Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja félagsmiðstöð og bókasafn í Laugardalsstúku Borgarráð hefur samþykkt að bókasafn og félagsstöðvar- og menningarrými verði útbúið í stúku Laugardalslaugar fyrir Laugarnes- og Laugarlækjaskóla. Blásið verður til hugmyndakeppni um útfærslu hugmyndarinnar. 10.2.2023 14:04
Sigmar vill verða ritari Viðreisnar Landsþing Viðreisnar hefst í dag klukkan fjögur. Fyrir liggur tillaga um að stofnað verði embætti ritara innan flokksskipulagsins og hefur Sigmar Guðmundsson alþingismaður ákveðið að gefa kost á sér í það. 10.2.2023 13:45
Líklega um sex hundruð fengið lyfið á síðustu tveimur vikum Lyfjastofnun hefur innkallað sýklalyfið Staxlox í varúðarskyni eftir að einstaklingar sem fengu sambærilegt lyf í Danmörku sýktust og hylki af lyfinu reyndust menguð. Grunur er um að einn hafi sýkst hér á landi. Forstjóri Lyfjastofnunar segir líklega um 600 hafa fengið lyfið á síðustu tveimur vikum hér á landi en þau hafi verið látin vita í gegnum Heilsuveru. Þó sé ekki saman sem merki milli þess að fá mengað hylki og að sýkjast. 10.2.2023 13:00
Málið sé bænum ekki til framdráttar Raunir ungrar fjölskyldu sem hefur verið á hrakhólum í fjögur ár eftir að byggingarfulltrúi stöðvaði framkvæmdir á húsi þeirra í Reykjanesbæ eru bænum ekki til framdráttar. Þetta segir bæjarfulltrúi minnihlutans. Málið verði að leysa. 10.2.2023 13:00
Margrét úthúðar dómurum og verjandi hennar segir sig frá málinu Margrét Friðriksdóttir segist ekki ætla að fjarlægja færslu um héraðsdómara sem hún kallar siðblindan og fleiri ljótum nöfnum. Lögmaður hennar hefur sagt sig frá málinu. 10.2.2023 12:27
Ríkisendurskoðandi segist ekki vera vanhæfur Ríkisendurskoðandi segir formennsku eiginkonu sinnar í veiðifélaginu Laxá ekki hafa áhrif á hæfi sitt við vinnslu úttektar Ríkisendurskoðunar á sjókvíaeldi. Einnig segir hann að auglýsing frá árinu 2004 og störf í NASCO geri sig ekki vanhæfan. 10.2.2023 12:15
Léttir að skýrslan sé komin fyrir sjónir almennings Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun segir að stofnunin hafi þurft að berjast fyrir fjárveitingum til að geta staðið undir eftirliti með sjókvíaeldi og öðrum lögbundnum verkefnum. Það væri léttir að skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi væri nú komin fyrir sjónir almennings. 10.2.2023 11:54
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfrétttum fjöllum við um mótmæli sem Efling boðaði til fyrir utan Ráðherrabústaðinn nú fyrir hádegið á meðan ríkisstjórnin sat inni á fundi. 10.2.2023 11:38
Bauluðu á Bjarna en fengu fund með Katrínu Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, varð við beiðni Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, um fund í Ráðherrabústaðnum, eftir að Eflingarfélagar mótmæltu fyrir utan ríkisstjórnarfund. Baulað var á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, þegar hann hélt af fundi ríkisstjórnarinnar. Sólveig Anna sagði að Bjarni hefði ekki þorað að mæta félagsmönnum Eflingar og flúið undan þeum. 10.2.2023 11:27
Vill verða varaformaður Viðreisnar Erlingur Sigvaldason, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, hefur ákveðið að gefa kost á sér til varaformennsku í Viðreisn á landsþingi flokksins sem hefst í dag. 10.2.2023 11:03
Liðsmenn Eflingar heftu för ráðherra í Tjarnargötu Félagsmenn Eflingar á Íslandshótelum, sem hafa verið í verkfalli síðan á þriðjudag, eru við mótmæli við ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu. Hópurinn hittist á baráttufundi í Iðnó klukkan 10 áður en hann hélt að ráðherrabústaðnum. 10.2.2023 10:57
Næsta vika gæti orðið fjögurra lægða vika Mögulegt er að fjórar lægðir skelli á landsmönnum í næstu viku. 10.2.2023 10:25
Fjórar umsóknir um stöðu prest í Árborgarprestakalli Nýlega var auglýst laus staða prests í Árborgarprestakalli og rann umsóknarfrestur út á miðnætti 7. febrúar. Fjórar umsóknir bárust um starfið en einn umsækjandi óskar nafnleyndar. 10.2.2023 10:05
Innkalla lyf vegna áhættu á sýkingum af völdum sýklalyfjaónæmrar bakteríu Lyfjastofnun hefur stöðvað sölu og ávísanir á sýklalyfið Staklox vegna áhættu á sýkingu af völdum sýklalyfjaónæmra baktería. Stofnunin hefur einnig innkallað lyfið frá þeim sjúklingum sem hafa fengið því ávísað. 10.2.2023 07:38
Einn læsti sig inni á salerni og öðrum vísað út af sólbaðstofu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti mörgum og fjölbreyttum verkefnum í nótt, þar af nokkrum útköllum vegna einstaklinga í annarlegu ástandi. Einn neitaði að yfirgefa bráðamóttöku, annar hafði læst sig inni á salerni kvikmyndahúss og enn öðrum var vísað út af sólbaðstofu. 10.2.2023 07:05
Algjör firra að það sé lítilsvirðing að vara við hættunni af offitu Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að jafnvel þótt lyf sem notuð eru við offitu séu dýr muni þau koma til með að stuðla að sparnaði í heilbrigðiskerfinu. Hann fagnar nýjum lyfjum við offitu, sem sérfræðingar séu sammála um að sé mesta heilbrigðisvandamál samtímans. 10.2.2023 06:43
Sjómenn skrifa undir lengstu samninga sögunnar Kátt var á hjalla og vöfflulyktin angaði í Karphúsinu í kvöld þar sem forsvarsmenn Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) skrifuðu undir nýja kjarasamninga. Samningar þessir eiga að gilda til tíu ára. 9.2.2023 23:46
Andstæðingar kvikmynduðu komu hvalkjötsins til Japans Hvalverndarsamtök sem fylgjast með löndun íslenska hvalkjötsins í Japan segja nær enga eftirspurn eftir kjötinu þar í landi og fullyrða að óseldar birgðir hafi endað sem hundafóður. Á sömu slóðum fagnaði íslenskt kvikmyndatökulið sjötugsafmæli söngvarans Egils Ólafssonar í dag. 9.2.2023 22:59
Fráleitt að lögmenn SA komi að verkfallsbrotum Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins vísar því á bug að samtökin hafi aðstoðað stjórnendur Íslandshótela við að brjóta lög, en formaður Eflingar sakaði lögmenn samtakana í dag um að hjálpa yfirmönnum og eigendum að stunda verkfallsbrot. 9.2.2023 21:00
Fylgjast vel með Öskju Vakir í ís Öskjuvatns eru afbrigðilega stórar. Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá segir vert að fylgjast vel með. 9.2.2023 20:02
Flugtak inni í háskóla Sýndarveruleikagleraugu verða héðan í frá notuð í þjálfun flugmanna Icelandair. Búnaðurinn er mjög nákvæmur en með hjálp hans er hægt framkvæma nær allt sem hægt er að gera í flugstjórnarklefanum. Elísabet Inga, skutlaði nokkrum Íslendingum til Tenerife með hjálp gleraugnanna í dag. 9.2.2023 20:01
Útlendingafrumvarpið loks komið til lokaafgreiðslu í fimmtu tilraun Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum var samþykkt í dag að lokinni annarri umræðu á Alþingi, eftir ríflega hundrað klukkustunda umræður. Allar breytingatillögur stjórnarandstöðunnar voru felldar. 9.2.2023 19:20
Óður maður á matsölustað Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um óðan mann á matsölustað í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögregluþjóna bar að garði höfðu öryggisverðir þó fylgt manninum út. Ekki fylgir sögunni í dagbók lögreglunnar hvort maðurinn hafi verið handtekinn. 9.2.2023 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Íslenskt björgunarteymi og aðrir viðbragðsaðilar á jarðskjálftasvæðum í Tyrklandi og Sýrlandi etja nú kappi við tímann - von um að finna fólk á lífi á hamfarasvæðum dvínar stöðugt. Um tuttugu þúsund hafa nú verið staðfestir látnir og óttast er að sú tala hækki ört vegna ömurlegra aðstæðna sem eftirlifendur búa nú við. Við heyrum frá leiðtoga íslenska teymisins í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 9.2.2023 18:01
Rakaskemmdir í Menntaskólanum við Sund Hluti húsnæðis Menntaskólans við Sund hefur orðið fyrir rakaskemmdum og þarf að loka tveimur svæðum í húsnæðinu. Skemmdirnar fundust við rakaskimun og sýnatöku verkfræðistofunnar EFLU vegna hugsanlegrar myglu. 9.2.2023 17:40
Margrét sakfelld fyrir hótanir í garð Semu Erlu á Grensásvegi Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri vefsíðunnar frettin.is, var í dag sakfelld fyrir að hafa hótað Semu Erlu Serdar aðgerðarsinna fyrir utan Benzin Café á Grensásvegi árið 2018. Margrét var dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi. Sema Erla segir fagnaðarefni að réttlætið hafi sigrað. 9.2.2023 17:03
Harðar ásakanir á víxl: Meint verkfallsbrot og Sólveig sögð áreita gesti Formaður Eflingar sakar lögmenn Samtaka atvinnulífsins um að hjálpa eigendum og yfirmönnum á Íslandshótelum við að stunda verkfallsbrot. Íslandshótel segja að um tilhæfulausar ásakanir sé að ræða og að gestir séu áreittir af forystufólki Eflingar. 9.2.2023 15:41
Villti á sér heimildir til að afla gagna um eiginkonuna Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. mars næstkomandi vegna ítrekaðra brota á nálgunarbanni gegn fyrrverandi eiginkonu sinni og ólögráða barni. 9.2.2023 14:45
Kæra úrskurð héraðsdóms í hryðjuverkamálinu Úrskurður héraðsdóms um að vísa skuli frá ákærum er varða hryðjuverk hefur verið kærður til Landsréttar. Héraðsdómur úrskurðaði síðastliðin mánudag að Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson yrðu ekki ákærðir fyrir skipulagningu eða tilraun til hryðjuverka. 9.2.2023 14:07
Mun kæra Steinar Þór vegna ætlaðra brota á siðareglum lögmanna Sigurður Valtýsson, fyrirsvarsmaður Frigusar II sem stendur í málaferlum við ríkið og Lindahvol, hefur fullan hug á að kæra Steinar Þór Guðgeirsson til úrskurðarnefndar Lögmannafélagsins vegna ætlaðs brots hans á siðareglum lögmanna. 9.2.2023 14:02
Með nikótíneitrun eftir púða sem fundust á leikskólanum Leikskólabarn á Akureyri greindist með nikótíneitrun í síðustu viku eftir að hafa sett nikótínpúða upp í sig. Púðinn kom úr nikótínpúðadós sem fannst á útisvæði leikskóla barnsins. 9.2.2023 13:46
Áform um stærsta kvikmyndaver landsins í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær hefur veitt REC Studio ehf, vilyrði fyrir um níutíu þúsund fermetra svæði við Hellnahraun undir byggingu umfangsmikils kvikmyndavers sem yrði það stærsta á Íslandi. 9.2.2023 13:44
Heiða Kristín fetar tímabundið í fótspor eiginmannsins með Þorgerði Heiða Kristín Helgadóttir er nýr aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar. Heiða mun starfa sem aðstoðarmaður hennar fram að sumri. Eiginmaður hennar aðstoðaði Þorgerði árið 2017. 9.2.2023 13:39
Vilja láta banna fiskeldi í sjókvíum Landvernd vill láta banna frekari vöxt sjókvíaeldis við strendur landsins þar til bætt hefur verið úr regluverki. Áhrif hagsmunaaðila á lagasetningu og umgjörð greinarinnar geti ekki talist eðlileg. 9.2.2023 13:31
Fjármálaráðherra segir Seðlabankann hafa vanmetið verðbólguna Fjármálaráðherra segir Íslendinga vera að taka út lífskjör sem ekki væru langtíma forsendur fyrir sem birtist meðal annars í mikilli einkaneyslu. Seðlabankinn sitji sennilega uppi með að hafa hækkað vexti of hægt og vanmetið verðbólguna of oft. Formaður Viðreisnar segir ríkisstjórnina stinga höfðinu í sandinn og hún bjóði ekki upp á neinar aðgerðir gegn verðbólgunni. 9.2.2023 12:08
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um hamfarirnar í Tyrklandi og í Sýrlandi þar sem tala láta er nú komin yfir sextán þúsund manns. 9.2.2023 11:38
„Það er ekki í lagi að vera með kynferðislegar athugasemdir“ „Með þessari aðgerðavakningu erum við að reyna að fá vinnustaði til að senda skýr skilaboð út í vinnuumhverfið og skapa umræður um hvað kynferðisleg áreitni er og hvernig hún birtist,“ segir Sara Hlín Hálfdanardóttir sérfræðingur og verkefnastjóri um nýtt átak Vinnueftirlitsins, #TökumHöndumSaman. 9.2.2023 11:27
„Hann mun deyja hér á næstu dögum“ Sigurður Bragason er nú í líknandi meðferð á sjúkrahúsi í Brasilíu eftir að hafa greinst með heilaæxli síðasta sumar. Sigurður er einungis 48 ára gamall. Til að bæta gráu ofan á svart misstu Sigurður og eiginkona hans meirihluta af innbúi sínu þegar það flæddi inn í hús fjölskyldunnar aðfaranótt þriðjudags. 9.2.2023 11:12
Reyndi að smygla um 600 grömmum af kókaíni til landsins Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla um 640 grömmum af kókaíni til landsins með flugi í nóvember síðastliðinn. 9.2.2023 10:52
Utanríkismálanefnd ekki rætt mál Gylfa sérstaklega Utanríkismálanefnd hefur ekki rætt mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, knattspyrnumanns, sem hefur verið í farbanni á Bretlandi í á annað ár. Fyrsti varaformaður nefndarinnar segir það ráðuneytis að svara hver aðkoma þess er að málinu og hvort aðhafst verði í því. 9.2.2023 10:38
90 milljónir í snjómokstur í Árborg á hálfum mánuði Kostnaður Sveitarfélagsins Árborgar vegna snjómoksturs eftir mikið fannfergi frá miðjum desember síðastliðins til 31. desember er um 90 milljónir króna. 9.2.2023 10:05
Stefnt á gjaldtöku fyrir bílastæði við HÍ: „Úff, ég get ekki borgað meira“ Viðmælendur Íslands í dag voru á báðum áttum gagnvart hugmyndum um að gera bílastæði við Háskóla Íslands gjaldskyld fyrir ökumenn, sem stendur til að gera í auknum mæli í haust. 9.2.2023 08:50
Kallað út vegna mikils reyks í húsi á Arnarnesi Slökkvilið höfuðborgarsvæðinu var kallað út eftir að tilkynnt var um mikinn reyk í húsi við Þernunes á Arnarnesi í Garðabæ skömmu fyrir klukkan 20 í gærkvöldi. 9.2.2023 07:32
Mál Guðjóns vopnasala og fleiri fara mögulega aftur til lögreglu „Það er enn opið og ekki búið að taka ákvörðun um það,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari um mál Guðjóns Valdimarssonar, föður ríkislögreglustjóra, og annarra einstaklinga vegna gruns um brot á vopnalögum. 9.2.2023 07:21
Kastaði sér í snjóinn eftir sprengingu á Grenivík og vaknaði í Noregi Kona sem slasaðist alvarlega í sprengingu í verksmiðju Pharmarctica á Grenivík á síðasta ári hefur náð undraverðum bata í Noregi. Hún segist muna eftir því að hafa kastað sér í snjóinn fyrir utan verksmiðjuna strax eftir sprenginguna. Því næst rankaði hún við sér á spítala í Noregi, mánuði eftir slysið. 9.2.2023 07:01