Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfirmaður Ísraelshers segir af sér Yfirmaður ísraelska hersins hefur sagt af sér embætti vegna herrannsóknar á stríðinu gegn skæruliðum Hisbollah í Líbanon síðastliðið sumar. Dan Halutz greindi forsætisráðherranum Ehud Olmert og varnarmálaráðherranum Amir Peretz frá ákvörðun sinni fyrr í kvöld. 16.1.2007 22:27
Rice kannski kölluð til vitnis Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, verður hugsanlega kölluð til að bera vitni við réttarhöldin yfir fyrrverandi aðstoðarmanni varaforsetans Dicks Cheneys. Rice, forveri hennar Colin Powell, varaforsetinn Dick Cheney voru á löngum lista yfir hugsanleg vitni í málinu gegn Lewis "Scooter" Libby. 16.1.2007 21:05
Hormónalaus Starbucks Kaffikeðjan Starbucks stefnir á að nota eingöngu mjólkurvörur sem eru lausar við vaxtarhormón sem kúm eru gefin til að auka mjólkurframleiðslu. Forráðamenn fyrirtækisins tilkynntu þetta í dag. Keðjan varð fyrir barðinu á auglýsingaherferð neytendasamtaka sem gagnrýndu hormónagjöfina. 16.1.2007 20:08
Chavez neitar alvarlegum veikindum Kastrós Hugo Chavez, forseti Venesúela og góðvinur Kastrós, neitar orðrómi um að Kúbuforsetinn sé alvarlega sjúkur. Chavez ræðir reglulega við Kastró og segir hann vera hægt og bítandi að jafna sig eftir skurðaðgerðir, orðrómur um að hann liggi fyrir dauðanum sé uppspuni úr ranni Bandaríkjamanna. 16.1.2007 19:38
Megrunartyggjó mögulega á markað Án efa gleðjast margir jórtrarar yfir fréttum af því að megrunartyggjó sé væntanlegt á markað. Breskir vísindamenn þróa nú lyf hlaðið hormóni sem dregur úr svengdartilfinningu og hægt verður að nota í tyggjó eða jafnvel nefúða. 16.1.2007 19:18
Þrír Íslandsvinir hrepptu verðlaun Þrír Íslandsvinir hrepptu samtals fjórar styttur þegar Golden Globe verðlaunin voru afhent í Hollywood í gærnótt. Helen Mirren hlaut tvenn verðlaun fyrir leik sinn í tveimur myndum um Englandsdrottningar, Forest Whitaker ein fyrir túlkun sína á einræðisherranum Idi Amin, og Clint Eastwood fyrir erlenda mynd. Það eru erlendir gagnrýnendur og blaðamenn í Hollywood sem veita Gullhnettina á hverju ári og eru þessi verðlaun sögð vísbending um hverjir hafa betur í baráttunni um Óskarsstytturnar í næsta mánuði. Í nótt var breska leikkonan Helen Mirren verðlaunuð fyrir að túlka tvær Elísabetur, það er Elísabetu fyrstu Englandsdrottningu í sjónvarpsþáttaröð um hana og Elísabetu aðra í myndinni "Drottningin" sem fjallar um dauða Díönu prinsessu af Wales og eftirmála hans. Whitaker mun að mati gagnrýnenda hafa unnið leiksigur með túlkun sinni á Idi Amin í myndinni Síðasti konungur Skotlands. Amin stjórnaði Austur-Afríkuríkinu Úganda með harðri hendi á áttunda áratug síðustu aldar. Besta drama-myndin var valin Babel með þeim Brad Pitt og Cate Blanchett í aðalhlutverkum. Á Golden Globe verðlaunahátíðinni eru gaman- eða söngvamyndir verðlaunaðar sérstaklega. Besta mynd úr þeim hópi var valin söngvamyndin um Draumastúlkunar. Grínarinn Eddie Murphy er þar í aukahlutverki og var verðlaunaður fyrir. Sacha Baron Cohen var valinn besti aðalleikari í gamanmynd fyrir túlkun sína á kasakska fréttamanninum Borat í samnefndri mynd. Í ræðu sinni þakkaði Cohen öllum þeim Bandaríkjamönnum sem hefðu ekki lögsótt hann vegna myndarinnar. Meryl Streep hreppti hnossið sem aðalleikona í gamanmynd fyrir myndina Djöfullinn klæðist Prada. Martin Scorsese var valinn besti leikstjórinn fyrir myndina Departed og besta erlenda myndin var Letters from Iwo Jima eftir Clint Eastwood. Besti dramaþátturinn var Læknalíf, eða Greys Anatomy, og besti gamanþátturinn Ljóta Bettý. 16.1.2007 19:15
SÞ: Tæplega 35 þúsund almennir borgarar fallið í Írak 2006 Sameinuðu þjóðirnar fullyrða að tæplega 35 þúsund almennir borgarar hafi fallið í átökum í Írak í fyrra. Það eru þrefalt fleiri en innanríkisráðuneytið íraska segir hafa fallið. Nærri því 100 manns hafa týnt lífi og rúmlega 200 særst í sprengjuárásum í og við Bagdad í dag. 16.1.2007 19:11
Prodi samþykkir herstöðvarstækkun Ítalir eru samþykkir því að Bandaríkjamenn stækki eina stærstu herstöð sína í Evrópu, sem er í Vicenza á Ítalíu. Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnti þetta í dag. Skiptar skoðanir hafa verið innan samsteypustjórnar vinstri- og miðjumanna um áætlanir Bandaríkjamanna. 16.1.2007 17:15
Bið á að Blair hverfi frá Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að minnsta kosti að sitja í embætti fram yfir leiðtogafund Evrópusambandsins í júní. Blair hyggst hann láta af embætti forsætisráðherra á þessu ári en hefur ekki viljað segja neitt um hvenær hann yfirgefur Downingstræti. 16.1.2007 16:48
Blökkumaður í forsetastól í Hvíta húsinu? Barack Obama, öldungadeildarþingmaður demókrata í Illinois, tók í dag fyrstu skrefin að hugsanlegu framboði til forseta Bandaríkjanna þegar hann greindi frá því að hefði myndað sérstaka könnunarnefnd sem gerir honum kleift að safna fé og ráða til sín starfsfólk vegna framboðsins. 16.1.2007 16:25
Hátt í hundrað látnir í árásum í Bagdad Að minnsta kosti 85 eru látnir eftir fjölda árása í Bagdad í Írak í dag. Um 60 manns eru sagðir hafa látist í sjálfsmorðsárás tveggja manna við háskóla í austurhluta borgarinnar og þar særðust yfir hundrað manns. 16.1.2007 16:04
Rannsaka aðild Olmerts að einkavæðingu banka Ríkissaksóknari í Ísrael fyrirskipaði í dag rannsókn á aðild Ehuds Olmerts, forsætisráðherra landsins, að einkavæðingu Leumi-bankans árið 2005. 16.1.2007 15:47
Dvaldi mánuðum saman á hóteli án þess að greiða fyrir það Karlmaður í Danmörku þarf væntanlega að sætta sig við ögn minni munað eftir að hann var dæmdur í 13 daga fangelsi fyrir fjársvik, en hann var ákærður fyrir að dvelja á tveimur hótelum í langan tíma án þess að greiða fyrir það. 16.1.2007 14:45
Einn af talsmönnum Múllah Omars handtekinn Afgönsk yfirvöld greindu frá því í dag að afganskar sveitir hefðu handtekið Mohammad Hanif, talsmann Múllah Mohammads Omars, leiðtoga talibana í landinu. 16.1.2007 14:20
SÞ: Yfir 34 þúsund féllu í ofbeldisverkum í Írak í fyrra Sameinuðu þjóðirnar segja að yfir 34 þúsund manns hafi fallið í ofbeldisverkum í Írak á síðasta ári og yfir 36 þúsund hafi særst. Þetta eru þrisvar sinnum hærri tölur en innanríkisráðuneyti Íraks hafa áætlað. 16.1.2007 13:58
Þrettán talibanar felldir í Suður-Afganistan Þrettán uppreisnarmenn úr röðum talibana eru sagðir hafa fallið í átökum við hermenn NATO og afgönsku stjórnarinnar í Helmand-héraði í suðurhluta Afganistans síðustu daga. Þá hafa tveir breskir hermenn fallið í átökunum. 16.1.2007 13:25
Ný fréttastöð í Noregi Norðmenn eignuðust sjónvarpsstöð helgaða fréttaflutningi í gær þegar Nyhetskanalen fór í loftið. Stöðin er á vegum TV 2 sjónvarpsstöðvarinnar og sendir út dagskrá allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Undirbúningur hófst fyrir fjórum mánuðum og stöðin fór svo í loftið á hádegi í gær. 16.1.2007 13:15
Batahorfur ekki sagðar vera góðar Fídel Kastró, leiðtogi Kúbu, er veikari en nokkru sinni fyrr eftir þrjár misheppnaðar skurðaðgerðir. Spænskt dagblað fullyrðir þetta í dag. 16.1.2007 12:19
Rússar selja Írönum loftvarnarkerfi Rússar hafa afhent Írönum loftvarnarkerfi en samkomulag um sölu þess náðist á síðasta ári. Kerfið heitir TOR-M1 og er færanlegt. Það samanstendur af þremur tegundum af færanlegum eldflaugapöllum. Þeir geta fylgst með tveimur skotmörkum í einu og geta unnið sjálfstætt við nær allar aðstæður. 16.1.2007 11:42
51% kvenna í USA utan hjónabands Fleiri bandarískar konur búa nú án eiginmanns en með eiginmanni. Sérfræðingar segja að þetta sé í fyrsta sinn í sögu Bandaríkjanna sem svo sé. Árið 1950 var talan 35% og árið 2000 49% en árið 2005 var talan komin upp í 51%. Þetta kom fram í skýrslu New York Times um bandaríska manntalið sem var tekið árið 2005. 16.1.2007 11:11
30 látnir í vetrarveðri í Bandaríkjunum Kuldi og ísregn hafa orðið 30 manns að bana í miðríkjum Bandaríkjanna. Neyðarástand er í Oklahoma og þjóðvarðliðar hafa verið kvaddir til Missouri, þar sem 200 þúsund heimili eru rafmagnslaus. 15.1.2007 22:19
Gervihnettirnir týna tölunni Gervihnetti Bandaríkjamanna, sem afla upplýsinga um umhverfi og andrúmsloft jarðarinnar, þarf að endurnýja skjótt. Annars er hætta á að vísindamenn missi af gögnum sem gera þeim kleift að spá fyrir um fellibylji og þróun veðurfars. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarráðs Bandaríkjanna sem birt var í dag. 15.1.2007 21:54
Stjórnarskrá Ekvadors endurskoðuð Ekvadorbúar kjósa sér sérstakt þing þann 18. mars, sem fær umboð til þess að endurskoða stjórnarskrána. Rafael Correa, nýkjörinn forseti landsins, sagði í dag að þingið þyrfti að minnka áhrif stjórnmálamanna á dómsvaldið og neyða þingmenn löggjafarþingsins til að eiga heimili í minni kjördæmum sem þeir sitja á þingi fyrir. 15.1.2007 21:33
Ráðherrann vildi lögregluskutl heim af barnum Formaður heimastjórnar Grænlands segir óeðlilegt að flokksbróðir sinn, Tommy Marø, krefjist þess að lögreglumenn keyrðu sig heim af barnum. Marø, sem er mennta- og kirkjumálaráðherra í heimastjórninni, bankaði upp á hjá lögreglunni í Nuuk eftir jólahlaðborð í desember og bað um að vera keyrður heim til sín. 15.1.2007 21:12
Hlýir vetur ógna hreindýrum í Lapplandi Óvenju hlýr vetur hefur haft slæm áhrif á hreindýrahjarðir Sama í Norður-Svíþjóð þar sem blautur og þungur snjór og tíðar hitasveiflur gera hreindýrunum erfitt fyrir að krafsa snjóinn ofan af hreindýramosanum sem þau byggja afkomu sína á. 15.1.2007 19:34
Jarðskjálfti í Japan Jarðskjálfti að styrkleika 5,7 á Richter-skalanum skók miðhluta Japans klukkan 18:18 í kvöld. Skjálftinn átti upptök sín skammt suður af höfuðborginni Tokyo. Engar fréttir hafa borist af skemmdum eða slysum á fólki. Flestir hafa væntanlega verið sofandi í rúmum sínum enda mið nótt í Japan. 15.1.2007 19:00
Bush: Írakar standi í þakkarskuld við Bandaríkjamenn Bush Bandaríkjaforseti segir Íraka eiga Bandaríkjamönnum mikið að þakka fyrir að hafa losað þá undan oki einræðisherra með innrásinni 2003. Hann gagnrýnir Íraka fyrir það hvernig staðið var að aftöku Saddams Hússeins. Hálfbróðir forsetans fyrrverandi var hengdur við annan mann í nótt. 15.1.2007 19:00
Gen tengt Alzheimers Fólk sem fæðist með tiltekið gen í líkama sínum á frekar á hættu að fá Alzheimers-sjúkdóminn síðar á lífsleiðinni. Þetta er niðurstaða bandarískra og kanadískra vísindamanna. Íslenskur læknir segir langt í að þessi uppgötvun leiði til haldbærrar meðferðar en sé þó skref í rétta átt. 15.1.2007 18:45
Leynigöng á Gaza fóðruð með sprengiefnum Palestínskar öryggissveitir greindu frá því í dag að þær hefðu fundið yfirgripsmikil jarðgangakerfi á Gaza. Fatah-hreyfingin sagði að göngin hefði mátt nota til að nota til að myrða æðstu leiðtoga hreyfingarinnar, þeirra á meðal forseta Palestínu, Mahmoud Abbas. Hamas-hreyfingin vildi ekki segja hvort liðsmenn hennar hefðu grafið göngin. 15.1.2007 18:25
Auðgunarferlið í Íran byrjar innan skamms Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði í dag að aðstaða til að auðga úran í Natanz kjarnorkuverinu yrði stækkuð smátt og smátt og að það ferli byrjaði mjög fljótlega. Fyrr í dag sögðu stjórnvöld í Teheran að 3000 kjarnakljúfum yrði bætt við kjarnorkuverið í Natanz. 15.1.2007 17:30
Zapatero of bjartsýnn Forsætisráðherra Spánar viðurkenndi í dag að hann hafi gert "greinileg mistök" með því að vera of bjartsýnn á niðurstöður sáttaumleitana við basknesku aðskilnaðarsamtökin ETA. José Luis Zapatero, sagði þann 29. desember að viðræðurnar væru að taka við sér, degi seinna sprengdi ETA bílsprengju á flugvellingum í Madríd. 15.1.2007 17:15
Maóistar taka sæti á nepalska þinginu Þingmenn á nepalska þinginu samþykktu í dag bráðabirgðastjórnarskrá sem gerði það að verkum að fulltrúar maósta tóku sæti á þinginu. 15.1.2007 16:03
Fyrstu hermennirnir í liðsauka Bandaríkjanna komnir til Bagdad Fyrstu bandarísku hermennirnir í liðsaukanum sem senda á til Íraks vegna ástandsins þar eru þegar komnir til Bagdad, að sögn George Casey, yfirmanns herliðs Bandaríkjanna í Írak. 15.1.2007 15:26
Myndir sýndar af aftökunum í Írak í nótt Stjórnvöld í Írak hafa sýnt fjölmiðlum myndir af aftökum sem fram fóru í Bagdad í nótt. Þá voru hálfbróðir Saddams Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, og fyrrverandi yfirdómari landsins hengdir. 15.1.2007 13:52
Dæmdir fyrir brandara um íslam Dómstóll í Casablanca í Marokkó hefur dæmt tvo blaðamenn í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi og sektað þá um hátt í 600 þúsund krónur fyrir að hæðast að íslam og draga úr siðferði almennings í vikuriti sínu. 15.1.2007 13:25
Innflutningsbann stendur enn Ólíklegt er að Rússar eigi eftir að aflétta banni sínu á innflutning á pólska kjötvöru þrátt fyrir að viðræður milli þeirra hefjist nú í vikunni. Rússar segja að meðferð kjötsins á meðan flutningi standi, standist ekki heilbrigðiskröfur sínar og neita að taka gild pólsk vottorð sem og vottorð Evrópusambandsins. 15.1.2007 13:01
Hátt í 100 ungmenn rekin út af Sjónarhóli í Kaupmannahöfn Lögregla í Kaupmannahöfn handtók í morgun nærri 100 manns eftir að hafa rekið fólkið út úr yfirgefinni verksmiðjubyggingu sem það hafði lagt undir sig. Ungmenninn lögðu undir sig bygginguna á laugardag og neituðu að hreyfa sig en með þessu vildu þau mótmæla lokun hins svokallað Ungdómshúss í borginni. 15.1.2007 13:01
Engar myndir birtar af aftökum í nótt Hálfbróðir Saddams Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, og fyrrverandi yfirdómari landsins voru hengdir í Bagdad í nótt. Þeir voru, ásamt Saddam, dæmdir til dauða fyrir morð á nærri hundrað og fimmtíu sjíamúslimum árið 1982. Engar myndir hafa verið birtar frá aftökunni. Upphaflega átti að taka þá alla þrjá af lífi á sama tíma en síðan var ákveðið að byrja á Saddam. Hann var svo hengdur 30. desember síðastliðinn. 15.1.2007 13:00
Bandaríkin ráðast gegn Írönum í Írak Bandaríski sendiherrann í Írak, Zalmay Khalilzad, sagði í dag að þau muni reyna að uppræta hópa Írana og Sýrlendinga sem starfa í Írak. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem haldinn var í Írak í dag til þess að kynna nýja stefnu Bandaríkjamanna í Írak. 15.1.2007 12:21
Abbas, Olmert og Rice funda Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur samþykkt að funda með Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, og Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Bandarískir sendifulltrúar greindu frá þessu fyrir stundu. Óvíst er hvenær blásið verður til fundarins. 15.1.2007 12:15
Bush játar að hafa gert ástandið verra George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, viðurkenndi í viðtali við fréttamann 60 mínútna í gær að ákvarðanir hans hefðu gert ástandið í Írak óstöðugara en það var áður. Í því sagði Bush að ofbeldið á milli trúarhópa í Írak gæti leitt til hryðjuverkaárása í Bandaríkjunum. Því væri nauðsynlegt að ná stjórn á ástandinu þar í landi. 15.1.2007 11:56
ESB harmar loftárásir Formaður neyðarhjálpar Evrópusambandsins, Louis Michel, sagði í dag að sprengjuárásir Bandaríkjanna í suðurhluta Sómalíu gætu aukið á ofbeldi á svæðinu. Michel sagði að í síðustu viku að árásir Bandaríkjanna hefðu ekki gert aðstæður betri á neinn hátt. 15.1.2007 11:39
Réttarhöld yfir meintum hryðjuverkamönnum hefjast í Lundúnum Réttarhöld yfir sex öfgasinnuðum múslímum, sem sakaðir eru um að skipuleggja sjálfsmorðsárásir í Lundúnum í júlí árið 2005, hófust í borginni í morgun. 15.1.2007 11:08
Mikið landbrot á dönsku eynni Anholt Töluvert landbrot varð á eynni Anholt í Kattegat sem tilheyrir Danmörku í óveðri sem gekk yfir Suður-Svíþjóð og Danmörku um helgina. 15.1.2007 10:47
Við hjálpum með Írak ef þið gefið okkur Palestínu Hófsöm Arabaríki segjast munu hjálpa Bandaríkjamönnum að koma á friði í Írak, ef þeir taki virkari þátt í því að endurvekja friðarferlið milli Ísraela og Palestínumanna. Þeir kalla það "Írak fyrir land," og eiga þar við sjálfstætt ríki fyrir Palestínumenn. 14.1.2007 21:30