Fleiri fréttir

Þrír Ólafsvökugestir greindust með Covid
Tvö innanlandsmit hafa verið staðfest í Færeyjum og voru báðir einstaklingarnir sem greindust með Covid-19 sjúkdóminn staddir á Ólafsvöku sem fór fram í Þórshöfn um helgina.

Hótar Nevada lögsókn vegna póstatkvæða
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur heitið því að höfða mál vegna ákvörðunar ríkisþingmanna í Nevada, þar sem Demókratar eru í meirihluta, um að senda póstkjörseðla til kjósenda í ríkinu.

Reni Santoni látinn
Bandaríski kvikmynda- og sjónvarpsleikarinn Reni Santoni lést 1. ágúst síðastliðinn, 81 árs að aldri.

Fundust heilir á húfi á eyðieyju
Þremur míkrónesískum sjómönnum sem strönduðu á örsmárri eyðieyju í vestur-Kyrrahafi var bjargað eftir að björgunarsveitamenn komu auga á SOS-merki sem þeir höfðu skrifað í sandinn á strönd eyjarinnar.

Stormurinn Isaias skekur austurströnd Bandaríkjanna
Hitabeltisstormurinn Isaias náði í nótt landi í Norður Karólínu í Bandaríkjunum og er vindhraðinn hundrað og fjörutíu metrar á klukkustund.

Milljónum aftur gert að halda sig heima
Tugir milljóna manna eru nú aftur komnir í útgöngubann í Filippseyjum en þar óttast læknar að nýleg fjölgun í kórónuveirusmita geti rústað heilbrigðiskerfið.

Tony Blair segir John Hume hafa talað í sig kjark
John Hume sem var einn aðalhvatamaðurinn að föstudagsins langa friðarsamkomulaginu á Norður Írlandi er látinn. Tony Blair segir Hume hafa talað í hann kjark til að ná fram friðarsamningum.

Segist vera í fullum rétti til að fá skattskýrslur Trump
Saksóknarinn Cyrus R. Vance Jr. hefur krafist þess að fá skattskýrslur Trump undanfarin átta ár afhentar vegna gruns um „umfangsmikla og langvarandi saknæma háttsemi“.

Sérfræðingar undir stjórn WHO leita uppruna Covid-19
Frumrannsókn sérfræðinga Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og frá Kína hafa lokið frumathugun á uppruna Covid19 veirunnar. Nú er að hefjast viðameiri rannsókn til að finna nákvæmlega hvar veiran flutti sig úr dýrum í menn.

Jóhann Karl yfirgefur Spán vegna fjársvikamáls
Fyrrverandi konungur Spánar, Jóhann Karl, segir í bréfi stíluðu á son sinn Filippus VI. Spánarkonung að hann hyggist yfirgefa Spán vegna ásakana um fjárhagslegt misferli. Bréfið var birt á vef spænsku konungsfjölskyldunnar í dag.

Tugir farþega norsks skemmtiferðaskips smitaðir
Norsk heilbrigðisyfirvöld segja að að minnsta kosti 41 hafi greinst með kórónuveiruna um borð í skemmtiferðaskipinu MS Roald Amundsen sem er nú við höfn í Tromsø í Norður-Noregi.

Þrif á orgeli Notre Dame munu taka fjögur ár
Vinna er hafin við þrif á kirkjuorgeli Notre Dame kirkjunnar í París eftir brunann í kirkjunni í fyrra. Þrífa þarf hverja einustu pípu orgelsins og hefur því verið hafist handa að taka orgelið í sundur.

Á þriðja tug fanga lést í árás Íslamska ríkisins
Hryðjuverkasamtökin Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árás sem gerð var á fangelsi í afgönsku borginni Jalalabad þar sem að minnsta kosti 21 fangi lét lífið.

Alvarlega slösuð eftir að hafa verið kramin af hnúfubökum
Áströlsk kona á þrítugsaldri slasaðist alvarlega á meðan hún synti með Hnúfubökum ásamt hópi ferðamanna fyrir utan strendur Vestur-Ástralíu.

John Hume er látinn
Hume hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1998.

Tala látinna sögð þrefalt hærri en stjórnvöld halda fram
Tala þeirra sem látist hafa af völdum kórónuveirunnar í Íran er þrefalt hærri en opinberar tölur ríkisstjórnarinnar gefa til kynna. Þetta sýna tölur sem breska ríkisútvarpið fékk sendar frá ónafngreindum heimildarmanni.

Trump kallar eftir dauðarefsingu
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur kallað eftir því að Dzokhar Tsarnaev, annar tveggja bræðra sem stóðu að baki sprengjutilræðisins á Boston-maraþonið árið 2013, verði aftur dæmdur til dauða.

Berjast við gróðurelda í Kaliforníu
Þúsundum hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í dag vegna gróðurelda sem nú geisa austur af borginni Los Angeles í Kaliforníu.

Telur að Trump láti ekki þegjandi og hljóðalaust af embætti
Þingmaður fulltrúadeildar Bandaríkjaþings líkti Donald Trump Bandaríkjaforseta við ítalska einræðisherrann og fasistann Benito Mussolini í dag.

Veiran „ótrúlega útbreidd“ í Bandaríkjunum
Deborah Birx, læknirinn sem fer fyrir kórónuveiruviðbragðsteymi Hvíta hússins, segir að kórónuveiran sé nú útbreiddari í Bandaríkjunum en hún var í upphafi faraldursins.

Geimfararnir lentir í Mexíkóflóa
Bandarísku geimfararnir Doug Hurley og Bob Behnken lentu nú á sjöunda tímanum á jörðu eftir tveggja mánaða dvöl í Alþjóðlegu geimstöðunni.

Bein útsending: Geimfarar SpaceX snúa aftur til jarðar
Áætluð lending er klukkan 18:40 að íslenskum tíma.

Tólf ára stúlka skotin til bana í Svíþjóð
Lögregla rannsakar nú skotárás sem átti sér stað í Norsborg, suður af Stokkhólmi, í nótt.

Lykilvitni í rannsókn á Trump segir aðfarir hans minna á Sovétríkin
Hefndaraðgerðir Donald Trump Bandaríkjaforseta gegn andófsfólki minna á aðfarir Sovétríkjanna sálugu, að mati fyrrverandi undirofursta í Bandaríkjaher sem bar vitni í rannsókn Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum Trump í fyrra.

Fleiri en 200.000 látnir í Rómönsku Ameríku
Tala látinna í Rómönsku Ameríku í kórónuveiruheimsfaraldrinum fór yfir 200.000 manns í gær. Verst er ástandið í Brasilíu og Mexíkó þar sem um 70% dauðsfalla í heimshlutanum til þessa hafa orðið. Nýjum smitum fjölgar enn í löndunum.

Geimfarar stefna aftur til jarðar í SpaceX-ferju
Tveir bandarískir geimfarar sem voru þeir fyrstu til að fara út í geim með einkafyrirtækinu SpaceX eru lagðir af stað heim til jarðar frá Alþjóðlegu geimstöðinni.

Facebook þarf að loka á stuðningsmenn forseta Brasilíu
Hæstiréttur Brasilíu skipaði Facebook að loka aðgangi nokkurra helstu stuðningsmanna Jairs Bolsonaro forseta sem hafa dreift því sem rétturinn telur ósannindi um dómara. Samfélagsmiðlarisinn segir skipunina ógna tjáningarfrelsi og ætlar að áfrýja.

Lýsa yfir neyðarástandi vegna faraldursins í Viktoríuríki
Yfirvöld í Viktoríu, næstfjölmennasta ríki Ástralíu, hafa lýst yfir neyðarástandi og komi á útgöngubanni í höfuðborginni Melbourne til þess að kveða niður kórónuveirufaraldurinn.

Þingmaður Íhaldsflokksins handtekinn fyrir nauðgun
Þingmaðurinn er sagður vera fyrrverandi ráðherra.

Hyggjast byrja að bólusetja í október
Yfirvöld heilbrigðismála í Rússlandi stefna á að byrja að bólusetja fólk í landinu fyrir kórónuveirunni í þar næsta mánuði. Kennarar og læknar yrðu bólusettir fyrst.

Mótmæla aðgerðum stjórnvalda í baráttunni við veiruna
Þúsundir Berlínarbúa mótmæla nú takmörkunum og reglum sem þýsk stjórnvöld hafa komið á til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar í Þýskalandi.

Þúsundir mótmæla enn rússnesku ríkisstjórninni
Fjölmenn mótmæli gegn rússnesku ríkisstjórninni héldu áfram í borginni Khabarovsk í Fjarausturhéraði Rússlands í dag, fjórðu helgina í röð.

Ríkisþingmaður fórst þegar tvær flugvélar skullu saman á flugi
Sjö manns fórust, þar á meðal ríkisþingmaður, þegar tvær flugvélar rákust saman á flugi skammt frá borginni Anchorage í Alaska í Bandaríkjunum í gær. Enginn komst lífs af úr slysinu og loka þurfti hraðbraut tímabundið eftir að brak úr vélunum féll á hana.

Dauðadómur yfir sprengjumanninum í Boston ógiltur
Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum ógilti í gær dauðadóm yfir Dzhokhar Tsarnaev vegna sprengjuárásarinnar á Boston-maraþonið árið 2013. Dómarinn í máli hans var talinn hafa vanrækt að ganga úr skugga um að kviðdómendur væru ekki hlutdrægir gegn Tsarnaev.