Fleiri fréttir

Hreinsaður af sök um morð eftir 42 ár í fangelsi
Karlmaður í Missouri í Bandaríkjunum hefur verið hreinsaður af sök um morð og honum sleppt úr fangelsi þar sem hann hafði verið látinn dúsa í 42 ár. Hinn 62 ára Kevin Strickland hafði verið ranglega sakfelldur vegna morða árið 1979 þegar hann var átján ára gamall.

Spá 700 þúsund dauðsföllum í Evrópu og Asíu að óbreyttu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar nú við því að allt að 700 þúsund einstaklingar gætu látið lífið í Evrópu og hluta Asíu ef ekki tekst að hægja á kórónuveirufaraldrinum á svæðinu.

Átta ára drengur látinn eftir ódæðið í Wisconsin
Sjötta manneskjan er nú látin eftir að maður ók bíl sínum í gegnum jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum á sunnudag. Um var að ræða átta ára dreng.

Dæmdur morðingi Meredith Kercher laus allra mála
Karlmaður sem var dæmdur fyrir morðið á Meredith Kercher, 21 árs gömlum breskum skiptinema, er nú laus allra mála eftir að hafa afplánað þrettán ár af sextán ára fangelsisdómi. Morðið vakti heimsathygli en Amanda Knox, sambýliskona Kercher, og kærasti hennar sátu í fangelsi í fjögur ár áður en þau voru sýknuð.

Lýðræði talið fara hnignandi í Bandaríkjunum í fyrsta sinn
Bandaríkin eru í fyrsta skiptin talin á meðal ríkja þar sem lýðræði fer hnignandi í skýrslu norrænnar hugveitu um stöðu lýðræðis í heiminum. Meiri en helmingur ríkja heims er talinn í sömu sporum og Bandaríkin.

Hefja árslangt ferðalag sem endar á brotlendingu
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið skjóta DART-geimfarinu á loft á fimmtudagsmorgun (24. nóv). Geimfarið á að brotlenda á smástirni í um ellefu milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár. Markmiðið er að kanna getu jarðarbúa til að breyta stefnu smástirnis ef ske skyldi að slíkt stefndi að jörðinni.

Þrír taldir af eftir flugslys í Noregi
Þrír eru taldir hafa látið lífið þegar lítil flugvél hrapaði til jarðar fyrir utan bæinn Larvik í Noregi í morgun.

Höfðar mál eftir að hafa verið ranglega vistaður á geðdeild í tæp þrjú ár
Joshua Spriestersbach, var handtekinn fyrir mistök á Honolúlú árið 2017 og vistaður á geðdeild í nærri því þrjú ár, því lögreglan fór mannavillt. Hann hefur nú höfðað mál gegn yfirvöldum á Havaí-eyjum, lögregluþjónum, lögmönnum og læknum sem að máli hans komu.

Katarar létu njósna um forystumenn FIFA
Bandarískur fyrrverandi leyniþjónustumaður njósnaði um forystumenn Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) fyrir Katar þegar smáríkið sóttist eftir að halda heimsmeistaramótið sem fer fram á næsta ári. Njósnarinn var einnig látinn fylgjast með gagnrýnendum Katar.

Seinka skoti stærsta geimsjónauka heims
Ákveðið hefur verið að seinka geimskoti James Webb-geimsjónaukans, þess stærsta í sögunni, um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning þess. Honum verður nú skotið á loft í fyrsta lagi tveimur dögum fyrir jól.

Ein ötulasta baráttukona fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum látin
Hin norska Kim Friele, ein ötulasta baráttukonan fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum, er látin, 86 ára að aldri.

Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu er látinn
Chun Doo-hwan, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, lést í morgun, níutíu ára að aldri.

Spacey dæmdur til að greiða framleiðendum House of Cards fjóra milljarða
Gerðardómur hefur ákveðið að leikarinn Kevin Spacey eigi að greiða MRC kvikmyndaverinu 31 milljón dala í skaðabætur fyrir að hafa brotið gegn ákvæðum samnings síns við framleiðslu á þáttunum House of Cards, sem sýndir voru á Netflix.

Að minnsta kosti 45 látnir eftir rútubruna í Búlgaríu
Að minnsta kosti 45 létu lífið í rútuslysi í Búlgaríu í nótt. Slysið varð á hraðbraut í vesturhluta landsins en rútan er sögð hafa ekið á vegrið með þeim afleiðingum að mikill eldur kom upp í henni.

Átti í heimiliserjum rétt áður en hann varð fimm að bana
Ökumaður sem varð fimm að bana þegar hann ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær hafði nýlega átt í heimiliserjum þegar atvikið átti sér stað.

Í lok vetrar verði Þjóðverjar „bólusettir, búnir að ná sér af Covid eða látnir“
Heilbrigðisráðherra Þýskalands, Jens Spahn, undirstrikaði í dag mikilvægi þess að landar hans létu bólusetja sig. Það gerði hann á afar beinskeyttan hátt, þegar hann ræddi við fréttamenn á fundi í Berlín í dag.

„Dömur og herrar, notið almenna skynsemi“
Enginn af þremenningunum sem eltu og sátu fyrir Ahmaud Arbery höfðu tilefni til að framkvæma borgaralega handtöku eftir að þeir sáu blökkumanninn í hverfi þeirra í Brunswick í Georgíu í fyrra. Þeir ákváðu að elta hann „vegna þess að hann var blökkumaður á hlaupum eftir götum þeirra“.

Rússneskur aðmíráll segir kafbát NATO hafa verið siglt á Kursk
Vyachselav Popov, fyrrverandi aðmíráll í Rússlandi, heldur því fram að kafbátur frá ríki í Atlantshafsbandalaginu hafi valdið því að rússneski kafbáturinn Kursk hafi sokkið árið 2000. Eigin rannsókn Rússa leiddi í ljós að kafbáturinn sökk eftir sprengingu vegna gallaðs tundurskeytis.

Biden vill Powell áfram sem seðlabankastjóra
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Jerome Powell seðlabankastjóra Bandaríkjanna til að gegna embættinu annað skipunartímabil.

Kanna hvort ökumaðurinn hafi verið á flótta eftir glæp
Lögregluþjónar í Waukesha í Wisconsin í Bandaríkjunum rannsaka hvort maðurinn sem ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í gær hafi verið að flýja vettvang glæps. Minnst fimm dóu og rúmlega fjörutíu er slasaðir eftir að maðurinn ók inn í þvögu fólks.

Tilnefnir Andersson sem næsta forsætisráðherra
Forseti sænska þingsins hefur tilnefnt Magdalenu Andersson, fjármálaráðherra og nýkjörinn formann sænska Jafnaðarmannaflokksins, sem næsta forsætisráðherra landsins.

Segir ofbeldishneigða fávita nýta sér mótmæli
Mark Rutte, fráfarandi forsætisráðherra Hollands, segir ofbeldishneigða fávita hafa valdið ofbeldi á óeirðum í landinu um helgina. Ofbeldisfull mótmæli gegn neyðaraðgerðum vegna Covid-19 voru haldin i Hollandi um helgina og kom til ofbeldis milli mótmælenda og lögreglu.

Grænlensku „tilraunabörnin“ krefjast bóta frá danska ríkinu
Hópur Grænlendinga hefur krafið danska ríkið um skaðabætur vegna félagslegrar tilraunar sem þau voru hluti af sem börn árið 1951.

SÞ ítrekað hundsað beiðnir um afhendingu gagna vegna sprengingarinnar í Beirút
Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað hundsað beiðnir fjölskyldna þeirra, sem fórust í sprengingunni í Beirút í fyrra, um afhendingu upplýsinga sem myndu hjálpa til við rannsókn málsins. 219 fórust í sprengingunni í ágúst í fyrra og hundruð til viðbótar slösuðust.

Unnusta Khashoggi biður Bieber að hætta við tónleika í Sádi-Arabíu
Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi sem var myrtur hrottalega af útsendurum krónprins Sádi-Arabíu, hefur biðlað til tónlistarmannsins Justins Bieber að hann blási af tónleika sína í Sádi-Arabíu í næsta mánuði.

Þörf á annarri umferð í forsetakosningunum í Chile
Enginn hlaut hreinan meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna sem fram fór í Chile í gær og mun því önnur umferð fara fram í næsta mánuði.

Fjöldi mótmælir nýjum og ströngum sóttvarnaaðgerðum
Nýjar samkomutakmarkanir tóku gildi í Austurríki á miðnætti vegna kórónuveirufaraldursins og er öllum landsmönnum gert að halda sig heima næstu tíu dagana hið minnsta.

Fimm látnir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu
Fimm eru látnir og rúmlega fjörutíu slasaðir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum. Atburðurinn átti sér stað í borginni Waukesha sem er í grennd við Milwaukee.

Einn handtekinn grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng
Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, í dag. Hann er grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng í gær.

Áttu hálftíma langt símtal við Peng Shuai
Forsvarsmenn Alþjóðaólympíunefndarinnar ræddu við kínversku tenniskonuna Peng Shuai í gegn um myndbandssímtal í hálftíma í dag. Ekkert hafði spurst til hennar í þrjár vikur frá því að hún birti færslu á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo þar sem hún sakaði Zhang Gaoli, fyrrverandi varaforseta Kína, um að hafa nauðgað sér.

Eiginmaður myrti konu sína með kóbraslöngu
Móðir hinnar indversku Uthra fann hana hreyfingarlausa í rúmi sínu. Á vinstri handlegg hennar var blóð og krufning leiddi í ljós að dánarorsök hafi verið snákabit.

„Auðvitað er þetta svikamylla“
Sérfræðingur í málefnum Austur-Evrópu segir Hvít-Rússa beita „nýju vopni“ í átökum á landamærunum. Dr. Hilmar Þór Hilmarsson var í viðtali á Sprengisandi í morgun og segir ástandið slæmt. Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, hefur verið sakaður um að nota flótta- og farandfólk sem „peð“ í deilum við Evrópusambandið.

Meina ferðamönnum aðgang að eyju á Ítalíu vegna gosóróa
Bæjarstjóri eyjarinnar Vulcano, sem er í eyjaklasa í námunda við Sikiley á Ítalíu, hefur beðið fólk að yfirgefa ákveðið svæði á eyjunni vegna gosoróa. Um hundrað og fimmtíu manns búa á svæðinu og ferðamönnum hefur verið meinaður aðgangur að eyjunni allri.

Óðagot þegar peningum rigndi yfir hraðbrautina
Seðlum hreinlega rigndi á hraðbraut í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær, sem olli því að hraðbrautin lokaðist þegar ökumenn námu staðar og freistuðu þess að ná sér í skjótfenginn gróða. Peningarnir komu úr sendiferðabíl sem virðist ekki hafa verið nægilega vel lokaður.

Ekkert lát á Covid-mótmælum í Evrópu
Víða hefur verið mótmælt í Evrópu vegna samkomutakmarkana. Þúsundir hafa streymt út á götur í Austurríki, Króatíu og á Ítalíu og mótmælt aðgerðum vegna faraldursins. Í Hollandi var mótmælt bæði á föstudag- og laugardagskvöld.

Sýknu í máli Rittenhouse mótmælt víða um Bandaríkin
Lögreglan í borginni Portland í Oregon í Bandaríkjunum lýsti því yfir í gærkvöldi að mótmæli í borginni, sem voru til komin vegna sýknu Kyle Rittenhouse, væru orðin að óeirðum.

Segja Peng Shuai hafa verið á tennismóti tæpum þremur vikum eftir hvarf hennar
Kínverska tenniskonan Peng Shuai, sem ekkert hafði spurst til eftir að hún sakaði fyrrverandi varaforseta Kína um nauðgun fyrr í þessum mánuði, er sögð hafa verið viðstödd tennismót í Kína í dag. Alþjóðlega tennissamfélagið hafði kallað eftir því að kínversk stjórnvöld sýndu fram á að hún væri örugg og á lífi eftir að hún setti ásakanirnar fram á samfélagsmiðlum.

Fyrsta andlát af völdum Covid í Grænlandi
Eldri maður lést af völdum Covid-19 á Grænlandi í vikunni en hann er sá fyrsti sem deyr vegna veirunnar í landinu.

Kominn tími til að ræða skyldubólusetningar af alvöru
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gríðarlegar áhyggjur af mikilli uppsveiflu faraldursins í Evrópu síðustu vikurnar. Svæðisstjóri stofnunarinnar varar við því að 500 þúsund manns geti látist vegna veirunnar í Evrópu fyrir fyrsta ársfjórðung næsta árs og segir tíma til kominn að taka umræðuna um skyldubólusetningar út frá lagalegu og samfélagslegu samhengi.

Hundruð Teslu-eigenda sátu fastir vegna bilunar í smáforriti
Bilun í smáforriti rafbílaframleiðandans Teslu varð til þess að hundruð Teslu-eigenda gátu ekki startað bílum sínum í gær.

Fjórtán ára drengur skotinn í Eskilstuna
14 ára drengur var skotinn í í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af Stokkhólmi, í dag.

Sautján látnir og fleiri slasaðir eftir úrhelli á Indlandi
Að minnsta kosti sautján eru látnir og fleiri slasaðir eftir gífurlega rigningu í ríkinu Andhra Pradesh á Suður-Indlandi. Úrhelli hefur verið í ríkinu síðan á fimmtudaginn, sem valdið hefur flóðum og hrint af stað aurskriðum.

Börn bjartsýnni á betri heim en fullorðnir
Niðurstöður nýrrar könnunar UNICEF og Gallup sýna að börn séu bjartsýnni á betri heim en fullorðnir. 21.000 manns, börn og fullorðnir, tóku þátt í könnuninni en hún var framkvæmd í tuttugu og einu landi.

Lögregla skaut á Covid-mótmælendur
Mótmælendur í hollensku borginni Rotterdam særðust þegar lögregla skaut á þá. Mótmælin í borginni, sem voru til komin vegna fyrirætlana stjórnvalda um að gera atvinnurekendum kleift að meina óbólusettum aðgang að ákveðnum svæðum, breyttust í óeirðir.

Biden segist reiður yfir sýknu Rittenhouse
Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst reiður yfir því að táningurinn Kyle Rittenhouse hafi verið sýknaður af öllum ákæruliðum á hendur sér í gær. Rittenhouse varð tveimur að bana og særði þann þriðja í óeirðum í borginni Kenosha á síðasta ári, og hafði verið ákærður fyrir morð.