Fleiri fréttir

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum verður fjallað um hið umdeilda útlendingafrumvarp sem samþykkt var á Alþingi í gær.

Loka sundlauginni á Sauðárkróki vegna kuldakastsins
Búið er að loka suðndlauginni á Sauðárkróki vegna kuldakastsins sem gengið hefur yfir í norðanáttinni. Þrýstingur hefur fallið í hitaveitu í bænum á síðustu dögum, fyrst í efri byggðum en síðar í öllum bænum.

Ingi Freyr með stöðu sakbornings
Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður Heimildarinnar, hefur fengið stöðu sakbornings í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna umfjöllunar fjölmiðla um „skæruliðadeild“ Samherja.

„Vonandi ryður þetta brautina fyrir fleiri sjúklinga“
Kvikmyndagerðarkonan Helga Rakel Rafnsdóttir hefur í langan tíma barist fyrir því að fá aðgang að lyfjum við MND sjúkdómnum. Lyfjastofnun hefur veitt undanþáguleyfi fyrir lyfinu og því fær Helga nú loksins að prófa það.

Aðlögun að loftslagsbreytingum: Hvað getum við gert og þurfum að gera?
Veðurstofa Íslands stendur fyrir málstofu í dag milli klukkan níu til tólf á Icelandair Hotel Natura um loftslagsbreytingar til að öðlast yfirsýn yfir stöðu þekkingar á sviði loftslagsbreytinga og aðlögunar og að styrkja tengslanet á milli aðila sem starfa á þessu sviði.

Hæstiréttur tekur fyrir mál sérsveitarmanns vegna Hraunbæjarmálsins
Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni fyrrverandi liðsmanns sérsveitar ríkislögreglustjóra sem glímt hefur við áfallastreituröskun í kjölfar aðgerðar sérsveitarinnar í Árbæ í Reykjavík síðla árs 2013 sem leiddi til dauða manns.

Kastaði munum úr íbúð sinni
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um mann sem var að kasta munum úr íbúð sinni í fjölbýlishúsi.

Segir niðurstöðu umboðsmanns ekki áfellisdóm
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segist undrandi yfir þeirri niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis að ráðherrann hafi brotið gegn góðum stjórnsýsluháttum þegar hann tók ákvörðun um aukinn vopnaburð lögreglu án þess að bera málið upp í ríkisstjórn.

Þóra aftur kölluð í yfirheyrslu
Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks á Ríkisútvarpinu, var yfirheyrð af lögreglu á þriðjudag í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna umfjöllunar fjölmiðla um „skæruliðadeild“ Samherja.

Hundurinn Bangsi fannst eftir ótrúlega björgun
Eigendur Bangsa, sem er sjö ára gamall labrador, eru í skýjunum eftir að fjölmargir lögðu hönd á plóg og náðu að finna Bangsa eftir sólarhringslanga leit í gær, sem var lyginni líkust.

Stórtíðindi fyrir fólk með MND
Lyfjastofnun hefur formlega veitt undanþágu til notkunar á lyfinu Tofersen fyrir fólk sem hrjáist af MND sjúkdómnum. Gjaldkeri samtakanna MND á Íslandi fagnar tíðindunum.

Vilja sundlaugamenningu og laufabrauðsgerð á lista UNESCO
Menningar- og viðskiptaráðherra kynnti tillögu fyrir ríkisstjórninni um að laufabrauðsgerð og sundlaugamenning verði tilnefnd á skrá menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna yfir menningarerfðir.

Svipti sálfræðing starfsleyfi sem gaf út marklausar ADHD-greiningar
Heilbrigðisráðuneytið staðfesti ákvörðun landlæknis um að svipta sálfræðing sem skrifaði upp á ADHD-greiningar sem hvergi voru teknar gildar og gaf sjúklingum lyf án lyfseðils starfsleyfi sínu. Sálfræðingurinn braut lög og er talinn óhæfur til að gegna starfi sínu.

Útlendingafrumvarpið samþykkt
Meirihluti Alþingis hefur samþykkt útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Fjölmargar breytingartillögur voru lagðar fram á Alþingi í dag en þær voru jafnóðum felldar. Minnihlutaþingmenn voru ómyrkir í máli og gagnrýndu meirihlutann harðlega.

Ölfus og Hveragerðisbær ekki í eina sæng í bili
Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir sameiningu sveitarfélaganna Ölfuss og Hveragerðisbæjar ekki á dagskrá bæjarstjórnar þess fyrrnefnda. Bæjarfulltrúi í Hveragerði vill sameina sveitarfélagið að nýju.

Hefði getað endað með fimm manna jarðarför á Eyrarbakka
Fimm manna fjölskylda á Eyrarbakka átti fótum sínum fjör að launa þegar kviknaði í út frá hlaupahjóli, sem var í hleðslu á heimilinu. Húsið fylltist fljótt af reyk og er óíbúðarhæft vegna mikils sóts.

Gervigreindin næsta stóra byltingin og nú talar hún íslensku
Besta og stærsta gervigreind sem opin er almenningi kann nú íslensku. Stofnandi Miðeindar segir gervigreindina næstu stóru byltinguna í okkar samfélagi. Rithöfundur og fyrirlesari segir hina íslenskumælandi gervigreind einungis geta hafa orðið til vegna aukinnar „nándar“ tækninnar og mannsins með notkun snjallsíma og samfélagsmiðla. Á þessari nánd byggi hún sína þekkingu.

Seðlabankinn slær varnagla vegna aukinnar áhættu
Seðlabankinn gerði viðskiptabönkunum í dag að leggja meira fé til hliðar vegna vaxandi áhættu að undanförnu með því að auka framlög þeirra í sveiflujöfnunarsjóð. Bankarnir, heimilin og fyrirtækin standi þó almennt vel og vanskil sjaldan verið minni.

„Við erum ennþá í áfalli eftir þetta“
„Við héldum að þetta væri eitthvað hryðjuverkadæmi. Það var ekki eins og þetta væri einhver lítil Súkka að bakka óvarlega út úr stæði,“ segir kærasta konunnar sem slasaðist í gær þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni, ók á sjö bíla og hafnaði að endingu á rúðu á hárgreiðslustofu í Álfheimum í Reykjavík.

Breytingartillögur felldar jafnóðum
Þingmenn úr minnihluta Alþingis hafa lagt fram fjölmargar breytingartillögur á útlendingafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á fundi sem nú stendur yfir. Meirihluti þingmanna hefur fellt tillögurnar jafnóðum.

Kalla settan ríkisendurskoðanda á fund um Lindarhvol: „Mögulega tilgangslausasti fundur þingsögunnar“
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hefur ákveðið að boða settan ríkisendurskoðanda á opinn fund um Lindarhvolsmálið. Þingmaður Pírata velti því upp hvort sá fundur yrði „mögulega tilgangslausasti fundur þingsögunnar“ og sakaði meirihlutann um sýndarmennsku. Stjórnarliðar sögðu ekkert óeðlilegt við að boðað hafi verið til fundar, þó ekki megi birta greinargerð um málið.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Seðlabankinn hefur gert viðskiptabönkunum að leggja meira fé til hliðar vegna vaxandi áhættu að undanförnu. Bankarnir, heimilin og fyrirtækin standa þó almennt vel og vanskil sjaldan verið minni.

Lítið áunnist þrátt fyrir „fagurgala og falleg fyrirheit“ borgarinnar
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir stöðuna í leikskólamálum í Reykjavík óásættanlega þar sem staðan heldur áfram að versna. Fagurgalar og falleg fyrirheit komi frá stjórnsýslunni sem leggur ekki í vinnuna sem til þurfi. Foreldrar hafa lýst yfir þungum áhyggjum vegna stöðunnar og hefur verið óskað eftir því að leikskólamálin verði sett á dagskrá borgarráðs á morgun.

Mótmælt fyrir utan Alþingi
Hópur flóttamanna frá Írak stendur fyrir mótmælum fyrir utan Alþingi í dag vegna umdeilds frumvarps Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Greidd verða atkvæði um frumvarpið á þingi í dag.

Gera ráð fyrir þjóðarhöll í deiliskipulagsbreytingu
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur auglýst nýtt deiliskipulag fyrir Laugardal. Breytingin felur í sér rými fyrir þjóðarhöll en hámarks byggingarmagn hallarinnar er nítján þúsund fermetrar.

Sólveig hlakkar til að berjast áfram með Ragnari
Formaður Eflingar óskar nýendurkjörnum formanni VR til hamingju með endurkjörið. Hún segist hlakka til baráttunnar með honum.

„Ég sé ekki eftir neinu“
Elva Hrönn Hjartardóttir segist ekki sjá eftir því að hafa farið í framboð til formanns VR gegn Ragnari Þór Ingólfssyni. Hún hvetur Ragnar til þess að fara annað slagið út og tala við félagsfólk sitt.

Nú hægt að einbeita sér að því sem skiptir máli
Ragnar Þór Ingólfsson, nýendurkjörinn formaður stéttarfélagsins VR, segist vera sáttur við niðurstöðuna í formannskosningunum. Hann telur hópinn sem kemur nýr í stjórn félagsins vera mjög öflugan.

Rakel ráðin rekstrarstjóri Samfylkingarinnar
Rakel Pálsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrarstjóri á skrifstofu Samfylkingarinnar. Síðustu fjögur ár hefur hún starfað hjá stéttarfélaginu Eflingu sem kynningarstjóri og sem samskiptastjóri hjá BSRB.

Fléttulisti og sex atkvæði felldu Kristjönu úr stjórn
Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir, fráfarandi stjórnarmeðlimur VR, mun gegna embætti varamanns í stjórninni næsta árið. Hefði einungis atkvæðafjöldi gilt væri hún með sæti í stjórninni en þess í stað fær Þórir Hilmarsson sætið.

Sá strax að Íslendingar höfðu unnið heimavinnuna sína
Menningar- og viðskiptaráðherra segir það gríðarmikilvægt fyrir framtíð íslenskrar tungu að málið hafi verið valið inn í nýjustu útgáfu gervigreindarmállíkansins GPT. Ísland var eitt fyrsta þjóðríkið sem óskaði eftir samstarfi með eigandanum - og hann sá fljótt að Íslendingar höfðu unnið heimavinnuna sína.

Frumvarpið sé illa úthugsað og afleiðingarnar óljósar: „Þetta er mikil afturför“
Allar líkur eru á að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra verði að lögum frá Alþingi eftir daginn í dag en lokaatkvæðagreiðsla fer fram síðdegis. Þingmaður Pírata segir að í grunninn sé um að ræða pólitíska yfirlýsingu sem lýsi tortryggni og jafnvel andúð í garð fólks á flótta. Flóttamenn hafa boðað mótmæli fyrir utan Alþingi í dag vegna málsins og munu Píratar gefa stjórnarliðum lokatækifæri til að skipta um skoðun á eftir.

Afgreiðsla Jóns á rafbyssuheimild ekki góð stjórnsýsla
Umboðsmaður Alþingis segir þá ákvörðun Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra að afgreiða heimild til handa lögreglu til að bera rafvopn án þess að bera málið undir ríkisstjórn ekki samræmast kröfum um vandaða stjórnsýsluhætti.

Vaktin: Ragnar Þór endurkjörinn formaður
Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn formaður VR og ný stjörn kjörin. Úrslitin voru kynnt frambjóðendum um klukkan 13:30 í dag. Ragnar Þór hlaut 57 prósent atkvæða gegn 39,4 prósentum Elvu. Kosningaþátttaka var rétt rúmlega 30 prósent og hefur aldrei verið meiri í sögu félagsins.

Bönkunum gert að spara meira fyrir mögulegum áföllum
Seðlabankinn ákvað í dag að hækka framlög viðskiptabankanna í sveiflujöfnunarauka upp í 2,5 prósent og hefur hlutfallið aldrei verið hærra. Þótt fjármálakerfið standi traustum fótum að mati bankans fari fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja versnandi í þrálátri verðbólgu.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum verður rætt við Ásgeir Jónsson bankastjóra Seðlabankans sem segir að þótt fjármálakerfið standi traustum fótum fari fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja versnandi.

Bein útsending: Kynning á skýrslu um eflingu kornræktar
Ný skýrsla um eflingu kornræktar, sem unnin var af Landbúnaðarháskóla Íslands fyrir matvælaráðuneytið, verður kynnt á sérstökum kynningarfundi á Hilton Reykjavík Nordica klukkan 11.

Ósáttur við aukið myndavélaeftirlit: „Hvert og eitt skref í þessa átt finnst mér hættulegt“
Sósíalistar eru ósáttir við fyrirhuguð áform um stóraukið öryggismyndavélaeftirlit í miðborg Reykjavíkur. Borgarfulltrúi segir óttann ekki mega taka yfir.

Halda leitinni áfram á morgun
Leit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að Stefáni Arnari Gunnarssyni hefur ekki borið árangur. Lögreglan er ekki viss hvort reiðhjól sem fannst í leitinni sé í eigu Stefáns. Leitinni verður haldið áfram á morgun og notast verður við dróna.

Stefnir í ljósasýningu á himni í kvöld
Búast má við miklu sjónarspili á himni í kvöld. Norðurljósin hafa verið mikil síðustu daga og aðstæður til að sjá þau góðar. Nú er þó útlit fyrir að þau verði enn meiri í kvöld.

Kosningum til formanns VR lýkur í dag
Kosningum til formanns stéttarfélagsins VR lýkur í dag á hádegi. Tvö eru í framboði, Ragnar Þór Ingólfsson, núverandi formaður, og Elva Hrönn Hjartardóttir, starfsmaður VR. Úrslitin verða tilkynnt upp úr klukkan eitt í dag.

Óvissustigi vegna Covid-19 loks aflétt á Landspítala
Landspítalinn var í gær færður af óvissustigi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Runólfur Pálsson forstjóri ákvað þetta í samráði við farsóttanefnd spítalans en sjúkdómurinn Covid-19 virðist nú vera búinn að ná jafnvægi í samfélaginu.

Fullorðið fólk megi stunda samræði við börn en börnin ekki skoða klámblað
Baráttusamtökin Öfgar hafa skilað inn umsögn um frumvarp sem kveður á um að kynferðislegur lágmarksaldur verði hækkaður úr 15 árum í 18 ára. Segja þau frumvarpið framfaraskref fyrir réttindi barna.

„Þetta er svona skjálfti sem ég held að gangi yfir“
Fjármálaráðherra segir eftirlit með bönkunum hafa verið eflt verulega á síðasta rúma áratug en hrun bandaríska bankans Silicon Valley sýni fram á mikilvægi þess að regluverkið um bankastarfsemi og fjármálafyrirtæki sér sterkt.

Lokaatkvæðagreiðsla um útlendingafrumvarpið á morgun
Þriðju umræðu um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lauk á Alþingi skömmu eftir klukkan sex nú síðdegis. Atkvæðagreiðslu var frestað en hún fer fram á morgun klukkan korter yfir fimm. Verði frumvarpið samþykkt verður það að lögum frá Alþingi.