Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kafaði 52 metra á einum andardrætti Hinn fjörutíu ára gamli David Vencl sló í gær heimsmetið í frjálsri köfun án hlífðarbúnaðs. Kafaði hann 52 metra ofan í Sils-vatn í Sviss en til samanburðar er djúpi endi Vesturbæjarlaugar 3,8 metrar. 15.3.2023 15:51
Rússar ætla að sækja drónann í Svartahaf Rússar ætla að reyna að sækja brak bandaríska drónans sem brotlenti í Svartahafi í gær. Bandaríkjamenn segja drónann hafa lent í hafinu eftir að rússneskri herþotu hafi verið flogið utan í hann. 15.3.2023 15:00
Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó. 15.3.2023 14:20
Bein útsending: Opinbera nýja búninga fyrir tunglferðir komandi ára Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og fyrirtækisins Axiom Space ætla að kynna nýja geimbúninga sem notaðir verða í Artemis áætluninni í dag. Um er að ræða búninga sem geimfarar munu væntanlega klæðast yfirborði tunglsins á komandi árum. 15.3.2023 14:00
Tókust á við lögreglu og komu í veg fyrir handtöku Imrans Khans Til átaka kom milli lögregluþjóna og stuðningsmanna Imrans Khans, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, þegar þeir fyrrnefndu reyndu að handtaka þann síðarnefnda í gær. Til stóð að handtaka hann fyrir að mæta ekki í dómsal vegna ákæra um spillingu en það reyndist erfitt. 15.3.2023 11:18
Deilt um markaðsleyfi þungunarrofslyfja í Bandaríkjunum Alríkisdómari í Amarillo í Texas mun í dag hlýða á málflutning í máli sem samtök andstæðinga þungunarrofs hafa höfðað gegn Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna til að fá þungunarrofslyfið mifepristone bannað. 15.3.2023 10:29
5.600 tonn af rusli hlaðborð fyrir rottur Parísarborgar Borgaryfirvöld í París segja 5.600 tonn af rusli hafa safnast upp í borginni eftir að sorphirðustarfsmenn lögðu niður störf til að mótmæla fyrirætlunum stjórnvalda um að hækka eftirlaunaaldurinn úr 62 árum í 64 ár. 15.3.2023 09:00
„Hvert einasta kyssti á mér rassinn“ Ný bók sem inniheldur bréf sem þjóðhöfðingjar og aðrir þekktir einstaklingar sendu Donald Trump áður eða eftir að hann varð forseti, mun sýna fram á að allir „kysstu á honum rassinn“, eins og hann komst að orði í samtali við Breitbart News í gær. 15.3.2023 07:49
Enn fækkar þeim ríkjum sem styðja Taívan Forseti Hondúras, Xiomara Castro segist hafa fyrirskipað utanríkisráðuneyti landsins að koma á formlegum tengslum við stjórnvöld í Kína. 15.3.2023 07:40
Fellibylurinn Freddy orðinn sá langlífasti í sögunni Fellibylurinn Freddy hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar í Afríkuríkjunum Malaví og Mósambík en tala látinna á svæðinu fór yfir 200 í gær. 15.3.2023 07:35
Kjósendur styðja forseta sem ætlar að brjóta gegn stjórnarskrá Hátt í sjötíu prósent svarenda í nýrri skoðanakönnun styðja Nayib Bukele, forseta El Salvador, til endurkjörs þrátt fyrir að stjórnarskrá landsins kveði á um að forseti geti ekki setið fleiri en eitt kjörtímabil í einu. Bukele ætlar að bjóða sig fram engu að síður. 15.3.2023 07:01
Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum kallar uppákomuna „ögrun“ Anatoly Antonov, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, sagði í samtali við ríkisfréttastofuna RIA í gær að atvik sem átti sér stað í gær þegar rússneskar herþotur höfðu afskipti af bandarískum dróna hefði falið í sér ögrun. 15.3.2023 06:40
Rændi þrettán ára stelpu og læsti í skúr í tvær vikur Karlmaður í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum var á föstudaginn handtekinn grunaður um að hafa rænt þrettán ára stelpu, brotið gegn henni kynferðislega og læst hana inni í skúr í tvær vikur. Maðurinn á yfir höfði sér fjölda ákæra fyrir brot sín. 14.3.2023 23:33
Ökumaðurinn talinn hafa ekið vegfarendur viljandi niður Saksóknarar í Quebec í Kanada ákærðu karlmann á fertugsaldri fyrir háskaakstur eftir að hann ók pallbíl inn í hóp gangandi vegfarenda í gær. Tveir aldraðir karlmenn létu lífið en ökumaðurinn er talinn hafa ekið viljandi á fólkið. 14.3.2023 23:32
Fönguðu dauðateygjur verðandi sprengistjörnu Innrautt auga James Webb-geimsjónaukans náði mynd af sjaldséðri og skammlífri tegund risavaxinnar stjörnu í dauðateygjunum. Athuganir sjónaukans veita stjörnufræðingum í fyrsta skipti tækifæri til að fræðast meira um geimryk sem leikur lykilhlutverk í þróun alheimsins. 14.3.2023 21:55
Konungur Serengeti er dauður Ljónið Bob yngri, oft þekktur sem Konungur Serengeti-þjóðgarðsins í Tansaníu, er dautt. Talið er að nokkur yngri ljón hafi drepið hann. 14.3.2023 20:46
Lýsir innrásinni í Úkraínu sem „deilu um landsvæði“ Helsti áskorandi Donalds Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins á næsta ári lýsir innrás Rússa í Úkraínu sem deilu um landsvæði. Hann telur það ekki brýna hagsmuni Bandaríkjanna að verja Úkraínu. 14.3.2023 19:58
Rússar þvinguðu bandarískan dróna til nauðlendingar Bandaríski flugherinn sakar Rússa um glannaskap þegar rússnesk herþota þvingaði bandarískan eftirlitsdróna til þess að nauðlenda í Svartahafi í dag. Atvikið er það fyrsta á milli ríkjanna tveggja frá því að stríðið í Úkraínu hófst. 14.3.2023 17:33
Játa að hafa orðið tólf ára stúlkunni að bana Tvær stúlkur, tólf og þrettán ára gamlar, játuðu að hafa orðið annarri tólf ára stúlku að bana í bænum Freudenberg í vesturhluta Þýskalands. Tilkynnt var um hvarf stúlkunnar síðastliðinn laugardag og fannst hún svo látin síðdegis daginn eftir. 14.3.2023 17:14
Dæmd í átta ára fangelsi fyrir að ljúga ítrekað um nauðganir Bresk kona hefur verið dæmd til átta og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að ljúga því að henni hefði verið nauðgað og gerð að kynlífsþræl af asískum mönnum. Hún laug því einnig að aðrir menn hefðu brotið á sér kynferðislega. Hin 22 ára gamla Eleanor Williams er sögð hafa barið sjálfa sig með hamri og veitt sér þannig sár sem hún sakaði mennina um að hafa valdið. 14.3.2023 14:13
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Af hverju vilja Úkraínumenn halda Bakhmut? Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að framtíð Úkraínumanna muni ráðast á víglínunum í austurhluta landsins. Hann segir stöðuna þar vera mjög erfiða en það þurfi að gera út af við hernaðarmátt Rússa og það muni Úkraínumenn gera. 14.3.2023 14:01
Tólf og þrettán ára grunaðar um að hafa myrt jafnöldru sína Síðastliðinn laugardag hvarf tólf ára gömul stúlka í bænum Freudenberg í vesturhluta Þýskalands. Stúlkan fannst látin daginn eftir en talið er að hún hafi verið myrt. Tvær jafnöldrur stúlkunnar eru grunaðar um morðið. 14.3.2023 13:17
Að minnsta kosti fimm börn getin með stolnu sæði Læknir á sjúkrahúsinu í Halmstad í Svíþjóð tók sæði frá mönnum sem höfðu skilað inn sýnum vegna frjósemisrannsókna og notaði til að gera konur þeim ókunnugar þungaðar. Frá þessu var greint í Uppdrag granskning fyrir helgi. 14.3.2023 13:15
Sérfræðingar uggandi og Kínverjar æfir vegna AUKUS Stjórnvöld í Bandaríkjunum tilkynntu í gær formlega um samkomulag Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu um þróun og framleiðslu kjarnorkuknúinna herkafbáta. 14.3.2023 10:21
Kirkjugarður í Wales varð að vígvelli Nýlega opinberað myndband sýnir hvernig hópur manna barðist með hömrum, kylfum, hnífum, öxum og sveðjum í Morriston kirkjugarðinum í Swansea í Wales í fyrra. Þrettán hafa verið dæmdir vegna átakanna en þau leiddu til þess að nokkrir særðust alvarlega, jarðarfarir voru truflaðar og legsteinar skemmdir. 14.3.2023 09:54
Kínverjar opna fyrir erlendum gestum Kínverjar hafa ákveðið að opna landamæri sín fyrir erlendum ferðamönnum á ný eftir kórónuveirufaraldurinn og taka breytingarnar gildi strax á morgun miðvikudag. 14.3.2023 07:38
Tveir látnir í Kanada eftir að ekið var á gangandi vegfarendur Tveir menn eru látnir og níu særðir eftir að pallbíl var ekið á gangandi vegfarendur í bænum Amqui, norður af borginni Quebec, í Kanada. Lögregla hefur handtekið 38 ára ökumann bifreiðarinnar og verið er að rannsaka hvort hann ók viljandi á fólkið. 14.3.2023 07:22
Trump skellir skuldinni á Pence fyrir árásina á þinghúsið Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, heldur því fram að Mike Pence, þáverandi varaforseti sinn, hefði getað komið í veg fyrir ofbeldi stuðningsmanna Trumps við þinghúsið fyrir tveimur árum með því að hjálpa honum að snúa við úrslitum forsetakosninganna. 13.3.2023 23:39
Glitter sendur aftur í fangelsi Barnaníðingurinn Gary Glitter var kallaður aftur til afplánunar í fangelsi rétt rúmum mánuði eftir að hann var látinn laus til reynslu. Bresk fangelsisyfirvöld segja að hann hafi rofið skilmála lausnarinnar. 13.3.2023 20:46
Tæplega hundrað látnir eftir fellibyl í Malaví Fellibylurinn Freddy skall á suðurhluta Malaví í dag og létu 99 manns lífið. Að minnsta kosti 134 dvelja nú á spítala eftir fellibylinn. 13.3.2023 20:43
Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi Saksóknarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) ætla að höfða tvö mál gegn Rússum vegna ódæða þeirra í Úkraínu. Saksóknarar vilja leggja fram nokkrar handtökuskipanir vegna stríðsglæpa en rannsakendur dómstólsins hafa um mánaða skeið verið að störfum í Úkraínu. 13.3.2023 15:23
Ísland efst á meðal þjóða sem geta tekist á við offituvandann Ísland er í fjórða efsta sæti á lista yfir lönd sem eru best sett til að takast á við offituvandann. 13.3.2023 14:57
Mörg ríki Bandaríkjanna hyggjast banna dragsýningar Stjórnvöld í Tennesse í Bandaríkjunum hafa samþykkt lög sem banna dragsýningar. 10 ríki til viðbótar hafa lagt fram lagafrumvarp í svipuðum anda. 13.3.2023 14:30
Gæti reynst erfitt að lögsækja Trump Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trumps um árabil, mun bera vini fyrir sérstökum ákærudómstól í New York í dag. Trump sjálfum hefur einnig verið boðið að bera vitni fyrir þessum sama dómi vegna greiðslu hans til fyrrverandi klámmyndaleikkonu í aðdraganda forsetakosninganna 2016. 13.3.2023 13:44
Xi vill stærra hlutverk á alþjóðasviðinu Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því að ríkið spilaði stærri rullu í alþjóðamálum. Forsetinn sagði í morgun að Kína ætti að taka virkan þátt í því að gera endurbætur á og að endurbyggja alþjóðakerfið. Það sagði Xi að myndi veita heimsfriði og framþróun „jákvæða orku“. 13.3.2023 11:09
Biden sagður munu leggja blessun sína yfir umfangsmikla olíuborun New York Times hefur eftir embættismönnum innan stjórnkerfis Bandaríkjanna að stjórnvöld muni í dag samþykkja umfangsmiklar olíuboranir í Alaska, sem munu mögulega gefa af sér 600 milljón tunnur af hráolíu á 30 ára tímabili. 13.3.2023 10:23
Segja Rússa viljandi láta Wagner blæða í Bakhmut Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War telur ósættið milli stjórnvalda í Rússlandi og Yevgeny Prigozhin, stofnanda Wagner málaliðahópsins, hafa náð hámarki. 13.3.2023 07:13
Fjölskyldu Pence ógnað vegna orða Trumps Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, segir Donald Trump fara með fleipur um innrásina sem gerð var á þinghúsið í Washington 6. janúar 2021. Árásin hafi ekki verið neitt annað en svívirðileg. 12.3.2023 10:20
Kviknaði í 21 bíl eftir árekstur í Ungverjalandi Að minnsta kosti 36 slösuðust eftir árekstur á hraðbraut í Ungverjalandi þar sem kviknaði í 21 bíl. 11.3.2023 19:31
Önnur tilraun til að skjóta upp fyrstu þrívíddarprentuðu eldflauginni Starfsmenn fyrirtækisins Relativity Space munu reyna að skjóta fyrstu eldflauginni sem er nánast öll þrívíddarprentuð út í geim. Eldflaugin notar einnig metan sem eldsneyti, sem er ekki hefðbundið. Fyrri tilraun til að skjóta eldflauginni mistókst. 11.3.2023 19:13
Fótboltasérfræðingur settur á bekkinn fyrir að líkja stjórnvöldum við nasista Breska ríkisútvarpið hefur sent einn vinsælasta sjónvarpsmann landsins í tímabundið leyfi vegna gagnrýni hans á útlendingafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Í greinargerð með frumvarpinu skrifar innanríkisráðherra að hann geti ekki fullyrt að frumvarpið samræmist mannréttindasáttmála Evrópu. 11.3.2023 16:40
BBC neitar ásökunum um ritskoðun Ákvörðun breska ríkisútvarpsins BBC, um að sýna ekki lokaþátt úr Wild Isles, nýrri þáttaröð Davids Attenborough hefur vakið hörð viðbrögð. Umræddur þáttur fjallar um náttúruspjöll á Bretlandseyjum og orsakir þeirra en samkvæmt heimildum The Guardian var hætt við að sýna þáttinn þar sem forsvarsmenn BBC óttuðust gagnrýnisraddir frá Íhaldsflokknum og hægri sinnuðum fjölmiðlum. 11.3.2023 14:31
Fyrrverandi sambýlishvalur Keiko er dauður Háhyrningurinn Kiska, sem deildi tanki með Keiko þegar þeir dvöldu hér á landi, er dauður, 47 ára að aldri. Hann var oft þekktur sem „Mest einmana hvalur í heimi“ en Kiska bjó ein frá því árið 2011 til hennar dauðdaga. 10.3.2023 23:56
Réttarhöldum yfir meintum þjóðarmorðingja frestað Réttarhöldum yfir Félicien Kabuga við Stríðsglæpadómstólinn í Haag var í dag frestað þar sem lögmenn hans segja hann vera með elliglöp. Kabuga er sagður hafa hvatt til þjóðarmorða gegn Tútsis-þjóðflokknum í Rúanda. 10.3.2023 23:41
Xi líklega við völd í Kína til æviloka Xi Jinping forseti Kína sór embættiseið að stjórnarskránni fyrir sitt þriðja fimm ára kjörtímabil sem forseti landsins við athöfn á Alþýðuhöllinni í Peking í dag. Margir telja að Xi ætli sér að sitja að völdum til dauðadags. 10.3.2023 19:30