Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grótta nörruð til að leigja ungmennum veislusal Íþróttafélagið Grótta segist leggja sig fram við að leigja veislusal félagsins ekki ungmennum sem ekki hafa náð áfengiskaupaaldri. Fjölmennt lið lögreglu leysti upp bjórkvöld menntaskólanema í salnum í gær. Félagið segir 23 ára einstakling hafa leigt salinn og lofað að allir gestir yrðu tvítugir eða eldri. 26.11.2022 14:26
Fjölmenningarhátíð á Hvolsvelli í dag Það stendur mikið til á Hvolsvelli í dag því þar verður haldin fjölmenningarhátíð í félagsheimilinu Hvolnum þar sem íbúar frá Póllandi, Búlgaríu og Portúgal kynna menningu sína fyrir öðrum íbúum í gegnum söng, dans og matarsmakk . Einnig munu íslensk ungmenni kynna sína menningu, siði og hefðir fyrir gestum og bjóða upp á hangikjöt og lifrarpylsu. 26.11.2022 12:21
Umræðan hafði mikil áhrif á næturlífið: „Þetta var ákveðinn draugabær“ Lítið sem ekkert var að gera á öldurhúsum miðbæjar Reykjavíkur í gærkvöldi og í nótt. Veitingamenn segja umræðu undanfarinna daga ótvírætt hafa fælt fólk frá næturlífinu. 26.11.2022 12:10
Bjarni hafi mætt með bensínbrúsa inn í erfiðar kjaraviðræður Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir ummæli fjármálaráðherra um að vinnumarkaðurinn sé vandamálið í kjaraviðræðum vera óheppileg. Á sama tíma og forsætisráðherra reyni að slökkva elda helli fjármálaráðherra bensíni á eldinn. 26.11.2022 12:01
Vonast til að komast aftur heim til Rússlands Rússneska pönksveitin Pussy Riot hélt í gær sýningu í Þjóðleikhúsinu. Þessa sýningu flokkuðu þær sem tónleika, gjörningalist og pólitískan viðburð. Sýningin var hluti af sýningarferð sem þær fara nú um Evrópu. 26.11.2022 11:01
„Það er alveg ljóst að við fórum offari“ Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir ljóst að Íslendingar hafi farið offari í aðgerðum til að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19 á sínum tíma. 26.11.2022 10:00
Barnshafandi kona á Egilsstöðum þarf að flytja með fjölskyldu sína Barnshafandi kona á Austurlandi þarf að flytja suður með fimm manna fjölskyldu sína og hundinn yfir jól og áramót því hún getur ekki fætt barnið sitt í Neskaupstað. Ástæðan er sú að það verður engin skurðlæknir þar á vakt yfir jólahátíðina. 26.11.2022 09:04
Ölvun en lítið um átök í miðbænum Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu þurftu að hafa afskipti af þó nokkrum ölvuðum einstaklingum í miðbænum og víðar. Einnig var tilkynnt um líkamsárás í miðbænum þar sem meintur árásarmaður var handtekinn. 26.11.2022 07:27
Uppfært: Hvorki vopn né grímur á bjórkvöldi ungmenna á Nesinu Fjölmennt lið lögreglu leysti upp bjórkvöld menntaskólanema í samkomusal í Íþróttamiðstöðinni á Seltjarnarnesi laust eftir miðnætti. Mikil ölvun var á staðnum og fjölmargir menntaskólanemar á aldrinum 16 til 17 ára meðal gesta. 26.11.2022 02:05
Dyraverðir fóru misrólegir inn í kvöldið Dyraverðir skemmtistaða í miðbæ Reykjavíkur hafa ekki farið varhluta af auknum viðbúnaði lögreglu í kvöld. Sumir þeirra eru pollrólegir yfir ástandinu á meðan það aðrir eru uggandi. 26.11.2022 00:11
Ætlar sér að verða betri maður eftir martraðarkennda fangelsisvist Kristján Einar Sigurbjörnsson er nýkominn til landsins eftir að hafa verið síðustu átta mánuði í spænsku fangelsi. Hann segir gróft ofbeldi á við morð og nauðganir hafa verið daglegt brauð í fangelsinu. 25.11.2022 23:37
Hægt sjónvarp úr miðbænum í kvöld Lögregla verður með aukinn viðbúnað í miðbæ Reykjavíkur í kvöld og nótt. Lesendur Vísis geta séð miðborgina úr lofti á Vísi í kvöld. 25.11.2022 22:00
Lögreglan hefur fulla trú á góðri stemningu í kvöld Á þriðja tug manna hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við hnífaárásina á Bankastræti Club og eru sex enn í haldi. Átta dagar eru liðnir frá árásinni. Borið hefur á efasemdum um öryggisástandið í miðborg Reykjavíkur um helgina vegna deilna í undirheimum. 25.11.2022 21:05
Skilorðsbundin refsing fyrir að afla kynferðislegra mynda af börnum Ungur karlmaður var í upphafi mánaðar dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa aflað og reynt að afla kynferðislegra ljósmynda af stúlkum á aldrinum tólf til fjórtán ára. 25.11.2022 20:09
Ekki vonlaust um samninga þrátt fyrir miklar flækjur Ríkissáttasemjari ætlar að halda áfram að reyna að koma deiluaðilum saman á fundi á þriðjudag eftir að VR sleit viðræðum við Samtök atvinnulífsins í gærkvöldi. Formaður Starfsgreinasambandsins er þrátt fyrir allt vongóður um að samningar takist. Vaxtahækkun Seðlabankans og ummæli fjármálaráðherra um vinnumarkaðinn einfald þó ekki stöðuna. 25.11.2022 19:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkissáttasemjari ætlar að halda áfram að reyna að koma deiluaðilum saman á fundi á þriðjudag eftir að VR sleit viðræðum við Samtök atvinnulífsins í gærkvöldi. Formaður Starfsgreinasambandsins er þrátt fyrir allt vongóður um að samningar takist en vaxtahækkun Seðlabankans og ummæli fjármálaráðherra um vinnumarkaðinn hafi ekki einfaldað stöðuna.Við höldum áfram að fjalla um viðkvæma stöðu á vinnumarkaði og verðum í beinni með framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins í kvöldfréttum. 25.11.2022 18:00
Fyrirtæki Kristjáns í Samherja framleiðir Áramótaskaupið í ár Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri og stofnandi Samherja, er eigandi framleiðslufyrirtækisins S800 ehf. Fyrirtækið sér um framleiðslu Áramótaskaups Ríkisútvarpsins í ár. 25.11.2022 17:01
Fjögurra bíla árekstur á Miklubraut Fjórir bílar tjónuðust í árekstri á Miklubraut nærri Ártúnsbrekku rétt fyrir klukkan þrjú í dag. 25.11.2022 15:52
Semja um móttöku allt að 100 flóttamanna Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Árborg. Samningurinn var undirritaður á Selfossi og kveður á um að sveitarfélagið taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 100 flóttamönnum fram til 31. desember 2023. 25.11.2022 15:38
Tímapressa tilboðsdaganna til þess fallin að skapa gerviþörf „Þarf ég þetta virkilega?“ er spurning sem landsmenn ættu að velta vandlega fyrir sér áður en þeir taka ákvarðanir um kaup að mati forsvarsmanna Sorpu. Í dag er einn af stóru tilboðsdögum ársins sem hefur fest sig í sessi á síðustu árum og er annar slíkur á dagskrá eftir helgi. Meðalfjölskylda hendir að meðaltali rúmlega fimm hundruð kílóum af sorpi í óflokkuðu tunnuna á ári hverju. 25.11.2022 15:22
Engar skaðabætur vegna uppsagnar eftir hótanir barnsföður Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað skaðabótakröfu konu sem sagt var upp störfum vegna þess að barnsfaðir hennar hótaði samstarfsmanni hennar ítrekað og á alvarlegan hátt. Fyrirtækið mat það svo að konan hafi rofið trúnað um samskiptasamning sem gerður var á milli hennar og samstarfsmanns hennar. 25.11.2022 15:16
Dómur mildaður fyrir manndráp af gáleysi í Vindakór Landsréttur mildaði í dag dóm yfir Dumitru Calin fyrir að hafa af gáleysi banað Daníel Eiríkssyni fyrir utan heimili Daníels í Vindakór árið 2021. Dumitru var dæmdur í tveggja ára fangelsi en hafði áður hlotið þriggja og hálfs árs fangelsi í héraði. 25.11.2022 14:50
Telja lokun Sogns hafa alvarlegar afleiðingar fyrir fanga, aðstandendur og samfélagið Fyrirhuguð lokun Sognar er ekki í takt við nýjustu rannsóknir og væri stórt skref aftur á bak í fangelsismálum á Íslandi. Þetta kemur fram í ályktun fagráðs Aðstoðar eftir afplánun vegna nýlegra frétta af hugsanlegri lokun fangelsisins að Sogni. 25.11.2022 14:42
Ferðum í Hrísey verður ekki fækkað Ferðum Hríseyjarferjunnar Sævars verður ekki fækkað í nýju útboði Vegagerðarinnar. Engin slík breyting er fyrirhuguð en Vegagerðin vill auka svigrúm til að ekki þurfi að sigla að óþörfu með tóma ferju. 25.11.2022 14:28
Slasaðist á ökkla eftir að bíl var ekið á rafhlaupahjól Ekið var á unglingsstúlku á rafhlaupahjóli á Suðurlandsbraut við Glæsibæ rétt fyrir klukkan eitt í dag. Viðkomandi var fluttur á bráðamóttöku Landspítala. 25.11.2022 13:05
Sanngjarnt að segja að vinnumarkaðurinn sé vandamálið Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir sanngjarnt að tala um að vinnumarkaðurinn sé vandamálið þegar kemur að kjaraviðræðum hér á landi. Skortur sé á samhljómi á milli kröfugerða stéttarfélaga, kröfur þeirra séu ólíkar. Hann segist þó vera ágætlega bjartsýnn á að hægt verði að landa kjarasamningum á almennum vinnumarkaði þrátt fyrir viðræðuslit VR. 25.11.2022 13:01
346 manns sektaðir vegna nagladekkjanotkunar á síðustu fimm árum Á undanförnum fimm árum hafa rúmlega 350 ökumenn verið sektaðir vegna nagladekkjanotkunar hér á landi. 25.11.2022 12:51
Harmar viðræðuslit Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, harmar að VR hafi ákveðið að slíta kjaraviðræðum, en vonar að hægt verði að setjast aftur að samningaborðinu. Hún segir enga óeiningu innan ríkisstjórnarinnar hver aðkoma hennar eigi að vera að samningaviðræðunum. 25.11.2022 12:21
Aukinn viðbúnaður en ekki ástæða til að forðast miðbæinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með aukinn viðbúnað í miðbæ Reykjavíkur um helgina en aðalvarðstjóri segir þó ekki ástæðu til þess að fólk forðist miðbæinn sérstaklega vegna meintrar yfirvofandi hættu. Ekki séu taldar auknar líkur á uppþoti eins og gefið er í skyn í skilaboðum sem gangi manna á milli. 25.11.2022 12:00
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að greiða fasteignagjöld í Hveragerði Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Hveragerðis eru undrandi á þeirri ákvörðun meirihlutans að hætta að fella niður fasteignagjöld vegna fasteigna í bænum sem eru í eigu stjórnmálaflokka. Sjálfstæðisflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem á fasteign í bænum. 25.11.2022 11:48
Frú Ragnheiður, Heiðar og Þórdís Kolbrún hlutu Frelsisverðlaun SUS Frú Ragnheiður, Heiðar Guðjónsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hlutu í gærkvöldi hin árlegu Frelsisverðlaun Sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS). 25.11.2022 11:39
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjaramálin verða í eldlínunni í hádegisfréttum Bylgjunnar. 25.11.2022 11:36
Fyrirhugað að setja heildarlög um sanngirnisbætur Áform um lagasetningu varðandi svokallaðar sanngirnisbætur hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða lagaumgjörð sem skapa myndi farveg fyrir þá einstaklinga sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða af hálfu opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum til að fá greiddar sanngirnisbætur. 25.11.2022 11:25
Mat hugmyndir SA bæði óaðgengilegar og óásættanlegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að hugmyndir samninganefndar Samtaka atvinnulífsins hvernig ná mætti skammtímasamningi í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði hafi verið algjörlega óásættanlegar. Þá hafi orð fjármálaráðherra á fundi Viðskiptaráðs í gær ekki hjálpað til. 25.11.2022 11:04
Salka lendir í ritskoðunarkrumlum Facebook Ritskoðunardeild Facebook hefur sett Sölku útgáfu í mánaðarbann á samfélagsmiðlinum en útgefanda varð það á að nefna Hitler á nafn en hinn illræmdi fyrrverandi þýski kanslari er nú kallaður H-orðið meðal Sölku-fólks. 25.11.2022 09:21
Stóraukið fylgi hjá Samfylkingunni Fylgi Samfylkingarinnar stóreykst á milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Maskínu og mælist nú nítján prósent samanborið við fjórtán prósent í síðasta mánuði. 25.11.2022 09:01
VR sleit viðræðum við SA í gærkvöldi VR sleit samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins seint í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu lögðust ummæli Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra á fundi Viðskiptaráðs í gær mjög illa í samninganefnd VR. 25.11.2022 08:47
Bankastræti Club hafi gert allt rétt í krísustjórnun Í umfjöllun um hnífaárásina í síðustu viku hefur ítrekað verið rætt um Bankastræti Club í því samhengi, og réttilega, þar sem árásin fór jú fram á staðnum. Sérfræðingur í vörumerkjastjórnun telur ekki að málið komi til með að hafa áhrif á skemmtistaðinn til lengri tíma og eigendur hafi gert allt rétt í krísustjórnun. Hann hefur hins vegar meiri áhuga á að skoða málið út frá vörumerkinu Ísland. 25.11.2022 07:48
Lífslíkur langskólagenginna kvenna mun meiri en kvenna með litla menntun Ný rannsókn sem náði til 6.000 þátttakenda sýnir að lífslíkur langskólagenginna kvenna eru töluvert meiri en kvenna sem hafa litla menntun. Að sögn Thors Aspelund, prófessors í líftölfræði við Háskóla Íslands, fer munurinn vaxandi. 25.11.2022 06:47
Fangaverðir fá högg- og hnífavesti og mögulega rafbyssur Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hyggst svara kalli fangavarða um aukna þjálfun og varnarbúnað. Grafalvarleg þróun eigi sér stað innan veggja fangelsanna, með auknum vopnaburði og ofbeldi. 25.11.2022 06:21
Tvær líkamsárásir í höfuðborginni Gærkvöldið og nóttin voru með rólegasta móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ef marka má yfirlit yfir verkefni næturinnar. Tilkynnt var um tvær líkamsárásir þar sem gerendur voru handteknir í báðum tilvikum og annað fórnarlambið mögulega nefbrotið. 25.11.2022 06:02
Yngri fangar tilbúnari að beita vopnum og fangelsin geta ekki tryggt öryggi vegna fjárskorts Fangavörður á Litla-Hrauni segir starfsumhverfið hafa stórbreyst á undanförnum árum og að ný kynslóð brotamanna sé grimmari og tilbúnari að beita vopnum. Starfsfólk fangelsa óttist um öryggi sitt og á sama tíma kemur sífellt meiri fjárskortur sífellt verr niður á allri starfseminni. 24.11.2022 22:01
Úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Héraðssaksóknari hefur staðfest áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverka. Lögmaður annars þeirra ætlar að kæra úrskurðinn til Landsréttar. 24.11.2022 21:55
Starfaði ekki með börnum fyrir Samtökin '78 Fyrrverandi formaður félagaráðs Samtakanna '78, sem nú hefur vikið frá störfum vegna ásakana um kynferðisofbeldi í garð barna, starfaði ekki með börnum á vegum samtakanna. 24.11.2022 21:41
Vilji til þess að leysa hlutina í sameiningu Talsverður styr hefur staðið um næturlíf Reykjavíkur að undanförnu en til viðbótar við ofbeldismálin sem hafa verið í fréttum hefur skapast talsverð umræða um hávaða frá skemmtistöðum eins og við sögðum frá í kvöldfréttatíma okkar í gær. 24.11.2022 20:33