Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslenskir flugvirkjar flytja vegna ótta Flugvirkjarnir sem eru staddir í Beirút á vegum Atlanta þurftu í gærmorgun að færa sig á hótel lengra frá flugvellinum af ótta við árásir Ísraelsmanna á flugvöllinn sem héldu áfram í gær. Aukin harka hefur færst í hernaðaraðgerðir þeirra í suðurhluta Líbanon sem hófust seinasta miðvikudag. 15.7.2006 08:45
Hefur kært Dick Cheney fyrir að leka til fjölmiðla Valerie Plame, fyrrverandi njósnari hjá bandarísku leyniþjónustunni CIA, hefur lagt fram kæru á Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, Karl Rove, ráðgjafa Bandaríkjaforseta, og fleiri embættismenn Hvíta hússins í Washington. Hún sakar þá um að hafa skipulagt hvíslherferð með það að markmiði að eyðileggja feril hennar hjá leyniþjónustunni. 15.7.2006 08:00
Hugarorkan er hreyfiafl Erlent Bandarískum vísindamönnum hefur tekist að græða nema og senditæki í heila lamaðs manns sem gera það að verkum að hann getur hreyft músarbendil á tölvuskjá og stjórnað sjónvarpi og vélmenni með hugarorkunni. 15.7.2006 07:45
Hill verður sóttur til saka Hinn tvítugi varnarliðsmaður, Calvin Hill, sem grunaður er um morðið á flugliðanum Ashley Turner þann 14. ágúst á varnarsvæðinu í Keflavík, verður sóttur til saka fyrir morðið, en verjendur hans höfðu reynt að fá málinu vísað frá vegna formgalla. 15.7.2006 07:30
Gagnrýndi bændastyrki Vladimír Pútín gagnrýndi ríkari lönd heims í gær fyrir að sýna tvískinnung í málefnum þróunarríkja og hvatti þau til að láta að því verða að lækka styrki og niðurgreiðslur til landbúnaðarafurða og losa um höft á innflutningi þeirra. 15.7.2006 07:00
Olíuverð hækkar Heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp í morgun vegna óróans fyrir botni Miðjarðarhafs. Allt útlit er fyrir að bensínverð hækki enn á ný hér á landi strax eftir helgi. 14.7.2006 20:07
Flugskeytum rignir yfir Líbanon Flugskeytum hefur rignt yfir samgöngumannvirki og íbúðarhús í Líbanon í dag. Þjóðarleiðtogar um allan heim fordæma árásirnar, en Bandaríkjamenn beittu neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar til stóð að þrýsta á Ísraelsmenn. 14.7.2006 18:30
Öryggisráð Sþ á neyðarfundi Ísraelsmenn hafa gert harðar árásir á Beirút, höfuðborg Líbanon, í dag. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman á neyðarfundi í dag vegna ástandsins. Þjóðarleiðtogar víða um heim hafa fordæmt árásirnar. 14.7.2006 17:13
Helstu iðnríki heims funda á morgun Leiðtogar helstu iðnríkja heims hittast í Sankti Pétursborg á morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur fundur er haldinn í Rússlandi. 14.7.2006 12:33
Íslenskir flugvirkjar í Beirút þurftu að flytja sig Ísrelar réðust í morgun öðru sinni á alþjóðaflugvöllinn í Beirút. Aukin harka hefur færst í hernaðaraðgerðir þeirra í suðurhluta Líbanons. Þrír íslenskir flugvirkjar, sem eru á vegum Atlanta í Beirút, færðu sig í morgun á hótel lengra frá flugvellinum af ótta við árásirnar. 14.7.2006 12:00
Tveir handteknir fyrir ódæðið í Mumbai Lögreglan í Nepal hefur handtekið tvo Pakistana sem grunaðir eru um ódæðið í Mumbai á Indlandi á þriðjudag. Um tvö hundruð manns létu lífið í hryðjuverkaárás á farþegalestakerfi borgarinnar. 14.7.2006 10:58
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Beirút Ísraelski herinn gerði í morgun aðra árás á alþjóðaflugvöllinn í Beirút. Ein af flugvélum Atlanta flugfélagsins er á flugvellinum en ekkert amar að Íslendingum sem fylgja flugvélinni. 14.7.2006 10:17
Tveir grunaðir um ódæðið Yfirvöld á Indlandi birtu í gær nöfn tveggja ungra manna sem grunaðir eru um hryðjuverk vikunnar, sem urðu um tvöhundruð manns að bana. Andhryðjuverkasveit ríkisstjórnarinnar dreifði myndum af mönnunum til fjölmiðla ásamt nöfnum þeirra. Þeir heita Sayyad Zabiuddin og Zulfeqar Fayyaz, en tilkynningunni fylgdu engar frekari upplýsingar um þá. 14.7.2006 07:30
Heillavænleg langtímaáhrif Niðurstöður rannsóknar sem vísindamenn við John Hopkins-háskólann í Baltimore gerðu á áhrifum ofskynjunarsveppa á menn hafa komið þeim í opna skjöldu. 14.7.2006 07:30
Þykir áfall fyrir Tony Blair Breska lögreglan hefur yfirheyrt 48 manns í tengslum við ásakanir um að Tony Blair forsætisráðherra hafi séð til þess að fjársterkir einstaklingar fengju sæti í lávarðadeild breska þingsins í skiptum fyrir veglegan fjárstuðning við Verkamannaflokkinn. 14.7.2006 07:15
Bandaríska þingið á leik Örlög fanga bandaríska hersins á Kúbu eru komin til kasta Bandaríkjaþings. Bandaríkjastjórn hefur tekið nýja stefnu og veitt þeim stöðu stríðsfanga. 14.7.2006 07:15
Dick Cheney stefnt Fyrrverandi leynifulltrúi bandarísku leyniþjónustunnar, Valerie Plame, hefur nú stefnt Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, fyrir að leka nafni hennar í fjölmiðla og reyna þar með að spilla starfsframa hennar. 14.7.2006 07:05
Þúsundir berjast við bálið Reykjarmökkur liggur nú yfir Yuccadalnum í Kaliforníu, þar sem skógareldar geysa, um 160 kílómetra austur af Los Angeles. Fjöldi íbúðarhúsa hefur brunnið og hundruðum manna hefur verið skipað að yfirgefa híbýli sín. 14.7.2006 07:00
Ísraelsher hélt áfram árásum á Líbanon Líbanska ríkisstjórnin hefur óskað eftir vopnahléi, en án árangurs. Valdamenn um allan heim hvetja Ísraelsher og Hezbollah til að draga úr ofbeldinu. Fimmtíu óbreyttir Líbanar fórust í árásunum í gær, þar af mörg börn. 14.7.2006 07:00
Harðar árásir á Líbanon Ísraelar héldu áfram hörðum árásum á suðurhluta Líbanon í nótt og morgun. Ísraelar létu sprengjum rigna yfir Beirút þar sem talið er að skæruliðar Hizbollah-samtakanna hafist við. 14.7.2006 06:47
Konur lesa ekki leiðbeiningarbæklinga Þrjár af hverjum fjórum konum kunna ekki á farsímann sinn, samkvæmt rannsókn breska fyrirtækisins Comet, sem fjallað er um á fréttasíðu skoska blaðsins Evening Times. 14.7.2006 06:45
Sjö manns látnir í Sao Paulo í Brasilíu Sjö manns hafa látist undanfarna tvo daga í árásum glæpagengja í Sao Paulo í Brasilíu. Mikil skelfing ríkir í borginni en glæpagengin hafa beint árásum sínum gegn lögreglu og almennum borgurum. 13.7.2006 22:33
Dick Cheney stefnt Fyrrverandi leynifulltrúi bandarísku leyniþjónustunnar, Valerie Plame, hefur nú stefnt Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, fyrir að leka nafni hennar í fjölmiðla og reyna þar með að spilla starfsframa hennar. 13.7.2006 22:05
Komið í veg fyrir heiðursmorð 43 ára gamall danskur maður af pakistönsku bergi brotnu er sagður hafa komið í veg fyrir að svonefnt heiðursmorð yrði framið á systur sinni. 13.7.2006 21:00
Íslendingana sakaði ekki Átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-hreyfingarinnar hörðnuðu enn í dag. Fjöldi borgara liggur í valnum eftir árásir síðasta sólarhringinn. Ein af flugvélum Atlanta var á Beirút-flugvelli þegar Ísraelar gerðu loftárás á hann en hún skemmdist ekki. Íslendingar sem fylgja flugvélinni eru sömuleiðis heilir á húfi. 13.7.2006 19:32
Stjórnar raftækjum með hugarorkunni Bandarískum vísindamönnum hefur tekist að græða nema og senditæki í heila lamaðs manns sem gera það að verkum að hann getur hreyft músarbendil á tölvuskjá og stjórnað sjónvarpi og vélmenni með hugarorkunni. Neminn nemur heilabylgjur mannsins og sendir þannig skilaboð sem koma í stað fyrir að fingur ýti á takka. 13.7.2006 19:08
Landamærin lokuð við Rafah Rafah-landamærin milli Palestínu og Egyptalands eru nú lokuð í þrjár vikur og Palestínumönnum þar með meinað að heimsækja vini og ættingja í Egyptalandi. Óbreyttir borgarar tóku þar lögin í eigin hendur og réðust í gegnum hliðin en voru síðan stöðvaðir af lögreglumönnum sem gættu landamærastöðvarinnar. 13.7.2006 19:02
Hafnbann á Líbanon Ísraelsk herskip gæta þess nú að engin skip komist inn í líbanskar hafnir og öllu flugi hefur verið beint frá alþjóðaflugvellinum í Beirút yfir til Kýpur eftir að þrjár eldflaugar lentu á flugbrautum þar. Talsmaður Ísraelshers sagði flugvöllinn hafa verið notaðan til að sjá skæruliðasamtökunum Hezbollah fyrir vopnum. 13.7.2006 18:20
Stófelldar árásir á landamærum Líbanon Stórfelld eldflauga og stórskotahríð er nú milli liðsmanna Hizbollah og Ísraela, á landamærum Líbanons. Ísraelar hafa teygt sig langt inn í landið, með loftárásum á flugvöllinn í Beirút, auk þess sem herskip þeirra loka höfnum. 13.7.2006 13:39
Fjöldi yfirheyrður vegna hryðjuverkanna Lögreglan á Indlandi hefur yfirheyrt hundruð manna vegna hryðjuverkanna í Mumbai. Hátt í tvö hundruð manns fórust í tilræðunum. Fjöldi fólks mótmælti hryðjuverkunum í Nýju-Delí í morgun. 13.7.2006 13:21
Bush í Þýskalandi George Bush, Bandaríkjaforseti, hóf í gærkvöldi opinbera heimsókn sína til Þýskalands. Bush kom til Rostock í Þýskalandi í gær en ætlar að stoppa stutt í Þýskalandi því hann heldur þaðan aftur á morgun. 13.7.2006 08:47
Sakaður um kynferðislega áreitni Orðrómur um meinta kynferðislega áreitni forseta Ísraels, Moshe Katsav, tröllríður öllum fjölmiðlum í Ísrael og gæti tímasetningin varla verið verri fyrir Ísraela, sem sæta nú miklum alþjóðlegum ádeilum vegna innrása á Gaza-strönd og í Líbanon. 13.7.2006 07:30
Eldar í Kaliforníu Reykjarmökkur svífur nú yfir Yucca dal, í Kaliforníu, þar sem eldar geysa á stóru svæði. 13.7.2006 07:20
Loftárásir á alþjóðaflugvöllinn í Beirút Ísraelsher gerði loftárásir á alþjóðaflugvöllinn í Beirút í Líbanon í morgun, og þurfti að loka flugvellinum vegna þessa. 13.7.2006 07:16
Ísraelsher ræðst inn í Suður-Líbanon Viðbrögð Ísraelshers við handtöku Líbana á tveimur ísraelskum hermönnum hafa vakið mikil mótmæli um allan heim. Forsætisráðherra Ísraels segir viðbrögð landa sinna verði "öguð en afar, afar sársaukafull". 13.7.2006 07:15
Þjóðarhreinsun í uppsiglingu Við mótmælum framferði Ísraelshers sem bitnar á hinum almenna íbúa, körlum, konum og ekki síst börnunum, sem reyna alltént að vera úti við leik, að minnsta kosti á meðan sprengjunum rignir ekki, segir Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína, sem heldur mótmælafund á Austurvelli klukkan 17.30 í dag. 13.7.2006 07:00
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð Sérfræðingar leituðu í gær að vísbendingum í rústum lestarvagna sem sprungu í loft upp í átta sprengjum á háannatíma í Mumbai (Bombay) á Indlandi á þriðjudag. Svo virðist sem sprengjunum hafi verið komið fyrir á farangursgrindum í lestunum, en þær urðu yfir 200 manns að bana og særðu fleiri en 700. 13.7.2006 07:00
Á heimaslóðir kanslarans George W. Bush Bandaríkjaforseti kom í gær til Þýskalands í boði Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Bush verður í Þýskalandi þangað til á morgun, en þá heldur hann til Rússlands á leiðtogafund G8. Í Þýskalandi fer Bush á heimaslóðir Merkel við strönd Eystrasalts, þar sem áður var Austur-Þýskaland. 13.7.2006 07:00
Ráðgjafi Blairs handtekinn Helsti fjáröflunarmaður breska Verkamannaflokksins, Levy lávarður, var í gær handtekinn í tengslum við rannsókn bresku lögreglunnar á ásökunum um að Tony Blair forsætisráðherra hafi með óeðlilegum hætti séð til þess að auðkýfingar, sem styrktu flokkinn, fengju sæti í lávarðadeild þingsins. 13.7.2006 06:45
Einn þungt haldinn á gjörgæsludeild Tugir manna slösuðust í sjötta nautahlaupinu af átta á San Fermin-hátíðinni í Pamplona á Spáni í gær. Þó ráku vel hyrnd nautin engan í gegn og eingöngu einn maður slasaðist illa þegar nautin tröðkuðu á honum. Hann var lagður inn á sjúkrahús með nokkuð alvarlega bak- og höfuðáverka, en var þó ekki í lífshættu.Hlaupið stóð í tvær og hálfa mínútu. 13.7.2006 06:45
ESB reynir að lækka farsímagjöld Evrópusambandið hefur kynnt áætlun sem miðar að því að lækka reikigjöld fyrir notkun farsíma erlendis um allt að 70%. Tekjur farsímafyrirtækja af reikigjöldum eru oft um 10-15% af heildartekjum fyrirtækjanna. 12.7.2006 22:41
Microsoft sektað Evrópusambandið hefur sektað bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft um 280 milljónir evra, jafnvirði 26 milljarða íslenskra króna. 12.7.2006 21:00
Síðasta geimgangan Tveir geimfarar úr áhöfn geimferjunnar Discovery brugðu sér í dag í síðustu geimgöngu yfirstandandi leiðangurs. 12.7.2006 20:00
Enn ekki sátt um mexíkósku forsetakosningarnar Mexíkóski forsetaframbjóðandinn Lopez Obrador, sem beið lægri hlut fyrir Felipe Calderon með aðeins ríflega hálfs prósents mun 2. júlí síðastliðinn, segist nú hafa óhrekjanlegar sannanir á myndbandi fyrir kosningasvindli. Hann hefur nú lagt fram 900 blaðsíðna kæru þar sem ýmislegt ólöglegt athæfi í kosningabaráttunni og á kjördag er tíundað. 12.7.2006 19:20
Indverjar reiðir Pakistönum Enn hefur enginn lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkunum í Mumbai á Indlandi í gær, sem kostuðu 183 mannslíf. Samskipti Indverja og Pakistana hafa kólnað vegna ódæðanna. 12.7.2006 19:15