Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Netanjahú má ekki gefa bóluefni Ísraels Avichai Mandelblit, dómsmálaráðherra Ísraels, hefur varað Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, um að hann geti ekki einn tekið ákvörðun um að gefa aukaskammta ríkisins af bóluefni til bandamanna ríkisstjórnar sinnar. 2.3.2021 13:03
Heilu bæirnir á Sikiley þakktir ösku og gjalli úr Etnu Mikil virkni hefur átt sér stað í Etnu, hæsta virka eldfjalli Evrópu, frá því í desember. Nokkur stórfengleg eldgos hafa orðið þar en sem betur fer hafa þau ekki ógnað byggð eða fólki. 2.3.2021 11:11
Pashinyan kveðst reiðubúinn að flýta kosningum Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, hefur beðið þjóð sína fyrirgefningar og kveðst reiðubúinn að flýta þingkosningum í landinu, sé það vilji þingsins. Mikil spenna og óvissa hefur verið í armenskum stjórnmálum síðustu vikur og mánuði eftir átök Armena og Asera vegna héraðsins Nagorno-Karabakh. 2.3.2021 08:28
Tvöhundruð sjötíu og níu stúlkum bjargað úr haldi mannræningja 279 stúlkum hefur verið bjargað úr haldi glæpamanna í norðurhluta Nígeríu. Þeim var rænt úr skóla í bænum Jangebe í síðustu viku. Ráðamenn segja að þær upplýsingar um að 317 hafi verið rænt hafi verið rangar. Stúlkurnar hafi verið 279. 2.3.2021 08:25
Skaut á almenna borgara Lögreglan í Mjanmar skaut á almenna borgara í borginni Yangon í morgun, en þeir höfðu safnast saman til að mótmæla valdaráni hersins í landinu á dögunum. 2.3.2021 07:58
Auknar líkur á fjórðu bylgjunni í Bandaríkjunum Aukin útbreiðsla nýrra afbrigða kórónuveirunnar sem eru meira smitandi en hin hefðbundnu hefur aukið líkurnar á því að fjórða bylgja faraldursins sé að hefjast í Bandaríkjunum. 2.3.2021 06:48
Aðstoðarmaður Lady Gaga tjáir sig um skotárásina Ryan Fischer, aðstoðarmaður söngkonunnar Lady Gaga, er á batavegi eftir að hann var skotinn í síðustu viku þegar hann var á gangi með hunda söngkonunnar. Tveimur hundanna var stolið en þeim var komið aftur til söngkonunnar á föstudag. 1.3.2021 23:20
Tvær konur saka ríkisstjóra New York um kynferðislega áreitni Ríkisstjóri New York ríkis í Bandaríkjunum hefur verið ásakaður af tveimur fyrrverandi aðstoðarkonum sínum um kynferðislega áreitni. Hann hefur beðist afsökunar á gjörðum sínum en önnur kvennanna segir hann hafa gert lítið úr áreitinu í afsökunarbeiðninni. 1.3.2021 22:56
Ein sprauta dragi verulega úr líkum á alvarlegum veikindum Ein sprauta af bóluefnum AstraZeneca eða Pfizer, sem bæði eru almennt gefin í tveimur skömmtum með nokkurra vikna millibili, dregur úr líkum á þörfinni á spítalainnlögn vegna Covid-19. Þetta hefur rannsókn sem gerð var á fólki yfir áttræðu í Englandi leitt í ljós. 1.3.2021 18:18
Hafnar öllum ásökunum um misgjörðir á K2 Nepalski fjallgöngumaðurinn Mingma Gyalje, sem ásamt hópi samlanda sinna náði fyrstur á tind K2 að vetrarlagi í janúar, fann sig í gær knúinn til að svara ásökunum gegn hópnum um ýmislegt misjafnt á leið á toppinn. Hann þvertekur meðal annars fyrir að hópurinn hafi skorið á klifurlínur í grennd við tindinn, sem fjallagarpar nota sér til aðstoðar á klifri sínu. 1.3.2021 17:07
Fyrrverandi fangar lýsa slæmum aðstæðum og ofbeldi í fanganýlendu Navalnís Fyrrverandi fangar í fanganýlendunni sem Alexei Navalní var nýverið fluttur í, segja kerfisbundið ofbeldi gegn föngum eiga sér stað þar og að aðstæður séu vægast samt slæmar. 1.3.2021 15:09
Fyrrverandi forseti Frakklands dæmdur fyrir spillingu Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar vegna spillingar. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að reyna að múta dómara í tengslum við rannsókn hvort hann hafi tekið við ólöglegri peningasendingu frá Liliane Bettencourt fyrir forsetaframboð hans árið 2007. 1.3.2021 14:00
Kosningar gætu fært forseta með einræðistilburði frekari völd Útlit er fyrir að flokkur Nayibs Bukele, forseta El Salvador, hafi unnið sigur í þingkosningum í Mið-Ameríkulandinu í gær. Gagnrýnendur Bukele saka hann um einræðistilburði og óttast að kosningasigur hans gæti grafið undan brothættu lýðræði í landinu. 1.3.2021 13:28
Ísjaki stærri en höfuðborgarsvæðið brotnaði af Suðurskautsísnum Risavaxinn borgarísjaki sem er stærri en höfuðborgarsvæðið að flatarmáli brotnaði af Brunt-íshellunni á Suðurskautslandinu á föstudag. Tæpur áratugur er liðinn frá því að breskir vísindamenn komu fyrst auga á sprungumyndun í ísnum. 1.3.2021 11:09
Fundu stærðarinnar sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í miðju íbúðahverfi Breskir sprengjusérfræðingar sprengdu í gær stóra sprengju úr síðari heimsstyrjöldinni sem fannst í Exeter. Þeir voru kallaðir til eftir að um þúsund kílóa sprengja sem kallast „Hermann“ fannst á byggingarsvæði. 1.3.2021 11:03
Sakar Íran um árás á flutningaskip Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gengið hart fram gegn ráðamönnum í Íran á undanförnum dögum. Hann hefur sakaði Íran um árás á ísraelskt flutningaskip í Ómansflóa í síðustu viku. 1.3.2021 10:43
Trump herðir tökin á Repúblikanaflokknum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gærkvöldi að hann ætlaði sér ekki að sleppa tökunum á Repúblikanaflokknum. Þess í stað væri hann að herða tökin og gaf hann í skyn að hann gæti boðið sig fram aftur til forseta fyrir kosningarnar 2024. 1.3.2021 09:00
47 aðgerðasinnar ákærðir fyrir brot á öryggislögum í Hong Kong Lögreglan í Hong Kong hefur kært 47 aðgerðasinna fyrir að grafa undan kínverskum yfirvöldum. Um er að ræða brot á umdeildum öryggislögum sem innleidd voru í lok maí í fyrra. Lögin eru sögð takmarka frelsi íbúa umtalsvert, sem kínversk stjórnvöld og stjórnvöld í Hong Kong hafa neitað. 28.2.2021 23:26
Navalní fluttur í fangabúðir: „Þær eru hræðilegar“ Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hefur verið fluttur í fangabúðir rétt fyrir utan Moskvu þar sem hann á að sitja af sér tveggja og hálfs árs fangelsisdóm. Navalní var fluttur úr varðhaldi í fangelsinu í Moskvu á fimmtudag og var aðstandendum hans ekki gert viðvart um tilfærslu hans. 28.2.2021 18:21
Minnst tíu mótmælendur drepnir í Mjanmar Lögregla í Mjanmar hefur orðið minnst tíu mótmælendum að bana víða um landið. Harka hefur færst í viðbrögð hersins við mótmælum gegn valdaráni sem framið var í Mjanmar fyrr í mánuðinum. Tugir mótmælenda hafa þá særst. 28.2.2021 14:03
Læknir hugðist bera vitni á Zoom í miðri aðgerð Heilbrigðisyfirvöld í Kaliforníu rannsaka nú mál skurðlæknis sem hugðist bera vitni við réttarhöld gegnum Zoom, á meðan hann gerði aðgerð á sjúkling. Dómarinn í málinu sagði fyrirætlun læknisins ekki viðeigandi og frestaði fyrirtökunni. 28.2.2021 13:12
Bóluefni Janssen fær grænt ljós í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur veitt leyfir fyrir notkun bóluefnis Janssen fyrir Covid-19 í landinu. Um er að ræða þriðja bóluefnið sem samþykkt er í Bandaríkjunum og það fyrsta sem gefið er í einni sprautu. Áður hafa bóluefni Pfizer og Moderna fengist samþykkt í landinu. 28.2.2021 08:46
Dóminíska lýðveldið girðir af landamærin við Haítí Dóminíska lýðveldið mun hefja framkvæmdir við að reisa girðingu á landamærum þess að Haítí síðar á þessu ári. Um er að ræða 376 kílómetra löng landamæri og segir forseti lýðveldisins verkefnið miða að því að stemma stigu við smygli og koma í veg fyrir að óskráðir innflytjendur fari yfir landamærin. 27.2.2021 22:55
Stóðu heiðursvörð við útför kafteins Tom Moore Útför kafteins Tom Moore, sem safnaði milljörðum til styrktar breska heilbrigðiskerfinu síðasta vor, fór fram í dag. Breskir hermenn stóðu heiðursvörð og herflugvélar flugu yfir útförinni til heiðurs kafteininum. 27.2.2021 20:06
Sendiherra Mjanmar hjá SÞ rekinn fyrir að biðja um hjálp Herforingjastjórn Mjanmar, sem rændi völdum í byrjun febrúarmánaðar, hefur rekið Kyaw Moe Tun, sendiherra landsins hjá Sameinuðu þjóðunum, eftir að hann óskaði eftir aðstoð SÞ til þess að hrekja herforingjastjórnina frá völdum. 27.2.2021 17:28
Yfir fjögur hundruð fangar flúðu úr yfirfullu fangelsi Yfir fjögur hundruð fangar flúðu úr fangelsi skammt frá Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, á fimmtudag. Yfirmaður fangelsisins lést í uppþotunum sem leiddu að fjöldaflóttanum. 27.2.2021 13:47
Þriðjungur bandaríska hermanna afþakkar bólusetningu Þriðjungur bandaríska hermanna hefur afþakkað bólusetningu gegn Covid-19. Sums staðar, til dæmis í Fort Bragg í Norður-Karolínu, hefur minna en helmingur látið bólusetja sig. 27.2.2021 13:29
Grípa til refsiaðgerða en ekki gegn krónprinsinum sjálfum Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa bannað fjölda einstaklinga frá Sádi Arabíu að ferðast til Bandaríkjanna og íhuga að endurskoða vopnasölu til ríkisins. Bandaríkjamenn birtu í gær skýrslu þar sem fram kemur að krónprinsinn Mohammed bin Salman hafi fyrirskipað morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi. 27.2.2021 10:20
Biden skrefinu nær því að ná björgunarpakkanum í gegn Björgunarpakkafrumvarp Joes Biden Bandaríkjaforseta var samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í nótt. Frumvarpið gerir ráð fyrir opinberum útgjöldum upp á 1.900 milljarða dollara. 27.2.2021 09:35
Hundar Lady Gaga komnir heim heilir á húfi Koji og Gustav, frönskum bolabítum bandarísku tónlistarkonunnar Lady Gaga, hefur verið skilað til eiganda síns heilum á húfi. Þeir voru teknir ófrjálsri hendi og Ryan Fischer, aðstoðarmaður Gaga, skotinn í bringuna síðastliðinn miðvikudag. 27.2.2021 08:01
ISIS-brúður fær ekki að snúa aftur til Bretlands Hæstiréttur Bretlands hefur komist að þeirri niðurstöður að Shamima Begum gekk til liðs við Íslamska ríkið þegar hún var fimmtán ára gömul, megi ekki snúa aftur til Bretlands til að berjast fyrir ríkisborgararétti sínum. 26.2.2021 21:46
Búast við mikilli aukningu fjárútláta til varnarmála Sérfræðingar búast við því að ráðamenn í Kína muni tilkynna töluverða hækkun á fjárútlátum til varnarmála í upphafi nýs þings í næsta mánuði. Hækkunin í fyrra var 6,6 prósent, sem var sú lægsta í áratugi. 26.2.2021 15:46
Vilja sprengja þinghúsið og drepa þingmenn Starfandi yfirmaður lögreglu Bandaríkjaþings segir öfgamenn sem komu að árásinni á þinghúsið þann 6. janúar, hafa rætt sín á milli um að sprengja þinghúsið í loft upp og drepa eins marga þingmenn og þeir gætu. Það vilji þeir gera þegar Joe Biden flytur fyrstu stefnuræðu sína til þingsins. 26.2.2021 14:18
Ætlar að leiða leitina að þremenningunum: „Megi Allah vera með okkur“ „Á síðustu vikum hef ég gengið í gegnum eina mest krefjandi og trámatísku reynslu á ævinni. Ég vil ekki muna tíma örvæntingar og ótta. Ég vinn að því að græða sjálfan mig og freista þess að hjálpa fjölskyldunni minni að gera slíkt hið sama.“ 26.2.2021 12:45
Hundruðum skólastúlkna rænt í Nígeríu Vopnaðir menn hafa rænt nokkur hundruð skólastúlkum í norðvesturhluta Nígeríu. Það er önnur árás af þessu tagi en fyrir rétt rúmri viku síðan var fjölmörgum drengjum rænt úr heimavistarskóla á svæðinu. 26.2.2021 12:42
Skotárásin og rán á hundum Lady Gaga náðist á myndband Árásin á aðstoðarmann söngkonunnar Lady Gaga, sem var á gangi með hunda hennar, náðist á myndband. Tveir menn á hvítum bíl veittust að aðstoðarmanninum á miðvikudaginn og reyndu að ræna hundum söngkonunnar af honum. 26.2.2021 11:21
„Ég varð að halda andliti barnanna vegna“ „Tíminn vinnur almennt með okkur, en þetta var svakalega erfitt sérstaklega fyrsta árið eftir að þetta gerðist. Ég varð að halda andliti barnanna vegna. Þau hafa misst tvær mikilvægar manneskjur úr lífi sínu, og ég stóð eftir ein.“ 26.2.2021 11:04
Kastaði börnum sínum út um glugga á fjórðu hæð Tyrknesk móðir bjargaði börnum sínum frá bruna í Istanbúl í vikunni með því að kasta þeim út um gluggann á íbúð þeirra á fjórðu hæð sex hæða húss. 26.2.2021 10:39
Yfirgáfu Norður-Kóreu á handknúnum járnbrautavagni Rússneskir erindrekar og fjölskyldur þeirra þurftu að nota handknúinn járnbrautarvagn til að ferðast frá Norður-Kóreu, þar sem landamærin eru alfarið lokuð vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. 26.2.2021 10:02
Bandaríkjaher gerir loftárás í austurhluta Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gærkvöldi loftárásir á mannvirki við landamærastöð í Sýrlandi sem notuð er af fjölda vígasamtaka sem nýtur stuðnings stjórnvalda í Íran. Enn sem komið er hafa engar fregnir borist um mannfall. 26.2.2021 08:01
Navalní fluttur milli fangelsa með leynd Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hefur verið fluttur úr varðhaldi í fangelsinu í Moskvu hvar honum hefur verið haldið að undanförnu. Ekki liggur fyrir hvert hann hefur verið fluttur. 25.2.2021 23:30
Fjórir menn fundust látnir í vök Fjórir karlmenn drukknuðu í ísilögðu stöðuvatni skammt frá Sävsjö í suðurhluta Svíþjóðar í dag. Þeir voru á sjötugs- og áttræðisaldri. 25.2.2021 22:45
Fannst látinn sama dag og hann var ákærður fyrir mansal og kynferðisofbeldi John Geddert, fyrrverandi þjálfari bandaríska fimleikalandsliðsins, fannst látinn í Grand Ledge í Michigan í Bandaríkjunum. Hann er talinn hafa stytt sér aldur, en hann var fyrr í dag ákærður fyrir mansal, kynferðisofbeldi og fleira, eftir því New York Times greinir frá. 25.2.2021 21:15
Saksóknarar komnir með skattgögn Trumps Saksóknarar í Manhattan í New York eru komnir með skattskýrslur og önnur fjármálagögn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Það er eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði kröfu Trumps um að ekki mætti veita saksóknunum gögnin. 25.2.2021 17:19
Sendi teikningar af þinghúsi Þýskalands til rússnesks njósnara Þýskir alríkissaksóknarar hafa ákært þýskan ríkisborgara fyrir að hafa útvegað rússneskum manni, sem grunaður er um að vera njósnari, teikningar og önnur gögn um þinghús Þýskalands. 25.2.2021 16:20