Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Með næst bestan árangur markvarða með yfir 100 leiki Edwin van der Sar jafnaði í gær hollenska landsleikjametið þegar hann spilaði sinn 112. landsleik. Þar að auki hélt hann hreinu í 59. skiptið á ferlinum og það er næst besti árangur markvarðar með landsliði í sögunni, ef miðað er við markverði sem spilað hafa yfir 100 landsleiki. 22.6.2006 16:41
Fílabeinsströndin í sögubækurnar Lið Fílabeinsstrandarinnar komst í sögubækurnar í gær þegar það varð aðeins áttunda liðið í sögu HM til að vinna leik eftir að lenda tveimur mörkum undir. Afríkuliðið lenti undir 2-0 gegn Serbum en hafði sigur 3-2. Vestur-Þjóðverjar urðu síðasta liðið til að vinna þetta afrek árið 1970. 22.6.2006 16:34
Gana í 16-liða úrslit Gana tryggði sér í dag sæti í 16-liða úrslitum HM með góðum 2-1 sigri á Bandaríkjamönnum í E-riðli. Sigurinn þýðir að Gana tekur annað sætið í riðlinum og mætir því væntanlega Brasilíu í 16-liða úrslitum keppninnar. 22.6.2006 16:02
Ítalir áfram - Tékkar á heimleið Ítalir lögðu Tékka 2-0 í leik liðanna í E-riðlinum á HM í dag og sendu Tékkana með því út úr keppninni. Marco Materazzi kom ítalska liðinu á bragðið með marki um miðjan fyrri hálfleikinn og Jan Polak var vikið af leikvelli undir lok háfleiksins. Tékkar gátu lítið strítt ítölunum einum færri í síðari háfleik og Filippo Inzaghi tryggði svo 2-0 sigur ítalska liðsins með marki undir lokin. 22.6.2006 15:51
Nesterovic til Toronto Slóvenski miðherjinn Rasho Nesterovic er genginn í raðir Toronto Raptors frá San Antonio Spurs í NBA deildinni. San Antonio fær í staðinn framherjana Matt Bonner og Eric Williams, auk valréttar í annari umferð nýliðavalsins á næsta ári. Nesterovic var á sínum tíma ætlað að fylla skarð David Robinson hjá Spurs, en hefur smátt og smátt fallið úr náðinni hjá þjálfara sínum og kom hann lítið sem ekkert við sögu í úrslitakeppninni í vor. 22.6.2006 15:33
New York rak Larry Brown og réð Isiah Thomas New York Knicks í NBA-deildinni er búið að reka þjálfara sinna Larry Brown og við stöðu hans mun taka framkvæmdastjórinn Isiah Thomas. Larry Brown var aðeins búinn með eitt ár af fimm ára samningi sínum. Undir stjórn Brown vann New York aðeins 23 af 82 leikjum sínum í fyrra (Aðeins Portland vann færri leiki) og draumastarfið hans varð að martröð. 22.6.2006 15:26
Ítalía yfir gegn tíu Tékkum Ítalir hafa yfir 1-0 gegn Tékkum í leik liðanna í E-riðlinum á HM þegar flautað hefur verið til leikhlés. Það var varamaðurinn Marco Materazzi sem skoraði markið með glæsilegum skalla eftir fast leikatriði á 26. mínútu leiksins. Þetta var fyrsta mark hans fyrir ítalska landsliðið, en Materazzi kom inn fyrir Alessandro Nesta sem er meiddur í nára. Tékkarnir eru einum færri eftir að Jan Polak fékk sitt annað gula spjald fyrir gjörsamlega glórulausa tæklingu. 22.6.2006 14:51
Bellamy búinn að skrifa undir hjá Liverpool Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur gengið frá fjögurra ára samningi við framherjann skapmikla Craig Bellamy hjá Blackburn. Bellamy var með klausu í samningi sínum sem gerði honum kleift að fara frá félaginu ef ákveðið hátt tilboð bærist í hann og er nú genginn til liðs við félagið sem hann hélt með þegar hann var ungur. 22.6.2006 14:47
Cisse er enn á óskalista Marseille Djibril Cisse leikmaður Liverpool og franska landsliðsins er enn á óskalista Pape Diouf forseta Marseille og er leikmaðurinn enn vongóður og ákveðinn í að ganga til liðs við franska félagið. 22.6.2006 14:35
Ronaldo ætlar að sýna sitt rétta andlit gegn Japan Ronaldo sem hefur verið mikið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína í leikjunum gegn Króötum og Áströlum ætlar að sína sitt rétta andlit gegn Japan í kvöld og stefnir á að kafsigla þá. 22.6.2006 14:26
Króatar þurfa sigur gegn Áströlum Ástralía mætir Króötum í kvöld í leik sem ætti að skera úr um hvort liðið fylgir Brasilíumönnum upp úr F-riðli í 16 liða úrslitin. Japanar eiga líka fræðilegan möguleika á að komast í 16 liða úrslitin en til að svo verði þurfa þeir að sigra Brassana stórt. 22.6.2006 14:15
Ætlar að sparka hressilega í Rooney Ulises De La Cruz, varnarmaður Ekvador og Aston Villa, ætlar að láta reyna á það hvort fótbrotið hans Wayne Rooney sé gróið þegar liðin mætast í 16-liða úrslitunum á HM á sunnudaginn. 22.6.2006 14:13
Ver val sitt á enska hópnum Sven-Göran Eriksson segist ekki sjá eftir neinu þegar kemur að vali sínu á enska landsliðshópnum, en hann hefur sem kunnugt er úr litlu að moða þegar kemur að framherjum eftir að Michael Owen meiddist í leiknum gegn Svíum á dögunum. 22.6.2006 14:01
Tékkar verða að vinna Ítali Spennandi lokaumferð er framundan í E-riðli og mæta Tékkar þar Ítölum um leið og Gana mætir Bandaríkjamönnum. Tékkar þurfa helst sigur gegn Ítölum til að tryggja sig áfram í 16 lið úrslitin þó gæti þeim nægt jafntefli ef Gana gerir jafntefli við Bandaríkin. Ítölum nægir hins vegar eitt stig úr viðureigninni við Tékka til að tryggja sig í 16 liða úrslitin. 22.6.2006 13:52
Chelsea hefur titilvörnina á heimavelli Nú er búið að staðfesta leikjaniðurröðun í ensku úrvalsdeildinni fyrir næstu leiktíð. Englandsmeistarar Chelsea hefja leik á heimavelli að þessu sinni og taka á móti lærisveinum Stuart Pearce í Manchester City. 22.6.2006 13:51
Gana og USA ætla sér bæði í 16 lið úrslit Gana og Bandaríkin sem mætast í dag í öðrum af tveimur lokaleikjum hins spennuþrungna E-riðils eiga bæði möguleika á að komast áfram í 16 liða úrslit ef allt gengur eftir. 22.6.2006 13:30
Owen er í rusli Micheal Owen er ótrúlega svekktur yfir því að hafa slasast í leiknum á móti Svíum. Honum finnst að hann hafi brugðist áhangendum Newcastle United. 22.6.2006 11:41
HM leikir dagsins Í dag klárast E og F riðill á HM í Þýskalandi. Klukkan 14:00 mætast Tékkar og Ítalir og Bandaríkin og Gana. Þessi lið leika í E-riðli þar sem ríkir mikil spenna, því öll liðin eiga möguleika á að komast í 16 liða úrslit. Klukkan 19:00 verða leikir Brasilíu og Japan og Ástralíu og Króatíu. 22.6.2006 10:01
Michel hættur með Fílabeinsströndina Henri Michel, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar er hættur með liðið og staðfesti hann það við fjölmiðla eftir síðasta leik þeirra á HM gegn Serbíu. Við vorum áður búnir að segja frá því að hann mundi hætta og nú hefur það fengist staðfest. Þessi 58 ára gamli frakki er á leiðinni til Katar þar sem hann mun taka við ónafngreindu liði. 22.6.2006 09:53
Perrotta orðinn leikfær Simone Perrotta, leikmaður Ítalska landsliðsins er orðinn leikfær en hann meiddist á læri í 1-1 jafnteflinu við Bandaríkjamenn. Marcello Lippi, þjálfari var búinn að afskrifa leikmanninn fyrir leikinn gegn Tékkum en Perrotta hefur æft með liðinu á þriðjudag og miðvikudag og farið í gengum æfingarnar án nokkurra vandræða. 22.6.2006 09:45
Silvestre byrjar inn á gegn Tógó Mikael Silvestre, leikmaður franska landsliðsins og Manchester United segir að hann muni byrja inná gegn Tógo á föstudaginn. Leikmaðurinn hefur setið á bekknum þá tvo leiki sem frakkar hafa spilað til þessa. 22.6.2006 09:42
Þýska þjóðin sameinuð með sínu liði Þýska þjóðin er sameinuð og stendur bakvið sitt lið á HM. Fram kemur í Þýskum fjölmiðlum að viðsnúningur hafi orðið en fyrir mót var almenningur á því að Þýska liðið væri ekki gott og mundi ekki gera stóra hluti á HM. 22.6.2006 09:31
Lehmann ánægður að sleppa við England Jens Lehmann, markvörður Þjóðverja er ánægður með að þurfa ekki að mæta Englendingum í 16-liða úrslitum HM. Þjóðverjar mæta Svíum. 22.6.2006 09:27
Inter á eftir Fiore Inter hefur mikinn áhuga á að fá til sín Stefano Fiore, leikmann Valencia. Leikmaðurinn sem verið hefur fastamaður í landsliði Ítala, missti sæti sitt fyrir HM. Fiorentina var sagt vera að landa honum en hætti við og eru forráðmenn Inter farnir til Spánar að ræða við Valencia. 22.6.2006 09:24
Wanchope vill spila aftur í Evrópu Paulo Wanchope, leikmaður Kosta Ríka segir að hann hafi áhuga að spila á ný í Evrópu. Þessi 29 ára gamli leikmaður segist vera hættur að leika með landsliði sínu eftir að það datt út á HM. Hann var leikmaður með Derby, Manchester City og West Ham á Englandi. 22.6.2006 09:19
Við höfum en verk að vinna Steven Gerrard, leikmaður enska landsliðsins segir að liðið eigi enn verk að vinna ef það ætlar sér lengra á HM. England sigraði sinn riðil og mætir Ekvador á sunnudaginn í 16-liða úrslitum. 22.6.2006 09:11
Neville og Ferdinand verða klárir Góðar fréttir fyrir enska liðið en þeir Manchester United félagar, Gary Neville og Rio Ferdinand verða báðir klárir fyrir 16-liða úrslitin. Þar mætir England liði Ekvador. 22.6.2006 09:05
Steindautt jafntefli á Laugardalsvelli Valsmenn og Keflvíkingar skildu jafnir 0-0 í fyrsta leik 8. umferðarinnar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn var spilaður við kjöraðstæður í blíðunni í Laugardalnum, en engin mörk litu dagsins ljós og liðin skiptu með sér stigunum. Áttundu umferðinni lýkur annað kvöld. 21.6.2006 22:57
Markalaust jafntefli Leik Hollands og Argentínu var að ljúka og endaði hann með markalausu jafntefli í fremur bragðdaufum leik liðanna. Einnig var að ljúka leik Fílabeinsstrandarinnar og Serbíu sem að var öllu meira spennandi en hann endaði með 3-2 sigri Fílabeinsstrandarinnar. Argentína mætir Mexíkó í 16 úrslitum keppninnar og Hollendingar mæta Portúgölum. 21.6.2006 20:52
Serbar hafa yfir í hálfleik Ekkert mark hefur enn verið skorað í leik Argentínumanna og Hollendinga í C-riðlinum á HM, en dómarinn flautaði til hálfleiks fyrir skömmu. Öllu meira fjör er í hinum leiknum í riðlinum, þar sem Serbar hafa yfir 2-1 gegn Fílabeinsstrendingum. Nikola Zigic og Sasa Ilic skoruðu mörk Serba, en Aruna Dindane skoraði mark Strandamanna úr endurtekinni vítaspyrnu. 21.6.2006 19:47
Búinn að vinna tíu leiki í röð á HM Luiz Scolari, þjálfari Portúgala, vann í dag sinn tíunda leik í röð á HM sem þjálfari, sem er að sjálfssögðu met. Scolari var sem kunnugt er þjálfari Brasilíumanna á HM í Japan og Suður-Kóreu fyrir fjórum árum, þar sem liðið vann alla sjö leiki sína á mótinu og sigraði glæsilega. Nú hefur hann stýrt portúgalska liðinu til þriggja sigra í röð og því eru sigrarnir orðnir tíu í röð alls, sem er einstakur árangur. 21.6.2006 19:12
Valur - Keflavík að hefjast Einn leikur er á dagskrá í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Valsmenn taka á móti Keflvíkingum á Laugardalsvelli og er þetta fyrsti leikurinn í áttundu umferð deildarinnar, sem klárast svo annað kvöld. Valsmenn eru í 6. sæti deildarinnar með 10 stig og Keflvíkingar í því 7. með 7 stig. 21.6.2006 19:05
Leikjaniðurröðun tilkynnt á morgun Aðdáendur enska boltans bíða nú spenntir eftir morgundeginum, en þá verður leikjaniðurröðun í ensku úrvalsdeildinni kynnt. Leikur hefst í úrvalsdeildinni þann 19. ágúst og nokkru fyrr, eða 5. ágúst í 1.deildinni. Leikurinn um samfélagsskjöldinn verður á dagskrá sunnudaginn 13. ágúst og þar mætast bikarmeistarar Liverpool og Englandsmeistarar Chelsea. 21.6.2006 18:57
Newcastle fær bætur vegna meiðsla Owen Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle, hefur staðfest að úrvalsdeildarfélagið muni fá bætur frá enska knattspyrnusambandinu vegna meiðsla framherjans Michael Owen í gær. Owen getur ekki spilað knattspyrnu næstu mánuði vegna þessa, en Newcastle mun vera tryggt fyrir svona uppákomum og þarf því væntanlega að greiða lítið sem ekkert af launum hans á meðan hann jafnar sig. 21.6.2006 18:52
Fimm breytingar á hollenska liðinu Nú styttist í að flautað verði til leiks í stórleik Hollendinga og Argentínumanna í C-riðlinum á HM. Hollendingar gera fimm breytingar á byrjunarliði sínu frá síðasta leik og þeir Carlos Tevez og Lionel Messi eru í byrjunarliði Argentínu. Þá er leikur Serba og Fílabeinsstrendinga einnig á dagskrá klukkan 19. 21.6.2006 18:26
2.42 mörk skoruð að meðaltali í leik Það hafa verið skoruð 92 mörk í þeim 38 leikjum sem eru búnir til þessa á HM. Það gerir að 2.42 mörk eru skoruð að meðaltali í leik. 21.6.2006 17:27
Flugfreyjurnar í fótboltanum Þótt það sé ekki mikið í húfi á þessum leik Argentínumanna og Hollendinga Þá er stoltið undir, líkt og ég sá í andlitum mexíkósku áhorfendanna sem töpuðu fyrir Portúgal rétt í þessu. 21.6.2006 17:00
Ekki á leið til Real Madrid Arsene Wenger hefur alfarið neitað sögusögnum sem verið hafa á kreiki um að hann muni taka við spænska liðinu Real Madrid. Einn af forsetaframbjóðendunum í komandi kosningu hjá spænska félaginu hafði haldið því fram á dögunum að hann hefði rætt við Wenger að taka við Real ef hann yrði kjörinn forseti félagsins. Wenger vísar þessu alfarið á bug og segir þetta lygi, enginn hafi sett sig í samband við sig. 21.6.2006 17:00
Beenhakker í vafasaman hóp Leo Beenhakker, þjálfari Trinidad og Tobago, komst í gær í vafasaman hóp manna þegar hann stýrði liði í sjöunda sinn á HM án þess að vinna sigur. Undir hans stjórn unnu Hollendingar ekki leik á Ítalíu árið 1990 og sömu sögu er að segja af Trínídad í keppninni í ár. Enginn þjálfari getur státað af jafn slökum árangri á HM, en tveir aðrir hafa tapað öllum 6 leikjum sínum á mótinu í sögunni. 21.6.2006 16:13
Portúgalar með fullt hús Portúgalar lögðu Mexíkóa 2-1 í D-riðlinum á HM í dag. Sabrosa og Maniche skoruðu mörk Portúgala, en Fonseca minnkaði muninn fyrir Mexíkóa, sem klúðruðu vítaspyrnu í leiknum og léku manni færri frá 60. mínútu þegar Luiz Perez fékk sitt annað gula spjald fyrir leikaraskap. 21.6.2006 15:52
Meiðsli Ferdinand ekki alvarleg Varnarmaðurinn Rio Ferdinand verður væntanlega klár í slaginn með enska landsliðinu á sunnudaginn þegar það mætir Ekvador í 16-liða úrslitunum á HM, en Ferdinand var skipt af velli í leiknum gegn Svíum í gær. Hann kenndi sér meins í nára, en læknar liðsins segja meiðslin ekki alvarleg. 21.6.2006 15:44
Portúgal yfir í hálfleik Portúgal hefur yfir 2-1 gegn Mexíkó í hálfleik í uppgjöri liðanna í D-riðlinum á HM. Maniche kom Portúgal yfir strax í upphafi og Simao Sabrosa bætti við öðru marki úr vítaspyrnu á 24. mínútu. Jose Fonseca minnkaði muninn skömmu síðar og hefur leikurinn verið einstaklega fjörugur og skemmtilegur. Staðan í leik Íran og Angóla er enn 0-0. 21.6.2006 15:08
Eigandi Dallas sektaður um 19 milljónir Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, var sektaður um sem nemur 19 milljónum króna í gærkvöldi. Þetta var tilkynnt rétt fyrir sjötta leik Dallas og Miami, þar sem Dallas varð svo að horfa upp á gestina fagna meistaratitlinum á þeirra eigin heimavelli. Cuban fékk sektina í kjölfar reiðikasts síns eftir fimmta leik liðanna og hefur nú alls verið sektaður um 125 milljónir króna síðan hann keypti liðið á sínum tíma. 21.6.2006 14:31
Verður frá í nokkra mánuði Framherjinn Michael Owen verður frá í nokkra mánuði vegna hnémeiðslanna sem hann hlaut í byrjun leiks gegn Svíum í gær og því heldur meiðslamartröð þessa lipra knattspyrnumanns áfram. Owen var nýstiginn upp úr meiðslum sem hann lenti í um áramótin og komst í raun aldrei í leikform á HM. Ekki hefur verið gefið upp hve lengi hann verður frá keppni, en talað er um nokkra mánuði. 21.6.2006 13:55
Portúgal - Mexíkó að hefjast Nú klukkan 14 hefjast tveir leikir í D-riðlinum á HM. Augu flestra beinast að viðureign Portúgal og Mexíkó sem sýndur er í beinni á Sýn. Portúgal er í efsta sæti riðilsins og mun hvíla fjóra lykilmenn í dag, en Mexíkóar eiga þó möguleika á að hirða af þeim efsta sætið. Leikur Íran og Angóla er sýndur beint á Sýn Extra á sama tíma. 21.6.2006 13:49
Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig Íslenski boltinn