Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kínversku geimfararnir komnir heim til jarðar Kínverski geimfarinn, Zhai Zhiang, sem fór fyrstur Kínverja í geimgöngu í gær, er aftur kominn heim til jarðar. Geimfar með hann og tvo aðra kínverska geimfara um borð lenti í eyðimörkinni í Mongólíu rétt áðan og voru allir um borð við hestaheilsu. 28.9.2008 10:27
Hvítrússar kjósa í dag Hvítrússar kjósa til þings í dag. Alexander Lúkasjenkó, forseti landsins, bindur vonir við að framkvæmd kosninganna verði með þeim hætti að þær njóti stuðnings vesturveldanna og verði til að bæta samskipti Hvítrússa við Bandaríkjamenn og Evrópusambandið. 28.9.2008 10:25
Þyrla hrapar í Danmörku - Einn látinn Einn er látinn og annar mikið slasaður eftir að þyrla hrapaði til jarðar við Kirke Hylling á Sjálandi. 27.9.2008 16:40
Öryggisráðið ályktar um Íran Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti nú í kvöld ályktun þar sem þess er krafist að Íranir hætti auðgun úrans. Engar þvingungaraðgerðir voru tilteknar í ályktuninni. 27.9.2008 21:00
Newman látinn Paul Newman lést á heimili sínu í Wesport í Conneticut í gær. Hann var 83 ára gamall. Newman lést úr lungnakrabbameini. 27.9.2008 14:03
Kínversk geimganga Kínverski geimfarinn Zhai Zhiang varð í morgun fyrsti Kínverjinn til þess að ganga í geimnum. Fjölmargir Kínverjar fylgdust spenntir með afreki hans í beinni útsendingu. 27.9.2008 09:23
Japönskum skipverjum sleppt gegn lausnargjaldi Sómalskir sjóræningjar slepptu í dag japönsku skipi og 21 manns áhöfn þess en skipið var hertekið fyrir þremur mánuðum síðan. Að sögn Reuters fréttastofunnar munu eigendur skipsins hafa fallist á að borga lausnargjald að sem nam tveimur milljónum bandaríkjadala. 26.9.2008 22:32
Lavrov segir frekari refsiaðgerðir gegn Íran ekki tímabærar Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, segir ekki tímabært að ræða frekari refsiaðgerðir gegn Írönum, sem Vesturveldin grunar að séu að koma sér upp kjarnorkusprengju. 26.9.2008 21:58
Er Madeleine á Mallorca? Enn er leitað að Madeleine McCann, litlu stúlkunni sem hvarf í Portúgal í maí á síðasta ári. Nú beinar sjónir manna að Mallorca, en breskt par segist fullvisst um að þau hafi séð stúlkuna í för með tveimur konum. Parið fór á hótelið sitt, fóru á Netið og skoðuðu myndir af Madeleine og þá sannfærðust þau um að stúlkan sem þau sáu hafi verið Maddý. 26.9.2008 18:09
Rakettumaðurinn flaug yfir Ermarsund Svissneski ævintýramaðurinn Yves Rossy flaug í dag yfir Ermarsund á væng með fjórum litlum þotuhreyflum sem var spenntur á bakið á honum. 26.9.2008 16:27
Því dæmist rangt vera Tvíburasystur á Ítalíu hafa verið ákærðar fyrir svik. Önnur þeirra er lögfræðingur og afleysingadómari. Hin er húsmóðir. 26.9.2008 15:51
Rússar tilkynna um Stjörnustríðsáætlun Dmitry Medvedev forseti Rússlands tilkynnti í dag um endurnýjun á kjarnorku-fælingarmætti landsins fyrir árið 2020. 26.9.2008 15:08
Stórblöð kalla John McCain lygara Í nýjasta hefti bandaríska vikuritsins Time er grein þar sem fjallað um það sem kallað er einstaklega óheiðarleg kosningabarátta Johns McCain. 26.9.2008 14:35
Fritzl færður í hryllingskjallarann Austurríski faðirinn Josef Fritzl hefur verið færður í kjallarann þar sem hann hélt Elíabetu dóttur sinni fanginni í 24 ár og nauðgaði henni. 26.9.2008 14:02
Palin varin gegn illum göldrum Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblíkanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember, er varin gegn öllum illum göldrum samkvæmt blessun sem hún hlaut í kirkju sinni fyrir þremur árum. 26.9.2008 13:04
Vilja loka fyrir tekjulind Talibana Aðildarríki NATO eru að íhuga beiðni Bandaríkjamanna um að taka meiri þátt í að uppræta ópíumframleiðslu í Afganistan til þess að svipta Talibana sínum helsta tekjustofni. 26.9.2008 11:50
Réðust inn í flugvél til að ná í hryðjuverkamenn Víkingasveit þýsku lögreglunnar réðst í morgun til inngöngu í farþegaflugvél frá hollenska flugfélaginu KLM á flugvellinum í Köln og fjarlægði þaðan tvo menn. 26.9.2008 11:00
Lögregla með vakt við skóla sem hótað var í Finnlandi Lögregla stendur nú vakt við skóla í bænum Esbo, nágrannabæ Helsinki, eftir að hótun barst um ofbeldi gagnvart nemendum skólans. 26.9.2008 10:41
Norður-Kórea tilbúin til fyrirvaralausrar árásar Norður-Kórea er alvarleg ógnun við öryggi í Asíu. Stærsti hluti landhersins er við landamæri Suður-Kóreu og norðanmenn eru reiðubúnir að gera fyrirvaralausa árás. 26.9.2008 10:15
Dönsk spilavíti berjast í bökkum Dönsk spilavíti berjast í bökkum eftir að reykingabann tók gildi á þarlendum veitingahúsum í fyrra og hafa æ fleiri lagt upp laupana. 26.9.2008 08:34
Kveikt í átta bílum í Kaupmannahöfn Kveikt var í fimm einkabílum og þremur vörubílum í úthverfi Kaupmannahafnar í nótt. Vitni sáu ungmenni þeysa um Ishøj-hverfið á mótorhjólum og kveikja í bílunum. Lögregla vinnur nú að rannsókn málsins en enginn hefur verið handtekinn enn sem komið er. 26.9.2008 08:28
Lúrðu í loftinu Tveir flugmenn flugfélagsins Go hafa verið leystir frá störfum tímabundið eftir að hafa sofið yfir sig og flogið fram hjá ákvörðunarstað á Hilo-flugvellinum á Hawaii. 26.9.2008 08:22
Á von á báðum frambjóðendum til Mississippi Ríkisstjóri Mississippi segir að hann eigi von á báðum forsetaframbjóðendunum, Barack Obama og John McCain, til kappræðnanna í Mississippi-háskóla í kvöld. 26.9.2008 08:19
Sakfelldur fyrir að ætla að hálshöggva forsætisráðherrann Kanadískur dómstóll fann í gær tvítugan mann sekan um taka þátt í áætlun um árás á kanadíska þingið þar sem svo átti að höggva höfuðið af forsætisráðherranum Stephen Harper. 26.9.2008 07:19
Bush neitaði að gefa grænt ljós á árás á Íran George Bush gerði Ísraelum grein fyrir því síðastliðið vor að Bandaríkin myndu ekki gefa grænt ljós á loftárásir Ísraela á Íran. Þetta hefur breska blaðið The Guardian eftir háttsettum evrópskum diplómata. Í greininni er sagt að Ísraelar hafi íhugað "alvarlega" að gera árásir á svæði í Íran þar sem talið er að þeir séu að vinna að kjarnorkutilraunum. 25.9.2008 22:45
Óljóst um samkomulag um björgunarsjóð í Bandaríkjunum Enn er óljóst hvort samkomulag næst um í Bandaríkjunum um frumvarp um 700 milljarða dollara björgunarsjóð fyrir fjármálafyrirtæki landsins. 25.9.2008 22:38
Enn einn fellybylurinn að myndast Enn einn hitabeltisstormurinn er nú að myndast á Atlantshafinu að því er sérfræðingar í Bandaríkjunum segja. Þessi er sá ellefti í röðinni það sem af er þessu tímabili og hefur hann fengið nafnið Kyle. Stormurinn er nú um eittþúsund kílómetra suð-suðvestur af Bermúda eyjaklasanum. 25.9.2008 21:03
Brown og Bush á neyðarfund Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands mun fara til neyðarfundar við George Bush í Washington á morgun til þess að ræða efnahagskreppuna sem nú tröllríður heiminum. 25.9.2008 16:01
Hafa fengið um hundrað ábendingar um hótanir á Netinu Lögregla í Finnlandi hefur fengið næstum hundrað ábendingar um hótanir á Netinu frá því að ungur maður skaut tíu manns til bana í bænum Kauhajoki á þriðjudag. 25.9.2008 15:42
Morð á umferðarljósum Enn eitt pólitískt morð var framið í Moskvu í gær þegar Ruslan Yamadayev, fyrrverandi þingmaður var skotinn til bana. 25.9.2008 15:25
Frakkar elta Rússa við Ísland Búast má við að talsverður fjöldi rússneskra sprengjuflugvéla fari um íslenska loftvarnasvæðið á næstu vikum og mánuðum. 25.9.2008 15:10
Pakistanar skutu á NATO þyrlur Pakistanskir landamæraverðir skutu í dag á NATO þyrlur í Afganistan sem þeim hefur líklega þótt koma of nærri landamærunum. 25.9.2008 13:56
Kínverjar ætla í geimgöngu Geimfar sem Kínverjar skutu á loft í dag er komið á braut um jörðu að sögn kínversku ríkisfréttastofunnar. 25.9.2008 13:45
Bann við bandarískum teiknimyndum vofir yfir Rússum Rússar ætla að banna teiknimyndaþættina Simpsons, South Park og Family Guy. Telja þingmenn þættina hafa óæskileg áhrif á æsku landsins og stendur nú til að svipta viðkomandi sjónvarpsstöð útsendingartíðninni 25.9.2008 13:19
Samkynhneigður raðmorðingi fékk áttfaldan lífstíðardóm Dómstóll í Louisiana hefur dæmt samkynhneigðan raðmorðingja í áttfalt lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga og myrða átta menn á 10 ára tímabili. Hinn 44 ára gamli Ronald Dominique lokkaði fórnarlömbin á heimili sitt með loforðum um greiðslu fyrir kynlíf. 25.9.2008 12:58
Bush býður McCain og Obama til fundar Bush Bandaríkjaforseti segir efnhagskerfi Bandaríkjanna í hættu ef frumvarp um björgunaraðgerðir vegna fjármálafyrirtækja verði ekki samþykkt. Hann hefur boðið John McCain og Barack Obama, forsetaefnum repúblikana og demókrata, til fundar í Hvíta húsinu í dag til að ræða efnahagsþrengingarnar í Bandaríkjunum. 25.9.2008 12:28
„Lögreglan hefur umkringt mig“ Finnski morðinginn Matti Juhani Saari hringdi í vin sinn eftir að hafa myrt níu skólasystkini sín og einn kennara, að sögn finnskra og sænskra fjölmiðla. 25.9.2008 11:16
Samið um 19 gísla Egyptar eiga nú í samningaviðræðum við glæpamenn sem rændu nítján manns þar í landi í síðustu viku og fluttu yfir landamærin til Súdans. 25.9.2008 09:28
Danir hækka útsvar Útsvar í Danmörku mun hækka um sem nemur rúmum 2,4 milljörðum króna á næsta ári. 25.9.2008 08:26
Fá bætur fyrir spilakassatekjutap Rauði kross Noregs og björgunarsveitir landsins fá samanlagt sem nemur rúmlega fimm og hálfum milljarði króna í bætur á þessu ári og næsta fyrir tekjur sem þessir aðilar verða af þegar gömlu spilakassarnir sem hafa verið tekjulind þeirra um árabil hverfa af sjónarsviðinu. 25.9.2008 08:23
Fjárbeiðni konungsfjölskyldunnar hafnað Breska ríkisstjórnin hefur hafnað beiðni konungsfjölskyldunnar um milljóna punda aukafjárveitingu til að standa straum af rekstri fasteigna fjölskyldunnar. 25.9.2008 08:18
Telja hótanir Norður-Kóreu blekkingar Greiningaraðilar í Bandaríkjunum telja að Norður-Kóreumenn séu að seilast eftir aukinni orku- og efnahagsaðstoð frá Vesturlöndum með því að rjúfa innsigli á kjarnorkuverinu í Yongbyon og búa sig undir að endurræsa þar kjarnaofn. 25.9.2008 08:13
Dönsk einkafyrirtæki annast segulómmyndun Tvö einkafyrirtæki á Jótlandi hafa nú fengið leyfi til að taka segulómmyndir af sjúklingum til að saxa á biðlista sem nú telur um 12.000 manns. 25.9.2008 08:11
Fjórði saksóknarinn í Guantanamo hættir Í fjórða skiptið hefur saksóknari í máli Bandaríkjastjórnar á hendur meintum hryðjuverkamönnum sem haldið er í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu óskað eftir lausn frá störfum. 25.9.2008 08:08
Obama neitar að fresta kappræðum Forsetaframbjóðandinn Barack Obama þvertekur fyrir að kappræðum þeirra John McCain í Mississippi-háskóla annað kvöld verði frestað. 25.9.2008 07:22