Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnvöld á Kúbu sleppa pólitískum föngum úr haldi Stjórnvöld á Kúbu hafa ákveðið að sleppa 52 pólitískum föngum úr haldi. 8.7.2010 07:20
Fá verðlaun fyrir að veiða norskan eldislax Laxveiðimenn flykkjast nú til bæjarins Sunde við vesturströnd Noregs. Nær níu þúsund laxar sluppu úr fiskeldiskvíum við bæinn og lofar fiskeldisstöðin að borga 4.000 krónur fyrir hvern lax sem næst á land. 8.7.2010 07:15
Mikil hætta af yfirgefnum borholum Mikil hætta getur stafað af um 3.500 vanhirtum og yfirgefnum olíuborholum í Mexíkóflóa, samkvæmt fréttum Asso-ciated Press-fréttastofunnar, sem hefur rannsakað málið. Borholurnar eru í opinberum skjölum sagðar hafa verið yfirgefnar tímabundið, en hafa margar hverjar verið það svo árum og jafnvel áratugum skiptir. Að minnsta kosti 23 þúsund lokaðar borholur til viðbótar eru í flóanum. 8.7.2010 06:30
Neitað um náðun í 19. sinn Dómstóll í Kaliforníu neitaði Leslie Van Houten, yngsta þátttakandanum í Manson-morðunum frægu, um náðun í nítjánda skipti í gær. Hún mun líklega áfrýja dómnum, en getur annars sótt um á ný eftir þrjú ár. 8.7.2010 06:00
Hættur vegna forræðismáls Sven Otto Littorin, atvinnumálaráðherra Svíþjóðar, hefur sagt af sér embætti af persónulegum ástæðum. Þetta tilkynnti hann á blaðamannafundi í gærmorgun. 8.7.2010 05:00
Lögreglan telur sig vera að nálgast morðingjann Breska lögreglan hefur hert leitina að morðingjanum Raoul Moat. Yfir 100 vopnaðir lögreglumenn leita að Raoul í bænum Rothbury í norðausturhluta Englands. Fylgst er með hverri hreyfingu í bænum, í hraðbönkum, bensínstöðvum og símtölum. Lögreglan telur fyrir víst að Raoul er í nágrenni við bæinn vopnaður eina eða tvær haglabyssur og nóg af skotum. 7.7.2010 22:20
33 létust þegar maður sprengdi sig í loft upp í Bagdad Að minnsta kosti þrjátíu og þrír létust og nærri hundrað særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Bagdad í Írak nú síðdegis. Árásin var gerð nálægt brú þar sem þúsund pílagrímar úr röðum sjíta týndu lífi í troðningi fyrir fimm árum á sama degi. 7.7.2010 19:50
Til hamingju elsku Ringo Ringo Starr er einn af þessum alsaklausu útlendingum sem hafa verið dæmdir til þess að vera Íslandsvinir. Hann hefur enda tvisvar stigið fæti á skerið. 7.7.2010 16:46
Vilja sturta niður líkunum Samtök útfararstofa í Belgíu hafa útfært tæknilega hvernig hægt er að leysa upp lík í vökva og sturta þeim svo út í skolpleiðslur bæja og borga. 7.7.2010 15:33
Manson morðkvendi synjað um reynslulausn Leslie van Houten sem var í morðingjasveit Charles Mansons fyrir fjörutíu og einu ári var synjað um reynslulausn í nítjánda skipti í gær. 7.7.2010 15:12
Hvar eru skammbyssurnar mínar Barack? Fjórar skammbyssur hurfu úr farangri lífvarða Benjamíns Netanyahus forsætisráðherra Ísraels í heimsókn hans til Bandaríkjanna. 7.7.2010 14:28
Hringurinn þrengist um Moat Lundúnalögreglan hefur sent fjörutíu vopnaða lögreglumenn til Norður-Umbríu til þess að hjálpa til við leit að morðingjanum sem þar leikur lausum hala. Fé hefur verið lagt til höfuðs honum. 7.7.2010 14:20
Íranskar flugvélar bannaðar í Evrópu Evrópusambandið hefur sett stærstan hluta flugflota íranska flugfélagsins Iran Air á bannlista. 7.7.2010 10:36
Lohan grét hástöfum í réttarsal -myndband Leikkonan Lindsey Lohan grét hástöfum þegar hún var dæmd í níutíu daga fangelsi fyrir drykkjuskap í gær. 7.7.2010 10:02
Veðmálahneyksli í súmóglímu skekur Japan Lögreglan í Tókýó rannsakar nú veðmálahneyksli sem þykir mikið áfall fyrir þjóðaríþrótt Japana, súmóglímu. 7.7.2010 07:48
Ítalskir ökumenn í evrudraumi Ökumenn á ferð um suðurhluta Ítalíu þóttust hafa himinn höndum tekið þegar þeir óku fram á mikið magn af evrumyntum á hraðbrautinni milli Cesena og Bari síðdegis í gær. 7.7.2010 07:43
Lindsay Lohan dæmd í 90 daga fangelsi Leikkonan Lindsay Lohan hefur verið dæmd í 90 daga fangelsisvist fyrir brot á skilorðsbundnum fíkniefnadómi sem hún hlaut árið 2007. Lohan átti samkvæmt dóminum að sækja tíma í misnotkun áfengis en stóð ekki við það. 7.7.2010 07:41
Efla samstarf Íslands og Kína Kínverski kaupsýslumaðurinn og ljóðskáldið Huang Nubo hefur stofnað menningarsjóðinn China Iceland Cultural Fund, í þeim tilgangi að efla menningarlega samvinnu milli Íslands og Kína. Áhersla verður lögð á bókmenntir, einkum ljóðlist. 7.7.2010 04:00
Hitabylgja í Bandaríkjunum Hitabylgja fer nú yfir austurhluta Bandaríkjanna. Veðurstofan Accuweather sagði að hitinn hafi farið yfir 38°C í New York, Washington DC. og Richmond Virginíu. Búist er við því að hitabylgjan vari út vikuna. 6.7.2010 21:07
Fréttamenn gengu af göflunum -myndband Spánverjar fögnuðu auðvitað allir þegar David Villa skoraði mark sitt í leiknum gegn Parauay á HM í Suður-Afríku. 6.7.2010 15:36
Gæslulið Sþ hugsanlega til Íraks Yfirhershöfðingi Bandaríkjanna í Írak hefur velt upp þeim möguleika að friðagæslulið frá Sameinuðu þjóðunum taki við gæslu í norðurhéruðum landsins þegar Bandaríkjamenn flytja herlið sitt þaðan á næsta ári. 6.7.2010 15:21
Yfir hálft tonn af kókaíni Tollayfirvöld í Úkraínu hafa lagt hald á 580 kíló af kókaíni sem var reynt að smygla inn í landið um hafnarborgina Odessa við Svartahaf. 6.7.2010 14:45
Lesbía fangelsuð fyrir nauðgun Tuttugu og sex ára gömul sænsk lesbía hefur verið dæmd í tveggja ára og fjögurra mánaða fangelsi fyrir að nauðga og misþyrma sambýliskonu sinni. 6.7.2010 14:31
Hermenn stigu dans -myndband Ísraelskur herflokkur er í vandræðum eftir að öryggismyndavélar sýndu hann taka dansspor meðan hann var á eftirlitsferð í Hebron. 6.7.2010 10:29
Hundruð drukkna í hitabylgju Hundruð Rússa hafa drukknað í mikilli og langvarandi hitabylgju sem gengur yfir landið. Hitinn inn til landsins hefur verið yfir 37 stig dögum saman. 6.7.2010 09:32
Pólitískum föngum fækkar á Kúbu Pólitískum föngum á Kúbu hefur farið fækkandi frá því Raoul Castró tók við stjórnartaumum í landinu úr hendi bróður síns Fídels. 6.7.2010 09:20
Morðingi á flótta: Ætlar ekki að láta ná sér lifandi Breskir lögreglumenn leita enn að morðingjanum Raoul Moat sem hótar nú lögreglunni öllu illu. 6.7.2010 09:13
800 bátar á sjó Um það bil 800 skip og bátar voru á sjó við landið um klukkan sex í morgun, þar af hátt í helmingur litlir strandveiðibátar. Veðurspá er hinsvegar ekki góð suður og vestur af landinu þannig að búist er við að margir bátar fari að snúa aftur til hafna. 6.7.2010 09:12
Obama hittir Netanyahu Barack Obama bandaríkjaforseti hittir í dag Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels og er búist við því að Obama reyni að koma friðarviðræðum á milli Ísrels og Palestínu í gang á ný. Eins og staðan er í dag ræðast deiluaðilar ekkert við nema í gegnum George Mitchell sérlegan erindreka Bandaríkjanna í mið-austurlöndum. Samskipti Obama og Netanyahus hafa ekki verið upp á marga fiska síðustu misseri og nú á að reyna að bera klæði á vopnin. 6.7.2010 09:01
Franskir þingmenn ræða búrkubann Franska þingið ræðir í dag hvort banna eigi svokallaðar búrkur eða slæður sem hylja allan líkama múslimskra kvenna. Nái frumvarpið um bann fram að ganga verður konum bannað að klæðast slíkum flíkum á opinberum stöðum um allt Frakkland og gerir lögreglu kleift að sekta konur um 22 þúsund krónur. 6.7.2010 08:57
Öngþveiti í Toronto Bruni í spennuvirki í kanadísku borginni Toronto olli í gærkvöldi rafmagnsleysi í stórum hluta borgarinnar. Um 250 þúsund manns voru án rafmagns og urðu gríðarlegar tafir í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar og á götum hennar þar sem rafmagnið fór af á háannatíma þegar fólk var á leið heim frá vinnu. 6.7.2010 08:52
Jesústyttan sýnileg á ný Hin fræga Jesústytta í Rio de Janeiro í Brasilíu er nú aðgengileg ferðamönnum á ný. 6.7.2010 07:30
Hundrað handteknir á Hróarskeldu Hróarskelduhátíðin þykir hafa farið friðsamlega fram í ár þrátt fyrir að lögregla hafi handtekið tvöfalt fleiri en í fyrra. 6.7.2010 07:00
Segja til um líkur á langlífi Bandarískir vísindamenn segjast hafa þróað leið til að segja til um líkurnar á því að manneskja lifi í meira en 100 ár. 6.7.2010 06:45
Askan hafði áhrif á tíunda hvern Svía Aska úr eldgosinu í Eyjafjallajökli breytti áætlunum 42 prósenta sænskra ferðalanga, og hafði einhver áhrif á 11 prósent allra Svía. 6.7.2010 04:30
Medvedev hughreystir Obama Dmitry Medvedev forseti Rússlands hefur fullvissað Barack Obama um að handtaka ellefu Rússa fyrir njósnir muni ekki hafa neikvæð áhrif á samband ríkjanna. 5.7.2010 14:09
Ráðherrar reknir fyrir bruðl Tveir franskir ráðherrar hafa sagt af sér eftir að hafa orðið uppvísir að því að bruðla með opinbert fé. 5.7.2010 13:34
Tyrkir hóta stjórnmálaslitum við Ísrael Tyrkir hafa í fyrsta skipti hótað að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Utanríkisráðherra Tyrklands sagði í dag að ef Ísraelar ekki annaðhvort bæðust afsökunar á árásinni á hjálparskipin til Gaza eða sættu sig við niðurstöðu alþjóðlegrar rannsóknarnefndar yrði stjórnmálasambandi slitið. 5.7.2010 12:42
El Diego vel fagnað við heimkomuna Diego Maradona og leikmönnum hans var forkunarvel tekið þegar þeir komu heim til Argentínu í dag. 5.7.2010 10:18
Ástralía: Ákærður fyrir að kveikja í kjarreldum Ástrali kom fyrir rétt í dag í Melbourne en hann er sakaður um að hafa kveikt skógareld af ráðnum hug í fyrra en tíu manns létust í eldinum. Miklir skógar og kjarreldar geisuðu í suðurhluta Ástralíu í fyrra og allt í allt létust 173 í eldunum. Brendan Sokaluk er ákærður fyrir að hafa átt upptökin að einum þeirra en hann segist saklaus. 5.7.2010 09:03
Hart sótt að ópíumframleiðendum í Afganistan Fleiri en 60 skæruliðar féllu í bardögum við afganska lögreglumenn um helgina í skipulagðri aðgerð gegn eiturlyfjaframleiðslu í Helmand héraði. Lagt var hald á sextán tonn af eiturlyfjum auk vopna og sprengiefnis. 5.7.2010 09:01
Komorowski öruggur um sigur Bronislaw Komorowski, hefur nú fengið 52,6 prósent atkvæða í forsetakosningunum í Póllandi sem fram fóru í gær þegar 95 prósent atkvæða hafa verið talin. 5.7.2010 08:16
Drottningin heimsækir Ground Zero Elísabet Englandsdrottning ætlar á morgun heimsækja Ground Zero í New York,í fyrsta sinn. Ground Zero er nafnið á svæðinu þar sem Tvíburaturnarnir stóðu áður en hryðjuverkamenn felldu þá árið 2001. 5.7.2010 08:14
Morðingja enn leitað á Englandi Vopnaðir lögreglumenn í Bretlandi leita enn að manni sem um helgina skaut fyrrverandi kærustu sína, myrti ástmann hennar og skaut lögregluþjón í höfuðið. 5.7.2010 07:52
Aðstoð ESB fer illa í fólk Rétt rúmur helmingur Þjóðverja vill skipta evrunni út og taka þýska markið upp að nýju. Þetta eru niðurstöður könnunar alþjóðlega markaðsrannsóknarfyrirtækisins Ipsos. 5.7.2010 06:00