Fleiri
Heyrðu hljóð úr námunni í Utah 16.8.2007 09:41 Ekki fleiri svipt sig lífi í Bandaríkjaher í 26 ár Níutíu og níu hermenn í bandaríska hernum sviptu sig lífi á síðasta ári og hefur fjöldi þeirra ekki verið meiri í 26 ár. Þetta kemur fram í skýrslu frá Bandaríkjaher sem AP-fréttastofan hefur undir höndum. 16.8.2007 08:51 250 látnir hið minnsta Írösk yfirvöld segja að 250 hið minnsta, hafi látist í sprengjuárásunum í norðurhluta landsins í gær. Þetta er mannskæðasta árásin í landinu frá því í stríðinu 2003. Fjórar sprengjur lögðu tvö þorp jasída trúflokksins í rúst og slösuðust að minnsta kosti 350. Björgunarsveitir eru enn að störfum og búist er við því að tala látinna eigi eftir að hækka. 15.8.2007 23:36 Grafa með skóflum og berum höndum Björgunarmenn og almennir borgarar grafa nú með skóflum og berum höndum í rústum húsa í bænum Kataníja í Norður-Írak þar sem sjálfsvígssprengjuárás varð minnst tvö hundruð manns að bana í gær. Fjórar flutningabifreiðar fullar af sprengiefni voru sprengdar í loft upp nær samtímis. 15.8.2007 19:07 Illdeila mafíufjölskyldna teygir sig til Þýskalands Svo virðist sem áratugagömul illdeila tveggja ítalskra mafíufjölskyldna hafi teygt sig til Þýskalands. Sex karlmenn tengdir annarri fjölskyldunni voru allir myrtir í Duisburg í nótt. 15.8.2007 19:06 Sjá næstu 50 fréttir
Hjálpin berst hægt til jarðskjálftasvæða Meira en 500 lík höfðu fundist á jarðskjálftasvæðunum í Perú í gær. Ættingjar leita látinna ástvina. Forseti Perú lofar því að enginn þurfi að líða skort. 18.8.2007 05:00
Límdu sig við byggingu Sex umhverfisverndarsinnar límdu hendur sínar fastar við dyr á byggingu sem hýsir samgöngudeild miðborgar London í Bretlandi í gær. Nokkrir hlekkjuðu sig við dyrnar og einhverjir klifruðu upp á þak að sögn lögreglu. Tíu voru handteknir. 18.8.2007 03:00
Meðlim Baader-Meinhof sleppt Þýskur dómstóll ákvað í gær að gefa fyrrverandi meðlim hryðjuverkasamtakanna Rauðu herdeildarinnar, einnig þekkt sem Baader-Meinhof, skilorðslausn úr fangelsi. 18.8.2007 01:00
HIV próf fyrir giftingu Pör sem ætla að gifta sig í nígerísku biskupakirkjunni verða fyrst að gangast undir HIV próf. Talsmenn kirkjunnar segja skilyrðið sett til að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun áður en það gengur í hjónaband. Samkvæmt fréttavef BBC munu fleiri kristnar kirkjur í Nígeríu hafa svipaðar reglur. 17.8.2007 23:45
Áhyggjur af heilsu fólks á Ólympíuleikunum vegna mengunar Einhverjir gestir Ólympíuleikanna í Beijing 2008 geta átt það á hættu að verða fyrir alvarlegum heilsubresti sökum mikillar loftmengunar í borginni. Dr. Michal Krzyzanowski, yfirmaður Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, hefur varað fólk við. Hann segir að þeir sem þjáist af hjarta-og æðasjúkdómum ættu að fara sérstaklega varlega og eins getur loftmengunin valdið astmaköstum. 17.8.2007 22:11
Handtökuskipun gefin út á dóttur Saddam Hussein Alþjóðalögregan Interpol hefur gefið út handtökuskipun á elstu dóttur Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. Raghad Saddam Hussein, sem flúði land þegar Bandaríkjamenn gerðu innrás í Írak árið 2003, er meðal annars sökuð um hryðjuverk sem og önnur brot. 17.8.2007 20:33
Ítalskur bæjarstjóri borgar fyrir megrun Ítalskur bæjarstjóri beitir nýstárlegum aðferðum gegn offitu. Hann heitir allt að 70 þúsund íslenskum krónum til hvers íbúa bæjarins sem er of þungur, en tekst að koma sér í kjörþyngd - og halda sér þar. 17.8.2007 19:36
Sterkur eftirskjálfti skók Perú Sterkur jarðskjálfti skók Perú í dag og jók enn á skelvingu íbúa á skjálftasvæðunum. Tala látinna eftir jarðskjálftann í fyrrakvöld er rúmlega fimm hundruð og á annað þúsund eru slasaðir. Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir eftir skjálftann sem mældist átta á Richter. Björgunarmenn keppast við tímann til að ná til þeirra sem enn eru á lífi í rústunum. 17.8.2007 19:32
Eineggja fjórburar fæddust í Bandaríkjunum Eineggja fjórburar fæddust á sjúkrahúsi í Montana í Bandaríkjunum á sunndag. Einungis er vitað um 50 pör af eineggja fjórburum í heiminum, en líkurnar á að eignast slíka fjölbura eru einn á móti þrettán milljónum. 17.8.2007 19:28
Þrír björgunarmenn létust við námu í Utah Þrír björgunarmenn létust og í það minnst sex slösuðust þegar þeir reyndu að komast að sex námuverkamönnum sem lokuðust inni í námu fyrir ellefu dögum. Björgunarliðið var að vinna í gegnum brak og grjótmulning til að komast að mönnunum í göngunum í Huntington í Utah í Bandaríkjunum. 17.8.2007 19:20
Fellibylurinn Dean skall á eyjar í Karabíska hafinu Fellibylur skall á eyjuna Sanktí Lúsíu og nágrannaeyjuna Martiník í Karabíska hafinu í dag með þeim afleiðingum að rafmagn fór af og tré féllu. Þetta er fyrsti fellibylur ársins sem fer um svæðið og hefur hann hlotið nafnið Dean. 17.8.2007 19:19
Hægt að eyða minningum með lyfjagjöf? Vísindamönnum hefur tekist að eyða langtímaminni rotta án þess að valda varanlegum skemmdum á heila þeirra. Samkvæmt niðurstöðum þeirra er langtímaminnið ekki eins öruggt og áður var talið. 17.8.2007 16:25
Afstæðiskenningin sögð afsönnuð Tveir þýskir vísindamenn segja að þeir hafi afsannað afstæðiskenningu Alberts Einstein með því að fara í gegnum ljósmúrinn. Afstæðiskenningin gengur í örstuttu og einfölduðu máli út á það að ekkert geti farið hraðar en ljósið undir nokkrum kringumstæðum. Ef maður færi hraðar en ljósið myndi maður samkvæmt kenningunni skrúfa tímann afturábak. 17.8.2007 16:05
Við erum komnir aftur -Vladimir Putin Vladimir Putin tilkynnti í dag að Rússar hefðu sent fjórtán langdrægar sprengjuflugvélar í eftirlitsflug langt útfyrir landamæri ríkisins. Orrustuþotur og eldsneytisvélar fylgdu þeim eftir. Forsetinn sagði að ákveðið hafi verið að hefja á ný langflug sprengjuflugvéla. Þær væru komnar til þess að vera. Putin lýsti þessu yfir á blaðamannafundi í tilefni af sameiginlegum heræfingum Rússa og Kínverja. 17.8.2007 14:45
Loftlagsbreytingar stytta flug farfugla Fuglafræðingar í Bretlandi segja að dregið hafi verulega úr komum farfugla til landsins. Kenna þeir loftlagsbreytingum um. 17.8.2007 14:13
Dæmdir fyrir morð á tímum aðskilnaðarstefnunnar Fimm fyrrverandi öryggisverðir á aðskilnaðartímum í Suður Afríku voru í dag dæmdir fyrir að skipuleggja morð á aðgerðarsinna sem var á móti aðskilnaði í landinu. 17.8.2007 12:44
Ný tækni í flóðvörnum Í meira en öld hafa sandpokar verið eitt helsta vopn gegn flóðum. Flóðin í Bretlandi nýverið urðu tækifæri fyrir hugvitssama aðila til að prófa að koma upp mun fljótvirkar flóðvörnum. 17.8.2007 12:40
Meðlim Rauðu herdeildarinnar sleppt úr fangelsi Dómstóll í Frankfurt í Þýskalandi hefur ákveðið að sleppa Evu Haule, fyrrverandi meðlimi Rauðu herdeildarinnar, úr fangelsi. Eva var dæmd í lífstíðar fangelsi árið 1994 fyrir þrjú morð og 23 morðtilraunir vegna sprengjuárásar á bandaríska herstöð í Frankfurt. 17.8.2007 11:47
Særðist í skotárás í Árósum Þrir menn urðu fyrir skotárás í miðborg Árósa í Danmörku í nótt. Einn maður var fluttur á slysadeild með áverka á handlegg. Mennirnir biðu eftir strætisvagni við 7-11 búð á Frederiks Allé þegar grásvartan bíl dreif þar að. Fimm til sjö skotum var skotið að mönnunum og hvarf árásarmaðurinn svo á braut, segir á fréttavef Jyllands-Posten. 17.8.2007 11:43
Passaðu þig þegar þú segir það með blómum Leroy Greer er bílasali í Missouri City í Bandaríkjunum. Leroy er dálítið rómantískur. Hann sendi kærustunni sinni blómvönd og bangsa. Með korti þar sem sagði; "Vildi bara segja að ég elska þig." Ósköp sætt. Því miður sendi blómasalinn kvittunina heim til eiginkonu hans. Nú hefur Leroy höfðað mál gegn blómasalanum. 17.8.2007 11:43
Fangelsaðir fyrir að stofna stjórnmálaflokk Áfrýjunardómstóll í Vietnam mildaði í dag dóma yfir þrem mönnum sem voru sakaðir um að hafa dreift óhróðri um ríkisstjórnina og stofnað pólitískan flokk. Mennirnir höfðu verið dæmdir í fimm ára, fjögurra ára og þriggja ára fangelsi. Eitt ár var tekið af hverjum dómi. 17.8.2007 11:04
Vilja banna ungmennum að aka um helgar Norsku samtökin Trygg Trafikk eða Örugg umferð vilja setja margvíslegar hömlur á ökuréttindi yngstu ökumanna. Meðal annars banna þeim að aka um helgar og á kvöldin. Og að hafa farþega með sér í bílnum. Samtökin benda á að slíkar takmarkanir gildi þegar í Kanada. Þar hafi banaslysum ungmenna fækkað um 30-40 prósent. 17.8.2007 10:30
Eignaðist eineggja fjórbura 35 ára kona eignaðist eineggja fjórbura á sjúkrahúsi í Kanada á sunnudaginn. Vitað er um innan við 50 pör af eineggja fjórburum í heiminum. 17.8.2007 08:20
Hvað er afstæðiskenningin? Afstæðiskenningin er nafn á vísindakenningu sem var sett fram af Albert Einstein árið 1905. Kenningin dregur nafn sitt af afstæðislögmálinu sem svo kallast. Þetta lögmál kom fyrst fram á 16. öld og segir í grófum dráttum eftirfarandi: ... 17.8.2007 17:11
Vilja skíra barnið „@" Kínverskt par berst nú fyrir því að fá að skíra nýfætt barn sitt „@". Stjórnvöld þar í landi eru þó ekki par hrifin af hugmyndinni og segja hana vera gott dæmi um furðuleg nöfn sem verði æ vinsælli í landinu. Unga parið segist hins vegar aðeins vilja gefa króganum einstakt og nýtískulegt nafn. 16.8.2007 21:54
Sjálfsmorðum fjölgar í Bandaríkjaher Að minnsta kosti 99 bandarískir hermenn frömdu sjálfsmorð á síðasta ári og hefur sú tala ekki verið hærri í 26 ár. Samkvæmt nýrri skýrslu tóku um 17 hermenn af hverjum 100 þúsund eigið líf í fyrra en árið 2005 voru þeir rúmlega 12 af hverjum 100 þúsund. 28 af þeim 99 sem frömdu sjálfsmorð í fyrra gerðu það meðan þeir gegndu herþjónustu í Írak eða Afganistan. 16.8.2007 21:13
Minnst 500 látnir Minnst 500 manns týndu lífi og 1500 slösuðust í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Upptök skjálftans eru í Kyrrahafinu, suð-austur af höfuðborginni Líma. Flestir hinna látnu bjuggu í strandhéraðinu Ica. 16.8.2007 18:30
Trylltur á traktor Þýskur bóndi tók því illa þegar lögreglumenn stöðvuðu hann þar sem hann var að aka á þjóðvegi á traktor sínum. Bóndinn hafði ekki tilskilin ökuréttindi og hafði fengið margar viðvaranir. Nú þótti laganna vörðum nóg komið og skipuðu honum út úr traktornum. Bóndinn hélt nú ekki. Hann gaf í botn og þrusaði skrímslinu á næsta lögreglubíl. Framan á traktornum var vígalegur gaddalyftari. 16.8.2007 14:49
Fjölskyldum danskra hermanna hótað Íraskir hryðjuverkamenn hafa hlerað símtöl danskra hermanna við fjölskyldur sínar. Þeir hafa svo hringt í fjölskyldurnar og hótað þeim öllu illu, að sögn vefmiðilsins avisen.dk. Danskur sérfræðingur í sálfræðihernaði segir þetta hafa ótrúlega lamandi áhrif á hermennina. Varnarmálaráðuneytið vil ekki upplýsa um umfang þessara hótana. 16.8.2007 14:30
Enn óvissa með Endeavour Bandaríska geimferðastofnunin frestaði í gær fjórðu geimgöngu áhafnar geimferjunnar Endeavour vegna óvissu um hvort gera þyrfti við rifu á hitahlíf ferjunnar. Geimgangan átti að fara fram á morgun og fól í sér ýmiss önnur verkefni en mögulega viðgerð á geimferjunni. Göngunni hefur verið frestað fram á laugardag. 16.8.2007 14:29
Stjórnlausir skógareldar í úthverfum Aþenu Gríðarlegir skógareldar hafa borist í úthverfi Aþenu, höfuðborgar Grikklands. Þrjátíu metra háar eldsúlur hafa þegar brennt tugi húsa til kaldra kola. Sjóðheitir stormsveitir koma í veg fyrir að hægt sé að nota flugvélar við slökkvistarfið. Slökkviliðsmenn á jörðu niðri ráða ekkert við ástandið. Gríska veðurstofan segir að vindinn muni ekki lægja fyrr en seint í kvöld. 16.8.2007 14:22
Ræningjar í djúpum Frú Chen sem býr í borginni Laoheku í Kína var að koma frá því að taka út peninga í bankanum sínum þegar tveir menn á skellinöðru renndu upp að henni. Þeir rifu af henni böggulinn sem hún hélt á undir hendinni. 16.8.2007 13:16
Andláts Elvis minnst Aðdáendur Elvis Presley minnast þess í dag að þrjátíu ár eru frá því rokkkóngurinn safnaðist til feðra sinna. Í dag verða minningartónleikar haldnir um Presley við heimili hans, Graceland. Búist er við mörg þúsund manns. 16.8.2007 12:13
Taugatitringur á mörkuðum Hlutabréfamarkaðir í Asíu og Evrópu hafa hrunið frá því þeir voru opnaðir í morgun. Áframhaldandi óvissu vegna samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði er þar um að kenna. Krónan hefur fallið um 12% á einum mánuði og veiktist um 2% í morgun. Úrvalsvísitalan lækkaði þá um rúm 4%. 16.8.2007 12:05
Óttast að 330 hafi týnt lífi Óttast að rúmlega 300 manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Björgunarmenn reyna nú hvað þeir geta til að leita eftirlifenda í rústum húsa. 16.8.2007 11:51
Vill búa til súpu úr flökkuhundum Flökkuhundar eru mikið vandamál í Nýju Delí á Indlandi. Þeir eru þar í tugþúsunda tali. Ýmislegt hefur verið reynt til þess að fækka þeim, en það hefur lítinn árangur borið. Borgarfulltrúi í borginni lagði í gær fram tillögu um að vandinn yrði lestur með því að fanga hundana og senda þá til Kóreu, þar sem hundakjöt er talið mikið lostæti. 16.8.2007 11:35
Ég er á lausu Hringur sem gefur til kynna að þú sért á lausu virðist vera að fara sigurför um heiminn. Hringinn geta borið bæði karlmenn og konur. Hann hefur nú selst í yfir 130 þúsund eintökum og framleiðandinn er að hefja mikla auglýsingaherferð. Hann er nýkominn úr kynningarferð til Kína, þar sem viðtökurnar voru mjög góðar, að hans sögn. 16.8.2007 11:17
Eldflaug skotið á sænska farþegaflugvél Eldflaug var skotið á sænska farþegaflugvél sem var í flugtaki frá Norður-Írak í síðustu viku. Eldflaugin sprakk rétt fyrir framan vélina, en ekki urðu á henni neinar skemmdir. Vélin var frá flugfélaginu Nordic Airways og um borð voru 137 farþegar og áhöfn. 16.8.2007 11:01
Komdu þér út kerling Dyraverðir á lúxushóteli í Cancún í Mexíkó brugðust skjótt við þegar indíánakona í litríkum klæðum gekk inn í hótelið þeirra. "Enga götusölu hér," sögðu þeir. Þeir tóku konuna föstum tökum og ætluðu að henda henni út. Sem betur fór var í anddyrinu fólk sem þekkti Rigobertu Menchu, friðarverðlaunahafa Nóbels og frambjóðanda í forsetakosningum í Gvatemala. 16.8.2007 10:15
Blóðið ekki úr Madeleine litlu Blóðið sem fannst í herberginu þar sem Madeleine McCann var rænt í Portúgal, reyndist ekki vera úr henni. DNA rannsókn í Bretlandi hefur leitt þetta í ljós að sögn Sky fréttastofunnar. Blóðið er sagt vera úr karlmanni. 16.8.2007 09:54
Ekki fleiri svipt sig lífi í Bandaríkjaher í 26 ár Níutíu og níu hermenn í bandaríska hernum sviptu sig lífi á síðasta ári og hefur fjöldi þeirra ekki verið meiri í 26 ár. Þetta kemur fram í skýrslu frá Bandaríkjaher sem AP-fréttastofan hefur undir höndum. 16.8.2007 08:51
250 látnir hið minnsta Írösk yfirvöld segja að 250 hið minnsta, hafi látist í sprengjuárásunum í norðurhluta landsins í gær. Þetta er mannskæðasta árásin í landinu frá því í stríðinu 2003. Fjórar sprengjur lögðu tvö þorp jasída trúflokksins í rúst og slösuðust að minnsta kosti 350. Björgunarsveitir eru enn að störfum og búist er við því að tala látinna eigi eftir að hækka. 15.8.2007 23:36
Grafa með skóflum og berum höndum Björgunarmenn og almennir borgarar grafa nú með skóflum og berum höndum í rústum húsa í bænum Kataníja í Norður-Írak þar sem sjálfsvígssprengjuárás varð minnst tvö hundruð manns að bana í gær. Fjórar flutningabifreiðar fullar af sprengiefni voru sprengdar í loft upp nær samtímis. 15.8.2007 19:07
Illdeila mafíufjölskyldna teygir sig til Þýskalands Svo virðist sem áratugagömul illdeila tveggja ítalskra mafíufjölskyldna hafi teygt sig til Þýskalands. Sex karlmenn tengdir annarri fjölskyldunni voru allir myrtir í Duisburg í nótt. 15.8.2007 19:06