Segir afstöðu ráðast af fordómum 21. janúar 2005 00:01
Írak og Íran eru þau ríki sem eru efst á verkefnalista George Bush í utanríkismálum. Víða á Vesturlöndum eru þessi lönd álitin vandamál. Magnús Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum Miðausturlanda, hefur ritað nýja bók þar sem hann fjallar um sögu þessara ríkja, menningu þeirra og trúarbrögð. Hann segir afstöðu Vesturlanda ráðast meira af innanríkispólitík og fordómum en nokkru öðru. Óhætt er að segja að þungamiðja utanríkisstefnu Bandaríkjanna undanfarin ár hafi verið Íraksstríðið. Deilt er um réttmæti þess og tilgang og hvernig hægt sé að binda enda á óöldina þar. Á sama tíma berast fregnir af áhuga Bandaríkjastjórnar á Íran og að jafnvel sé lagt á ráðin um að ráðast þar inn. Íran er efst á lista bandarískra stjórnvalda yfir vandræðasvæði víðs vegar um heiminn, að sögn Dicks Cheneys, varaforseta Bandaríkjanna, sem segist hafa að því áhyggjur að Ísraelsmenn láti til skarar skríða gegn Írönum. Ljóst er að athygli heimsbyggðarinnar mun áfram beinast að þessum heimshluta. Magnús Þorkell Bernharðsson er sérfræðingur í málefnum Miðausturlanda og hann telur líkurnar á innrás minni en fyrir nokkrum misserum, einkum þar sem herinn situr fastur í Írak. Og hann telur vænlegt að minnka jafnvel afskiptin af málefnum þessara þjóða. Mikilvægast sé að þjóðir Afríku og Miðausturlanda, þá sérstaklega Írak og Íran, upplifi að þær séu sjálfstæðar og þær fái að lifa í friði án þess að eiga von á erlendri íhlutun hvenær sem er. Þessar þjóðir séu sjálfstæðar hvort sem okkur líki það betur eða verr og hafi fullan rétt á því að taka ákvarðanir um eigin framtíð. Magnús telur vanþekkingu á málum Íraks og Írans vera áberandi á Vesturlöndum. Á hverju byggja þá stjórnmálamenn afstöðu sína? Magnús segir að þeir byggi hana á forsendum innríkisstjórnmála og fordómum. Fordómar verði til vegna vankunnáttu. Mörgum finnist lítil rökhugsun í gerðum fólks í Miðausturlöndum en almennt hafi fólk rökhugsun og telji sig taka rétta ákvörðun út frá eigin veruleika. Spurningin sé því hvernig við getum kynnt okkur best þann veruleika og hvaða forsendur íbúar hafa þar þegar þeir taki sínar ákvarðanir. Það sé miklu mikilvægara en að miða allt út frá gildum eða forsendum Vesturlanda. Þær skipti engu máli fyrir Íraka og Írana.
Erlent Fréttir Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Sjá meira