Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stefna á að fimm smáhús rísi í Laugardal í desember Framkvæmdir eru nú hafnar í Laugardal þar sem til stendur að reisa fimm smáhús að Engjavegi 40 fyrir heimilislausa. Einhverjir íbúar hafa gagnrýnt áformin en formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir að hlustað hafi verið á allar athugasemdir. 5.10.2022 13:59
Vill senda flóttafólk til Rúanda Formaður Miðflokksins segist ekki trúa því að nýopnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir flóttafólk verði tímabundið úrræði. Opnunin sé til marks um stjórnleysi í málefnum flóttafólks. Ísland hafi ranglega verið auglýst sem áfangastaður fyrir þá sem skipuleggi fólksflutninga. 5.10.2022 13:44
Kortleggja eignatengsl í sjávarútvegi Forsvarsmenn Samkeppniseftirlitsins hafa ákveðið að kortleggja stjórnunar- og eignatengsl sjávarútvegsfyrirtækja. Er það liður í heildarstefnumótun í sjávarútvegi á vegum matvælaráðuneytisins. 5.10.2022 13:40
Dæmd fyrir hundruð þúsunda króna strikamerkjasvindl Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu og karl í sextíu daga og þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa stolið vörum úr verslun Ikea í Garðabæ með því að hafa tekið strikamerki af ódýrari vörum og sett á dýrari vörur. 5.10.2022 13:01
Fékk afsökunarbeiðni frá rektor í morgunsárið Rektor Menntaskólans í Hamrahlíð hefur beðið fyrrverandi nemenda afsökunar á því hvernig tekið var á málinu þegar henni var nauðgað af samnemanda fyrir áratug. Henni hefur verið boðið á fund með skólastjórnendum til að ræða hvað megi betur fara en hún segir dýrmætt að henni sé loksins trúað og að skólinn viðurkenni að það hafi ekki verið brugðist rétt við á sínum tíma. 5.10.2022 13:00
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir mönnunum tveimur Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru í varðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á meintri skipulagningu hryðjuverka. 5.10.2022 11:55
Með fimm kíló af amfetamíni í frystikistu á heimili sínu Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann, Garðar Ingvar Þormar, í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot og vopnalagabrot. 5.10.2022 11:07
Fjórtán ára flúði lögreglu á ofsahraða á Holtavörðuheiði Fjórtán ára unglingur er grunaður um að hafa ekið á ofsahraða yfir Holtavörðuheiði á föstudag. Málið var tilkynnt til barnaverndar. 5.10.2022 10:16
Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Umhverfisdagur atvinnulífsins fer fram í dag í Norðurljósasal Hörpu í Reykjavík undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind. 5.10.2022 08:32
Hefja gjaldtöku vegna bíla sem standa óhreyfðir dögum saman Rangárþing ytra hyggst hefja gjaldtöku á langtímabílastæðum við verslunar- og skrifstofukjarnann Miðjuna á Hellu á næsta ári. 5.10.2022 08:00
Lá á dyrabjöllunum í vitlausu húsi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt og var meðal annars kölluð út vegna tveggja manna á hóteli í miðborg Reykjavíkur sem neitaðu að yfirgefa hótelið. Lögreglan fylgdi þeim út eftir að hún mætti á vettvang. 5.10.2022 06:54
Ríkið reyndi að ná fram sáttum í talningamálinu Ríkið hefur boðið fram sáttir í máli tveggja frambjóðanda er varðar umdeilda talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi í síðustu Alþingiskosningum. Málið verður tekið fyrir hjá Mannréttindadómstól Evrópu á næstunni. 5.10.2022 06:28
Telur sér bolað út úr kirkjunni fyrir að standa með þolendum Fyrrverandi starfsmaður Digraneskirkju telur að sóknarnefnd kirkjunnar hafi sagt henni upp störfum vegna þess að hún stóð með þolendum Gunnars Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknarprests. Biskup vék Gunnari úr starfi vegna kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni. 4.10.2022 23:14
Fleiri sveitarfélög þurfa að veita flóttafólki skjól Sveitarfélög þurfa að skjóta skjólshúsi yfir flóttafólk í auknum mæli til þess að ekki þurfi að starfrækja lengi sérstaka fjöldahjálpastöð fyrir það, að sögn fulltrúa Rauða krossins á Íslandi. Unnið er að opnun fyrstu stöðvar þessarar tegundar hér á landi. 4.10.2022 22:32
Húsráðendur könnuðust ekkert við bíllyklana Íbúar í Garðabæ hringdu á lögreglu fyrr í kvöld vegna bíllykla sem látnir höfðu verið inn um bréfalúgu á húsi þeirra. 4.10.2022 22:28
MeToo bylgja framhaldsskólanema: Tímabært að rödd þeirra fái að heyrast Talskona Stígamóta telur að MeToo-bylgja framhaldsskólanema sé að hefjast. 70 prósent þeirra sem leiti til samtakanna hafi verið beitt kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur. Mikilvægt sé að skólastjórnendur í framhaldsskólum hlusti á nemendur og tilbúnir með viðbragðsáætlanir. 4.10.2022 22:06
Óttast að enginn hlusti á menntaskólanema sem verði fyrir ofbeldi Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð hafa mótmælt því í dag og í gær að nemendur við skólann, sem eru þolendur kynferðisofbeldis, þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Fyrrverandi nemandi segir lítið hafa breyst frá því að hann var í þessari sömu stöðu fyrir áratug. 4.10.2022 20:30
Fangelsismálastjóri segir Barnakot á Hrauninu viðbjóðslegt Fangelsismálastjóri segir húsnæði til að taka á móti börnum á Litla-Hrauni vera viðbjóðslegt. Velgjörðamanni blöskraði svo að hann ákvað að styrkja fangelsið. Hann segir brýnt að bæta aðstöðu barna sem eiga foreldra í fangelsum. 4.10.2022 20:01
Fjöldi umdeildra mála á málaskrá ríkisstjórnar í vetur Ríkisstjórnin fyrir hugar að leggja 178 mál fyrir Alþingi í vetur. Mörg málanna eru umdeild eins og frumvörp dómsmálaráðherra um útlendinga, fækkun sýslumannsembætta og um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu. 4.10.2022 19:20
Einn sakborninganna hlaut dóm fyrir líkamsárás fyrir tveimur árum Karlmaðurinn sem er í gæsluvarðhaldi og með stöðu sakbornings vegna manndráps á Ólafsfirði í gær var dæmdur í eins árs fangelsi, meðal annars fyrir tvær líkamsárásir, árið 2020. Sá látni hlaut fangelsisdóm fyrir stunguárás fyrir hátt í tuttugu árum. 4.10.2022 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldahjálparstöð fyrir flóttamenn hefur verið opnuð í fyrsta skipti á Íslandi. Aldrei hafa fleiri flóttamenn komið til landsins en í ár og hefur straumur þeirra aukist mjög síðustu vikur. Við verðum í beinni útsendingu frá fjöldahjálparstöðinni í Borgartúni og ræðum við Rauða krossinn í kvöldfréttum. 4.10.2022 18:01
Taka þurfi á upplýsingaóreiðu um hinsegin fólk: „Við verðum að fá allt samfélagið með okkur“ Starfshópur forsætisráðherra gegn hatursorðræðu kemur til með að skila niðurstöðum sínum fyrir lok árs en framkvæmdastjóri Samtakanna 78 segir upplýsingaóreiðu þeirra helsta óvin um þessar mundir. Stjórnvöld geti gert meira til að bregðast við og samfélagið allt þurfi að taka þátt. 4.10.2022 17:19
Stormasamt samband litað af neyslu fíkniefna Kona á fertugsaldri er meðal þriggja sem sæta gæsluvarðhaldi grunuð um aðild að manndrápi á Ólafsfirði aðfaranótt mánudags. Hinn látni, karlmaður á fimmtugsaldri, er eiginmaður konunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu höfðu þau átt í stormasömu sambandi. 4.10.2022 14:53
Opna fjöldahjálparstöð fyrir flóttamenn í fyrsta sinn á Íslandi Rauði krossinn á Íslandi vinnur nú að því að opna fjöldahjálparstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd en þetta er í fyrsta sinn sem slík fjöldahjálparstöð er opnuð hér á landi. Sviðstjóri alþjóðasviðs hjá Rauða krossinum ítrekar að aðeins sé um tímabundið úrræði að ræða og kallar eftir frekari aðkomu sveitarfélaganna. 4.10.2022 14:51
Sparkaði í líkama og sló ítrekað í andlit starfsmanns Krónunnar Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 45 daga fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa veist með ofbeldi að starfsmanni verslunar Krónunnar í Rofabæ í Reykjavík í janúar 2021. Maðurinn sparkaði í líkama starfsmannsins og sló hann ítrekað með krepptum hnefa í andlit. 4.10.2022 14:34
Full ástæða til að halda áfram að kortleggja hatursorðræðu á Íslandi Fulltrúar frá á þriðja tug hagsmunasamtaka hafa sótt fundi starfshóps forsætisráðherra gegn hatursorðræðu en formaður hópsins segir ljóst að ákveðnir hópar komi verr út en aðrir. Þó erfitt sé að meta hvort hatursorðræða fari beinlínis vaxandi hér á landi sé full ástæða til að halda vinnunni áfram. 4.10.2022 14:01
Skólastjórnendur MH segja fagaðila hafa verið kallaða til Skólastjórnendur Menntaskólans við Hamrahlíð hafa sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar fjölmiðla um mótmæli nemenda vegna kynferðisofbeldis. Nemendurnir mótmæltu því í gær að þurfa að mæta gerendum á göngum skólans. 4.10.2022 14:00
Alvarlegt bílslys á Suðurlandsbraut Alvarlegt bílslys varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar ofan við Laugardalinn í Reykjavík um klukkan hálf eitt í dag. Tveir voru inni í fólksbíl sem virðist hafa verið ekið upp á kant, á gönguljós og oltið með þeim afleiðingum að bíllinn er mikið skemmdur. 4.10.2022 12:40
Grettir Sterki mættur til Stykkishólms Dráttarbáturinn Grettir Sterki er kominn til Stykkishólms. Báturinn er í leigu hjá Vegagerðinni, Sæferðum og Stykkishólmsbæ en Sæferðir sjá um að manna bátinn. 4.10.2022 12:23
Bylting í MH: Vilja ekki mæta nauðgurum sínum á göngunum Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð mótmæltu því í gær að nemendur skólans sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Þeir segja viðbrögð skólans vera ófullnægjandi. Fyrrverandi nemandi við skólann segir söguna vera að endurtaka sig. Fyrir tíu árum hafi henni verið nauðgað af samnemanda sínum. 4.10.2022 12:00
Bjuggust við að finna mun meiri loðnu Veiðiráðgjöf á loðnu minnkar verulega og haustmælingar voru undir væntingum að sögn sérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnun. 4.10.2022 11:52
Fjöldi fólks hefur sótt sér áfallahjálp á Ólafsfirði Fjöldi fólks hefur nýtt sér áfallahjálp Kirkjunnar og Rauða krossins á Ólafsfirði vegna manndráps sem var framið þar í fyrrinótt. Rauði krossinn mun áfram hafa viðveru í bænum og veita bæjarbúum stuðning vegna hroðaverksins. 4.10.2022 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Manndráp á Ólafsfirði, lækkuð veiðiráðgjöf loðnu, málefni hinsegin fólks og stríðið í Úkraínu verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 4.10.2022 11:34
Kópavogur greiðir mest en þar með er ekki öll sagan sögð Kópavogsbær greiðir 56 þúsund krónur í frístundastyrk til barna í sveitarfélaginu. Styrkurinn er sá hæsti sem veittur er hér á landi. Frístundastyrkur segir þó ekki alla söguna enda bæði misjafnt hve dýrt er fyrir börn að stunda tómstundir í sveitarfélögum. 4.10.2022 10:47
Þórgnýr nýr upplýsingafulltrúi ÖBÍ Þórgnýr Einar Albertsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ). Þórgnýr hefur þegar hafið störf. 4.10.2022 10:04
Kanna sameiningu NTÍ og Bjargráðasjóðs Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur farið þess á leit við stjórn Bjargráðasjóðs að hún kanni möguleikann á því að sameinast Náttúruhamfaratryggingum Íslands, NTÍ. 4.10.2022 09:09
„Falskt öryggi“ fyrir íbúa á Hofsósi og í Varmahlíð Mjög erfiðlega hefur gengið að manna útstöð Brunavarna Skagafjarðar á Hofsósi og er stöðin nær óstarfhæf og gefur falskt öryggi fyrir íbúa á svæðinu. 4.10.2022 08:42
Fæðingardeildinni á Neskaupstað lokað fram á laugardag Loka þurfti fæðingardeildinni á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað í gærkvöldi þar sem enginn svæfingarlæknir er til staðar. Verður deildin lokuð fram til laugardags. 4.10.2022 07:37
Tugmilljóna tjón á ótryggðri kornrækt Áætlað tjón á kornuppskeru í Eyjafirði vegna einnar helgar hvassviðris í september er áætlað á bilinu 25 til 30 milljónir króna. Þá er áætlað að frostskemmdir, sem urðu sums staðar í ágúst, hafi eyðilagt uppskeru fyrir 10 til 12 milljónir. 4.10.2022 07:24
Sprengdu hryðjuverkasprengju í bíl í æfingaskyni Um fjögur hundruð manns taka þátt í æfingu gegn hryðjuverkum sem fer nú fram á vegum íslensku Landhelgisgæslunnar. Yfirlautinant í breska sjóhernum segir um mikilvæga og rótgróna sprengjuleitaræfingu að ræða og að nú sé einblínt á nýjar ógnir í hernaðarmálum. 4.10.2022 07:17
67 prósent hjúkrunarfræðinga íhugað alvarlega að hætta 66,8 prósent hjúkrunafræðinga, eða tveir af hverjum þremur, hefur íhugað af alvöru að hætta störfum á síðustu tveimur árum. Þetta eru niðurstöður viðamikillar könnunar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 4.10.2022 07:15
Foreldrar í Laugardal fagna ákvörðun skóla- og frístundaráðs Byggt verður við alla þrjá grunnskólana í Laugardal til að mæta fjölgun nemenda í hverfinu ef nýsamþykkt tillaga skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur nær fram að ganga. Þetta ákvað ráðið á fundi í dag. Foreldrar í hverfinu anda léttar eftir margra mánaða baráttu. 3.10.2022 23:30
Kölluðu rússneska sendiherrann á teppið vegna innlimunarinnar Utanríkisráðuneytið kallaði rússneska sendiherrann á Íslandi til fundar til að lýsa fordæmingu sinni á tilraun rússneskra stjórnvalda til þess að innlima fjögur úkraínsk héruð í dag. Íslensk stjórnvöld ætla ekki að viðurkenna héruðin sem hluta af Rússlandi. 3.10.2022 23:02
Ætlað skotvopn reyndist leikfangabyssa Í kvöld var tilkynnt um ætlað skotvopn í bifreið í Hafnarfirði. Við nánari skoðun lögreglu kom í ljós að um leikfangabyssu var að ræða. 3.10.2022 22:16
Þrennt í gæsluvarðhald vegna manndrápsins á Ólafsfirði Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði tvær konur og einn karlmann í vikulangt gæsluvarðhald vegna mannsláts á Ólafsfirði í kvöld. Karlmaður á fimmtugsaldri var stunginn til bana þar í nótt. 3.10.2022 22:15