Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hryðjuverkalögin nauðsynleg gegn íslenskum bönkum Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands var harðorður í garð íslenskra yfirvalda á Sky News fyrir stundu. Hann lagði áherslu á það að íslensk stjórnvöld bæru ábyrgð á því sem íslenskir bankar með höfuðstöðvar á Íslandi væru að gera í Bretlandi. Hann varði þá ákvörðun yfirvalda að frysta eignir íslenskra banka í Bretlandi á grundvelli svokallaðra hryðjuverkalaga. 9.10.2008 17:45
Refsa á bankamönnum sem tóku of mikla áhættu Banka- og fjármálamönnum sem tóku of mikla áhættu á að refsa segir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands. 9.10.2008 14:18
Hugsanlegt að fleiri bankar í Bandaríkjunum leggi upp laupana Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, segir hugsanlegt að fleiri bankar í Bandaríkjunum muni leggja upp laupana þrátt fyrir að 700 milljarða dollara björgunarfrumvarp stjórnvalda hafi verið samþykkt. 9.10.2008 13:51
Japönsk hótel vilja ekki útlendinga Innanríkisráðherra Japans heldur því fram að rúmlega 70 prósent þeirra hótela og gististaða í landinu sem höfðu enga erlenda gesti í fyrra vilji heldur enga erlenda gesti í framtíðinni. 9.10.2008 12:57
Le Clezio hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Franski rithöfundurinn Jean-Marie Gustave Le Clezio hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Frá þessu var greint í morgun. 9.10.2008 11:24
Messenger fyrst á sporbaug um Merkúr Nú styttist í að könnunarfarið Messenger verði fyrsta geimfarið frá jörðu til að komast á sporbaug um Merkúr. 9.10.2008 08:20
Lést í kjölfar líkamsárásar Vinnumaður á bóndabæ á Norður-Jótlandi lést í morgun eftir líkamsárás sem aðrir vinnumenn á bænum eru grunaðir um. 9.10.2008 07:31
Kastaði hlaðinni byssu út um glugga Grunaður innbrotsþjófur á Amager í Kaupmannahöfn kastaði hlaðinni skammbyssu út um gluggann á íbúð sinni þegar lögreglan bankaði upp á hjá honum í gær vegna gruns um að hann geymdi þýfi á heimilinu. 9.10.2008 07:28
Óttast að fleiri kókaínpakkar hafi rekið á land Lögreglan á Vestur-Jótlandi óttast að fleiri kókaínpakkar hafi rekið á land í nágrenni bæjarins Lemvig en við greindum frá því í gær að þrír pakkar, sem hver vó eitt kíló, hefðu fundist á ströndinni. 9.10.2008 07:26
Norskar hraðamyndavélar skemmdar og þeim stolið Myndavélar sem fylgjast með hraðakstri norskra ökumanna hafa í stórum stíl orðið skemmdarvörgum að bráð upp á síðkastið. 9.10.2008 07:23
Bretar breyttu lögum um hryðjuverkavarnir Bresk stjórnvöld beyttu lögum um varnir gegn hryðjuverkum, þegar þau ákváðu að frysta eignir Landsbankans í Bretlandi í gær 9.10.2008 07:20
Obama þótti standa sig betur Kannanir bandarísku sjónvarpsstöðvanna CNN og CBS eftir kappræður forsetaefna demókrata og repúblíkana í Bandaríkjunum í gærkvöldi benda til þess að kjósendum hafi þótt demókratinn Barack Obama standa sig betur en repúblíkaninn John McCain. 8.10.2008 12:31
Vill endurskoða starf SÞ og G8 Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti kallar eftir því að starfsemi Sameinuðu þjóðanna og samtaka átta helstu iðnríkja heims verið endurskoðuð til þess að hin vaxandi efnhagsveldi fái aukið vægi. 8.10.2008 11:37
Fá Nóbel fyrir að uppgötva glóandi prótín Tveir Bandaríkjamenn og Japani hljóta Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár samkvæmt ákvörðun Nóbelsakademíunnar. 8.10.2008 10:55
Tæplega hálfs tonns maður lést úr hjartaáfalli Ekki herða allir sultarólina í fjármálaþrengingum síðustu vikna. Að minnsta kosti ekki Mexíkóinn sem lést á leiðinni á sjúkrahús í gær og vó 450 kíló. 8.10.2008 08:24
Synti nakinn um fjármálahverfi Nakinn miðaldra Vesturlandabúi var handtekinn í fjármálahverfi Tókýó í gær eftir að hann stakk sér til sunds í síki að viðstöddum fjölda áhorfenda. 8.10.2008 08:13
Mildari dómur vegna seinagangs Tveir Danir fengu mun mildari dóm en efni stóðu til fyrir tryggingasvik sem þeir voru fundnir sekir um. 8.10.2008 07:43
Stakk sambýlismanninn margsinnis Deilum sambýlisfólks í Esbjerg í Danmörku lyktaði með því að rúmlega fertug kona stakk sambýlismann sinn margsinnis í brjóstið með hníf í gærkvöldi. 8.10.2008 07:38
Kókaínreki á danskar fjörur Pakkningar með mjög sterku kókaíni hefur í þrígang rekið á land í bænum Lemvig á Vestur-Jótlandi síðastliðna tvo daga. 8.10.2008 07:36
Þvinguðum hjónaböndum fjölgar í Noregi Mun fleiri tilkynningar um þvinguð hjónabönd berast Rauða krossinum í Noregi nú en áður. 8.10.2008 07:30
Breska ríkisstjórnin styður við bankakerfið þar í landi Breska ríkisstjórnin mun gera hvað sem í hennar valdi stendur til þess að styðja við bankakerfið þar í landi og tekur ekki þátt í getgátum um stefnubreytingu. 7.10.2008 08:42
Innflytjendur krefja Vítisengla um bætur Leiðtogi samtaka innflytjenda í Kaupmannahöfn hefur krafist þess að vélhjólasamtökin Vítisenglar afhendi lögreglu þrjá félaga sem talið er að hafi staðið á bak við morðið á 19 ára gömlum innflytjanda í ágúst. 7.10.2008 08:30
Vilja sameina bænadaginn og lokadag ramadan Danskir jafnaðarmenn leggja til að bænadagur þjóðkirkjunnar þar í landi, sem er frídagur, og lokadagur hins íslamska ramadan-mánaðar, sem nefnist Id al-Fitr, verði færðir yfir á sama dag og gerðir að sameiginlegum frídegi. 7.10.2008 08:27
Sólin ekki öll þar sem hún er séð Vísindamenn við Kaliforníuháskóla göptu af undrun þegar þeir skoðuðu myndir af sólinni frá nýju könnunarfari NASA og áttuðu sig á því að hún breytir lögun sinni reglubundið. 7.10.2008 08:10
Dýrlegir stjórnendur Karlkyns stjórnendur hegða sér eins og ákveðin dýr, einkum apar og simpansar. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar Háskólans í New South Wales í Ástralíu. 7.10.2008 07:27
Reyna að lægja ótta fólks í Evrópu Evrópskar ríkisstjórnir reyna nú í örvæntingu að lægja ótta þegna sinna vegna kreppunnar. Æ fleiri gefa loforð um að ábyrgjast innlán í bönkum en það virðist ekki duga. 6.10.2008 19:11
ESB-ríki gera allt til að koma efnahagslegum stöðugleika Stjórnvöld í löndum Evrópusambandsins munu gera allt sem til þarf til þess að koma á aftur efnahagslegum stöðugleika og koma í veg fyrir að fólk tapi sparnaði sínum. 6.10.2008 13:46
Andlát lögreglustjóra Manchester rannsakað - ekkjan gefur skýrslu Ekkja Mikes Todd, fyrrum lögreglustjóra Manchester, komst að því þremur dögum fyrir andlát manns síns að hann átti sér hjákonu, eftir því sem hún hefur sagt rannsóknarnefnd sem skipuð var í kjölfar dauða Todd. 6.10.2008 13:00
Sakar Palin um skítkast Barack Obama hefur sakað Söru Palin um skítkast eftir að hún sagði að hann væri í vinfengi við hryðjuverkamann. 6.10.2008 12:37
Allsherjarverkfall hjá samgöngustarfsmönnum í Belgíu Samgöngur eru lamaðar í Belgíu í dag vegna allsherjarverkfalls. Þrjú stærstu verkalýðsfélög landsins krefjast hærri launa til þess að mæta auknum framfærslukostnaði. 6.10.2008 12:31
Fá Nóbelsverðlaun fyrir að uppgötva skæðar veirur Tveir franskir vísindamenn sem uppgötvuðu HIV-veiruna og Þjóðverji sem uppgötvaði veiru sem veldur leghálskrabbameini deila Nóbelsverðlaununum í læknisfræði í ár. Frá þessu greindi Nóbelsverðlaunaakademían í dag. 6.10.2008 10:47
Lífstíðarfangelsi í Svíþjóð fyrir að myrða tíu ára stúlku Þingréttur í Falu í Svíþjóð hefur dæmt Anders Eklund í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt hina tíu ára gömglu Englu Juncosa Höglund fyrr á þessu ári og sömuleiðis 31 árs gamla konu, Pernillu Hellgren, árið 2000. 6.10.2008 10:26
Um 70 látnir í Kirgisistan eftir jarðskjálfta Um 70 manns létust og 50 eru slasaðir í Kirgisistan eftir að jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter skók Mið-Asíu. 6.10.2008 08:26
Mjólkurhristingsmorðinginn fær ekki að áfrýja Mjólkurhristingsmorðinginn svokallaði fær ekki að áfrýja máli sínu til æðra dómstigs í Hong Kong. 6.10.2008 08:16
Reiðhjólaþjófafaraldur í Stafangri Reiðhjólaþjófnaður í Stafangri í Noregi er að verða að faraldri að sögn lögreglu þar. Að meðaltali hefur verið tilkynnt um milli 50 og 60 stolin hjól hvern mánuð 6.10.2008 07:28
Bretar mega aka fullir Breska stjórnin hefur hafnað tillögu heilbrigðisyfirvalda um að leyfilegt áfengismagn í blóði ökumanna verði lækkað úr 80 í 50 milligrömm á hverja 100 millilítra. 6.10.2008 07:25
Listi yfir látna vikulega vegna fjársvika Þjóðskrár Bretlands, Skotlands og Wales hyggjast taka upp þá starfsreglu að senda dulkóðaðan lista yfir nöfn og kennitölur þeirra sem deyja í hverri viku til banka og lánastofnana til að fyrirbyggja sviksamlega notkun á nöfnum þeirra og persónueinkennum. 6.10.2008 07:21
Dönsk börn að jafnaði veik 12 daga á ári Dönsk börn á aldrinum eins til sex ára eru að jafnaði veik í tólf daga á ári, ef marka má niðurstöður nýrrar rannsóknar heilbrigðisyfirvalda i Óðinsvéum. 6.10.2008 07:18
Obama hefur helmingsforskot hjá yngstu kjósendum Barack Obama, forsetaframbjóðandi demókrata, nýtur fylgis nærri tveggja af hverjum þremur kjósendum yngri en þrítugt samkvæmt nýrri könnun Gallup og dagblaðsins USA Today. 5.10.2008 22:14
Sádar hafa milligöngu um friðarviðræður í Afganistan Yfirvöld í Sádi-Arabíu höfðu milligöngu um viðræður milli afganskra stjórnvalda og talibana fyrir skemmstu og reiknað er með að framhald verði á viðræðunum. Þetta kemur fram á fréttavef CNN. 5.10.2008 21:52
Flugvél Maós boðin til sölu Aukinni velsæld fylgja ný úrlausnarefni. Bílaeign hefur aukist mjög í Kína á síðustu árum. Nú er svo mikill skortur á bílastæðum í kringum verslunarmiðstöð í bænum Zhuhai að forstjórinn ætlar að selja gamla flugvél, sem þar var til sýnis. 5.10.2008 02:00
Palin sakar Obama um að vingast við hryðjuverkamenn Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin í aðdraganda bandarísku forsetakosninganna því Sarah Palin, varaforsetaefni repúbilkana, sakaði í dag Barack Obama, forsetaefni demókrata, um að vingast við hryðjuverkamenn sem beindu spjótum sínum að eigin landi. 4.10.2008 22:51
Obama gagnrýnir stefnu McCains í heilbrigðismálum Barack Obama, forsetaframbjóðandi demokrata, gagnrýndi stefnumál McCains, forsetaframbjóðanda republikana, harðlega í dag. Hann segir að tillögurnar gagni út á það að milljónir Bandaríkjamanna verði að berjast í bökkum til þess að kaupa heilbrigðistryggingu. 4.10.2008 20:30
Evrópuríki ætla að samræma aðgerðir sínar Stærstu ríki Evrópu hafa samþykkt að vinna saman að aðgerðaráætlun til að styðja við fjármálastofnanir. Hins vegar stendur ekki til að stofna sameiginlegan björgunarsjóð. 4.10.2008 18:53
Leiðtogar í Evrópu funda í dag Nicholas Sarkozy Frakklandsforseti fundar með leiðtogum Bretlands, Þýskalands og Ítalíu í Paris í dag. 4.10.2008 14:16