Fótbolti

Juan Roman Riquelme frábær leikmaður

Juan Roman Riquelme hinn knái leikmaður Argentínu leikur á sinni fyrstu Heimsmeistarakeppni í Þýskalandi í næsta mánuði, eftir að hafa átt frábært tímabil með liði sínu Villareal á Spáni. Eftir að hafa hjálpað Villareal í undanúrslit Meistaradeildarinnar og það í fyrsta skipti sem hann spilar í henni, hefur Riquelme nú sett sér það markmið að gera góða hluti á HM.

Juan Roman Riquelme er fæddur 26. júní 1978 í Buenos Aires, hann var uppgötvaður er hann spilaði á unglingsárum sínum hjá Argentína Juniors, það voru tvö af stærstu liðum Argentínu og Suður Ameríku, River Plate og Boca Juniors sem að sóttust eftir leikmanninum og hafði Boca betur í þeim slag. Boca menn voru mjög ánægðir með leikmanninn og talað var um hann sem næsta Maradona, og hvað það gæti þýtt fyrir Argentínska landsliðið að fá svona leikmann. Fljótlega kom í ljós hvað Riquelme hafði góð áhrif á leikmenn Boca og tveimur vikum seinna unnu þeir Huracan 6-0, þar sem Riquelme skoraði og lagði upp tvö mörk.

Hann fékk viðurnefnið "hinn lati töframaður" í Argentínu, þar sem hann þótti ekki hafa mikla snerpu. Hann þótti hins vegar strax hafa góðan leikskilning, góða boltameðferð og frábærar sendingar. Þetta vakti athygli stóru klúbbanna í Evrópu. Barcelona keypti leikmanninn frá Boca, á 6,5 milljónir punda sumarið 2002. Barcelona var þá í mikilli lægð og var Riquelme ætlað að rífa hinn Katalónska klúbb upp úr lægðinni.

Þetta virtist til of mikils ætlast fyrir leikmanninn, og eftir röð lélegra leikja hjá honum og róstur við stuðningsmenn Barcelona var hann lánaður til Villareal. Margir töldu að dagar Riquelme sem stjörnu væru taldir þar sem Villareal taldist ekki til hinna stóru í Evrópu, enda hafði liðið aldrei spilað í Evrópukeppni.

Leikmaðurinn virtist hafa komið með ferska vinda með sér til Villareal og ævintýrið hófst með Evrópukeppninni 2003/2004 og svo Meistaradeildinni tveimur árum seinna.

Í dag virðist sem hann hafi unnið sig upp stjörnustigann á ný og er nú talinn einn af tíu bestu miðjumönnum í heimi. Með Argentínska landsliðinu koma margir frábærir miðjumenn til Þýskalands í sumar, en leikskilningur Riquelme og boltafimi verður andstæðingum erfið og eflaust á leikmaðurinn eftir að vera í lykilhlutverki í hinu frábæra Argentínska landsliði.

Þrátt fyrir að Riquelme líki vel hjá Villareal, er ómögulegt að segja hvað framtíðin ber í skauti sér. Knattspyrnustjóri Manchester Utd, Alex Ferguson, hefur ítrekað reynt að fá leikmanninn í sínar raðir undanfarið.

Það er því hægt að segja að gaman verði að fylgjast með Juan Roman Riquelme, á HM í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×