Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meðalhiti gæti hækkað um 11 stig Gróðurhúsaáhrifin gætu valdið mun viðameiri breytingum á veðurfari og lífsskilyrðum á jörðinni en áður hefur verið talið. Ný rannsókn bendir til þess að haldi fram sem horfi, gæti meðalhiti jarðar hækkað um ellefu gráður. 27.1.2005 00:01
Vill endurskoða barnaklámslöggjöf Dómsmálaráðherra Svíþjóðar vill láta endurskoða barnklámslöggjöfina með tilliti til þess hvort gera eigi refsivert að skoða barnaklám á Netinu. Enn fremur á að rannsaka hvort börn, sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi, eigi að fá hærri skaðabætur en þau fá nú. Í Svíþjóð er bannað að vista í tölvu klámefni með börnum en lögin ná ekki til þess að skoða það á skjánum. 27.1.2005 00:01
Bandaríkjamenn starfi með öðrum Bandaríkjamenn verða að starfa með öðrum þjóðum að því að bregðast við alheimsógn á borð við hryðjuverk. Þetta segir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Hann segir Bandaríkjamenn hafa áttað sig á því að þeir geti ekki staðið einir í baráttunni en að þeir verði að bregðast við áhyggjum og sjónarmiðum annarra þjóða geri þeir sér vonir um samvinnu. 27.1.2005 00:01
80.000 börn létust í Indónesíu Áttatíu þúsund börn týndu lífi í náttúruhamförunum í Indónesíu á öðrum degi jóla að mati sérfræðinga samtakanna Save the Children. Að auki reika tugir þúsunda barna um hörmungasvæðið í leit að foreldrum sínum sem aldan hreif með sér. Talið er að fjórir af hverjum tíu sem fórust hafi verið börn, sem þýðir að allt að 119 þúsund börn hafi farist. 27.1.2005 00:01
Reyna að hindra kosningar í Írak Fimmtán Írakar og bandarískur hermaður liggja í valnum eftir átök dagsins í Írak. Uppreisnarmenn þar eru staðráðnir í að koma í veg fyrir kosningarnar á sunnudaginn með öllum ráðum. 27.1.2005 00:01
Framtíð Íraks veltur á al-Sistani Framtíð Íraks veltur að stórum hluta á einum manni. Sá nefnist æjatolla Ali al-Sistani og er talinn áhrifamesti maður Íraks. 27.1.2005 00:01
Níu áratugir átaka Afskipti erlendra stjórnvalda, innlendir einræðisherrar og núningur ólíkra þjóðarbrota og trúarhópa hefur leitt til þess að saga Íraks hefur að miklu leyti einkennst af átökum. Átökin í landinu verða því að sumu leyti að skoðast í ljósi sögunnar sem hefur á köflum verið blóði drifin. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Ekki endastöð heldur upphaf Írösku kosningarnar eru upphafið að stjórnmálaferli sem ljúki með sátt um uppbyggingu íraska stjórnkerfisins. Margar hættur eru þó enn fyrir hendi og jafnvel möguleiki á að kosningarnar og eftirleikur þeirra leiði til enn verra ástands en nú er. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Helfararinnar minnst Fjölmargir gyðingar sem lifðu af helför nasista í seinni heimsstyrjöldinni komu saman í útrýmingarbúðunum Auschwitz-Birkenau í gær til að minnast þess að 60 ár voru liðin síðan sovéskir hermenn frelsuðu gyðinga úr búðunum. Sex milljónir gyðinga létust í helförinni. 27.1.2005 00:01
Sinnuleysi gagnvart Afríku Fátæktin í Afríku er sem "ör á samvisku heimsins." Þetta sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á Alheimsráðstefnunni um efnahagsmál sem haldin er í Davos í Sviss. 27.1.2005 00:01
Frelsunar úr Auschwitz minnst Einhver nöturlegasti staður á jörðu er án efa Auschwitz, útrýmingabúðir nasista í Póllandi. Í dag var þess minnst að sextíu ár eru frá því að fangarnir þar voru frelsaðir. 27.1.2005 00:01
Abbas bannar vopnaburð Palestínsk stjórnvöld hafa bannað almenningi að bera vopn og þykir ákvörðunin bera vitni um herta afstöðu stjórnarinnar gagnvart ofbeldi gegn Ísraelum. 27.1.2005 00:01
Ráðist á bandaríska bílalest Bílsprengja sprakk í morgun á vegi sem liggur að að alþjóðaflugvellinum í Bagdad. Bandarísk bílalest var á veginum og er talið að árásin hafi beinst að henni. Ekki hafa borist fregnir af mannfalli enn sem komið er. 26.1.2005 00:01
Spáð enn meiri hallla Fjárlagahallinn í Bandaríkjunum á næsta ári verður um 25 þúsund milljarðar íslenskra króna. Þessu spáir fjárhagsskrifstofa Bandaríkjaþings í árlegri úttekt sinni. Jafnframt er því spáð að uppsafnaður fjárlagahalli næstu tíu ára muni nema nærri 80 billjónum íslenskra króna. 26.1.2005 00:01
Erfið staða barna í Suðaustur-Asíu Börn í löndunum sem verst urðu úti í hamförunum annan dag jóla búa sig nú undir að hefja skólagöngu á nýjan leik. Á Srí Lanka eru milljón börn enn án heimilis og ekkert útlit fyrir að það breytist í bráð. Þau hafast við í bráðabirgðaskýlum og þiggja mat frá hinu opinbera. 26.1.2005 00:01
Banni á viðræður við Abbas aflétt Ariel Sharon, forætisráðherra Ísraels, hefur aflétt banni á friðarviðræður við Mahmoud Abbas, nýjan leiðtoga Palestínumanna. Bannið var sett á eftir að sex Ísraelsmenn létu lífið í fyrirsát palestínskra uppreisnarmanna við Gasaborg fyrir um það bil tveim vikum. 26.1.2005 00:01
Líklegri til að verða of feit Börn of feitra mæðra eru fimmtán sinnum líklegri en önnur börn til þess að þjást af offitu strax við sex ára aldur, samkvæmt niðurstöðum nýrrar bandarískrar rannsóknar. Frá þriggja ára aldri fer að koma fram afgerandi munur á holdafari barna sem eiga mæður í kjörþyngd og þeirra sem eiga of feitar mæður. 26.1.2005 00:01
Handtekinn fyrir hryðjuverkagabb Bandaríska alríkislögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa logið því að lögregluyfirvöldum fyrir helgina að fjórir Kínverjar hyggðust fremja hryðjuverk í Boston. Öryggisgæsla var hert til muna í nágrenni borgarinnar í lok síðustu viku af ótta við hryðjuverk og ríkisstjórinn í Masachusetts sneri heim af embættistöku George Bush Bandaríkjaforseta vegna málsins. 26.1.2005 00:01
Danska verði eina opinbera málið Danski þjóðarflokkurinn vill binda í lög að danska verði eina málið í opinberum gögnum í stað þess að upplýsingar til íbúa verði á mörgum tungumálum. Samt eru tíu erlend tungumál notuð til að kynna málstað flokksins á heimsíðu hans. 26.1.2005 00:01
Skriður kominn á friðarferlið Skriður virðist kominn á friðarferlið í Miðausturlöndum. Báðum megin borðsins virðist vilji til að vinna að friðsamlegri lausn deilna Ísraela og Palestínumanna og það að því er virðist sem fyrst. 26.1.2005 00:01
Fórnarlamba minnst við Indlandshaf Mánuði eftir flóðbylgjuna í Indlandshafi var þeirra sem fórust minnst í morgun, en víða er ástandið enn svo bágborið að engar athafnir fóru fram. Reynt er eftir fremsta megni að koma lífinu í gang á ný, en milljóna sem hafast við í tjaldbúðum bíður óviss framtíð. 26.1.2005 00:01
Börn í 33 ríkjum þarnast hjálpar Neyð barnanna á hamfarasvæðunum í Asíu er mikil, en það á því miður við víðar. Samkvæmt skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, þarf 48 milljarða króna til að hjálpa börnum í 33 löndum þar sem neyðarástand ríkir og þar sem lífi barna er ógnað fjarri athygli almennings. Af þessum 33 löndum sem nefnd eru í skýrslunni eru tveir þriðju í Afríku. 26.1.2005 00:01
Linnulausar árásir í Írak Einhver hættulegasti vegarkafli heims var eitt skotmarka hryðjuverkamanna í Írak í morgun. Endalausar árásir hafa dunið á hersveitum og óbreyttum borgurum í nótt og í morgun. 26.1.2005 00:01
31 sagður látinn í þyrsluslysi Þrjátíu og einn bandarískur landgönguliði fórst þegar stór flutningaþyrla hrapaði í vesturhluta Íraks í dag að sögn CNN-fréttastofunnar. Ekki er vitað hvað olli því að þyrlan hrapaði. Bandaríska herstjórnin í Írak staðfestir að manntjón hafi orðið en kveðst ekki að sinni geta staðfest tölu látinna. 26.1.2005 00:01
Krefjast 100 milljóna Ræningjar sænska auðkýfingsins Fabians Bengtssons hafa krafið fjölskyldu hans um sem svarar 100 milljónum íslenskra króna. Bengtsson, sem er þrjátíu og tveggja ára gamall, var rænt mánudaginn 17. janúar þegar hann var á leið til vinnu, en hann er aðstoðarforstjóri fjölskyldufyrirtækisins Siba. 26.1.2005 00:01
Þriðja versta afkoma ríkissjóðs Fjárlög fyrir árið 2006 verða lögð fram á bandaríska þinginu 7. febrúar. Þar er gert ráð fyrir fjárlagahalla upp á rúma 16.700 milljarða. En fáir trúa að við það verði staðið. Frá 1962 hefur ríkið oftar verið rekið með halla, en ekki. 26.1.2005 00:01
Þrískipt Írak er möguleiki Kúrdar gætu haft framtíð Íraks í sínum höndum en margir þeirra geta vel hugsað sér að landið verði eingöngu lauslegt ríkjasamband eða að það verði jafnvel brotið niður í þrjú sjálfstæð ríki 26.1.2005 00:01
Rússum fækkar ört Dauðsföll í Rússlandi eru umtalsvert fleiri en fæðingar og hefur Rússum fækkað um fimm milljónir á síðustu tíu árum. Íbúar Rússlands eru nú rúmlega 143 milljónir en ef heldur fram sem horfir gætu þeir verið orðnir 100 milljónir árið 2050. 26.1.2005 00:01
Spurning um stjórnarskrá ESB kynnt Barátta Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, fyrir því að fá stjórnarskrá Evrópusambandsins samþykkta í landinu hófst í dag þegar greint var frá því hvaða spurningar Bretar verða spurðir í þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrána. Hún er svohljóðandi: Á Stóra-Bretland að samþykkja samninginn sem staðfestir stjórnarskrá Evrópusambandsins? 26.1.2005 00:01
Segja auðgun úrans óviðunandi Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hafa sagt Írönum að það sé óviðunandi að þeir viðhaldi áætlun sinni auðgun úrans þar sem hægt sé að nota það til að smíða kjarnorkuvopn. Íranar hættu tímabundið að auðga úran en segja nú að það sé réttur þeirra sem sjálfstæðrar þjóðar að framleiða eldsneyti fyrir kjarnorkuver og þeir muni aldrei hætta því. 26.1.2005 00:01
Hóta að rjúfa vopnhlé Al-Aqsa herdeildirnar, sem tilheyra Fatah-hreyfingu Mahmouds Abbbas, forseta Palestínu, hóta að rjúfa vopnhlé ef ísraelski herinn hætti ekki að elta uppi félaga í herdeildunum innan sólarhrings. Þessi yfirlýsing kom í kjölfar þess að óeinkennisklæddir ísraelskir hermenn skutu félaga í herdeildunum og særðu 14 ára vegfaranda í áhlaupi á borgina Qalqilya á Vesturbakkanum í dag. 26.1.2005 00:01
Stefnir í sigur Rasmussens Nýjustu skoðanakannanir í Danmörku benda til þess að samsteypustjórn Anders Foghs Rasmussens muni vinna stórsigur á jafnaðarmönnum í kosningunum í næsta mánuði. Samkvæmt þeim munu ríkisstjórnarflokkarnir fá 100 þingmenn kjörna, en 179 sæti eru á danska þinginu. Í síðustu kosningum, árið 2001, fengu stjórnarflokkarnir 98 þingsæti. 26.1.2005 00:01
Níu létust í lestarslysi í L.A. Að minnsta kosti níu létu lífið og rúmlega hundrað slösuðust þegar farþegalest fór út af sporinu og ók á aðra farþegalest og flutningalest í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Samkvæmt CNN-fréttastofunni virðist sem farþegalestin hafi ekið á bíl sem var á teinunum, farið út af sporinu og rekist í aðra farþegalest og svo klesst á flutningalest. 26.1.2005 00:01
Vill skatt til baráttu gegn alnæmi Jacques Chirac, forseti Frakklands, lagði í dag til að lagður yrði á alþjóðlegur skattur til þess að berjast gegn alnæmi í heiminum. Slíkan skatt væri til dæmis hægt að leggja á milliríkjaviðskipti og einnig á eldsneyti fyrir skip og flugvélar og á flugfarseðla. Franski forsetinn sagði að með slíkum skatti væri hægt að öngla saman tíu milljörðum dollara á ári. 26.1.2005 00:01
Árásahrina í Írak í dag Allt logaði í Írak í dag. Hrina árása kostaði ekki færri en sjö lífið og fjöldi særðist. Áætlað er að stíðsreksturinn kosti Bandaríkjamenn um hálfan milljarð á klukkustund. 26.1.2005 00:01
Börn í Asíu þurfa mikla hjálp Yngstu fórnarlömb hamfaranna í Asíu þurfa mikla hjálp, bæði andlega og líkamlega. Áhersla er lögð á að koma þeim til hjálpar en að gleyma ekki tugmilljónum annarra barna um allan heim, sem búa við bág kjör. Í 33 löndum er líf milljóna barna í bráðri hættu. 26.1.2005 00:01
Enn tíu ár til stefnu Tíu ár munu líða áður en Tyrkland er í stakk búið að gerast aðili að Evrópusambandinu, sagði Ali Babacan, efnahagsmálaráðherra tyrknesku ríkisstjórnarinnar, á fundi um efnahagsmál sem haldinn er í Davos í Sviss. 26.1.2005 00:01
Vill hefja viðræður 2007 "Það verður mjög mikilvægt að hefja viðræður um samskiptin við Evrópusambandið árið 2007," sagði Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu. Hann sagði aðild að Evrópusambandinu mikilvægan valkost fyrir land sitt en hélt opnum þeim möguleika að samskiptin yrðu með öðrum hætti. 26.1.2005 00:01
Mannskæðasta þyrsluslysið í Írak 31 bandarískur hermaður lét lífið þegar stór flutningaþyrla hrapaði í slæmu veðri í vesturhluta Íraks. Slysið er mannskæðasta þyrluslys Bandaríkjahers frá því að innrásin í Írak hófst fyrir tæpum tveimur árum. 26.1.2005 00:01
Rice orðin utanríkisráðherra Öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti í gær skipun Condoleezza Rice í embætti utanríkisráðherra. 85 þingmenn greiddu atkvæði með skipun Rice en þrettán á móti. Það hefur ekki gerst frá lokum seinni heimsstyrjaldar að svo margir þingmenn hafi greitt atkvæði gegn skipan utanríkisráðherra. 26.1.2005 00:01
Vill útrýma klámiðnaðinum Matt Bartle, þingmaður repúblikana á ríkisþingi Missouri, hefur lagt fram frumvarp sem á að ganga af klámiðnaðinum dauðum í ríkinu. Áður hefur ríkisþingið samþykkt bann við veggspjöldum sem gera út á kynþokka og því að stúlkur undir nítján ára aldri vinni við nektardans. 26.1.2005 00:01
Hvíta húsið með yfirlýsingu Davíðs Í yfirlýsingu Davíðs Oddssonar frá 18. mars 2003, sem finna má á vef Hvíta hússins, vísar hann til yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar um deilurnar í Írak. Ekki var hægt að fá uppgefið frá ráðuneytum hvaða yfirlýsingu var verið að vísa til. </font /></b /> 26.1.2005 00:01
Maður í sjálfsvígshug banaði tíu Tíu létu lífið þegar maður í sjálfsvígshugleiðingum ók í veg fyrir lest í úthverfi Los Angeles. Sjálfur hætti maðurinn hins vegar við sjálfsvígið á síðustu stundu, fór út úr bílnum rétt áður en lestin lenti á honum og slapp því lifandi. 26.1.2005 00:01
NCC neitar kostnaðaráætlun Øyvind Kvaal, talsmaður sænska verktakafyrirtækisins NCC, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að ekkert væri til í því að fyrirtækið hefði gert kostnaðaráætlun fyrir gerð jarðganga til Vestmannaeyja. Hópur Eyjamanna með Árna Johnsen í fararbroddi kynnti slíka kostnaðaráætlun í nafni fyrirtækisins í síðustu viku. 26.1.2005 00:01
300 milljarðar $ vegna hryðjuverka Bandaríkjastjórn ætlar að fara fram á áttatíu milljarða dollara aukafjárveitingu vegna stríðsrekstursins í Írak og Afganistan. Heimildarmenn innan Bandaríkjaþings segja að þetta verði tilkynnt í dag. Verði beiðnin samþykkt hafa nærri 300 milljarðar bandaríkjadala farið í baráttuna gegn hryðjuverkum síðan 11. september árið 2001. 25.1.2005 00:01