Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
KR yfir í hálfleik KR-ingar hafa yfir 1-0 gegn Fylki í leik liðanna á KR-velli. Það var Tryggvi Bjarnason sem skoraði mark heimamanna á 28. mínútu, en eftir fjöruga byrjun, dró heldur úr leikmönnum beggja liða í rokinu í Frostaskjóli. Leikur Grindavíkur og Keflavíkur er hafinn og er í beinni útsendingu á Sýn. Þar er staðan jöfn 0-0, en Grindvíkingar voru rétt í þessu að misnota vítaspyrnu á 10. mínútu leiksins. 24.5.2006 20:07
Tryggvi kemur KR yfir Tryggvi Bjarnason var rétt í þessu að koma KR-ingum yfir gegn Fylki í vesturbænum. Gestirnir úr Árbænum höfðu verið heldur sterkari fram að þessu, en Tryggvi náði að koma KR yfir með skalla af stuttu færi eftir klafs í teig Fylkis. Leikur Grindavíkur og Keflavíkur hefst klukkan 20 og er hann sýndur í beinni útsendingu á Sýn. 24.5.2006 19:46
Stubbs framlengir Miðvörðurinn Alan Stubbs hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Everton um eitt ár, eða út árið 2007. Hann á að baki yfir 150 leiki með Everton og er 34 ára gamall. Stubbs hefur einnig leikið með Celtic í Skotlandi og Sunderland á Englandi. 24.5.2006 19:15
Sommeil til Sheffield United Franski varnarmaðurinn David Sommeil sem látinn var fara frá Manchester City á dögunum, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við nýliða Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni. Sommeil sagði við undirritun samningsins að það hefði alltaf verið draumur hans að spila áfram í ensku úrvalsdeildinni, sem hann segir þá sterkustu í Evrópu. 24.5.2006 18:16
Boskamp til Belgíu Hollenski knattspyrnuþjálfarinn Johan Boskamp, sem nýverið lét af störfum sem knattspyrnustjóri Stoke City, var í dag ráðinn knattspyrnustjóri belgíska liðsins Standard Liege. Boskamp er 57 ára gamall og hefur mikla reynslu af þjálfun í Belgíu og hefur meðal annars stýrt liði Anderlecht þar í landi. 24.5.2006 17:15
Roberto Carlos vill fresta ákvörðun sinni Hinn knái vinstri bakvörður Real Madríd og Brasilíu segist ekki vilja taka ákvörðun um framtíð sína hjá Real Madríd fyrr en eftir HM. Carlos getur valið á milli þess að leika 1 ár í viðbót með Real eða skrifa undir við Englandsmeistara Chelsea. 24.5.2006 16:46
Ákveður sig eftir HM Bakvörðurinn magnaði Roberto Carlos hjá Real Madrid segist ekki ætla að taka ákvörðun um framtíð sína fyrr en að loknu heimsmeistaramóti í sumar, en hinn 33 ára gamli Carlos á í samningaviðræðum við Real Madrid um að framlengja samning sinn við félagið. Chelsea hefur þegar gert tilboð í kappann og segir hann fjárhagslegan ávinning ekki spila inn í ákvörðun sína, heldur ætli hann að skoða hve lengi hann vill spila í viðbót. 24.5.2006 16:35
Reyna segist verða tilbúinn fyrir HM Fyrirliði bandaríska landsliðsins Claudio Reyna segist vera fullviss um að hann verði búinn að ná sér af þessum meiðslum sem hann hlaut í vináttuleik gegn Morokkó en þeir töpuðu gegn þeim 1-0. 24.5.2006 16:25
Læknir United rekinn Mike Stone, sem verið yfirlæknir hjá Manchester United síðan árið 1999, var mjög óvænt rekinn frá félaginu í dag. Forráðamenn United segja ákvörðun þessa faglega, en orðrómur er strax kominn á kreik um að læknirinn hafi verið látinn fara vegna afstöðu sinnar í máli Wayne Rooney. 24.5.2006 16:00
Brotist inn á heimili Patrick Vieira Patrick Vieira, leikmaður Juventus og franska landsliðsins, lenti í óskemmtilegri reynslu í gær þegar brotist var inn í hús hans í Frakklandi á meðan fjölskyldan svaf. Nokkru af skartgripum var stolið og óku þjófarnir á burt með þýfið á bílnum hans. Fjölskyldan þurfti að fara í rannsókn eftir uppákomuna, því talið er að þjófarnir hafi sprautað gasi inn í loftræstikerfið í húsinu til að halda fjölskyldunni sofandi á meðan á ráninu stóð. 24.5.2006 14:53
Andy Johnson á leið til Wigan? Stjórnarmaður Crystal Palace hefur staðfest að félagið hafi í dag samþykkt 8,5 milljón punda tilboð úrvalsdeildarfélagsins Wigan í framherjann Andy Johnson. Everton og Bolton hafa einnig verið á höttunum eftir landsliðsmanninum, en þeim hefur nú verið sagt að hækka tilboð sín ella muni hann verða seldur til Wigan. 24.5.2006 14:44
Tilboði Tottenham í Curtis Davies hafnað Bryan Robson, stjóri West Brom, staðfesti í dag að félagið hefði neitað 3,5 milljón punda tilboði Tottenham Hotspur í varnarmanninn Curtis Davies. West Brom ætlar sér ekki að staldra lengi við í 1. deildinni og ætlar að styrkja liðið en ekki veikja það að sögn Robson. Davies er U-21 árs landsliðsmaður Englands og talinn nokkuð efnilegur. 24.5.2006 14:38
B-lið Englands mætir Hvít-Rússum í kvöld Nokkrir af leikmönnum enska landsliðsins sem eru að berjast við að vinna sér sæti í byrjunarliðinu fá tækifæri til að sýna úr hverju þeir eru gerðir í kvöld, þegar B-lið Englands tekur á móti Hvít-Rússum í æfingaleik. 24.5.2006 14:25
Pires líklega á förum Nú þykir allt benda til þess að franski miðvallarleikmaðurinn Robert Pires muni yfirgefa herbúðir Arsenal og ganga til liðs við spænska liðið Villarreal, en spænsk útvarpsstöð á að hafa haft eftir stjórnarformanni félagsins í gær að hann væri búinn að ganga frá málinu. 24.5.2006 09:45
Adriano einbeittur Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano segist ætla einbeita sér að fullu að Heimsmeistarakeppninni þrátt fyrir þær sögusagnir að Real Madrid hyggjast bjóða í hann. 24.5.2006 09:00
"Núna eða aldrei" Fyrirliði enska landsliðsins, David Beckham telur að þetta verði sennilega síðasta tækifærið sem leikmenn af hans kynslóð fá til að vinna Heimsmeistarakeppnina. 24.5.2006 08:41
Toronto datt í lukkupottinn Kanadaliðið Toronto Raptors í NBA deildinni datt heldur betur í lukkupottinn í gær þegar það hreppti fyrsta valréttinn í hinu árlega nýliðavali sem fram fer eftir um það bil mánuð. Dregið er úr lukkupotti um það hvaða lið hreppir hnossið hverju sinni, rétt eins og þegar dregið er í Lottóinu hérlendis og fá liðin úthlutað kúlum í pottinum eftir árangri í deildarkeppninni síðasta vetur. 24.5.2006 07:00
Miami vann í Detroit Miami gerði sér lítið fyrir og lagði Detroit á útivelli í fyrsta leik liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar í nótt 91-86. Miami hafði ekki spilað í viku fyrir leik gærkvöldsins, en það var lið Detroit sem var ryðgað í gær og hitti skelfilega. Heimamenn náðu ekki að nýta sér villuvandræði þeirra Shaquille O´Neal og Dwayne Wade og eru greinilega enn í bullandi vandræðum á báðum endum vallarins. 24.5.2006 05:45
Sol Campbell á leið til Tyrklands? Sol Campbell útilokar ekki að fara frá Arsenal eftir HM. Campbell, sem orðinn er 31 árs, átti ekki fast sæti í liði Arsenal á síðustu leiktíð og hefur að undanförnu verið orðaður við Tyrkneska liðið Fenerbache. 24.5.2006 03:14
Huth búinn að fá nóg af bekkjarsetu hjá Chelsea Robert Huth, varnarmaður Þýskalands og Englandsmeistara Chelsea, er orðinn þreyttur á að býða eftir tækifæri í aðalliði Chelsea. "Ég er ekki ánægður með hversu fá tækifæri ég hef fengið. Ég hef fengið nóg af bekkjarsetunni og vil komast þangað sem ég fæ að spila." sagði Huth. 24.5.2006 03:04
Davids lýkur ferlinum hjá Ajax Nýráðinn þjálfari Ajax, Henk ten Cate, telur miklar líkur á því að Edgar Davids, miðjumaður Tottenham og Hollenska landsliðsins, snúi aftur til síns gamla félags Ajax. 24.5.2006 03:01
Fedorov úr leik Serhiy Fedorov, varnarmaður Dynamo Kiev og Úkraínska landsliðsins, hefur dregið sig út úr HM hóp Úkraínu vegna meiðsla. 24.5.2006 03:00
McClaren vill Venables sem aðstoðarmann Talið er víst að Steve McClaren næsti landsliðsþjálfari Englendinga vilji fá Terry Venables sem aðstoðarmann sinn. Venables hefur verið orðaður við nokkur félagslið undanfarið en nú er talið líklegt að hann verði aðstoðarmaður McLaren, eftir að Enska knattspyrnusambandið hafi gefið grænt ljós á það að Venables verði ráðinn. 23.5.2006 21:34
Huth orðinn leiður á að sitja á bekknum Þýski landsliðsmaðurinn Robert Huth segist vera orðinn hundleiður á að sitja endalaust á varamannabekknum hjá Englandsmeisturum Chelsea og ekki er ólíklegt að hann verði lánaður eða seldur frá félaginu á næstu leiktíð. 23.5.2006 21:30
Óvíst hvort Shevchenko leikur á HM Óvíst er hvort Andriy Shevchenko, leikmaður Úkraínu og AC Milan, leikur á HM í Þýskalandi í næsta mánuði. Shevchenko kvað sjálfur upp úr með það að hann gæti ekki leikið á móti Costa Rica á sunnudag, en hann meiddist á hné í byrjun maí. 23.5.2006 21:25
Stjarnan lagði KR Stjörnustúlkur lögðu KR 2-1 á heimavelli sínum í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Valur burstaði Þór/KA 6-0, Fylkir sigraði FH 3-0 á útivelli og Breiðablik sigraði Keflavík 3-1 á útivelli. Breiðablik og Valur hafa fullt hús stiga eftir tvær umferðir, en KR og FH eru á botninum án stiga. 23.5.2006 21:19
Juan Roman Riquelme frábær leikmaður Juan Roman Riquelme hinn knái leikmaður Argentínu leikur á sinni fyrstu Heimsmeistarakeppni í Þýskalandi í næsta mánuði, eftir að hafa átt frábært tímabil með liði sínu Villareal á Spáni. Eftir að hafa hjálpað Villareal í undanúrslit Meistaradeildarinnar og það í fyrsta skipti sem hann spilar í henni, hefur Riquelme nú sett sér það markmið að gera góða hluti á HM. 23.5.2006 21:14
Ekki á förum frá Arsenal Bakvörðurinn Ashle Cole hefur verið orðaður við fjölda liða utan Englands að undanförnu, en hann segist ekki eiga von á því að fara frá félaginu í sumar. 23.5.2006 20:45
Stjarnan yfir gegn KR Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Landsbankadeild kvenna. Stjörnustúlkur hafa yfir 1-0 gegn KR í rokinu á Stjörnuvelli, þar sem Helga Jóhannesdóttir skoraði mark heimamanna á 18. mínútu. Valur hefur yfir 4-0 í hálfleik gegn KA/Þór, Breiðablik leiðir 3-0 gegn Keflavík og markalaust er hjá FH og Fylki. 23.5.2006 20:23
Það er nú eða aldrei fyrir okkur David Beckham segir að það sé nú eða aldrei fyrir sig og jafnaldra sína, ætli þeir sér að vinna til verðlauna á stórmóti með enska landsliðinu. Fyrrum félagi hans hjá Manchester United, Gary Neville, tekur í sama streng. 23.5.2006 19:59
Kiel meistari Kiel tryggði sér í kvöld Þýskalandsmeistaratitilinn í handbolta með sannfærandi sigri á Íslendingaliði Lemgo 37-28 á heimavelli sínum. Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað í markaskorun hjá Lemgo og Logi Geirsson gat ekki leikið vegna veikinda. Á sama tíma tapaði Flensburg fyrir Kronau 26-24. 23.5.2006 19:39
Engin tilboð komin í Dirk Kuyt Forráðamenn Feyenoord segja að enn hafi engin kauptilboð borist í landsliðsframherjann Dirk Kuyt, sem hefur verið einhver eftirsóttasti framherji Evrópu á undanförnum mánuðum. 23.5.2006 17:15
Andriy Shevchenko á frímerki Frímerki með mynd af Andriy Shevchenko leikmanni AC Milan og úkraínska landsliðsins er komið út. Póstþjónustan í Úkraínu gaf merkið út til þess að vekja athygli á HM í fótbolta og umfram allt þátttöku úkraínska landsliðsins þar. 23.5.2006 16:33
Schumacher bjartsýnn Michael Schumacher segist ekki leggja jafn mikið upp úr því og aðrir að ná ráspól í Mónakókappakstrinum um næstu helgi, en eins og flestir vita eru aðstæður til framúraksturs þar ekki góðar og því hafa tímatökurnar mikið vægi í keppninni. 23.5.2006 16:28
Nistelrooy hefur áhyggjur af framtíðinni Engin lausn virðist í sjónmáli í máli framherjans Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United, en hann hefur verið úti í kuldanum eftir árekstur við knattspyrnustjórann Alex Ferguson á síðustu dögum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. 23.5.2006 16:15
Morientes ekki á leið til Spánar Umboðsmaður spænska framherjans Fernando Morientes hjá Liverpool segir ekkert til í orðrómi sem verið hefur á kreiki um að Morientes sé á leið aftur til heimalands síns. Hann hefur verið orðaður við Valencia og Real Betis, en hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Liverpool. 23.5.2006 16:05
Rosicky til Arsenal Arsenal hefur fengið til sín tékkneska miðjumanninn Tomas Rosicky frá Dortmund í Þýskalandi og skrifaði hann undir langtímasamning við félagið í dag. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp, en hinn 25 ára gamli og smávaxni leikmaður á eflaust eftir að styrkja Lundúnaliðið mikið. 23.5.2006 15:02
Raul getur ekki beðið eftir HM Framherji Real Madrid og fyrirliði Spænska landsliðsins getur ekki beðið eftir HM. Hann telur HM vera kjörinn vettvang til að bæta fyrir slakt tímabil hjá Real Madrid. 23.5.2006 14:55
Rosicky skrifar undir við Arsenal Tomas Rosicky miðjumaðurinn snjalli hefur skrifað undir samning við Arsenal. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem félagið hélt áðan en þessi sjalli miðjumaður mun kom til Arsenal strax að lokinni heimsmeistarakeppninni í Þýskalandi. 23.5.2006 13:56
Zokara eftirsóttur Didier Zokora, miðjumaður St. Etienne í Frakklandi og landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar, er í enskum fjölmiðlum í morgun orðaður við Tottenham. 23.5.2006 13:25
Ergic í draumalandi Ivan Ergic hefur viðurkennt að vera í skýjunum yfir því að hafa verið valinn í landsliðshóp Serbíu og Svartfjallalands sem tekur þátt í heimsmeistarakeppninni í sumar. 23.5.2006 11:08
Ljungberg þarfnast hvíldar Læknir sænska landsliðsins segir að það komi jafnvel til greina að hvíla Freddy Ljungberg í riðlakeppni HM. Freddy hefur átt við erfið meiðsl að stríða í fæti og hefur þurft á sprautu að halda fyrir alla leiki Arsenal að undanförnu. 23.5.2006 10:57
Eiður til Barcelona? Eiður Smári Guðjohnsen gæti verið rétti maðurinn til þess að leysa af Henke Larsson í Barcelona. Fréttir herma að fyrrum leikmaður Manchester United, Diego Forlan sé fyrsti kostur Evrópumeistarana. Ef það gengur ekki upp þá er Eiður Smári næstur á listanum. 23.5.2006 10:28
Klose leikmaður ársins í Bundesligunni Miroslav Klose, sóknarmaður Werder Bremen var valinn leikmaður ársins í Þýsku Bundesligunni fyrir þetta tímabil. Klose skoraði 25 mörk á þessari leiktíð en hann var lengi frá vegna meiðsla um mitt mót. 23.5.2006 10:13
Lehmann hefur áhyggjur af nýja boltanum Nýr bolti sem notaður verður á HM í Þýskalandi í næsta mánuði vekur áhyggjur hjá Jens Lehmann, aðalmarkverði Þýskalandsliðsins. Um er að ræða nýja tegund af Adidas Teamgeist og hefur markvörðurinn miklar áhyggjur. 23.5.2006 09:55
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Íslenski boltinn