
Breska pressan slúðrar enn um brottför Mourinho Nokkur af bresku slúðurblöðunum eru uppfull af því í dag að dagar Jose Mourinho séu taldir hjá Chelsea. Roman Abramovic eigandi átti í gær 15 mínútna fund með öllum helstu forráðamönnum félagsins og hafa bresku blöðin slegið því upp á síðum sínum í dag að efni fundarins hafi verið að ráða nýjan þjálfara og að jafnvel verði fleiri en einn maður ráðinn í verkefnið. 2.4.2007 12:37
Rómverjar segja Ronaldo vera leikara Þeir Amantino Mancini og Christian Panucci hjá ítalska liðinu Roma hafa nú sent út fyrstu kyndingarna fyrir leik Roma og Manchester United í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Þeir félagar segja að Cristiano Ronaldo megi ekki búast við neinni sérmeðferð frá dómurum leiksins og segja hann leikara. 2.4.2007 12:26
Jón Arnór með 12 stig í sigri Roma Jón Arnór Stefánsson skoraði 12 stig fyrir ítalska liðið Lottomatica Roma í gær þegar liðið skellti Benetton Treviso 73-61 á útivelli í A-deildinni í gær. Roma er í fjórða sæti deildarinnar. 2.4.2007 12:24
Adam Scott sigraði í Houston Ástralski kylfingurinn Adam Scott vann góðan sigur á Opna Houston mótinu í golfi sem lauk í Texas í gærkvöld. Sjónvarpsstöðin Sýn var með beina útsendingu frá lokahringnum. Scott lauk keppni á 17 höggum undir pari og var með þriggja högga forystu á næstu menn, þá Stuart Appleby og Bubba Watson sem luku keppni á 14 undir pari. 2.4.2007 12:20
Saha fer ekki með til Rómar Franski framherjinn Louis Saha fer líklega ekki með Manchester United til Rómar þar sem enska liðið spilar fyrri leik sinn við Roma í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudagskvöldið. Saha er nú óðum að ná sér eftir fimm vikna fjarveru vegna meiðsla á læri. 2.4.2007 12:16
300 milljónir punda fara í St. James´ Park Forráðamenn Newcastle hafa tilkynnt áform sín um að verja 300 milljónum punda í endurbætur á heimavelli liðsins. Þar er stefnt á að koma 60,000 manns í sæti og reisa á glæsilegt lúxushótel við hlið vallarins. Fjármagn í verkefnið kemur alfarið frá félaginu sjálfu segir í fréttatilkynningu, en þetta mun ekki hafa áhrif á leikmannakaup liðsins. 2.4.2007 12:12
Framkvæmdir á Stanley Park hefjast í maí Liverpool hefur nú formlega fengið grænt ljós á að hefja framkvæmdir vegna Stanley Park leikvangsins, sem verður nýr heimavöllur liðsins. Eigendur félagsins áttu fund með borgaryfirvöldum í Liverpool og í kjölfarið er reiknað með því að byggingavinna hefjist í júní. Þetta útilokar formlega að grannarnir Liverpool og Everton reisi leikvang saman eins og talið er að hafi komið til greina. Stefnt er að opnun leikvangsins árið 2010. 2.4.2007 12:07
Phoenix skellti Dallas Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar af voru þrír stórleikir á dagskrá. Phoenix jafnaði einvígið við Dallas í deildarkeppninni með 126-104 sigri á heimavelli. Utah vann afar mikilvægan útisigur á Houston og Detroit lagði Miami í uppgjöri risanna í Austurdeildinni. 2.4.2007 11:59
Grindavík - Njarðvík í beinni á Sýn Fjórði leikur Grindavíkur og Njarðvíkur í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 20. Sigri Njarðvík, tryggir liðið sér sæti í úrslitum. Snæfell getur á sama hátt tryggt sér sæti í úrslitum með sigri á KR í Stykkishólmi í fjórða leik liðanna í kvöld. 2.4.2007 11:40
Ekki stíll KR að skora 61 stig í leik KR-ingar eru komnir upp að vegg í úrslitakeppni Iceland Express-deildarinnar eftir tap í þriðja leiknum gegn Snæfelli á laugardag. Áhyggjur KR-inga ná einnig til ástandsins á leikstjórnanda liðsins, Tyson Patterson, sem var ekkert með síðustu átta mínútur síðasta leiks vegna meiðsla á kálfa. 2.4.2007 00:01
Grindavík yfir fyrir lokaleikhlutann Grindvíkingar hafa yfir 63-56 eftir þrjá leikhluta gegn grönnum sínum í Njarðvík í fjórða leik liðanna í undanúrslitunum í Iceland Express deildinni. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og rétt í þessu var kona nokkur úr hópi áhorfenda að vinna sér utanlandsferð með því að hitta úr Borgarskotinu fræga. Gamla hetjan Guðmundur Bragason frá Grindavík fékk líka að taka Borgarskot en skot hans frá miðju geigaði naumlega. 2.4.2007 21:06
Grindavík leiðir í hálfleik Grindvíkingar hafa 42-37 forystu þegar flautað hefur verið til leikhlés í fjórða leik þeirra gegn Njarðvíkingum í undanúrslitum Iceland Express deildar karla. KR-ingar eru í mjög vænlegri stöðu gegn Snæfelli þegar skammt er til leiksloka þar. 2.4.2007 20:46