Fleiri fréttir

Navarro vill vægari refsingu

David Navarro, leikmaður Valencia á Spáni, vonast til þess að afsökunarbeiðni hans til Nicolas Burdisso, leikmann Inter, verði til þess að sjö mánaða leikbannið sem hann var dæmdur í hjá UEFA og FIFA fyrir skemmstu verði stytt. Navarro, sem nefbraut Burdisso í leik liðanna í Meistaradeildinni í síðasta mánuði, hefur áfrýjað dómnum.

Birgir Leifur lék á einu höggi undir pari

Birgir Leifur Hafþórsson er samtals á einu höggi undir pari þegar þremur hringjum er lokið á Madeira-mótinu í Portúgal. Birgir Leifur var að ljúka keppni rétt í þessu og lék hann hringinn í dag 71 höggi, einu höggi undir pari. Hann er í 35. sæti mótsins sem stendur ásamt 11 öðrum keppendum, en einum hring er ólokið.

Owen fer ekki fet

Glenn Roeder, þjálfari Newcastle, segir að Michael Owen sé ekki á förum frá Newcastle, en enski sóknarmaðurinn var sagður óánægður í enskum fjölmiðlum um að liðið spili ekki í Evrópukeppni á næsta ári. Newcastle er í 11. sæti deildarinnar og þarf kraftaverk til að komast í Evrópukeppni en Roeder segir Owen ekki óánægðan í herbúðum liðsins.

Terry vill meiri samheldni

John Terry, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, segir að leikmenn liðsins verði að spila fyrir þjóð sína á sama hátt og þeir spili fyrir félagslið sín. Enska liðið hefur ekki verið upp á sitt besta í síðustu leikjum sínum en það mætir Ísrael í gríðarlega mikilvægum leik í undankeppni EM í dag.

Kobe með yfir 50 stig fjórða leikinn í röð

Kobe Bryant hjá LA Lakers hélt áfram að rita nafn sitt í sögubækur NBA-deildarinnar þegar hann skoraði yfir 50 stig fjórða leikinn í röð í nótt. Þá lagði Lakers lið NO/Oklahoma af velli, 111-105, og skoraði Kobe 50 stig. Einn annar leikmaður í sögunni hefur náð viðlíka árangri; goðsögnin Wilt Chamberlain.

Naumur sigur Flensburg

Flensburg frá Þýskalandi bar sigurorð af spænska liðinu Valladolid, 32 -30, í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi. Leikurinn, sem fram fór í Þýskalandi, var sá fyrri af tveimur en sá síðari fer fram í Valladolid um næstu helgi.

Ármann Smári í stað Gunnars Heiðars

Ármann Smári Björnsson hjá Brann í Noregi var í dag valinn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu í stað Gunnars Heiðar Þorvaldssonar sem er meiddur. Þetta er þriðja breytingin sem Eyjólfur Sverrisson þjálfari hefur orðið að gera á landsliðshópnum.

Haukar og Keflavík unnu

Haukar og Keflavík unnu fyrstu leikina í undanúrslitakeppni um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta. Haukar höfðu undirtökin allan tímann í leiknum gegn ÍS í gærkvöldi. Í hálfleik var staðan 38-29. Ifeoma Okonkwo var stigahæst í Haukaliðinu, skoraði 30 stig auk þess sem hún tók 13 fráköst. Helena Sverrisdóttir skoraði 14 stig og tók 13 fráköst. Signý Hermannsdóttir var stigahæst í liði ÍS, skoraði 16 stig en Casey Rost kom næst með 15.

Verja níu og hálfum milljarði til íþróttamála

Ríki og sveitarfélög verja 9 og hálfum milljarði króna til íþróttamála. Helmingur þeirrar upphæðar fer í rekstur íþróttamannvirkja. Þetta kemur fram í meistararitgerð Þórdísar Gísladóttur sem hún skrifaði við Háskólann á Bifröst. Þórdís hefur reiknað út að kostnaður hins opinbera af íþróttaunglingi sé 17-28 þúsund krónur á ári en að vímuefnaunglingur kosti samfélagið 1,7 til 2,9 milljónir króna.

Búist við Richards í byrjunarliðinu

Búist er við því að Micah Richards, hinn 18 ára varnarmaður Manchester City, eigi eftir að geta spilað með Englendingum á morgun.Hann náði að klára æfingu með enska landsliðinu í dag en Richards þurfti að fara af velli í sigurleik Manchester City gegn Middlesbrough í síðastliðinni viku.

Birgir Leifur líklega áfram

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Leyni, lauk spilamennsku í dag á tveimur höggum undir pari. Í gær hafði hann spilað á tveimur höggum yfir og endar því á pari. Viðbúið er að hann komist í gegnum niðurskurðinn en Birgir er nú í 39. sæti ásamt hópi manna.

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari eftir 11 holur

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Leyni, er á einu höggi yfir pari þegar hann hefur leikið ellefu holur af átján á opna Madeira mótinu í golfi á eyjunni Madeira sem tilheyrir Portúgal.

McClaren finnur ekki fyrir aukinni pressu

Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segist ekki finna fyrir meiri þrýstingi en venjulega fyrir viðureign Englendinga og Ísraela í undankeppni EM á morgun. Leikurinn er afar þýðingarmikill fyrir enska liðið enda er það nú í þriðja sæti í E-riðli eftir að hafa aðeins gert jafntefli við Makedóna og tapað fyrir Króötum í síðustu tveimur leikjum.

Jóhann Gunnar eini nýliðinn í hópi Alfreðs

Einn nýliði, Jóhann Gunnar Einarsson úr Fram, er í 17 manna landsliðshópi Alfreðs Gíslasonar sem tekur þátt í fjögurra landa í París um páskana. Tilkynnt var um hópinn í dag og er hann skipaður eftirtöldum leikmönnum:

Owen vonast til að byrja að æfa í næsta mánuði

Enski landsliðsmaðurinn Michael Owen, leikmaður Newcastle, vonast til að geta hafið æfingar á ný í næsta mánuði en hann hefur verið frá vegna meiðsla sem hann hlaut á hné á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í fyrrasumar.

Ármann Smári í landsliðið í stað Gunnars Heiðars

Ármann Smári Björnsson, leikmaður Brann, hefur verið valinn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu fyrir leikinn gegn Spánverjum í næstu viku eftir að Gunnar Heiðar Þorvaldssson, leikmaður Hannover, þurfti frá að hverfa vegna meiðsla. Gunnar hefur glímt við nárameiðsli og tóku þau sig upp eftir síðasta leik hans hjá Hannover eftir því sem segir á vef Knattspyrnusambands Íslands.

Ég mun ekki skella á Arsene Wenger

Thomas Sörensen, landsliðsmarkvörður Dana í knattspyrnu og markvörður Aston Villa, íhugar nú að óska eftir félagaskiptum til þess að geta leikið í Meistaradeildinni eða Evrópukeppni félagsliða.

Barcelona neitar að tjá sig um hugsanleg vistaskipti Eiðs

Spænska knattspyrnufélagið Barcelona neitar að tjá sig um fréttir þess efnis að Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, sé hugsanlega á leið frá félaginu og aftur til Englands.

Stensson og Allenby efstir í Miami

Svíinn Henrik Stenson og Ástralinn Robert Allenby hafa forystu eftir fyrsta hring á WGC-CA meistaramótinu í Miami sem er liður í PGA-mótaröðinni.

Bob Woolmer var kyrktur

Lögreglan á Jamaíku segir að Bob Woolmer, fyrrverandi þjálfari pakistanska krikketlandsliðsins, hafi verið kyrktur. Woolmer fannst meðvitundarlaus á hótelherbergi í Kingston á sunnudagsmorgun, daginn eftir að pakistanska liðið féll óvænt úr leik á heimsmeistaramótinu á Jamaíku. Hann lést svo á sjúkrahúsi sama dag.

Yfir 50 stig þrjá leiki í röð

Kobe Bryant skoraði 60 stig í gærkvöldi þegar Los Angeles Lakers sigraði Memphis 121-119. Kobe komst þar með í metabækurnar því þetta var þriðji leikurinn í röð sem hann skorar yfir 50 stig. Hann er aðeins fjórði körfuboltakappinn sem skorar meira en 50 stig þrjá leiki í röð. Hinir þrír eru Wilt Chamberlain, Elgin Baylor og Michael Jordan.

Knattspyrnusambandið rannsakar slátrunarhótanir

Knattspyrnusamband Evrópu ætlar að taka til meðferðar ummæli belgíska landsliðsmarkvarðarins Stijn Stijnen í dag, en hann sagði landa sína ætla að slátra Portúgalanum Cristiano Ronaldo þegar liðin mætast í landsleik á laugardaginn.

Spenna í Keflavík

Úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna hófst með látum í kvöld. Íslandsmeistarar Hauka voru fjarri sínu besta í fyrsta leiknum gegn ÍS en höfðu engu að síður sigur 76-61. Keflavíkurstúlkur lögðu granna sína frá Grindavík á heimavelli 87-84 í hörkuleik.

Jón með 8 stig í tapleik

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma töpuðu í kvöld á útivelli fyrir Maccabi Tel Aviv í Meistaradeildinni í körfubolta 79-72. Jón skoraði 8 stig og gaf 2 stoðsendingar á 19 mínútum. Hann var öflugur á lokasprettinum þegar ítalska liðið tók góða rispu, en heimamenn náðu að halda sínu og sigruðu. Þetta var fimmta tap Roma í röð í keppninni eftir sigur í fyrsta leik.

Man Utd og Lille sektuð

Manchester United og Lille voru í dag sektuð fyrir uppákomurnar sem urðu á leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í síðasta mánuði. Stuðningsmenn beggja liða höguðu sér illa og þá var öryggiskröfum ekki framfylgt.

Grétar Rafn gjafmildur á afmæli sínu

Landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Grétar Rafn Steinsson, afþakkaði allar gjafir þegar hann hélt upp á afmæli sitt á árinu. Hann ákvað þess í stað að styrkja gott málefni. Hans Steinar Bjarnason greindi frá þessu í íþróttafréttum á Stöð 2 í kvöld og fréttina má sjá á VefTV síðar í kvöld.

Houston - Detroit í beinni í nótt

Viðureign Houston Rockets og Detroit Pistons verður sýnd beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld klukkan hálf eitt. Þetta er kjörin upphitun fyrir leik San Antonio og Detroit sem sýndur verður beint á Sýn á miðnætti annað kvöld.

Yoon bætti markametið í Þýskalandi

Kóreska stórskyttan Kyung-Shin Yoon hjá Hamburg varð í gær markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta frá upphafi þegar hann skoraði 8 mörk í sigri Hamburg á Wilhelmshavener. Yoon hefur skorað 2662 mörk á ferlinum og toppaði Þjóðverjann Jochen Fraatz. Hann er markahæstur í deildinni enn á ný í ár og er án efa mesti markaskorari í sögu úrvalsdeildarinnar.

Doll blæs í herlúðra hjá Dortmund

Thomas Doll, nýráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Dortmund, vill að leikmenn liðsins hætti að væla í fjölmiðlum og einbeiti sér að því að bjarga liðinu frá falli. Dortmund hefur átt mjög erfitt uppdráttar í vetur og er Doll þriðji þjálfari liðsins síðan um jól.

Pearce vill meiri aura

Stuart Pearce stjóri Manchester City hefur kallað á stjórn félagsins að dæla meiri peningum í liðið svo það geti verið samkeppnishæft í ensku úrvalsdeildinni. Gengi liðsins hefur valdið vonbrigðum í vetur og er það í fallbaráttu.

Seedorf vill Nistelrooy í landsliðið

Miðjumaðurinn Carence Seedorf hjá AC Milan vill ólmur fá landa sinn Ruud Van Nistelrooy inn í hollenska landsliðið. Framherjinn hefur átt í deilum við landsliðsþjálfarann Marco Van Basten og hefur ekki spilað með liðinu síðan á HM í sumar.

Redknapp sektaður

Harry Redknapp stjóri Portsmouth var í dag sektaður og aðvaraður af aganefnd enska knattspyrnusambandsins vegna hegðunar sinnar eftir leik liðsins við Manchester City í síðasta mánuði.

Pizarro hótar að hætta hjá Bayern

Perúmaðurinn Claudio Pizarro hjá Bayern Munchen segist ætla að fara frá félaginu ef honum verði ekki boðinn nýr og betri samningur fljótlega. Samningur hans rennur út í sumar og sagt er að hann vilji fá allt að 50.000 pund í vikulaun.

Birgir á tveimur yfir pari

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk fyrsta hringnum á Meideira mótinu í golfi á 74 höggum í dag eða tveimur höggum yfir pari. Mótið er liður í Evrópumótaröðinni. Hann er sem stendur í kring um 70. sætið af 144 keppendum, en 70 efstu komast í gegn um niðurskurð á morgun.

Filip Jicha til Kiel

Tékkneska stórskyttan Filip Jicha hefur gengið frá þriggja ára samningi við stórlið Kiel í Þýskalandi og gengur í raðir þess í sumar. Jicha er samherji þeirra Loga Geirssonar og Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar hjá Lemgo. Hann var einn besti leikmaður Tékka á síðasta heimsmeistaramóti og verður 25 ára gamall í vor.

Ólafur tilnefndur sem leikmaður ársins

Ólafur Stefánsson er einn sjö handboltamanna sem Alþjóða Handknattleikssambandið hefur tilnefnt sem leikmenn ársins. Allir geta gefið Ólafi sitt atkvæði með því að fara inn á heimasíðu sambandsins eða með því að smella á hlekkinn hér í fréttinni.

Dapur leiktíð hjá Milwaukee

Lið Milwaukee Bucks hefur valdið miklum vonbrigðum í NBA deildinni í vetur. Meiðsli hafa þar sett stórt strik í reikninginn og í gær varð ljóst að tveir af lykilmönnum liðsins munu ekki spila meira með liðinu það sem eftir er leiktíðar.

Rivaldo á fallegasta mark í sögu Barcelona

Mark Brasilíumannsins Rivaldo gegn Valencia í lokaleik spænsku deildarinnar árið 2001 hefur verið kosið fallegasta og um leið mikilvægasta mark í sögu Barcelona á vefsíðu El Mundo Deportivo. Smelltu á hlekk í fréttinni til að sjá myndband af markinu.

Schuster ekki í viðræðum við Real Madrid

Þýski þjálfarinn Bernd Schuster hjá Getafe segir ekkert til í skrifum AS sem í dag fullyrti að hann væri í viðræðum við Real Madrid um að taka við af Fabio Capello. Schuster hefur áður lýst því yfir að hann vilji einn daginn taka við stóra liðinu í Madrid, en þvertekur fyrir að hafa rætt við forráðamenn félagsins nú.

Getafe mætir Barcelona í bikarnum

Í dag var dregið í undanúrslit Konungsbikarsins á Spáni. Smálið Getafe frá Madrid mætir þar Spánarmeisturum Barcelona, en liðið er komið í undanúrslit keppninnar í fyrsta sinn í sögunni. Barcelona hefur unnið keppnina 24 sinnum. Hin undanúrslitaviðureignin verður einvígi Sevilla og Deportivo. Leikirnir fara fram dagana 18. apríl og 9. maí en úrslitaleikurinn er ekki fyrr en 23. júní.

Woodgate spilar ekki með Englendingum

Miðvörðurinn Jonathan Woodgate hjá Middlesbrough er nýjasta nafnið á sjúkralista enska landsliðsins. Hann dró sig í dag út úr hópnum sem mætir Ísrael og Andorra vegna hnémeiðsla. Mikil meiðsli eru í röðum enska landsliðsins, sérstaklega í vörninni.

Beiðni Sevilla vísað frá

Fyrri leikur Sevilla og Tottenham í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða fer fram fimmta apríl eins og til stóð. Spænska liðið vildi láta færa leikinn til vegna hátíðarhalda í borginni á skírdag, en Knattspyrnusambandið neitaði beiðninni.

Belgar ætla að slátra Cristiano Ronaldo

Stijn Stijnen, markvörður Brugge og belgíska landsliðsins, segir sína menn muni slátra Cristiano Ronaldo þegar Belgar mæta Portúgölum í landsleik í Lissabon á laugardaginn. George Boateng hjá Middlesbrough lét svipuð orð falla um Ronaldo í viðtali í gær, þar sem hann sagði að stutt væri í að einhver myndi meiða hann alvarlega ef hann hætti ekki að reyna að niðurlægja andstæðinga sína.

Of margir útlendingar í norska boltanum

Norðmenn hafa áhyggjur af fjölgun erlendra knattspyrnumanna í landinu.  Á síðustu leiktíð voru 4 af hverjum 10 leikmönnum erlendir.  Alls voru 136 leikmenn í norsku úrvalsdeildinni útlendingar. Ungir norskir knattspyrnumenn fá færri mínútur í deildinni en áður og fyrir vikið fara færri Norðmenn í atvinnumennsku til útlanda. Núna eru 14 íslenskir knattspyrnumenn á mála hjá liðum í norsku úrvalsdeildinni.

Sjá næstu 50 fréttir