Fleiri fréttir

Óvissa um uppruna tilræðismanna

Þrír menn voru handteknir á Heathrow flugvelli í gær á grundvelli heimilda laga um hryðjuverkastarfsemi. Yfirvöld neituðu því þó að handtakan stæði í tengslum við hryðjuverkaárásirnar á fimmtudag. "Þessar handtökur eru ekki á grundvelli upplýsinga um sprengingarnar í Lundúnum," sagði Brian Paddick hjá lögreglunni.

Telja öll líkin fundin

Lundúnalögreglan telur að tekist hafi að finna öll líkin sem grafin voru undir braki á stöðunum fjórum í London þar sem hryðjuverkin voru gerð á fimmtudag. Talið er að endanleg tala látinna verði 49 eða litlu fleiri.

Tvær milljónir flýðu heimili sín

Hátt í tvær milljónir einstaklinga þurftu að yfirgefa heimili sín í strandbyggðum Flórída og Alabama þegar fellibylurinn Dennis gekk yfir og olli miklum skemmdum. Fellibylurinn fór yfir á sama stað og fellibylurinn Ivan olli miklum skemmdum fyrir innan við ári síðan. Skaðinn þá var svo mikill að enn er ekki búið að byggja upp allt sem eyddist þá.

Minningin er aldrei langt undan

Eftir því sem dagarnir líða frá hryðjuverkunum á fimmtudaginn er lífið í höfuðborg Bretlands smátt og smátt að komast í sitt fyrra horf. Margir borgarbúar minntust þeirra sem létust með því að leggja blóm við King's Cross stöðina.</font /></b />

Mikið forskot hægrimanna

Kristilegir demókratar og systurflokkur hans í Bæjaralandi fengju 43 prósent atkvæða ef kosið yrði nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem birt var í Berliner Morgenpost í gær. Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröder kanslara fengi 28 prósent atkvæða og Græningjar, sem mynda stjórn með honum, átta prósent.

Aftur að samningaborðinu

Norður-kóresk stjórnvöld snúa aftur að samningaviðræðum um lausn kjarnorkudeilunnar á Kóreuskaga, ári eftir að þau hættu að mæta á samningafundi. Þessu lýstu þau yfir eftir leynilegan fund sem fulltrúar Norður-Kóreu og Bandaríkjanna áttu í Peking, höfuðborg Kína, um helgina.

Björgunaraðgerðir í London

Björgunarmenn reyna nú sitt ítrasta til að bjarga líkum þeirra sem fórust í hryðjuverkaárásunum á London, en fjöldi þeirra liggur í löskuðum lestargöngum langt undir yfirborði jarðar. Staðfest hefur verið að fjörutíu og níu voru myrtir í árásinni en vitað er að rauntalan er hærri þar sem líkin í göngunum eru ekki talin með.

Árásir á uppreisnarmenn í Írak

Bandarískir landgönguliðar hófu í morgun nýja hrynu árása á uppreisnarmenn, en til stendur að reyna að útrýma búðum uppreisnarmanna í Efrat-dalnum. Fimm hundruð bandarískir og hundrað írakskir hermenn taka þátt í aðgerðinni.

Spænskir stjórnmálamenn skotmörk

Spænskir stjórnmálamenn eru enn á skotmarkalista ETA, aðskilnaðarsamtaka herskárra Baska, þrátt fyrir að samtökin hafi lýst yfir vopnahléi í byrjun júní. Þar var sagt að ekki yrði reynt að ráða stjórnmálamenn af dögum, en nú segja spænsk dagblöð frá því að stjórnmálamenn sem séu í héraðsstjórnum eða ríkisstjórninni séu enn í sigtinu.

Fellibylurinn Dennis

Þrjátíu og tveir hafa týnt lífi eftir yfirreið fellibylsins Dennis um Karabíska hafið. Dennis skall á Havana á Kúbu snemma í morgun og reif þar upp tré með rótum og rafmagnslaust varð í borginni. Á ferði sinni yfir Kúbu dró úr krafti Dennis sem er langstærsti fellibylurinn sem sést hefur á svæðinu í ár og raunar er hann talinn öflugasti fellibylur sem mælst hefur svo snemma á árinu.

Leit hafin að grunuðum

Breska lögreglan Scotland Yard og leyniþjónustan MI 5 hafa beðið kollega sína um alla Evrópu að hafa uppi á Mohamed Guerbouzi, fjörutíu og fjögurra ára gömlum íslömskum fræðimanni með breskan og marokkóskan ríkisborgararétt. Talið er að hann geti verið leiðtogi hópsins sem skipulagði hryðjuverkin á fimmtudaginn.

Árásirnar afar vel skipulagðar

Óttast er að allt að 75 hafi týnt lífi í hryðjuverkunum London. Enn hefur ekki tekist að ná öllum líkum úr lestarvögnunum og á meðan leita grátandi ættingjar að þeim sem saknað er. Flest bendir til að árásirnar hafi verið vel skipulagðar en þær voru gerðar nánast samtímis á þremur stöðum.  Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2 var í London og hún segir rannsóknina á hryðjuverkunum eina þá viðamestu sem lögreglan í Lundúnum hefur staðið frammi fyrir.

Miðborg Birmingham rýmd

Lögreglan í Birmingham hefur fyrirskipað fólki að yfirgefa skemmtanahverfið í miðborg borgarinnar. Um 30 þúsund manns þurftu því að hverfa á brott. Þetta er gert eftir að lögreglu bárust vísbendingar um að hætta væri á hryðjuverkaárásum. Lögregla umkringdi miðborgina og lokaði öllum leiðum inn í hana.

Kennsl ekki borin á líkin

Sprengjurnar sem sprungu í þremur neðanjarðarlestum á fimmtudag voru svo öflugar að ekki hafa enn verið borin kennsl á lík þeirra sem létust í árásunum. Þessu greindu breskir lögreglumenn. Staðfest hefur verið að 49 hafi látist og segir lögreglan að tala látinna eigi eftir að hækka eitthvað en draga í efa að hún eigi eftir að hækka mjög mikið.

Björgunarfólkið hinar nýju hetjur

Bretar tala þessa dagana um nýjar hetjur, fólkið sem fór niður í lestargöngin til að hjálpa þeim sem særðust í sprengjuárásunum á fimmtudag og gátu ekki bjargað sér út sjálfir.

Tvenn samtök ábyrgð á hendur sér

Abu Hafs al Masri hersveitin, sem segist tengjast al-Kaída, hefur lýst ábyrgð á hendur sér á hryðjuverkunum í Lundúnum. Sannleiksgildið hefur þó ekki fengist staðfest og leggja sérfræðingar í hryðjuverkamálum lítinn trúnað á tilkynninguna þar sem hópurinn hefur áður eignað sér verk sem hann hefur ekki staðið fyrir.

142 handteknir

Ítalskir lögreglumenn handtóku 142 einstaklinga í viðamiklum aðgerðum í og við Mílanó á föstudag og laugardag. Handtökurnar eru hluti af stórauknum viðbúnaði á Ítalíu í kjölfar hryðjuverkanna í Lundúnum og hótana um hryðjuverk á Ítalíu.

Tugir drukkna í Kaspíahafi

Rúmlega 32 einstaklingar drukknuðu í Kaspíahafi þegar þeir voru á sundi undan norðurströnd Írans. Lík 32 einstaklinga fundust á sjö stöðum á ströndinni við Kaspíahaf á föstudag að sögn þeirra sem skipulögðu hjálparstarf.

Ráðast verður að rótum hryðjuverka

Ráðast verður að félagslegum orsökum hryðjuverka ef takast á að vinna bug á þeim sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Orsakirnar sagði hann vera fátækt, skort á lýðræði og áframhaldandi átök í Mið-Austurlöndum.

Fjórir fengu að kenna á hornunum

Naut stungu fjóra hlaupara með hornum sínum í nautahlaupinu í Pamplona í gær. Fjöldi annarra hlaupara slasaðist lítillega í hlaupinu sem dregið hefur að sér mikinn mannfjölda líkt og undanfarin ár.

Hvert dauðsfall er harmleikur

Eftir því sem meira kemur í ljós um illvirkin sem unnin voru í Lundúnaborg á fimmtudagskvöldið á maður erfiðara með að skilja þau. Hvers vegna kýs nokkur maður að grípa til þess ráðs að skilja eftir tifandi tímasprengju í rútu eða lest fullri af saklausu fólki? Við þeirri spurningu er að líkindum ekki til neitt rökrétt svar.

London í morgun

Lundúnarlögreglan fann grunsamlegan böggul nærri Liverpool lestarstöðinni í London upp úr klukkan átta í morgun og var vegfarendum beint frá, en hættuástandi hefur verið aflýst. Á  áttunda tímanum í morgun var Euston brautarstöðin í miðborginni líka rýmd í öryggisskyni, en rétt fyrir klukkan átta var hættuástandi þar aflýst.

Öryggisgæsla í Evrópu aukin

Ekki hefur verið staðfest að fleiri en þrjátíu og sjö hafi látist, en hvaðanæva að berast fregnir af því að fleiri en fimmtíu hafi týnt lífi í árásunum í gær. Öruggt er talið að þegar öll kurl verða komin til grafar verði talan hærri, enda slösuðust meira en sjö hundruð manns, þar af um fimmtíu lífshættulega.

Talibanar fagna hvorki né syrgja

Talsmaður uppreisnarmanna í Afghanistan sagði í morgun bresku þjóðina vera að gjalda fyrir voðaverk stjórnvalda sinna. Hann segir Talibana hvorki fagna árásinni né syrgja hana, en hins vegar hefðu þeir fagnað ef ráðist hefði verið á breska hermenn eða stjórnmálamenn. Hann segir Talibana ekkert hafa komið nálægt árásunum í gær.

Íslendingar í London

Engar fréttir höfðu borist af Íslendingum á sjúkrahúsum í Lundúnum í gærkvöldi og engin íslendingur er meðal hinna látnu. Fjöldi manns hafði samband við utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í gær, bæði til að spyrjast fyrir um vini og ættingja,  og til að láta vita af sér. Nú munu aðeins vera þrír Íslendingar í Lundúnum, sem ekki er vitað nákvæmlega um, en ekki er þó óttast um þá.

Íslendingar í London

Tekist hefur að hafa upp á öllum þeim Íslendingum sem óttast var um í gær í kjölfar hryðjuverkaárásanna í London. Að sögn Illuga Gunnarssonar aðstoðarmanns utanríkisráðherra hafði Utanríkisráðuneytið lista með tvö til þrjú hundruð nöfnum og hefur tekist að hafa upp á öllum sem voru á listanum.

Tvöfalda þróunaraðstoð

Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims lofuðu í gær að styrkja ríki Afríku um fimmtíu milljarða Bandaríkjadala, sem samsvarar 3.300 milljörðum íslenskra króna. Einnig var ákveðið að styrkja stjórnvöld í Palestínu um þrjá milljarða dala, eða um 200 milljarða íslenskra króna.

Ótti á Ítalíu

Mikill viðbúnaður hefur verið hjá ítölsku lögreglunni í kjölfar hryðjuverkaárásanna í London í fyrradag en leynileg samtök Al-Kaída í Evrópu, sem lýstu ábyrgð árásanna á hendur sér, tiltóku Ítalíu og Danmörku sérstaklega sem skotmörk fyrir stuðninginn við innrásir í Írak og Afganistan.

Mikið bloggað eftir árásirnar

Fjöldamargir virðast hafa leitað á náðir bloggsins eftir árásirnar í Lundúnum. Þeir sem voru í nánd við árásirnar hafa skrifað um reynslu sína og birt myndir teknar með GSM-símum á vettvangi.

Taldi sig sjá grunsamlegan mann

Farþegar í strætisvagni sem var sprengdur telja sig hafa séð sjálfsmorðssprengjuárásarmann um borð í honum. Eitt vitni segir að maðurinn hafi hegðað sér grunsamlega, virst stressaður og hafi sífellt fitlað við eitthvað í bakpokanum sínum.

Hrósar þrautseigju þjóðarinnar

Karl Bretaprins hrósaði í gær þrautseigju bresku þjóðarinnar í kjölfar hryðjuverkaárásanna. Hann heimsótti St. Mary´s sjúkrahúsið í London ásamt konu sinni, Camillu Parker Bowles, en sjúkrahúsið er einmitt skammt frá neðanjarðarlestarstöð þar sem ein af sprengjunum sprakk í fyrradag.

Lífið í Lundúnum heldur áfram

Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður, er í London og hún segir ótrúlegt að meiri háttar hryðjuverkaárás hafi verið gerð í borgina í gær því lítil ummerki eru sýnileg. Hún segir að það sé í við rólegra í borginni en á hefðbundnum föstudegi og ekki að sjá að borgin sé í helgreipum óttans. Lundúnabúar virðast ekki ætla að láta sigra sig svo auðveldlega.

Dvelja áfram við Tavistock torg

Búið er að finna alla þá Íslendinga sem voru í London í gær.  Bæði þá tvö þúsund sem hér búa og einnig þá Íslendinga sem voru á ferðalagi. Íslensk fjölskylda sem gisti á hóteli við Tavistock torg horfði á sprenginguna í strætisvagningum.

Minnst fimmtíu létust í árásunum

Tala látinna eftir sprengjuárásirnar í Lundúnum á fimmtudagsmorgun var í gærkvöld komin í 49, að sögn lögreglu ytra og ljóst að hún ætti enn eftir að hækka. 22 voru enn sagðir í lífshættu og ekki er vitað um afdrif fjölda fólks. Ekki liggja þó fyrir upplýsingar um nákvæmlega hversu margra er saknað. Hinir látnu voru af átta þjóðernum hið minnsta.

ESB ræðir öryggismál eftir árásir

Charles Clarke, innanríkisráðherra Breta, stýrir viðbragðsfundi dóms- og innanríkisráðherra Evrópusambandsríkjanna á miðvikudaginn í næstu viku. Meta á öryggisviðbrögð Evrópusambandsins eftir árásirnar í Lundúnum á fimmtudag, að því er fram kemur í tilkynningu breskra stjórnvalda í gær, en Bretar fara með forsæti í sambandinu..

Franskri þotu snúið frá BNA

Yfirvöld í Bandaríkjunum létu í gær snúa til baka farþegaþotu franska flugfélagsins Air France á leið Chicago frá París vegna þess að einn farþeganna um borð þótti grunsamlegur. Vélin hafði þá verið í loftinu í um tvo klukkutíma, að því er fréttastofa BBC segir.

Bretar ósammála um næstu skref

Menn greinir á um hvort rétta leiðin til að bregðast við hryðjuverkaárásunum í London sé að heyja áfram stríðið gegn hryðjuverkum eða hvort eina leiðin til friðar sé að ráðast gegn þeirri fátækt og fáfræði, sem er gróðrarstía hryðjuverka.

Lífið heldur áfram í London

Rúmum sólarhring eftir að sprengjuárásirnar dundu yfir Lundúnir var lífið í borginni smátt og smátt farið að færast í sitt fyrra horf. Svipaða sögu er að segja um sumarfrí íslenskrar fjölskyldu sem Sveinn Guðmarsson hitti á Leicester Square. </font /></b />

Þögnin grúfir yfir torginu

Sorgin liggur í loftinu á götunum sem liggja að Tavistock Square og hún verður greinilegri eftir því sem nær dregur. Í það minnsta þrettán manns biðu bana þegar strætisvagn sem þeir voru í sprakk í loft upp við torgið og fjölmargir slösuðust.

Allir Íslendingarnir fundnir

Starfsmenn utanríkisráðuneytisins og sendiráðsins í Lundúnum hafa gengið úr skugga um að enginn Íslendingur var á meðal fórnarlamba tilræðanna í fyrradag.

Fimmtán hið minnsta létust

Fellibylurinn Dennis olli gríðarlegu tjóni þegar hann reið yfir Kúbu í kvöld. Í það minnsta tíu manns létu lífið þegar vindurinn fór á 215 kílómetra hraða á klukkustund yfir eynna. Skömmu áður en fellibylurinn reið yfir Kúbu hafði hann farið yfir Haiti, þar létust fimm hið minnsta.

16 ára palestínskur piltur drepinn

Ísraelskir hermenn drápu í morgun sextán ára gamlan palestínskan uppreisnarmann. Að sögn vitna byrjuðu lætin á því að nokkur ungmenni hentu steinum í hermennina sem svöruðu með byssuskotum.

Sprengingar í Lundúnum

Röð sprenginga hefur átt sér stað í neðanjarðarlestakerfi Lundúna undanfarnar mínútur. Að sögn lögeglunnar á svæðinu eru einhver meiðsli á fólki en ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu alvarleg þau eru eða eða hversu umfangsmikill mannskaðinn er.

Fjöldi slasaðra í Lundúnum

Innanríkisráðherra Bretlands, Charles Clarke, sagði í samtali við fjölmiðla fyrir stundu að þó nokkur fjöldi fólks hefði slasast í sprengingunum í Lundúnum í morgun. Talsmaður lögreglunnar vill ekki fullyrða að um hryðjuverkaárás sé að ræða á þessari stundu.

Sjá næstu 50 fréttir