Innlent

Reyndi að smygla um 600 grömmum af kókaíni til landsins

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn reyndi að smygla efnunum innvortis í 104 pakkningum.
Maðurinn reyndi að smygla efnunum innvortis í 104 pakkningum. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla um 640 grömmum af kókaíni til landsins með flugi í nóvember síðastliðinn.

Maðurinn var með efnin falin innvortis í samtals 104 pakkningum og var styrkleiki efnanna 74 til 78 prósent. Ekki er gefið upp í dómi hvaðan flugvélin sem maðurinn ferðaðist með var að koma.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust. Tekið er fram að hann hafi ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé. Ekki verði ráðið að hann hafi verið eigandi efnanna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu.

Hæfileg refsing var ákveðin tíu mánaða fangelsi en til frádráttar kemur gæsluvarðhald frá 14. nóvember, eða frá því að maðurinn var handtekinn.

Manninum var jafnframt gert að greiða um 2,5 milljónir króna í sakarkostnað.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×