Fleiri fréttir

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Biðlistar eftir greiningum hafa nærri tvöfaldast á einu ári og segir yfirlæknir dæmi um að foreldrar tilkynni sig sjálfir til barnaverndar til að reyna að fá aðstoð. Við fjöllum um málið.

Aukin skattheimta og „sanngjarnari“ veiðigjöld
„Við erum að undirbúa fjármálaáætlun. Það er alveg ljóst að við munum þurfa að horfa til þess í fjármálaáætlun að stuðla að því að slá verðbólguna niður, og það gerist auðvitað fyrst og fremst með því að annars vegar að auka tekjuöflun og hins vegar með því að slá niður útgjöld,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um nýja fjármálaáætlun sem kynnt verður í vikunni.

Rannsóknir þingmanna um rafbyssur stönguðust hver á við aðra
Þingmaður Pírata segir rannsóknir sýna að rafbyssur auki ekki öryggi. Valdbeiting gegn almennum borgurum hafi hins vegar aukist. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa séð rannsóknir af öndverðum meiði.

Lóan er komin
Lóan, vorboðinn ljúfi, er komin til landsins.

Ferðamenn áhyggjuefni í skyndilegri vetrarfærð
Vegagerðin hefur áhyggjur af ferðamönnum á Suðurlandi vegna slæms skyggnis og snjókomu. Á Suðurlandi snjóaði duglega í morgun en bakkinn hefur færst austur eftir Suðurströndinni í dag.

Páll gefst ekki upp og blæs til söfnunar
Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, hefur sett af stað söfnun fyrir málskostnaði vegna áfrýjunar til Landsréttar. Páll var í vikunni dæmdur til að greiða blaðamönnum Kjarnans miskabætur vegna ummæla sem hann lét falla í tengslum við Samherjamálið.

Segir íslenska háskóla skrapa botninn
Háskólaráðherra gefur háskólum hér á landi falleinkunn og segir gæði kennslu skrapa botninn meðal Norðurlandanna. Hún hyggst umbreyta fjármögnun skólanna

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Háskólaráðherra gefur háskólum hér á landi falleinkunn og segir gæði kennslu skrapa botninn meðal Norðurlandanna. Hún hyggst umbreyta fjármögnun skólanna. Við fjöllum um málið.

Flúði land með heyrnarlaus börn vegna aðgerðarleysis stjórnvalda
Móðir tveggja heyrnarlausra drengja gafst upp á því þjónustuleysi sem hún segir einkenna málefni heyrnarlausra barna og flutti fyrir rúmum tveimur vikum með fjölskylduna til Svíþjóðar þar sem hún segist fá sjálfsagða þjónustu.

Allt á kafi á Selfossi: „Eruð þið ekki að grínast?“
Íbúar á Selfossi, og reyndar víðar á Suðurlandi, vöknuðu við töluverðan snjó í morgun. Gul viðvörun er í gildi fram á kvöld og gert er ráð fyrir samgöngutruflunum vegna snjókomu.

Sprengisandur: Rafbyssur, efnahagsmálin, háskólar og orkuskipti
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur verður á sínum stað í dag, á Bylgjunni frá klukkan 10:00 til 12:00. Kristján Kristjánsson fær til sín góða gesti að venju og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu.

Afnám banns gæti rýmkað opnunartíma vínbúða yfir hátíðir
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins telur að svigrúm sitt til að rýmka opnunartíma vínbúða í kringum stórhátíðir ykist ef frumvarp um afnám banns við að búðirnar séu opnar á sunnudögum og hátíðardögum verður að lögum. Stofnunin leggst ekki gegn frumvarpinu.

„Við getum ekki látið draga okkur inn í þessa sjálfseyðingarhvöt ESB“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson alþingismaður segir nýjar reglur Evrópusambandsins um að sporna gegn mengun vegna flugsamgangna rústa samkeppnisstöðu Íslands. Hann segir svör ESB einkennast af óvirðingu. Ríkisstjórnin verði að standa á sínu.

Sonurinn beðinn um að hætta í fótboltanum
Sjö ára drengur þarf að bíða í allt að þrjú ár eftir komast að í einhverfugreiningu. Móðir hans hefur áhyggjur af því að hann fái greininguna of seint og segir að marga foreldrar í sömu sporum vera að bugast.

Gular viðvaranir á næsta leiti
Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi á morgun.

Rannsaka vinnubrögð verktakanna eftir sprenginguna
Vinnueftirlitið mun setja sig í samband við verktakafyrirtækið sem byggir húsið í Garðabæ þar sem sprenging varð í gær. Sérfræðingur hjá stofnuninni segir mikilvægt að sýna aðgát þegar unnið er með hættuleg efni.

Reiknað með 10 þúsund ferðamönnum á dag á Þingvöllum í sumar
Þjóðgarðsvörðurinn á Þingvöllum segist hlakka til sumarsins því þar er reiknað með met fjölda ferðamanna. Það kæmi þjóðgarðsverði ekki á óvart að allt upp í tíu þúsund manns muni ganga í Almannagjá á hverjum degi í ljósi þess hvað reiknað er með mörgum skemmtiferðaskipum til landsins.

Þyrlan í öðru verkefni og gat ekki náð í vélsleðamanninn
Þyrla Landhelgisgæslunnar var í notkun í öðru verkefni og komst því ekki að sækja vélsleðamann sem slasaðist við Gimbrarhnjúk í Göngustaðadal í Svarfaðardal í dag. Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning klukkan 15:30 og komu sjúkraflutninga- og björgunarsveitarmenn til aðstoðar.

Vafi féll þrítuga bróðurnum í vil
Maður á þrítugsaldri sem ákærður var í Borgarholtsskólamálinu svokallaða var sýknaður þar sem ekki tókst að sanna á hann líkamsárás. Lögmaður eins sakfelldu segir koma á óvart að fullorðnir menn, sem ekki sæki nám en komi inn í skóla og taki þátt í átökum, séu sýknaðir.

Slasaðist á Úlfarsfelli
Fjallgöngumaður slasaðist á ökkla á Úlfarsfelli í dag. Björgunarsveitin kom sjúkraflutningamönnum til aðstoðar.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Vinnueftirlitið mun setja sig í samband við verktakafyrirtækið sem byggir húsið í Garðabæ þar sem sprenging varð í gær. Sérfræðingur hjá stofnuninni segir mikilvægt að sýna aðgát þegar unnið er með hættuleg efni.

Segir skilaboðin fölsuð og vísar ásökunum á bug
Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur og umsjónarmaður Karlmennskunnar, vísar ásökunum, um að hann hafi setið um konu fyrir rúmum fimmtán árum síðan, á bug. Hann segir skilaboð, sem eiga að hafa verið send í hans nafni, fölsuð.

Nýtt björgunarskip til heimahafnar á Siglufirði
Eftir hádegi í dag kom nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Sigurvin, til hafnar á Siglufirði.

Þyrlan kölluð út í þriðja sinn: „Þetta eru óvenjumörg slys“
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út í þriðja sinn í dag vegna vélsleðaslyss sem varð á Gimbrahnjúk, vestan við Dalvík um hálf fimmleytið í dag. Um er að ræða þriðja útkall þyrlunnar í dag sem telst óvenjumikið.

Þyrlan aftur kölluð til vegna vélséðaslyss á Langjökli
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út skömmu eftir klukkan þrjú í dag vegna vélsleðaslyss á Jarlhettum, suður af Langjökli.

„Við vitum ekki hvernig þetta fór af stað“
Lögregla rannsakar nú sprengingarnar sem urðu í Garðabæ í gær þegar gaskútar sprungu í nýbyggingu í Garðabæ og flugu tugi metra. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að fólk hafi verið í verulegri hættu og því mildi að enginn hafi slasast. Eldsupptök eru enn ókunn.

Fluttur með þyrlu gæslunnar eftir alvarlegt fjórhjólaslys
Alvarlegt fjórhjólaslys varð við Hlöðuvallaveg undir Langjökli í morgun. Einn var fluttur slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Afsaka sig á Twitter á meðan aðrir velta sannleikanum fyrir sér
Yfirlýsing Eddu Falak og ritstjóra Heimildarinnar þess efnis að Edda hafi logið til um störf sín í Danmörku þar sem hún kveðst hafa orðið fyrir áreiti, hefur kallað fram misjöfn viðbrögð landsmanna á samfélagsmiðlum. Fjöldi fólks styður Eddu með þátttöku í #afsakið-herferð á meðan aðrir setja spurningamerki við trúverðugleika hennar. Edda segist sjálf ætla senda bardagakappann Gunnar Nelson á þann næsta sem fái hana á heilann.

„Gríðarlegur léttir að málinu sé lokið“
Margra ára skattsvikamáli hljómsveitarinnar Sigur rósar lauk í gær þegar að Landsréttur vísaði kröfu ríkisskattstjóra frá dómi. Lögmaður Jóns Þórs Birgissonar, eða Jónsa í Sigur rós eins og hann er oftast kallaður, segir skattstjóra hafa of víðtækar heimildir til kyrrsetningar.

„Ljúga, svíkja og plata fólk” vegna innfluttra kjötvara
„Það er verið að ljúga, svíkja og plata fólk” segir Hrafnhildur P. Þorsteinsdóttir, baráttukona í Reykjavík, sem berst fyrir því að innfluttar kjötvörur séu merktar rétt í íslenskum verslunum. Þá bætir hún við að það sé ömurlegt að sjá hvernig fyrirtæki, sem flytja inn kjötvörur komast upp með það að blekkja neytendur með uppruna kjötsins.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Lögregla rannsakar nú sprengingarnar sem urðu í Garðabæ í gær þegar gaskútar flugu tugi metra. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að fólk hafi verið í verulegri hættu og því mildi að enginn hafi slasast. Eldsupptök eru enn ókunn.

Aðgerðum lokið í Straumsvík
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu lauk í gærkvöld störfum á vettvangi í Straumsvík þar sem mikill sinubruni kviknaði í fyrradag. Varðstjóri segir að áfram sé þó fylgst grannt með svæðinu.

Dró upp hafnaboltakylfu í deilum við bensínstöð
Deilur á milli þriggja einstaklinga við bensínstöð í austurhluta borgarinnar enduðu með því að einn þeirra dró upp hafnaboltakylfu.

Vill að LED-skjár verði fjarlægður af strætó
Samgöngustofa mælist til þess að LED-skilti sem hengt var aftan á strætisvagn í tilraunaskyni verði tekið niður. Fyrirtæki sem selur auglýsingar í strætisvagna óskaði eftir að fá að prófa tæknina.

Neitar því að axarárásin hafi verið tilraun til manndráps
Rúmlega fimmtugur karlmaður viðurkenndi við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hafa ráðist að barnsmóður sinni með öxi á bílastæðinu við Dalskóla í Úlfarsárdal í nóvember. Hann neitaði því hins vegar að árásin hafi verið tilraun til manndráps.

Telur ekki rétt að loka svæðinu við Glym
Jarðverkfræðingur og björgunarsveitarmaður telur ekki rétt að loka gönguleiðum að Glym þrátt fyrir að svæðið sé vissulega hættulegt. Það hafi sýnt sig að lokanir hafi ekki tilætluð áhrif. Síðan árið 2014 hafa orðið 26 slys á svæðinu.

Lygilegt myndband sýnir vegfarendur á harðahlaupum frá sprengingunni
Vegfarendur áttu fótum sínum fjör að launa þegar seinni sprengingin varð í nýbyggingu í Eskiási í Garðabænum á fimmta tímanum í dag. Engan sakaði þegar tveir gaskútar sprungu og þeyttust tugi metra frá byggingunni. Lygilegt atvik af vettvangi náðist á myndband.

Kókaínneysla Íslendinga nær sér á strik eftir Covid
Doktor í líf- og læknavísindum segir að frárennsli á höfuðborgarsvæðinu sýni greinilega aukna notkun kókaíns. Neyslan hafi minnkað í faraldrinum. Talið sé að aukin velmegun geti útskýrt breytt neyslumynstur landsmanna.

Vilja nota skrifstofuhúsnæði undir flóttafólk
Ríkisstjórnin vill rýmka tímabundið reglur vegna búsetuúrræða fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Frumvarpsdrög voru send á þingflokka stjórnarflokka í morgun. Verði frumvarpið að lögum er hægt að nýta húsnæði, sem ekki var upphaflega hugsað til búsetu, undir flóttafólk.

Nemendur í Versló auka næringargildi salts með fiskbeinum
Nemendur við Verzlunarskóla Íslands hafa aukið næringargildi salts með þróun og framleiðslu á salti sem inniheldur næringarefni úr fiskbeinum. Þeir segja starfsmenn fiskbúða fegna að þurfa ekki að henda beinunum enda um vannýtta auðlind að ræða.

Hundrað milljóna miði keyptur í Reykjavík
Fimm hlutu annan vinning í Eurojackpot í dag og hlutu rétt tæpar 100 milljónir hver. Einn miðanna var keyptur í Bitahöllinni við Stórhöfða í Reykjavík. Hinir miðanna voru keyptir í Slóvakíu, Noregi og tveir í Þýskalandi.

Óskar eftir gögnum um ábyrgðarmenn námslána
Háskólaráðherra hefur óskað eftir gögnum um þá ábyrgðamenn sem skildir voru eftir þegar ábyrgðarmannakerfi á lánum var lagt af. Hún segir hrakfarir áttræðrar konu, sem stendur frammi fyrir fjárnámi, sýna að tilefni sé til endurskoðunar.

Yfirlögregluþjónn sakaður um kynferðislega áreitni á starfsmannaviðburði
Lögreglan hjá höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú ásakanir um kynferðislega áreitni á hendur yfirlögregluþjóni hjá embættinu. Hann hefur meðal annars starfað í kynferðisbrotadeild. Yfirlögregluþjónninn verður áfram við störf.

„Maður fær eiginlega bara svona í hjartað“
„Ég var nú bara að spila skák á Chess.com uppi í rúmi, svo sé ég svona í horninu á auganu svona eld-liti og þegar ég lít út sé ég eldtungurnar alveg uppi að krana og svo heyri ég sprenginguna. Og veggirnir og glerið – það hristist allt. Svo hringdi ég beint á neyðarlínuna eins og maður gerir,“ segir Yngvi Snær Bjarnason íbúi við Eskiás.

Jónsi í Sigur Rós lagði ríkisskattstjóra
Landsréttur hefur vísað kröfu á hendur Jónsa í Sigur Rós vegna skattamáls hljómsveitarinnar frá héraðsdómi. Ríkisskattstjóri ákvað að falla frá áfrýjun dómsmála á hendur þriggja af fjögurra hljómsveitarmeðlima, sem allir höfðu verið sýknaðir í héraðsdómi. Eftir stóð Jónsi – og endurskoðandi hans.