Erlent

Kardínálarnir loka sig af

Kardínálarnir 115 sem fá að kjósa nýjan páfa hafa nú lokað sig inni í Sixtínsku kapellunni í Vatíkaninu. Þúsundir manna bíða á Péturstorginu til að sjá reykinn liðast upp eftir fyrstu atkvæðagreiðsluna sem gæti allt eins orðið í kvöld. Hann verður líklega svartur en hvítur reykur gefur til kynna að búið sé að kjósa páfa.

Búist er við að það muni taka nokkra daga fyrir kardínálana að komast að niðurstöðu en að jafnaði er kosið tvisvar á dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×