Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bólusetning hefst í aðildarríkjum ESB þann 27. desember Öll aðildarríki Evrópusambandsins munu hefja bólusetningar gegn Covid-19 þann 27. desember. Þetta segir Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýskalands. 17.12.2020 11:17
Skella í lás á Tenerife yfir hátíðarnar Sóttvarnaaðgerðir verða hertar á Tenerife frá og með miðnætti annað kvöld og eyjunni lokað fyrir ferðalögum. Ekki er enn ljóst hvaða áhrif aðgerðirnar muni hafa á ferðamenn sem hyggjast dvelja á eyjunni yfir hátíðarnar. 17.12.2020 10:27
Macron greindist með Covid-19 Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur greinst með Covid-19. 17.12.2020 09:39
Beina sjónum sínum að Rússum eftir umfangsmikla tölvuárás Bandarísk yfirvöld segja umfangsmikla tölvuárás nú standa yfir á þarlendar opinberar stofnanir. Er sjónum nú beint að rússneskum tölvuþrjótum og eiga þeir að hafa fylgst með tölvupóstsamskiptum meðal annars innan bandaríska fjármála- og viðskiptaráðuneytisins. 17.12.2020 09:19
John Snorri alls ekki sá eini sem er að reyna sigra K2 Fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson er ekki sá eini sem freistar þess að verða sá fyrsti sem kemst á topp K2-fjallsins að vetri til. Þrír aðrir hópar eru með ferðir í undirbúningi á næstu vikum og dögum, þar á meðal maðurinn sem John Snorri gagnrýndi eftir að hætta þurfti við síðustu atlögu hans að toppi fjallsins. 17.12.2020 09:01
„Ég tel að okkur hafi mistekist“ Karl Gústaf Svíakonungur telur að Svíum hafi mistekist að standa vörð um líf samborgara sinna á tímum heimsfaraldursins. „Sænska þjóðin hefur þurft að líða stórkostlegar þjáningar við erfiðar aðstæður,“ segir konungurinn. 17.12.2020 08:11
Tilkynningum um barnaníðsefni gæti fækkað um 70% ef ný Evrópulöggjöf tekur gildi Svo kann að fara að internetfyrirtækjum verður ekki lengur heimilt að nota búnað sem ber kennsl á mögulegt barnaníðsefni. Ástæðan eru ný persónuverndarlög í Evrópu en viðræður standa yfir um undanþágur til handa fyrirtækjunum. 17.12.2020 07:53
Bandaríkjamenn búa sig undir snjóstorm Bandaríkjamenn á austurströndinni búa sig nú undir mikla snjókomu og eru viðvaranir í gildi hjá sextíu milljónum manna. Búist er við að stormurinn nái allt frá Colorado og upp til Maine ríkis og viðvaranir vegna þessa eru í gildi í fjórtán ríkjum Bandaríkjanna. 17.12.2020 07:16
Greiddi 12,5 milljónir fyrir að komast í návígi við Monu Lisu Ónefndur einstaklingur hefur greitt jafnvirði 12,5 milljóna króna til að fá að komast í meiri nálægð við Monu Lisu en gestum Louvre gefst vanalega kostur á. 17.12.2020 07:03
Matvæla- og lyfjaeftirlitið gefur heimild til notkunar umframbóluefnis Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur lagt blessun sína yfir notkun umframefnis í lyfjaglösum sem innhalda Covid-19 bóluefnið frá Pfizer og BioNTech. 17.12.2020 06:33
Rannsakendur WHO á leið til Kína Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mun senda tíu manna teymi vísindamanna til Wuhan í Kína í næsta mánuði. Þar eiga þeir að reyna að varpa ljósi á uppruna nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. 16.12.2020 23:22
Fjörutíu fórnarlömb mansals í mál við Pornhub Fjörutíu konur, sem allar birtust í myndböndum Girls Do Porn, hafa höfðað mál gegn Pornhub. Fullyrða konurnar að Pornhub og móðurfélag þess, MindGeek, hafi vitað að þeim ásökunum sem fram voru komnar um að konunum hefði verið ógnað og þær kúgaðar til þess að taka þátt í myndböndunum. 16.12.2020 20:22
Hvetja Evrópubúa til grímunotkunar í jólaboðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) segir útlit fyrir aðra bylgju í Evrópu snemma árs 2021 ef áfram heldur sem horfir, enda fari smitum ört fjölgandi. Stofnunin hvetur því fólk til þess að auka grímunotkun og nota grímur einnig í jólaboðum með fjölskyldu yfir hátíðirnar. 16.12.2020 18:39
Verslunum í Danmörku gert að loka fram yfir áramót Stjórnvöld í Danmörku hafa ákveðið að herða aðgerðir í ljósi versnandi stöðu faraldursins þar í landi. Allar verslanir fyrir utan matvöruverslanir og apótek munu þurfa að loka frá 25. desember og mega þær opna á ný þann 3. janúar. 16.12.2020 17:45
47% farandverkamanna í Singapúr fengið Covid-19 Næstum helmingur erlendra farandverkamanna í Singapúr, sem hafa verið einangraðir á heimavistum frá því í vor, hefur smitast af SARS-CoV-2. Áður hafði verið greint frá 54.500 smitum en þau telja raunverulega 152.000. 16.12.2020 11:08
Öll aðildarríki ESB byrji að bólusetja sama dag Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að öll aðilarríki sambandsins eigi að hefja bólusetningu gegn Covid-19 sama daginn. 16.12.2020 10:07
Tæplega þúsund ný dauðsföll rakin til Covid-19 í Þýskalandi Þjóðverjar hafa hert á samkomutakmörkunum í landinu til að reyna að stemma stigu við kórónufaraldrinum sem er í mikilli uppsveiflu í landinu. Aðgerðirnar gilda til 10. janúar hið minnsta en aðeins verður slakað á yfir jólahátíðina þar sem hverju heimili verður heimilt að hafa hjá sér fjóra gesti úr sinni nánustu fjölskyldu. 16.12.2020 08:03
McConnell játar ósigur og óskar Biden til hamingju Möguleikar Donald Trump Bandaríkjaforseta á því að halda Hvíta húsinu þrátt fyrir öruggan sigur Joe Biden í forsetakosningunum eru nú litlir sem engir, eftir að Mitch McConnell, forseti öldungadeildar þingsins, gekkst við tapinu í gær. 16.12.2020 07:36
Hundruð þúsunda beitt misnotkun á opinberum stofnunum á Nýja-Sjálandi Að minnsta kosti 250 þúsund börn, ungmenni og fullorðnir sem dvöldu á stofnunum á vegum nýsjálenska ríkisins á árunum 1950 til 1999 sættu einhvers konar misnotkun, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar. 16.12.2020 06:39
Biden ætlar að tilnefna Buttigieg í embætti samgönguráðherra Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, ætlar að skipa Pete Buttigieg í embætti samgönguráðherra Bandaríkjanna. Þetta hafa fjölmiðlar vestanhafs eftir heimildarmönnum sínum. Buttigieg, sem kallaður er Mayor Pete, því hann var borgarstjóri South Bend í Indiana, bauð sig fram til forseta í forvali Demókrataflokksins og þá gegn Biden. 15.12.2020 23:46
Samkynja pörum í Ungverjalandi bannað að ættleiða Ungverska þingið samþykkti í dag lög sem banna samkynja pörum að ættleiða börn. Ríkisstjórn Viktors Orban, forsætisráðherra lagði frumvarpið fram og felur það í sér að aðeins gagnkynja hjón geti ættleitt pör, en einhverjar undantekningar eru gerðar fyrir einhleypa ættingja barna. 15.12.2020 23:20
Boko Haram segist bera ábyrgð á hvarfi 320 nemenda Maður sem sagðist leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Boko Haram í Nígeríu sagði í dag að samtökin bæru ábyrgð á hvarfi meira en þrjú hundruð menntaskóladrengja. Þetta hefur þó ekki verið staðfest. Drengjunum var rænt úr skólanum sem þeir sækja á föstudag. 15.12.2020 22:23
Annar tvíburinn handtekinn í tengslum við demantarán Lögreglan í Þýskalandi hefur handtekið annan tvíburabróðurinn sem auglýst hefur verið eftir í tengslum við rán sem framið var í Grænu hvelfingunni í Dresden. Bræðurnir höfðu verið á flótta frá því að ránið var framið. 15.12.2020 21:23
Fjárframlög vegna aukakosninga enda í sjóðum Trumps Háttsettir Repúblikanar eru reiðir vegna fjáröflunar Donalds Trump, fráfarandi forseta, í tengslum við aukakosningarnar í Georgíu í næsta mánuði. Trump hefur verið duglegur við að senda stuðningsmönnum sínum skilaboð um að fjárveitinga sé þörf, svo Repúblikanaflokkurinn geti tryggt sér þau tvö öldungadeildarsæti sem kjósa á um í Georgíu. 15.12.2020 21:01
Herða aðgerðir í allri Danmörku Dönsk stjórnvöld hyggjast yfirfæra strangar sóttvarnaaðgerðir á landið í heild. Aðgerðirnar taka gildi strax á morgun. 15.12.2020 16:50
Evrópunefndin fundar um leyfið viku fyrr en áætlað var Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu, sem leggur mat á markaðsleyfisumsókn bóluefnis Pfizer í Evrópu, hyggst flýta fundi um umsóknina. Fundað verður 21. desember en áður var ekki áætlað að halda fundinn fyrr en þann 29. desember. 15.12.2020 14:17
Segja þriggja fjölskyldna samkomur munu leiða til fleiri dauðsfalla Tvö af áhrifamestu heilbrigðistímaritum Bretlands hafa sameinast um leiðara í annað sinn í meira en hundrað ár og varað við því að ef stjórnvöld herða ekki aðgerðir yfir jól, frekar en að aflétta þeim, muni ástandið verða heilbrigðiskerfinu ofviða. 15.12.2020 13:45
Ávarp Biden: Svo öfgafull afstaða að annað eins hefur ekki sést Tilraunir manna til að fá niðurstöðum forsetakosninganna í Bandaríkjunum snúið endurspegluðu svo öfgafulla afstöðu að annað eins hefur ekki sést. Þetta sagði Joe Biden í gær eftir að kjörmenn höfðu formlega útnefnt hann sigurvegara kosninganna. 15.12.2020 10:41
Armenar og Aserar skiptast á föngum Sex vikum eftir að friðarsamkomulag náðist eftir vopnuð átök Armena og Asera um héraðið Nargorno-Karabakh hafa ríkin nú skipst á föngum. 15.12.2020 10:28
Danskur atvinnupókerspilari dæmdur fyrir að fylgjast með skjám mótspilara Dómstóll í Danmörku hefur þyngt dóm yfir dönskum atvinnupókerspilara fyrir að hafa komið fyrir njónsnaforriti í tölvum mótspilara. Landsréttur dæmdi Peter Willers Jepsen, einnig þekktur sem Zupp, í þriggja ára fangelsi en hann hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraði. 15.12.2020 10:12
Ellefu fórust í eldsvoða á heimili fyrir eldri borgara í Rússlandi Ellefu eru látnir eftir að eldur kom upp á heimili fyrir eldri borgara í bænum Ishbuldino í Basjkortostan í suðurhluta Úralfjalla í Rússlandi í nótt. 15.12.2020 09:21
Jöfnuðu hótel Holiday Inn við Washington DC við jörðu Hótel Holiday Inn í Rosslyn í Virginíu, við jaðar bandarísku höfuðborgarinnar Washington DC, var jafnað við jörðu á sunnudaginn. 15.12.2020 08:12
Japanir tvístígandi varðandi Ólympíuleikana Aðeins 27% Japana vilja að Ólympíuleikarnir fari fram á fyrirhugðum tíma en þeir verða að óbreyttu haldnir í Tókýó 23. júlí til 8. ágúst. Leikunum var frestað vegna Covid-19 faraldursins en þeir áttu að fara fram 24. júlí til 9. ágúst sl. 15.12.2020 08:06
Pútín óskar Biden loks til hamingju með sigurinn Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur nú óskað Joe Biden til hamingju með sigurinn í bandarísku forsetakosningunum sem fram fóru í byrjun nóvember. 15.12.2020 07:47
Biden dásamaði lýðræðið og gagnrýndi Trump Joe Biden verðandi forseti Bandaríkjanna steig enn eitt skrefið í átt að Hvíta húsinu í gærkvöldi þegar kjörmennirnir svokölluðu greiddu formlega atkvæði sín. 15.12.2020 07:28
„Twitter-morðinginn“ dæmdur til dauða Japanskur maður sem myrti níu einstaklinga eftir að hafa komist í samband við þá á Twitter hefur verið dæmdur til dauða. 15.12.2020 07:18
Nýtt afbrigði SARS-CoV-2 greinist á Bretlandseyjum Heilbrigðisráðherra Breta, Matt Hancock, sagði frá því í gær að nýtt afbrigði SARS-CoV-2 hefði fundist í landinu. Fleiri en þúsund tilvik hafa greinst, flest í suðurhluta Bretlands. 15.12.2020 06:59
Aserskir hermenn ákærðir fyrir stríðsglæpi Yfirvöld í Aserbaídsjan hafa tilkynnt að þau hafi ákært tvo hermenn sína fyrir að hafa limlest lík armenskra hermanna í nýlegum átökunum um héraðið Nagorno-Karabakh. 14.12.2020 23:17
Dómsmálaráðherrann hættir skömmu fyrir embættistöku Bidens Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nú í kvöld að William Barr, dómsmálaráðherra, væri að hætta í starfi sínu. Í tísti segir Trump að Barr vilji hætta, einungis fimm vikum áður en starfstímabil hans rennur út, til að verja hátíðunum með fjölskyldu sinni. 14.12.2020 23:14
Öllum skólum og flestum verslunum í Hollandi lokað Yfirvöld í Hollandi hafa boðað hertari aðgerðir til þess að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Þetta verður í annað sinn sem svo harðar aðgerðir eru teknar í gildi en nú verður öllum skólum og verslunum lokað í minnst fimm vikur. 14.12.2020 22:38
Kjörmenn í barátturíkjum greiða Biden atkvæði sín Kjörmenn í þeim sex ríkjum Bandaríkjanna sem Donald Trump, forseti, hefur reynt að snúa við niðurstöðum kosninganna í síðasta mánuði hafa veitt Joe Biden atkvæði þeirra. Þar með er í raun búið að tryggja sigur Bidens í kosningunum. 14.12.2020 21:00
Útsendarar FSB sagðir hafa eitrað fyrir Navalní Sveit á vegum Leyniþjónustu Rússlands (FSB) eitraði fyrir Alexei Navalní. Útsendarar þessarar sveitar höfðu elt Navalní um árabil áður en eitrað var fyrir honum í Rússlandi í ágúst. Þrír útsendarar FSB flugu með Navalny til borgarinnar Tomsk, þar sem talið er að eitrað hafi verið fyrir honum.Tveir mannanna eru menntaðir sem læknar. 14.12.2020 18:03
Kristin Háfoss nýr framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs Forsætisnefnd Norðurlandaráðs hefur ákveðið að ráða Kristinu Háfoss sem nýjan framkvæmdastjóra á skrifstofu ráðsins í Kaupmannahöfn. 14.12.2020 15:56
Hjúkrunarfræðingur í New York fyrst til að verða bólusett í Bandaríkjunum Bandaríski hjúkrunarfræðingurinn Sandra Lindsay varð í dag fyrst til að verða bólasett gegn Covid-19 í Bandaríkjunum. 14.12.2020 15:05
Ekki fleiri andlát í nóvembermánuði í Svíþjóð síðan í spænsku veikinni Alls létust 8.088 manns í Svíþjóð í nýliðnum nóvember og hafa ekki svo margir látist í nóvembermánuði síðan 1918 eða þegar spænska veikin herjaði á íbúa álfunnar. 14.12.2020 13:44