Fleiri fréttir

KR tapaði fyrir Krylia

KRingar töpuðu í kvöld öðrum leik sínum í röð á LaManga mótinu í knattspyrnu sem fram fer á Spáni þegar liðið lá 4-2 fyrir rússneska liðinu Krylia Sovetov Samara. Garðar Jóhannsson skoraði bæði mörk KRinga í leiknum, annað þeirra úr vítaspyrnu.

McLeish fer í úrvalsdeildina

Sir Alex Ferguson segist viss um að Alex McLeish, stjóri Rangers, muni taka við liði í ensku úrvalsdeildinni á næsta ári þegar hann lætur af störfum hjá skosku meisturunum.

Larsson semur við sitt gamla félag

Sænski sóknarmaðurinn Henrik Larsson ætlar að ljúka ferli sínum með liði Helsingborg í heimabæ sínum í Svíþjóð og hefur nú undirritað 18 mánaða samning við félagið. Larsson leikur sem kunnugt er með Spánarmeisturum Barcelona, en hann snýr aftur til Svíþjóðar í sumar að leiktíð lokinni.

Boro hefur áhuga á Intertoto

Middlesbrough er þriðja enska liðið á skömmum tíma sem tilkynnir áhuga sinn á að vera með í Intertoto keppninni evrópsku á næsta ári, ef svo fer að liðið nái ekki að vinna sér inn sæti í Evrópukeppni félagsliða í gegn um ensku úrvalsdeildina. Áður hafa Blackburn og Everton greint frá áhuga sínum á að vera með í keppninni.

Megson hættur hjá Forest

Gary Megson hefur sagt af sér sem knattspyrnustjóri Nottingham Forest, en gengi liðsins hefur verið afar dapurt undanfarið. Stuðningsmenn Forest voru orðnir mjög óhressir með gengi liðsins sem hefur aðeins unnið einn af síðustu tíu leikjum sínum og er komið í fallbaráttu í fyrstu deildinni.

Brighton sektað vegna Rodman

Lið Brighton Bears í breska körfuboltanum hefur verið sektað og dæmt 20-0 tap í leiknum sem Dennis Rodman lék með því á dögunum eftir að körfuknattleikssambandið þar í landi úrskurðaði að liðið hefði teflt honum fram ólöglega í leiknum.

Magdeburg mætir Hamburg

Í dag var dregið um hvaða lið mætast í undanúrslitum þýska bikarsins í handknattleik, eða final four eins og Þjóðverjar kalla það. Annarsvegar mætast Magdeburg og Hamburg og hinsvegar leikur Kiel við Kronau/Östringen sem sló Gummersbach nokkuð óvænt út úr keppninni á dögunum. Undanúrslitin fara fram fyrstu helgina í apríl.

Birkir Ívar til Þýskalands

Landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson hefur gert tveggja ára samning við lið Lubbecke í þýsku úrvalsdeildinni, en fyrrum félagi Birkis úr Haukum, Þórir Ólafsson leikur einmitt með liðinu. Birkir klárar tímabilið hér heima með Haukum en heldur utan í sumar.

Vonar að Chelsea tapi 8-0

Jose Reina er enn ekki runnin reiðin eftir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Chelsea á dögunum og segist hann vona að landar sínir í Barcelona vinni ensku meistarana samtals 8-0 í Meistaradeildinni í næstu umferð sem hefst í næstu viku.

Stórleikur LeBron James

LeBron James átti sannkallaðan stórleik þegar lið hans Cleveland bar sigurorð af Boston 113-109 í tvíframlengdum leik í nótt. James skoraði 43 stig, hirti 12 fráköst og gaf 11 stoðsendingar fyrir Cleveland, en Paul Pierce hjá Boston varð fyrsti maðurinn í sögu félagsins síðan Larry Bird árið 1989 til að skora 50 stig í leik.

Darko Milicic farinn til Orlando Magic

Darko Milicic-tilrauninni er lokið í Detroit, því í nótt skipti liðið honum til Orlando Magic á samt leikstjórnandanum Carlos Arroyo og fékk í skiptum hinn meidda miðherja Calvin Cato og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári.

Blackburn lagði Sunderland

Blackburn vann sigur á Sunderland í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu 2-0. Það var vandræðagemsinn Craig Bellamy sem skoraði mörk heimamanna á 38. og 63. mínútu leiksins.

Markalaust hjá Bolton og Marseille

Bolton og Marseille gerðu markalaust jafntefli á Reebok í kvöld í fyrri viðureign liðanna í Evrópukeppni félagsliða í kvöld, en síðari leikurinn verður í Frakklandi eftir viku. Sá leikur verður í beinni útsendingu á Sýn, líkt og leikur kvöldsins.

Haukar lögðu Val

Haukar sigruðu Valsmenn á heimavelli sínum Ásvöllum 33-28 í DHL-deild karla í handbolta í kvöld. Haukar höfðu frumkvæðið lengst af í leiknum, en Valsmenn urðu fyrir blóðtöku strax á 8. mínútu leiksins þegar Baldvin Þorsteinsson fékk að líta rauða spjaldið og kom því ekki meira við sögu í leiknum.

Jafnt hjá ÍR og Stjörnunni

ÍR og Stjarnan gerðu jafntefli 27-27 í hörkuspennandi leik í Austurbergi í DHL-deild karla í handbolta í kvöld, þar sem Ragnar Helgason jafnaði metin fyrir heimamenn þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum, en skot Tite Kalandadze um leið og lokaflautið gall small í þverslánni á marki ÍR.

Markalaust í hálfleik hjá Bolton og Marseille

Staðan í leik Bolton og Marseille í Evrópukeppni félagsliða er 0-0 í hálfleik, en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Þá hefur Blackburn náð forystu 1-0 gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, þar sem Craig Bellamy skoraði mark heimamanna á 38. mínútu.

Valur lagði FH

Einn leikur fór fram í DHL-deild kvenna í handknattleik í kvöld. Valsstúlkur gerðu góða ferð í Hafnarfjörðinn og báru sigurorð af FH í Kaplakrika 27-26. Valsstúlkur eru þar með komnar á topp deildarinnar með 22 stig, en FH situr í 5. sætinu með 16 stig.

Blackburn tekur á móti Sunderland

Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þegar Blackburn tekur á móti botnliði Sunderland á heimavelli sínum Ewood Park. Blackburn hefur tapað tveimur leikjum í röð, en Sunderland náði í sjaldgæft stig í síðasta leik sínum þegar liðið gerði jafntefli við Tottenham á heimavelli sínum.

Stórleikur á Ásvöllum

Heil umferð er á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld og þá er einn leikur á dagskrá í DHL-deild kvenna. Stórleikur kvöldsins er án efa viðureign Hauka og Vals á Ásvöllum, en sá leikur hefst klukkan 20.

Sato og Ide aka fyrir Super Aguri

Lið Super Aguri í Formúlu 1 hefur nú staðfest að það verði Takuma Sato og hinn lítt þekkti Yuji Ide sem muni verða aðalökumenn liðsins á komandi keppnistímabili, en þeir koma báðir frá Japan. Sato er 29 ára og hefur reynslu af að aka í Formúlu 1, en Idi hefur litla sem enga reynslu og því setja margir spurningarmerki við ráðningu hans.

Hefur áhuga á Barcelona

Lionel Scaloni, félagi Anton Ferdinand hjá West Ham, segir Ferdinand taka orðrómi um áhuga Barcelona á sér mjög alvarlega og segir hinn unga varnarmann vera mjög áhugasaman um spænsku deildina.

Dagný Linda í 23. sæti

Skíðakonan Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri náði góðum árangri á Vetrarólympíuleiknum í Tórínó í dag þegar hún hafnaði í 23. sæti af 44 keppendum í bruni. Það var Michele Dormeister frá Austurríki sem sigraði og kom í mark tæpum þremur sekúndum á undan Dagnýu.

Tap Keflvíkinga stendur

Áfrýjunardómstóll KKÍ hefur staðfest að tap Keflvíkinga í leik gegn Hamri/Selfoss frá því í janúar skuli standa, en þar voru Keflvíkingum dæmt tap fyrir að tefla fram ólöglegum leikmanni. Keflavík áfrýjaði dómnum á grundvelli þess að leikmaðurinn kom ekki við sögu í leiknum, en því hefur nú verið vísað frá.

Ísland niður um eitt sæti

Íslenska A-landsliðið í knattspyrnu fellur um eitt sæti á nýja styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Íslenska liðið er nú í 96. sæti listans, en Brasilía er sem fyrr í efsta sæti listans, Tékkland í öðru og Hollendingar eru í því þriðja.

Hefur mikinn áhuga á að taka við Newcastle

Claudio Ranieri, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, segist hafa mikinn áhuga á að snúa aftur til Englands, en hann hefur nú verið sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá Newcastle.

Butt sektaður um 80.000 pund

Miðjumaðurinn Nicky Butt hefur verið sektaður um sem samsvarar tveggja vikna launum eða 80.000 pundum fyrir að yfirgefa liðið fyrir leik þess gegn West Ham á dögunum þegar í ljós kom að hann hefði ekki verið valinn í leikmannahópinn. Butt hefur þegar beðist afsökunar á málinu, sem Steve Bruce segir nú að sé úr sögunni.

Radmanovic til LA Clippers

Lið Los Angeles Clippers fékk í gær góðan liðsstyrk þegar það skipti framherja sínum Chris Wilcox til Seattle Supersonics fyrir serbnesku skyttuna Vladimir Radmanovic. Radmanovic er fjölhæfur leikmaður sem er fyrst og fremst þekktur fyrir langskot og er honum ætlað að skerpa á sóknarleik liðsins.

Nadal sneri aftur með sigri

Spænski tenniskappinn Rafael Nadal átti vel heppnaða endurkomu úr meiðslum í gær þegar hann sigraði naumlega á opna Marseille-mótinu í tennis sem fram fór í Frakklandi, þar sem hann hafði betur gegn Oliver Rochus 4-6, 6-2 og 7-5.

Shearer spilar góðgerðaleik í vor

Gamla kempan Alan Shearer hjá Newcastle hefur komið á fót sérstökum fjáröflunarleik milli Newcastle og Glasgow Celtic frá Skotlandi sem fram fer á St. James´ Park þann 10. maí í vor, þar sem allt fé sem safnast mun renna til góðgerðamála.

Hlær að sögusögnum

Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona gat aðeins hlegið þegar hann var spurður út í orðróm þess efnis að hann væri á leið til Englandsmeistara Chelsea í sumar.

Gunnar íhugar að taka til í herbúðum Stoke

Gunnar Gíslason, stjórnarformaður Stoke City, viðurkennir í viðtali við BBC í dag að hann sé alvarlega að íhuga að hreinsa til í herbúðum Stoke með því að reka alla sem eru við stjórnartaumana hjá liðinu, því gengið hefur verið afar dapurt undanfarið og samstarfið ekki gott.

Fjögur mörk nægðu Real ekki

Real Madrid er úr leik í spænska bikarnum þrátt fyrir 4-0 sigur á Zaragoza í undanúrslitum keppninnar í kvöld, en Zaragoza vann fyrri leik liðanna 6-1 á dögunum og er því komið áfram í keppninni. Brasilíumennirnir Ronaldo, Robinho, Cicinho og Carlos skoruðu mörk Real.

Garcia tryggði Liverpool sigur á Arsenal

Liverpool styrkti stöðu sína í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar það lagði Arsenal 1-0 með marki frá Luis Garcia á 88. mínútu. Fyrr í leiknum hefði Steven Gerrard misnotað vítaspyrnu fyrir Liverpool og var sigur liðsins nokkuð verðskuldaður.

Gummersbach úr leik

Gummersbach tapaði nokkuð óvænt fyrir Kronau/Östringen í þýsku bikarkeppninni í handbolta í kvöld 36-34 eftir framlengdan leik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Gummersbach, þar af 2 úr vítum og Róbert Gunnarsson skoraði 3 mörk. Gummersbach hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum, en missti forskotið niður í þeim síðari og tapaði loks í framlengingunni.

Tekst Real hið ómögulega?

Nú er kominn hálfleikur í síðari viðureign Real Madrid og Zaragoza í undanúrslitum spænska bikarnum og hafa heimamenn 3-0 forystu. Zaragoza vann fyrri leik liðanna 6-1 og því var talið nær öruggt að Real væri úr leik. Þeir Cicinho, Robinho og Ronaldo skoruðu mörk Real á fyrstu tíu mínútum leiksins og þurfa því tvö mörk í viðbót til að tryggja sér sæti í úrslitunum.

Jafnt hjá Liverpool og Arsenal

Staðan í hálfleik í leik Liverpool og Arsenal er 0-0, en það sem helst bar til tíðinda í hálfleiknum var að Steven Gerrard hjá Liverpool lét Jens Lehmann verja frá sér vítaspyrnu um miðbik hálfleiksins. Þó má segja að réttlætinu hafi verið fullnægt, því dómurinn var ansi vafasamur.

Mosley leggur til deildarskiptingu

Max Mosley, yfirmaður í Formúlu 1, hyggst kynna hugmyndir um að skipta heimsmeistaramótinu niður í deildir á næstunni. Hann hefur í huga að skipa sérstaka 2.deild sem skipuð yrði liðum úr GP2 mótaröðinni, sem hugsanlega gætu unnið sér sæti í formúlu 1 á meðan lökustu liðin þar mundu falla í "2. deild."

Við erum ekki betri en Arsenal

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að sitt lið sé enn ekki betra en Arsenal þó það sé ofar í töflunni það sem af er vetri. Benitez segist bera mikla virðingu fyrir Arsene Wenger og því starfi sem hann hafi unnið hjá Arsenal.

Æfingaleikur við Spánverja í ágúst

Knattspyrnusamband Íslands hefur komist að samkomulagi við spænska knattspyrnusambandið um að þjóðirnar spili æfingaleik á Laugardalsvelli þann 16. ágúst í sumar. Þetta kemur fram á vef KSÍ í dag.

Cuper hættur með Mallorca

Þjálfarinn Hector Cuper hefur sagt starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri spænska liðsins Real Mallorca, en liðinu hefur gengið afleitlega í vetur og er í neðsta sæti deildarinnar.

Lehmann sigurviss

Jens Lehmann, markvörður Arsenal, segist viss um að sitt lið hafi alla burði til að leggja Liverpool á Anfield í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, en Liverpool hefur aðeins tapað einum leik á heimavelli í deildinni í vetur.

Styttist í endurkomu Fortune

Miðjumaðurinn Quinton Fortune hjá Manchester United er nú óðum að ná heilsu eftir löng og erfið hnémeiðsli og búist er við því að hann spili leik með varaliði félagsins á allra næstu vikum.

Ég er ekki á leið til Milan

Markaskorarinn Ruud Van Nistelrooy hefur blásið á sögusagnir sem eru á kreiki á Ítalíu þess efnis að hann gangi til liðs við AC Milan í sumar þar sem félagið sé á höttunum eftir hollenskum þjálfara til að taka við af Carlo Ancelotti.

Andy Cole meiddur

Framherjinn Andy Cole hjá Manchester City er meiddur á hné og verður frá keppni í að minnsta kosti mánuð. Cole hlaut meiðslin seint í leiknum gegn Charlton um helgina og þurfti að fara af leikvelli. Stuart Pearce segist ekki hissa á meiðslum Cole, þau séu aðeins í takt við það sem verið hefur hjá liði sínu á leiktíðinni.

Leikjaniðurröðun klár

Nú er búið að tilkynna leikjaniðurröðun hjá íslenska A-landsliðinu í knattspyrnu fyrir undankeppni EM í ár og á næsta ári. Fyrsti leikurinn verður gegn Norður-Írum í Belfast þann 2. september í haust, en fyrsti heimaleikurinn verður gegn Dönum fjórum dögum síðar.

Sjá næstu 50 fréttir