Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Indianapolis Supercross úrslit. Það var mikil spenna sem myndaðist þegar einn af fremstu supercross ökumönnum heims í dag byrjaði síðastur eftir hræðilegt start. Enginn Ricky Carmichael einkenndi þó keppnina og mun supercrossið örugglega ekki vera það sama og þegar sú hetja er farinn. 26.3.2007 18:03
Makaay segr Bayern þurfa kraftaverk Hollenski framherjinn Roy Makaay hjá Bayern Munchen segir að liðið þurfi á kraftaverki að halda ætli það sér að verja meistaratitil sinn í Þýskalandi frá því í fyrra. Níu stigum munar á Bayern og toppliðinu Schalke þegar aðeins átta leikir eru eftir og telur Makaay að það sé einfaldlega of lítið. 26.3.2007 18:00
Alonso hefur trú á Liverpool Xabi Alonso, hinn spænski miðjumaður Liverpool, hefur fulla trú á að liðið getið endurtekið leikinn frá árinu 2005 og farið alla leið í Meistaradeild Evrópu á þessum tímabili. Alonso segir leikmenn liðsins spila af miklu sjálfstrausti í Meistaradeildinni. 26.3.2007 17:00
Ronaldo: Ég er einn af þeim bestu Cristiano Ronaldo leiðist ekki að tala um eigið ágæti sem knattspyrnumaður þessa dagana. Ekki er langt síðan hann titlaði sjálfan sig sem “of góðan” og eftir að hafa skorað tvö mörk fyrir Portúgal gegn Belgum um helgina sagði Ronaldo við portúgalska fjölmiðla að hann væri einn af besti leikmönnum í heimi. 26.3.2007 15:30
Tímabilið búið hjá Ray Allen Ray Allen mun ekki spila meira með liði sínu Seattle Supersonics í NBA-deildinni á tímabilinu en leikmaðurinn hefur ákveðið að bíða ekki lengur með að gangast undir óumflýjanlega aðgerð á ökkla. Allen hefur spilað sárþjáður í síðustu leikjum liðsins. 26.3.2007 15:15
Fabregas: Tímabilið er klúður Cesc Fabregas, hinn 19 ára gamli miðjumaður Arsenal, hefur viðurkennt að tímabilið í ár hafi verið klúður. Fabregas segir það óásættanlegt fyrir lið á borð við Arsenal að eiga ekki möguleika á neinum titlum á þessum tímapunkti leiktíðarinnar. 26.3.2007 14:30
Beckenbauer segir Þjóðverja með besta liðið Franz Beckenbauer, keisarinn í þýskri knattspyrnu, segir að þýska landsliðið sé það besta í Evrópu um þessar mundir, miðað við spilamennsku þess í síðustu leikjum. Beckenbauer segir að þjálfarar ættu að nota síðustu leiki þýska liðsins sem kennslumyndband í fótbolta. 26.3.2007 14:14
Romario kominn með 999 mörk Brasilíski framherjinn Romario skoraði eitt marka Vasco da Gama í 3-0 sigri liðsins á erkifjendunum í Flamengo í brasilísku úrvalsdeildinni í gær og hefur nú skorað 999 mörk á ferlinum, samkvæmt eigin talningu. Romario vantar nú aðeins eitt mark til að ná sínu stærsta markmiði á ferlinum. 26.3.2007 14:00
McLaren: Þetta er algjört kjaftæði Steve McClaren, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, segir ekki rétt að hann og framherjanum Wayne Rooney hafi rifist heiftarlega inn í búningsklefa eftir leikinn gegn Ísraelum á laugardag, eins og enskir fjölmiðlar sögðu frá í morgun. McLaren lýsir fréttunum sem “algjöru kjaftæði”. 26.3.2007 13:17
Woods vann í Miami í sjötta sinn Tiger Woods sigraði á CA-heimsmótinu í golfi í gær þrátt fyrir að hafa spilað illa á lokadeginum í Miami í gær og klárað hringinn á einu höggi yfir pari. Fjögurra högga forskot kappans fyrir lokadaginn gerði það hins vegar að verkum að aðrir kylfingar náðu ekki að ná efsta sætinu af honum. Þetta var í sjötta sinn sem Woods sigrar mótið. 26.3.2007 12:30
Saviola lofaður nýjur samningur Argentínski framherjinn Javier Saviola hjá Barcelona býst við því að vera boðinn nýr samningur við spænska stórveldið í vikunni. Verði sú raunin fá þær vangaveltur sem segja Eið Smára Guðjohnsen á förum frá Barcelona í sumar byr undir báða vængi. 26.3.2007 12:09
Adebayor rekinn úr landsliðinu Knattspyrnusamband Togo hefur tekið þá ákvörðun að reka Emmanuel Adebayor, framherja Arsenal og langbesta leikmann liðsins, og tvö aðra leikmenn vegna deilu þeirra við knattspyrnuyfirvöld landsins um bónusgreiðslur sem þeir telja sig eiga rétt á. Adebayor hafði hótað að hætta að spila fyrir landsliðið vegna málsins en nú hefur ákvörðunin verið tekin fyrir hann. 26.3.2007 11:59
Farangur landsliðsins skilaði sér ekki Á annan tug ferðataska í eigu KSÍ og leikmanna íslenska landsliðsins í fótbolta skiluðu sér ekki til Mallorca, þar sem liðið mætir því spænska í undankeppni EM á miðvikudag. Talið er að klúður á flugvellinum í Keflavík hafi orðið til þess að töskurnar fóru til Kanaríeyja í staðinn. Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu í morgun. 26.3.2007 10:45
Rooney og McLaren rifust heiftarlega Enskir fjölmiðlar fullyrða að landsliðsþjálfaranum Steve McLaren og framherjanum Wayne Rooney hafi rifist heiftarlega inni í búningsklefa eftir markalaust jafntefli Englendinga og Ísraela á laugardag. McLaren er sagður hafa húðskammað Rooney fyrir að ná ekki að skora, en Rooney svaraði þjálfara sínum fullum hálsi. 26.3.2007 10:18
Kobe skoraði ekki yfir 50 stig Kobe Bryant mistókst að skora yfir 50 stig fjórða leikinn í röð, en náði engu að síður að setja niður 43 stig þegar LA Lakers bar sigurorð af Golden State, 115-113, í NBA-deildinni í nótt. Alls fóru níu leikir fram í deildinni í nótt. 26.3.2007 10:06
KR marði sigur í fyrsta leik KR-ingar báru sigurorð af Snæfellingum, 82-79, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deild karla í körfubolta. Leikurinn reyndist frábær skemmtun og réðust úrslitin ekki fyrr en í blálokin. Í kvennaflokki jafnaði ÍS metin í rimmunni gegn Haukum í undanúrslitum með góðum 84-74 sigri. Staðan þar er nú 1-1. 25.3.2007 20:59
Man. Utd. á eftir Deco og Richards? Ensku slúðurblöðin greina frá því í morgun að Alex Ferguson ætli að fá þá Deco, leikmann Barcelona, og Micah Richards hjá Manchester City til Old Trafford á næstu leiktíð. Deco er sagður orðinn leiður á tilverunni í Katalóníu og vill nýja áskorun, en Richards yrði aðeins þriðji leikmaðurinn í sögunni til að fara frá Man. City yfir til erkifjendanna í Man. Utd. 25.3.2007 20:00
Valsmenn komnir með tveggja stiga forystu Valsmenn náðu í kvöld tveggja stiga forystu í DHL-deild karla í handbolta með því að leggja nýkrýnda bikarmeistara Stjörnunnar örugglega af velli í Laugardalshöllinni, 31-25. Valsmenn voru með yfirhöndina nánast allan leikinn og unnu verðskuldað. 25.3.2007 19:29
Varalið Þjóðverja gegn Dönum Joachim Loew, þjálfari þýska landsliðsins, ætlar að gefa átta lykilmönnum liðsins frí þegar það tekur á móti Dönum í vináttuleik á miðvikudag. Loew ætlar að nota leikinn til að gefa ungum og óreyndum leikmönnum tækifæri, en Þjóðverjar unnu frækinn útisigur á Tékkum í gærkvöldi. 25.3.2007 19:15
Raikkonen á að fá að drekka að vild Eddie Jordan, ein af helstu goðsögnu formúlu 1, hefur beðið forráðamenn Ferrari um að hafa ekki áhyggjur af óhóflegri drykkju finnska ökumannsins Kimi Raikkonen, en sá er sagður vera mikið fyrir að fara út á lífið og fá í tána. Jordan segir að á meðan Raikkonen haldi áfram að aka eins og hann hefur verið að gera geti drykkjan ekki annað en verið að gera honum gott. 25.3.2007 18:30
Sanchez segir Healy vera í heimsklassa Lawrie Sanchez, þjálfari Norður-Íra í knattspyrnu, segir markamaskínuna David Healy vera heimsklassa sóknarmann. Healy skoraði þrennu í 4-1 sigri Norður-Íra á Liechtenstein í gær og hefur alls skorað sex mörk í undankeppninni. Alls hefur Healy skorað 27 mörk í 55 landsleikjum á ferlinum. 25.3.2007 17:55
HK og Fram skildu jöfn - ÍR lagði Fylki HK og Fram gerðu jafntefli, 25-25, í DHL-deild karla í handbolta í dag. Úrslitin þýða að HK er enn á eftir á Valsmönnum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en bæði lið hafa hlotið 25 stig. Valur á hins vegar leik til góða gegn nýkrýndum bikarmeisturum Stjörnunnar kl. 18 í dag. Í hinum leik dagsins vann ÍR lið Fylkis, 30-29. 25.3.2007 17:47
Olsen ósáttur við spænsku boltastrákana Morten Olsen, landsliðsþjálfari Dana, var allt annað en sáttur með spænsku boltastrákana sem voru við störf á leiknum við Spánverja á Bernabeu-vellinum í Madríd í gær og sakar þá um að tefja leikinn vísvitandi á síðustu mínútum hans. Olsen hraunaði enn fremur yfir svissneskan dómara leiksins. 25.3.2007 17:30
Aragones ekki ánægður Þrátt fyrir að Spánverjar hafi náð að halda í vonina á að komast áfram í lokakeppni EM með 2-1 sigri á Dönum í gærkvöldi var landsliðsþjálfarinn Luis Aragones ekki ánægður með frammistöðu lærisveina sinna. Aragones sagði sína menn hafa orðið alltof taugaveiklaða eftir að hafa náð forystu, en litlu munaði að 10 leikmenn Danmerkur næðu að jafna metin í síðari hálfleik. 25.3.2007 17:00
Arsenal fylgist með viðræðum Klose og Werder Bremen Forráðamenn Arsenal eru sagðir fylgjast vel með gangi mála í viðræðum Miroslav Klose og Werder Bremen um nýjan samning þýska landsliðsmannsins við félagið. Enn sem komið er hefur viðræðunum þokast hægt áfram og segja nokkur ensku blaðanna í morgun að Arsenal hyggist bjóða fimm milljónir punda í Klose ef samningar náist ekki. 25.3.2007 16:30
Portlandi lagði Kiel með tveggja marka mun Portland San Antonio frá Spáni lagði Þýskalandsmeistara Kiel af velli, 30-28, í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Ólíkegt verður að teljast að forskot Portland dugi til að komast í úrslit keppninnar, enda Kiel nánast ósigrandi á heimavelli sínum. 25.3.2007 15:37
Adebayor var hótað lífláti Emmanuel Adebayor, framherji Arsenal, er ekki viss um hvort hann hafi hug á að spila fyrir þjóð sína aftur eftir að hafa fengið lífslátshótanir fyrir landsleik Togo og Sierra Leone í Afríkukeppninni í gær. Adebayor segir að sér og fjölskyldu sinni hafi verið hótað hinu versta ef hann hefði ekki spilað leikinn. 25.3.2007 15:16
Terry segir McLaren hafa verið brjálaðan John Terry, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, hefur greint frá því að þjálfarinn Steve McLaren hafði verið æfur út í leikmenn liðsins eftir markalausa jafnteflið gegn Ísrael í gær. Terry kveðst ánægður með hárblástur McLaren og segir leikmann hafa átt skammarræðuna skilið. 25.3.2007 14:39
Birgir Leifur lauk keppni á pari Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á pari á Madeira-mótinu í Portúgal og er í 45. sæti þegar um helmingur keppenda á eftir að ljúka leik. Sá árangur færir Birgi Leifi um 340 þúsund krónur í verðlaunafé, en hann lék á einu höggi yfir pari í morgun. 25.3.2007 13:40
Corradi: Manchester City er martröð Ítalski sóknarmaðurinn Bernardo Corradi fer ekki fögrum orðum um stjóra sinn Stuart Pearce í enskum fjölmiðlum í morgun og lýsir sínu fyrsta tímabili á Englandi sem “lifandi martröð”. Corradi kom til Manchester City frá Valencia síðasta sumar og hefur átt erfitt uppdráttar í ensku deildinni. Hann segir Pearce skorta tekníska þekkingu til að ná árangri. 25.3.2007 13:24
Garcia missti pútt og hrækti á völlinn Spænski kylfingurinn Sergio Garcia á yfir höfði sér væna fjársekt fyrir að hafa hrækt ofan í holuna á 13. braut á heimsmótinu sem fram fer í Miami um helgina. Garcia fékk skolla á brautinni eftir að hafa misst auðvelt pútt og brást við með fyrrgreindum hætti. Þess má geta að hrákan fór beint ofan í holuna. 25.3.2007 13:15
McLaren: Við verðum að skora mörk Steve McLaren, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, var ekki ánægður með framgöngu sinna manna fyrir framan marka Ísraela í viðureign þjóðanna í undankeppni EM í gærkvöldi. Enska liðið var mun meira með boltann og stjórnaði leiknum lengst af en gekk illa að skapa sér færi gegn vel skipulagðri vörn Ísraela. 25.3.2007 13:00
Miami missti niður 19 stiga forystu Philadelphia sýndi mikinn karakter í leik liðsins gegn Miami í nótt með því að vinna upp 19 stiga forskot meistaranna í síðari hálfleik og uppskera að lokum öruggan sigur, 93-85. Þetta var 10 sigur Philadelphia í síðustu 14 leikjum, en jafnframt þriðja tap Miami í síðustu fjórum leikjum. 25.3.2007 12:01
Örn setti Íslandsmet en komst ekki í úrslit Sundmaðurinn Örn Arnarson náði ekki að komast í úrslit í 50 flugsundi í HM í Ástralíu, en hann lenti í 7. sæti í sínum milliriðli. Örn setti Íslandsmet í undanrásunum í morgun þegar hann synti á 24,02 sekúndum en í milliriðlinum synti hann á 24,34 sekúndum. 25.3.2007 11:53
Spánverjar lögðu Dani Spánverjar unnu 2-1 sigur á Dönum í undankeppni EM í kvöld og ættu því að mæta fullir sjálfstraust í viðureignina gegn Íslendingum á miðvikudagskvöld. Danir léku manni færri lengst af leiknum eftir að Niclas Jensen fékk að líta rauða spjaldið strax á 20. mínútu leiksins. Þá burstuðu Portúgalar heillum horfna Belga, 4-0. 24.3.2007 22:40
Góður sigur Þjóðverja á Tékkum Þjóðverjar unnu góðan útisigur á Tékkum í uppgjöri efstu liða D-riðils undankeppni EM í fótbolta í kvöld. Kevin Kuranyi skoraði bæði mörk Þjóðverja. Þá vann Króatía 2-1 sigur á Makedóníu eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik og tryggði stöðu sína á toppi E-riðils. 24.3.2007 21:48
Norður-Írar halda sínu striki Norður-Írar unnu öruggan sigur á Lichenstein á útivelli í F-riðli undankeppni EM í fótbolta í kvöld, 4-1, og halda þannig sigurgöngu sinni í riðlinum áfram. Liðið hefur nú hlotið 10 stig af síðustu 12 mögulegu, eftir að hafa tapað fyrir Íslendingum í fyrsta leik sínum. Spánverjar hafa 1-0 forystu gegn Dönum eftir fyrri hálfleik og eru Danir einum manni færri. 24.3.2007 21:38
Ronaldinho leiddi Brasilíu til stórsigurs Ronaldinho skoraði tvö mörk og átti mjög góðan leik fyrir Brasilíu sem gjörsigraði Chile, 4-0, í vináttuleik liðanna sem fram fór í Svíþjóð í dag. Dunga, þjálfari brasilíska liðsins, stillti upp Kaka og Robinho við hlið Ronaldinho í fremstu víglínu með þessum góða árangri. 24.3.2007 21:30
Anelka var hetja Frakka Nicolas Anelka var hetja Frakka í dag þegar hann tryggði þjóð sinni afar mikilvægan 1-0 sigur á Litháum í B-riðli undankeppni EM í dag. Anelka skoraði sigurmarkið á 74. mínútu, en leikurinn þótti ekki upp á marga fiska. Með sigrinum náðu Frakkar að halda í við Skota í baráttunni um toppsætið í riðlinum en bæði lið eru með 12 stig eftir fimm leiki. 24.3.2007 20:46
Englendingar náðu aðeins jafntefli í Ísrael England og Ísrael gerðu markalaust jafntefli í undankeppni EM í knattspyrnu í kvöld þegar liðin áttust við í Ísrael. Úrslitin eru mikil vonbrigði fyrir Englendinga og er liðið nú í þriðja sæti E-riðilsins með átta stig. Á sama tíma unnu Rússar lið Eista og komust þannig í efsta sæti riðilsins. 24.3.2007 20:20
Öruggt hjá Njarðvík gegn Grindavík Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu öruggan sigur á Grindvíkingum í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í kvöld, en leikið var í Njarðvík. Njarðvík leiddi nánast allan leikinn og vann að lokum með 18 stiga mun, 96-78, og er þar með komið með 1-0 forystu í einvígi liðanna. Það lið sem fyrr sigrar þrjá leiki fer í úrslit. 24.3.2007 19:41
Vieri við það að snúa aftur á völlinn Ítalski sóknarmaðurinn Chrstian Vieri er á góðum batavegi eftir að hafa verið frá keppni og æfingum síðasta árið vegna meiðsla og er jafnvel talið að hann muni spila sinn fyrsta leik um helgina frá því í mars á síðasta ári. Vieri er byrjaður að æfa af fullum krafti og er í skýjunum með að geta loksins byrjað að spila á ný. 24.3.2007 19:29
Frábær endasprettur tryggði Akureyri sigur Haukar máttu þola tap á heimavelli sínum fyrir Akureyri í DHL-deild karla í handbolta í dag, 27-28. Heimamenn fóru afar illa að ráði sínu á lokasprettinum eftir að hafa verið með forystu stærstan hluta leiksins. Akureyri er nú komið með 18 stig og fjarlægist óðum fallbaráttuna en Haukar eru áfram með 12 stig og í bullandi fallbaráttu. 24.3.2007 17:34
Grindavík jafnaði metin gegn Keflavík Grindavík hafði betur gegn Keflavík, 100-94, eftir framlengdan leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna í körfubolta sem var að ljúka rétt í þessu. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 91-91 en Keflvíkingar náðu að jafna metin með góðum lokakafla. Heimamenn voru hins vegar mun sterkari í framlengingunni og tryggðu sér sigur. 24.3.2007 17:31
Írar og Skotar unnu sína leiki Írland hafði betur gegn Wales í leik liðanna í D-riðli undankeppni EM í dag en það var miðjumaðurinn Stephen Ireland sem skoraði eina mark leiksins. Í B-riðlinum er tveimur leikið lokið, Úkraína bar sigurorð af Færeyjum á útivelli, 2-0, og Skotar lögðu Georgíumenn af velli, 2-1. 24.3.2007 17:21