Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Chelsea komst áfram Chelsea tókst að landa sigrinum gegn Colchester í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar en Englandsmeisturunum tókst verkið ekki þrautarlaust. Colchester menn geta svo sannarlega borið höfuðið hátt eftir leikinn á Stamford Bridge í dag. 19.2.2006 17:53
Chelsea tókst að jafna Staðan í hálfleik hjá Chelsea og Colchester er 1-1 en neðrideildarliðið hefur verið betri aðilinn í leiknum sem fer fram á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea. 19.2.2006 16:45
Skoruðu átta mörk gegn Dunfermline Celtic vann í dag stærsta sigur í sögu Skosku úrvalsdeildarinnar þegar þeir skoruðu átta mörk gegn Dunfermline á útivelli. Yfirburðir Celtic voru ótrúlegir en leikmenn Dunfermline voru heillum horfnir í leiknum. 19.2.2006 16:36
Colchester komið yfir gegn Chelsea Neðrideildarliðið Colchester er komið yfir gegn Englandsmeisturum Chelsea í ensku bikarkeppninni. Ricardo Carvalho skoraði sjálfsmark en rétt áður höfðu Colchester mennátt skot í stöngina. Forysta liðsins er verðskulduð með meiru en Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í liði Chelsea í dag sem leikur á sínum eigin heimavelli, Stamford Bridge. 19.2.2006 16:30
Robinson sýndi bestu tilþrifin Nate Robinson, nýliði New York Knicks, sigraði í troðslukeppni NBA sem haldin er árlega í kringum Stjörnuleikinn sem fer fram í Houston í nótt. Leikurinn hefst klukkan 1.30 og verður í beinni útsendingu á Sýn. 19.2.2006 16:24
Allt eftir bókinni Úrslitin í ensku bikarkeppninni hafa verið eftir bókinni það sem af er degi en tveimur leikjum af fjórum er nú lokið. Middlesbrough vann Preston og Birmingham lagði Stoke og eru því komin áfram í átta liða úrslitin. 19.2.2006 15:37
Tottenham og Wigan skildu jöfn Tottenham og Wigan gerðu 2-2 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag en þetta er eini leikurinn sem fer fram í henni um helgina. Með stiginu er Tottenham komið í 46 stig, fimm stigum á eftir Liverpool sem er í þriðja sæti deildarinnar. 19.2.2006 15:12
Gæti spilað í átta ár til viðbótar Cafu leikmaður AC Milan á Ítalíu er sem endurfæddur eftir hnéaðgerð sem hann gekkst undir nýverið. Cafu er 34 ára gamall en spilar enn meðal þeirra allra bestu enda í gríðarlega góðu formi og er almennt talinn vera einn allra fremsti hægri bakvörður í heimi. 19.2.2006 14:28
18 ára gutti sló Roddick út Átján ára gamall piltur frá Skotlandi gerði sér lítið fyrir og lagði besta tenniskappa heims, Andy Roddick í SAP mótinu í San Jose í Bandaríkjunum. 19.2.2006 14:18
Standa ekki í vegi fyrir McClaren Middlesbrough munu ekki standa í vegi fyrir Steve McClaren stjóra liðsins verði honum boðið að taka við enska landsliðinu. McClaren er talinn líklegur artaki Sven Göran Eriksson sem hættir með landsliðið eftir HM í sumar. 19.2.2006 13:57
Keppni frestað hjá Dagnýju Keppni í risasvigi á Ólympíuleikunum í Tórínó hefur verið frestað til morguns vegna aðstæðna. Skyggni er mjög slæmt og óveður í fjallinu. Dagný Linda Kristjánsdóttir keppir í risasviginu en verður að bíða til morguns með að renna sér í brautinni. 19.2.2006 13:48
Alan Smith mun jafna sig David O´Leary fyrrum stjóri Alan Smith hjá Leeds segir að hann muni komast í gegnum þau skelfilegu meiðsli sem hann hlaut í gær. Smith fer í aðgerð í dag en hann fótbrotnaði í leiknum gegn Liverpool sem United tapaði 1-0. 19.2.2006 12:41
Paletta mun ná langt Rafael Benítez stjóri Liverpool segir að Argentínski varnaraðurinn Gabriel Paletta, sem kemur til Evrópumeistaranna í sumar, muni slá í gegn á Englandi. 19.2.2006 12:23
Barcelona burstaði Betis Spánarmeistarar Barcelona unnu stórsigur á Real Betis í kvöld og tryggðu stöðu sína á toppi La Liga deildarinnar. Real Madrid vann einnig öruggan sigur, þeir lögðu Alaves 3-0 á heimavelli. 18.2.2006 23:27
Haukar unnu ÍBV Haukar gerðu góða ferð til Vestmannaeyja í DHL-deild karla í handbolta í dag og unnu heimamenn 34-32 og komust þar með í efsta sæti deildarinnar. 18.2.2006 20:01
Newcastle komst áfram Newcastle er komið áfram í átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar en liðið lagði Southampton í dag. Kyeron Dyer skoraði eina mark leiksins. 18.2.2006 19:27
Leicester og Leeds skildu jöfn Leceister og Leeds gerðu 1-1 jafntefli í ensku 1. deildinni í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson spilaði allan leikinn með Leceister en Gylfi Einarsson var ónotaður varamaður hjá Leeds. 18.2.2006 19:09
Grindvíkingar bikarmeistarar Grindavík eru bikarmeistarar karla eftir að hafa lagt granna sína í Keflavík í úrslitaleik í Laugardalshöllinni í dag. Leikar fóru 93-78 fyrir Grindavík. 18.2.2006 17:48
Stjarnan vann HK Stjörnustúlkur lögðu HK í DHL-deild kvenna í handbolta í dag en leikið var í Ásgarði í Garðabæ. Þá vann ÍBV Víking og KA/Þór bar sigurorð af Gróttu. 18.2.2006 17:26
Charlton áfram Charlton er komið í átta liða úrslit FA bikarkeppninnar eftir 3-1 sigur á 1. deildarliðinu Brentford en Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Charlton. Bolton og West Ham þurfa að mætast aftur eftir markalaust jafntefli. 18.2.2006 17:07
Grindavík yfir í hálfleik Grindvíkingar hafa 55-34 yfir í hálfleik gegn Keflvíkingum í bikarúrslitaleik karla sem er í gangi í Laugardalshöll. Grindvíkingar hafa verið fremri á öllum sviðum en Keflvíkingar hafa reyndar verið óheppnir í sóknaraðgerðum sínum. 18.2.2006 16:50
Mjög sérstakt að skora sigurmarkið Peter Crouch framherji Liverpool var í skýjunum eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn Manchester United í FA bikarkeppninni í dag. Crouch skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu með góðum skalla sem dugði til sigurs. 18.2.2006 16:25
Alan Smith ökklabrotinn Alan Smith leikmaður Manchester United verður frá í mjög langan tíma en hann ökklabrotnaði illa í 1-0 tapleiknum gegn Liverpool i FA bikarkeppninni í dag. Þetta er mikið áfall fyrir United sem eru þegar þunnskipaðir á miðjusvæðinu. 18.2.2006 16:15
28. sæti niðurstaðan í alpatvíkeppninni Dagný Linda Kristjánsdóttir lenti í 28. sæti í alpatvíkeppni á Ólympíuleikunum í Tórínó en það er samanlagður árangur í svigi og bruni. Dagný var í 31. sæti eftir svigið sem er ekki hennar sterkasta grein en náði góðum árangri í bruni og klifraði aðeins upp töfluna. 18.2.2006 15:52
ÍS bikarmeistari ÍS varð nú rétt í þessu bikarmeistari kvenna í körfuknattleik eftir frækinn 88-73 sigur á Grindavík í spennandi og skemmtilegum úrslitaleik í Laugardalshöll. Bikarúrslitaleikur karla á milli Keflavík og Grindavík hefst svo klukkan 16. 18.2.2006 15:26
ÍS einu stigi yfir í hálfleik Stúdínur hafa 35-34 yfir í hálfleik í bikarúrslitaleik kvenna en leikurinn hófst klukkan 14 í Laugardalshöll. Signý Hermannsdóttir er stigahæst í liði ÍS með níu stig en Jessica Watson hefur skorað tólf stig fyrir Grindavík. Leikurinn er gífurlega jafn og spennandi og verður spennandi að sjá hvort liðið stendur uppi sem sigurvegari. 18.2.2006 14:45
Liverpool sigraði 1-0 Liverpool vann Manchester United í fyrsta skipti í 85 ár í FA bikarkeppninni en Peter Crouch skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu. Alan Smith meiddist illa í leiknum og er líklegt að hann verði mjög lengi frá vegna meiðslanna. 18.2.2006 14:25
Andre Iguodala sló í gegn Andre Iguodala leikmaður Philadelpia 76ers fór á kostum í Nýliðaeinvíginu sem fram fór í nótt en leikurinn fór fram í Houston. Stjörnuleikurinn fer fram á morgun og verður í beinni útsendingu á Sýn. 18.2.2006 13:27
Vill enga aðstoð á HM Sven Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englendinga vill ekki sjá neinn með sér á Heimsmeistaramótinu í sumar en vangaveltur eru uppi um að sá sem tekur við Eriksson eftir mótið fái að aðstoða hann í sumar. 18.2.2006 13:20
Tvísýnt með brunkeppnina Slæmt veður er þessa stundina í Tórínó á Ítalíu þar sem Vetrarólympíuleikarnir fara fram. Dagný Linda Kristjánsdóttir á að vera meðal keppenda í dag en tvísýnt er með keppnina í bruni, sem er síðari hluti af alpatvíkeppninni. 18.2.2006 13:02
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool er 1-0 yfir gegn Manchester united í hálfleik en leikurinn er í FA bikarkeppninni. Crouch skoraði markið með skalla á 19. mínútu sem Edwin van der Sar varði í stöngina og inn. Rétt áður varði van der Sar meistaralega frá Harry Kewell en Liverpool hefur verið mun beittari aðilinn í leiknum. 18.2.2006 12:51
Byrjunarliðin komin Stórleikur Liverpool og Manchester United er að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Leikurinn er í FA bikarkeppninni en Liverpool hefur ekki tekist að vinna United í þeirri keppni í heil 85 ár. 18.2.2006 12:22
Sigurgöngu Reading lokið Reading, lið Ívars Ingimarssonar og Brynjars Bjarnar Gunnarssonar, tapaði fyrsta leik sínum í ensku 1. deildinni síðan í ágúst í kvöld þegar liðið lá 3-2 fyrir Luton á útivelli. Ívar og Brynjar voru báðir í byrjunarliði Reading í kvöld, en liðið hefur 12 stiga forystu á toppi deildarinnar þrátt fyrir tapið. 17.2.2006 22:04
Fylkir skellti toppliði Fram Fylkismenn gerðu sér lítið fyrir og skelltu toppliði DHL-deildarinnar Fram í Árbænum í kvöld 28-23 eftir að Fram hafði verið yfir í hálfleik. Þór og Afturelding gerðu jafntefli 27-27, Valur vann nauman sigur á FH 26-25, KA burstaði Víking/Fjölni 36-25 og ÍR lagði Selfoss á útivelli 33-29. 17.2.2006 21:56
Reading undir gegn Luton Topplið Reading er undir 2-1 á útivelli gegn Luton Town í ensku 1. deildinni eftir að liðið náði forystu í leiknum eftir aðeins örfáar sekúndur. Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson eru báðir í byrjunarliði Reading í leiknum. 17.2.2006 20:34
Hafnaði í 31. sæti í svigi Dagný Linda Kristjánsdóttir hafnaði í 31. sæti í svigi á Ólympíuleikunum í Tóríní en keppni er nýlokið. Svigið er hluti af alpatvíkeppninni en keppni í bruni var aflýst í dag vegna óveðurs á Ítalíu. 17.2.2006 19:25
Cappello eftirmaður Eriksson? Ítalska blaðið Corriere dello sport greinir frá því í dag að Fabio Capello stjóra Juventus hafi verið boðið að taka við enska landsliðinu í sumar og segir að hann fái fyrir um 19 milljónir punda. Enska knattspyrnusambandið hefur þó séð ástæðu til að vísa þessum fréttum á bug og neitar því alfarið að búið sé að finna eftirmann Sven-Göran Eriksson. 17.2.2006 18:30
Fimm leikir í kvöld Fimm leikir eru á dagskrá í DHL-deild karla i handknattleik í kvöld. Fylkir tekur á móti Fram í Árbænum, Valur mætir FH í Laugardalshöll, Þór og Afturelding mætast í Höllinni fyrir norðan, KA tekur á móti Víkingi/Fjölni í KA-heimilinu og Selfoss fær ÍR í heimsókn. 17.2.2006 17:45
Dómarinn verður að hafa góð tök á bikarleiknum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir afar mikilvægt að dómarinn Howard Webb hafi góð tök á bikarleik liðsins gegn Liverpool á morgun, því hann óttist að annars gæti soðið uppúr milli leikmanna liðanna. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. 17.2.2006 17:30
Dómararnir á Englandi eru skelfilegir Dennis Rodman lék í gærkvöld sinn síðasta leik fyrir lið Brighton Bears í ensku úrvalsdeildinni í körfubolta þegar liðið burstaði London Towers 103-84. Rodman hafði sitt að segja um veru sína á Englandi, enda ekki vanur að liggja á skoðunum sínum. 17.2.2006 16:50
Óánægja með öryggi í Stuttgart Nokkur óánægja ríkir nú með öryggisviðbúnað á heimavelli þýska úrvalsdeildarliðsins Stuttgart, sem notaður verður á HM í sumar, eftir að öryggisútkall á vellinum á leik Stuttgart og Middlesbrough í gær var ekki þýtt yfir á ensku og því sátu enskir áhorfendur eftir í stúkunni á meðan þeir þýsku fóru að fyrirmælum vallarvarða og yfirgáfu leikvanginn. 17.2.2006 15:45
Djemba Djemba biðst afsökunar Miðjumaðurinn Eric Djemba Djemba hefur beðið David O´Leary knattspyrnustjóra Aston Villa afsökunar á að hafa komið of seint í herbúðir liðsins eftir að lið Kamerún var slegið út úr Afríkukeppninni í knattspyrnu á dögunum. 17.2.2006 15:34
Button þarf sigur fjótlega Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Nigel Mansell, segir að Jenson Button verði að krækja í sinn fyrsta sigur mjög fljótlega ef hann eigi að standa undir væntingum með liði Honda í vetur. Besti árangur Button í keppni til þessa er annað sæti, en Mansell telur að hinum 26 ára gamla ökumanni sé hollara að fara að ná í sigur. 17.2.2006 15:30
Rose og Wilson í forystu Breski kylfingurinn Justin Rose og Bandaríkjamaðurinn Dean Wilson eru efstir og jafnir á sjö höggum undir pari eftir fyrsta hringinn á Nissan Open mótinu í golfi sem fer fram á Riviera Country Club vellinum í Kaliforníu. Sýnt verður frá mótinu á Sýn um helgina. 17.2.2006 15:00
Auðunn og María kraftlyftingamenn ársins Auðunn Jónsson og María Guðsteinsdóttir voru kjörin kraftlyftingamenn ársins í karla- og kvennaflokki á ársþingi kraftlyftingasambands Íslands sem haldið var á dögunum. Þetta kemur fram á hinum andríka vef Stevegym.net. 17.2.2006 14:30