Erlent

20 þúsund manns flúið heimili sín

Guðjón Helgason skrifar
Skógareldarnir loga í hæðunum fyrir ofan Santa Barbara.
Skógareldarnir loga í hæðunum fyrir ofan Santa Barbara. MYND/AP

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Kaliforníu vegna skógarelda sem hafa brennt um 14 ferkílómetra svæði og brennt minnst 70 hús.

Erfiðlega gengur að slökkva eldana vegna þess hve heitt er í veðri og vindasamt. Eldarnir eru sagðir ógna 3.500 heimilum í og við Santa Barbara og 100 fyrirtækjum.

Um 20.000 íbúar þar hafa orðið að yfirgefa heimili sín.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×