Fleiri fréttir

Hvíta reyksins beðið

Kjörfundur hófst í Páfagarði í gær en kardinálunum tókst ekki að komast að samkomulagi um nýjan páfa í fyrstu umferð. Í predikun fyrir kjörfundinn lýsti Ratzinger kardináli afstæðishyggju sem einni helstu ógn nútímans.

Reykur upp úr strompinum

Þær fréttir voru að berast frá Róm að svartur reykur hefði stigið upp um strompinn á Sixtínsku kapellunni. Það þýðir að þegar hefur verið gengið til einnar atkvæðagreiðslu um nýjan páfa en enginn hefur fengið tilskilinn meirihluta.

Ibarretxe í klemmu

Flokki hófsamra baskneskra þjóðernissinna mistókst að ná meirihluta á löggjafarsamkomu Baskalands í kosningum sem haldnar voru þar á sunnudag.

Eldgos á Kómoreyjum

Þúsundir manna urðu að flýja heimili sín á Kómoreyjum í gær eftir að eldfjallið Karthala byrjaði að gjósa. Ekki er þó talið að nokkur sé í bráðri hættu.

Sérkennileg uppákoma

Svo virðist sem gíslatakan í smábænum Madain í Írak hafi verið orðum ofaukin. Íraskar öryggissveitir réðust inn í bæinn í gærmorgun en mættu engri mótspyrnu og fundu enga gísla. Í staðinn hittu þeir fyrir íbúa bæjarins sem inntu sín daglegu störf af hendi í friði og spekt.

Brottflutningi frestað

Bakslag virðist komið í friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs eftir að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að til greina kæmi að fresta brottflutningi landnema frá Gaza-svæðinu í sumar um þrjár vikur svo að hann bæri ekki upp á sérstakri sorgarhátíð gyðinga.

Kosningar á Kúbu

Sveitarstjórnarkosningar voru haldnar á Kúbu um helgina. Fidel Castro, forseti landsins, sagði í ávarpi sínu til þjóðarinnar að kosningarnar væru þær lýðræðislegustu í heimi.

Hundrað milljón börn án skólagöngu

Mun færri stúlkur en drengir njóta lágmarksmenntunar og er ástandið sérstaklega bágborið í þróunarlöndunum. Eitt hundrað milljónir barna víða um heim fara á mis við skólagöngu.

Berlusconi enn í embætti

Mikil óvissa ríkir í ítölskum stjórnmálum þessa stundina um framtíð ríkisstjórnar Silvio Berlusconi.

Tilgangslaust að hitta Kínaforseta

Forsætisráðherra Japans segir tilgangslaust að hitta forseta Kína ef það verði aðeins til þess að þeir skattyrðist. Bæði löndin krefjast þess að hitt biðjist afsökunar.

Ekki vitað um manntjón

Þúsundir íbúa Comoros-eyja flýðu heimili sín í dag þegar eldgos hófst á stærstu eyjunni. Öllu flugi til landsins hefur verið hætt. Ekki er vitað til þess að neitt manntjón hafi orðið.

Friðrik og Mary á faraldsfæti

Friðrik, krónprins af Danmörku, og Mary eiginkona hans hafa gert víðreist undanfarin misseri. Þau eru búin að heimsækja Ástralíu, föðurland Mary, og eru nú í heimsókn í Japan þar sem þau hittu krónprins landsins í dag.

Óljóst með fjölda gísla í Madaen

Hundruð írakskra og bandarískra hermanna umkringdu í gærkvöldi bæinn Madaen, skammt frá Bagdad, og bjuggu sig undir áhlaup til að bjarga sjítum sem mannræningjar héldu í gíslingu. Það voru súnnítar sem héldu gíslunum og hótuðu að drepa þá, hyrfu ekki allir sjítar af svæðinu. Embættismenn í Bagdad segja mannræningjana hafa allt að hundrað og fimmtíu manns í haldi sínu, þar á meðal börn og konur.

Kosið um sjálfstæðishugmyndir

Þingkosningar fara í dag fram í Baskalandi á Spáni. Litið er á kosningarnar sem mælikvarða á stuðning við hugmyndir sitjandi forsætisráðherra Baskalands, en þær gera meðal annars ráð fyrir því sem í raun er sjálfstæði. Juan Jose Ibarretxe, forsætisráðherra, segir að gengju hugmyndirnar í gegn þýddi það endalok átaka aðskilnaðarsinna en stjórnvöld í Madríd hafna hugmyndunum með öllu og segja þær brot á stjórnarskrá Spánar.

Grönduðu fimm olíuflutningabílum

Sprengja, sem talibanar komu fyrir, grandaði fimm olíuflutningabílum og særði þrjá ökumenn þeirra í Afganistan í morgun. Árásin var gerð skammt frá flugherstöð í Kandahar en þar er stærsta herstöð Bandaríkjanna í suðurhluta landsins.

Reynir að bæta samskiptin

Utanríkisráðherra Japans flaug í morgun til Kína til að koma á framfæri hörðum mótmælum japanskra stjórnvalda vegna róstursamra mótmæla og skemmdarverka á eigum Japana í Kína undanfarið. Hann vonast einnig til þess að geta lægt öldurnar nokkuð, en Kínverjar eru æfir vegna þess sem þeir segja tilraun Japana til að breiða yfir eigin grimmdarverk í seinni heimsstyrjöldinni.

Gripinn í baði í ókunnugu húsi

Japanskur lögreglumaður er í vandræðum eftir að hann kom heim eftir drykkjukvöld og hlammaði sér í baðkarið. Hann var handtekinn í baðinu þar sem í ljós kom að hann var alls ekki heima hjá sér heldur í baði í húsi skammt frá heimilinu. Hann var svo drukkinn að hann fór húsavillt og baðkaravillt.

Minnast frelsunar í Þýskalandi

Þúsundir manna sem lifðu af vistina í þremur þrælkunarbúðum nasista í Þýskalandi minnast þess um helgina að sextíu ár eru síðan þeir voru frelsaðir. Minningarathafnir hafa verið og verða haldnar í Ravensbruck, Bergen-Belsen og Sachsenhausen þar sem búðirnar voru, en tugir þúsunda, þar á meðal konur og börn, létust þar í síðari heimsstyrjöldinni af völdum hungurs, sjúkdóma, ofþreytu og í læknatilraunum.

Gerðu árangurslaust áhlaup

Hundruð írakskra og bandarískra hermanna gerðu í morgun áhlaup á bæ skammt frá Bagdad í von um að frelsa þar á annað hundrað gísla sem eru í haldi mannræningja.

Samskiptin ekki stirðari í áratugi

Samskipti stórveldanna í Asíu, Kína og Japans, eru nú verri en verið hefur um áratugaskeið. Japanar krefjast aðgerða og Kínverjar segjast ekki þurfa að biðjast afsökunar á neinu.

Fjórir látnir í rútuslysi í Sviss

Fjórir hið minnsta fórust þegar hópferðabíll steyptist niður í gljúfur í Suðvestur-Sviss í morgun. 28 farþegar voru í bílnum þegar hann rann út af veginum á milli Martigny og Sankti Bernharðsskarðs. Fjöldi fólks er slasaður en hópferðabíllinn steyptist niður hundrað og fimmtíu metra.

Blair víki á næsta kjörtímabili

Enginn annar kemur til greina sem eftirmaður Tonys Blairs en Gordon Brown og Blair ætlar að víkja fyrir honum á næsta kjörtímabili. Þetta fullyrða breskir fjölmiðlar í dag.

Aðskilnaður eður ei í Baskalandi

Aðskilnaður eður ei er spurningin sem kjósendur í Baskalandi á Spáni svara að líkindum í þingkosningum sem fram fara í dag.

Flýja vegna hugsanlegs eldgoss

Hundruð manna flýðu heimili sín í þorpum í hlíðum eldfjallsins Karthala á stærstu eyjunni í Kómoreyjaklasanum í dag eftir að svartur reykur liðaðist upp úr gíg fjallsins. Óttast er að fjallið fari að gjósa og að sögn yfirvalda á staðnum hefur jörð skolfið og sprungur myndast í fjallið í dag.

Fleiri látnir í rútuslysi

Að minnsta kost tíu manns eru nú látnir eftir að rúta steyptist ofan í gil í Suðvestur-Sviss í morgun. Rútan var á leið frá Bern í Sviss til Genúa á Ítalíu þegar hún rann út af veginum milli Martigny og Sankti Bernhardsskarðs og féll um 150 metra, en mikil snjókoma var í héraðinu í nótt. Björgunarmenn og þyrlur áttu í erfiðleikum með að komast að rútunni bæði vegna legu hennar og veðurs, en 28 voru í rútunni, líklega flestir Svisslendingar.

Sakar al-Qaida um mannrán í Madaen

Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, sakar al-Qaida hryðjuverkasamtökin um að standa á bak við mannránið í bænum Madaen skammt frá Bagdad, en þar eru súnnítar sagðir halda allt að 150 sjítum. Allawi sagði í dag að með þessu reyndu hryðjuverkasamtökin að efna til trúabragðastríðs og koma í veg fyrir framfarir í landinu.

Vandræði í Frakklandi vegna snjós

145 þúsund heimili í Suðaustur-Frakklandi eru án rafmagns eftir að rafmagnslínur skemmdust í mikilli ofankomu um helgina. Rafmagnsveitur hafa kallað út fimm hundruð manns til að gera við línurnar og búist er við að tvö til þrjú hundruð til viðbótar komi að verkinu.

Veðjað á Ratzinger í veðbönkum

Nú þegar aðeins tæpur sólarhringur er þangað til kardínálar kaþólsku kirkjunnar loka sig af í Sixtínsku kapellunni til að velja páfa keppast menn við að veðja um hver verði fyrir valinu. Ef mið er tekið af veðbönkum má búast við að hinn 78 ára Joseph Ratzinger, kardínáli frá Þýskalandi, verði kjörinn páfi.

Rispaði bíla í þágu listarinnar

Menn taka sér ýmislegt fyrir hendur í nafni listarinnar. Bretinn Mark McGowan hefur nú komist í fréttirnar fyrir heldur vafasamt uppátæki en hann rispaði lakkið á hátt í 50 bílum í Lundúnum og Glasgow með lykli í þágu listarinnar. Slík skemmdarverk á bílum eru ekki óalgeng nú til dags og segist McGowan einmitt hafa fengið hugmyndina þegar bíll systur hans var rispaður með þessum hætti.

Biðjast ekki afsökunar á mótmælum

Deilur Kínverja og Japana eru enn í hnút eftir fund utanríkisráðherra landanna í Peking í dag. Li Zhaoxing, utanríkisráðherra Kína, lýsti því yfir í dag að Kínverjar þyrftu ekki að biðjast afsökunar á mótmælum gegn japönskum stjórnvöldum í Kína undanfarnar þrjár helgar. Þar hafa æfir Kínverjar ætt um götur vog mótmælt nýrri japanskri kennslubók í sögu og segja að þar sé reynt að breiða yfir grimmdarverk Japana gagnvart Kínverjum í síðari heimsstyrjöldinni.

Hjálparstarfsmaður lést í árás

Þrír létust, þar á meðal starfsmaður mannúðarsamtaka, í sjálfsmorðssprengjuárás á herbílalest á hættulegasta vegi Íraks, veginum til alþjóðaflugvallarins í Bagdad. Hjáparstarfsmaðurinn, 27 ára bandarísk kona, var í bílalest á veginum þegar bílsprengja sprakk nærri bíl hennar með fyrrgreindum afleiðingum, en konan hafði bæði starfað í Írak og Afganistan.

Wolfensohn til Miðausturlanda

James Wolfensohn, fráfarandi forstjóri Alþjóðabankans og nýskipaður fulltrúi hins svokallaða kvartetts í Miðausturlöndum, hyggst heimsækja Ísrael og Palestínu í næstu viku. Frá þessu greindi hann í dag. Wolfensohn hefur m.a. verið falið að fylgjast með brottflutningi ísraelskra landnema frá Gasasvæðinu og þá hyggst hann beita sér fyrir efnahagslegri og félagslegri uppbyggingu á svæðum Palestínumanna.

Sex létust í átökum í Tógó

Að minnsta kosti sex létust í átökum stuðningsmanna stjórnar og stjórnarandstöðu í Lome, höfuðborg Afríkurríkisins Tógó, í gær. Þá slösuðust 150 á bardögunum sem blossuðu upp í kjölfar kosningafunda, en boðað hefur verið til þingkosninga í landinu eftir viku eftir þrýsting á alþjóðavettvangi.

Rúta ofan í gljúfur í Sviss

Tólf manns fórust og fimmtán slösuðust þegar rúta með 27 ferðamenn innanborðs rann 250 metra niður í gljúfur á svissneskum fjallavegi í gær.

Vilja efla viðskiptin

Leiðtogar Indlands og Pakistans samþykktu að efla viðskipti sín á milli á fundi sem var haldinn í Nýju Dehlí á Indlandi.

Minnast 25 ára sjálfstæðisafmælis

Stjórnvöld í Zimbabwe minnast þess í dag að 25 ár eru liðin síðan landið öðlaðist sjálfstæði frá Bretlandi. Mikil athöfn verður haldin á Rufaro-fótboltaleikvanginum þar sem sjálfstæði Rhódesíu var lýst yfir árið 1980 og nafni landsins breytt í Zimbabwe..

Páfakjör hefst á morgun

Rottweiler guðs gæti orðið næsti páfi sé eitthvað að marka sögusagnir í Róm. Hundrað og fimmtán kardínálar eru leikmennirnir í valdatafli sem fram fer í Páfagarði milli íhaldssamra og frjálslyndari kaþólikka.

60 ár liðin frá frelsun

Hundruð manna sem komust lífs af úr "vinnubúðum" nasista í Ravensbrück, Bergen-Belsen, og Sachsenhausen í Þýskalandi, tóku þátt í minningarathöfn í gær í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá því að búðirnar voru leystar upp.

Upplýsingar Vilhjálms hafa áhrif

Upplýsingar Vilhjálms Arnar Vilhjálmssonar um örlög gyðinga í Danmörku hafa sífellt meiri áhrif. Nú hafa afkomendur gyðinga sem dönsk stjórnvöld vísuðu úr landi krafist opinberrar afsökunarbeiðni.

Tókst á við hákarl og hafði betur

Karlmennska eða fífldirfska er spurningin sem vaknar þegar brimbrettakappinn Simon Letch er annars vegar. Hann var á brettinu sínu skammt undan ströndum Bronte Beach í Sydney í Ástralíu í gær þegar hákarl réðst á hann. Letch barðist við tveggja metra langan hákarlinn og hafði betur. Hann lét lífsreynsluna ekki mikið á sig fá heldur fór heim og kom aftur hálftíma síðar með nýtt bretti og skellt sér í brimið. Hitt brettið hafði hákarlinn bitið í sundur.

Ástandið í Madain óljóst

Helmingur gísla sem haldið var í bæ í Írak fékk frelsi að lokinni hernaðaraðgerð í dag. Hvorki íbúar né lögreglan í bænum kannast hins vegar við að nokkrum hafi verið rænt.

Áhlaup til frelsunar gísla

Íraskar öryggissveitir, studdar af bandarískum hermönnum, umkringdu í gær bæinn Madain suður af Bagdad, þar sem að sögn yfirvalda voru gerð áhlaup til að frelsa um fimmtán fjölskyldur sjía-múslíma sem var haldið í gíslingu af herskáum súnní-múslímum.

Kjörfundur hefst í Páfagarði

Kardínálarnir 115, sem kjósa munu arftaka Jóhannesar Páls II páfa, tíndust í gær með persónulegar föggur og hver sína sýn á framtíð kaþólsku kirkjunnar inn á hótelið í Páfagarði, næst Sixtínsku kapellunni, þar sem þeir munu sitja á rökstólum bak við luktar dyr næstu sólarhringana.

Þjóðernissinnar sigra í Baskalandi

Flokkur þjóðernissinna í Baskalandi, sem stefna að því að ná samkomulagi við Spánarstjórn um aukin sjálfstjórnarréttindi héraðsins, virtist hafa unnið sigur í kosningum þar í gær, án þess þó að ná hreinum meirihluta á héraðsþinginu.

Talat nýr forseti Kýpur-Tyrkja

Kýpur-Tyrkir kusu í gær nýjan forseta lýðveldis síns, sem Tyrkland, eitt ríkja heims, viðurkennir sem sjálfstætt ríki. Sigurvegarinn er Mehmet Ali Talat, en hann hefur það á stefnuskránni að sjá til þess að hinn tyrkneski hluti eyjarinnar fái líka aðild að Evrópusambandinu eins og gríski suðurhlutinn. 

Sjá næstu 50 fréttir