Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Starfsfólk elti mann sem hafði stolið úr verslun Starfsfólk verslunar í Kópavogi hringdi í lögreglu klukkan rétt rúmlega sex í gærkvöldi eftir að maður hafði stolið úr búðinni. Starfsfólkið hafði elt manninn en lögreglan hafði síðar afskipti af honum og vettvangsskýrsla rituð. 22.9.2022 06:31
„Ég vona að þetta klárist fyrir minn dag“ Erla Bolladóttir skoðar að fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu eftir að beiðni hennar um endurupptöku var hafnað. Hún glímir við ólæknandi krabbamein og kallar eftir því að ríkisstjórnin taki á sig rögg og ljúki Guðmundar- og Geirfinnsmálunum í eitt skipti fyrir öll. 21.9.2022 23:39
„Einhverskonar holdgerving staðalmynda um fatlað fólk“ Í Víðsjá í gær birtist gagnrýni sem fjallaði um verkið „Sem á himni“ sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Gagnrýnin hefur fengið mikla athygli síðan hún var birt og þá sérstaklega fyrir það að benda á meðferð og túlkun á fötluðum karakter innan verksins. Embla Guðrúnar- Ágústsdóttir, talskona hjá Tabú segir karakterinn birtast sem holdgerving staðalmynda um fatlað fólk. 21.9.2022 22:16
Segir kórkápu biskups algjört listaverk og þvílíkan heiður að fá að bera hana Forláta biskupskápa Hólastiftis, eftirgerð kórkápu Jóns Arasonar, hefur núna skipt um herðar, með vígslu nýs Hólabiskups. Solveig Lára Guðmundsdóttir, fráfarandi vígslubiskup, segir það hafa verið mikinn heiður að fá að bera kórkápuna enda sé hún algjört listaverk. 21.9.2022 22:11
Notuðu hestamennsku sem yfirvarp fyrir kannabisræktun Fjórir karlmenn eru ákærðir fyrir mjög umfangsmikla kannabisræktun á bóndabæ á Suðurlandi. Samkvæmt vitnisburði lögreglunnar átti húsráðandi, sem ekkert vit hafði á kannabisræktun, samskipti við annan höfuðpaur ræktunarinnar með hestamennskudulmáli. 21.9.2022 21:01
Nancy Pelosi og Katrín Jakobsdóttir funduðu á Capitol Hill Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings funduðu í dag í Washington D.C., höfuðborg Bandaríkjanna. 21.9.2022 21:00
Aukin tíðni krabbameina ekki vegna mengaðra vatnsbóla líkt og íbúar óttuðust Aukin tíðni krabbameina á Suðurnesjum má rekja til lifnaðarhátta frekar en mengunar í vatnsbólum en þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar á tíðni og orsökum krabbameina í Reykjanesbæ. Forstöðumaður Rannsókna- og skráningaseturs Krabbameinsfélagsins segir að ýmislegt sé hægt að gera til þess að draga úr krabbameinstilfellum, ekki aðeins á Suðurnesjum heldur landinu öllu. 21.9.2022 20:26
Starfsfólk Stúdentakjallarans þreytt á slæmri hegðun fótboltaáhugamanna Stúdentakjallarinn, skemmti-, lærdóms og griðastaður fyrir háskólasamfélagið sendi frá sér tilkynningu fyrr í kvöld. Þar kemur fram að starfsfólk hafi lent í hrottalegum dónaskap og ógnandi hegðun frá fótboltaáhugamönnum sem heimsæki staðinn. Haldi þessi hegðun áfram sé hætta á því að kjallarinn hætti að sýna fótboltaleiki. 21.9.2022 20:24
Notuð dömubindi, blautþurrkur og smokkar í fjörunni í Vesturbæ Notuð dömubindi, blautþurrkur og smokkar eru á meðal þess sem finna má í fjörunni í Vesturbæ nú þegar óhreinsað skólp hefur flætt þar um. Sérfræðingur hjá Veitum segir að draga þurfi úr blautþurrkunotkun með reglugerð. Fréttastofa kannaði hvað ratar úr klósettinu í fjöruna. 21.9.2022 20:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rússnesk stjórnvöld hóta notkun kjarnavopna og segja að öllum tiltækum ráðum verði beitt til þess að verja landið. Bandaríkjaforseti sakar Rússa um gróf brot gegn stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og vestrænir leiðtogar segja herkvaðningu til marks um örvæntingu. 21.9.2022 18:01
„Mildi að engan sakaði“ Ríkislögreglustjóri segir hættuástandi hafa verið afstýrt í dag. Fjórir voru handteknir af sérsveit ríkislögreglustjóra en í yfirlýsingu segir að tveir þeirra hafi verið taldir vopnaðir og hættulegir og að handtökurnar snúi að skipulagðri glæpastarfsemi og vopnalagabrotum. 21.9.2022 17:51
Kristín Linda nýr formaður samninganefndar ríkisins Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, verður nýr formaður samninganefndar ríkisins. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Þessa dagana er unnið að því að ljúka skipan samninganefndarinnar fyrir komandi kjaraviðræður. 21.9.2022 17:17
Bein útsending: Tryggjum leiðina.... 21. september er alþjóðlegur dagur heilabilunar. Efnt er til málþings Alzheimer-samtakanna í Háskólabíó sem hefst klukkan 16:30 og stendur í tvær klukkustundir. 21.9.2022 16:30
Fundu tvö kíló af fíkniefnum í töskum móður og sextán ára sonar Liðlega tvö kíló af amfetamíni og kókaíni fundust falin í ferðatöskum mæðgina er komu til Seyðisfjarðar með Norrænu að morgni þriðjudagsins 13. september síðastliðinn. Þetta kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. 21.9.2022 16:13
Húsvíkingar ósáttir við himinhátt kattagjald og slæma þjónustu: „Það er mikið dýrahatur sem fólk finnur fyrir“ Nokkrir kattaeigendur á Húsavík hafa óskað eftir að afskrá ketti sína eftir að leyfisgjaldið hækkaði um rúmlega tíu þúsund krónur milli ára og er nú það hæsta á landinu öllu. Einn kattareigandi segir að um óskiljanlega hækkun sé að ræða, þar sem ekkert sé í raun innifalið í gjaldinu og kettirnir fái ekki einu sinni að fara út. Það sé sjálfsagt að kattaeigendur sýni ábyrgð en eitthvað þurfi að koma á móti. 21.9.2022 15:44
Sérsveitin í aðgerð á iðnaðarsvæði í Mosfellsbæ Sérsveit ríkisslögreglustjóra og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu standa nú í aðgerð á iðnaðarsvæði í Mosfellsbæ. Sérsveitin handtók einnig karlmann í Kópavogi fyrr í dag. 21.9.2022 15:37
Segist ekkert vita um hvað Erla Bolladóttir sé að tala Sigurbjörn Víðir Eggertsson, fyrrverandi yfirmaður ofbeldis- og kynferðisbrotadeildar lögreglu, segist ekki kannast við að vera sekur um þær ásakanir sem Erla Bolladóttir lét falla á blaðamannafundi fyrr í dag. Þar fullyrti Erla að Sigurbjörn Víðir hefði nauðgað henni í fangaklefa þegar Erla sætti gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á Guðmundar- og Geirfinnsmálunum. 21.9.2022 15:33
Með ólæknandi krabbamein og þráir réttlæti Erla Bolladóttur greindi frá því á blaðamannafundi í dag að hún væri með krabbamein sem læknar teldu ólæknandi. Hún þráir ekkert heitar en að mál hennar fái réttlát endalok. Það kemur til greina að fara með mál hennar til Mannréttindardómstóls Evrópu. 21.9.2022 14:27
„Það er mikilvægt að þessi mál séu í lagi“ Formaður velferðarnefndar Alþingis segir mikilvægt að koma í veg fyrir lyfjaskort á landinu eftir að greint var frá því fyrr á árinu að skortur væri á lífsnauðsynlegum lyfjum fyrir börn. Um sé að ræða viðvarandi verkefni og unnið sé að umbótum á ýmsum sviðum. Bæta þurfi meðal annars upplýsingamiðlun til stofnana og heilbrigðisstarfsmanna og auka samstarf við Norðurlöndin. 21.9.2022 14:01
Formaður BÍ segist ekkert botna í því hvað Bjarna gangi til Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands (BÍ), segist ekki vita hvað Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, gangi til með að vilja blanda sér mál sem snýr að rannsókn lögreglu á fjórum blaðamönnum. Afstaða hans standist enga skoðun. 21.9.2022 12:20
Svona var blaðamannafundur Erlu Bolladóttur Erla Bolladóttir boðaði til blaðamannafundar í dag. Í gær var greint frá því að Endurupptökudómstóll hafi hafnað beiðni hennar um endurupptöku á Hæstaréttardómi í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálin. 21.9.2022 12:00
Lögreglumenn lýstu lygilegum rannsóknaraðferðum Lögreglumenn lýstu því fyrir dómi í gær hvernig þeir notuðu gögn frá Europol til að tengja tvo íslenska menn við huldumenn á netinu sem skipulögðu einn umfangsmesta fíkniefnainnflutning Íslandssögunnar. 21.9.2022 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Herkvaðning og hótanir Rússlandsforseta, kólnun á fasteignamarkaði, lyfjaskortur og brostnar vonir um Þjóðarhöll verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 21.9.2022 11:48
Munu ræða tillögur um nýtt nafn á sameinuðu sveitarfélagi Bæjarráð Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar mun á næstunni boða til íbúafundar vegna nafns á hinu nýja sveitarfélagi sem varð til fyrr á árinu með sameiningu Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. 21.9.2022 11:37
Hjóli Gísla Arnar stolið þrátt fyrir lás af dýrustu gerð Hjóli leikarans Gísla Arnar Garðarssonar var stolið fyrir utan Borgarleikhúsið í laugardagskvöld á meðan Gísli var að sýna sýninguna Ég hleyp. Það tók þjófinn aðeins örfáar sekúndur að nappa hjólinu. 21.9.2022 11:36
Samdi ljóð og sendi til MAST vegna dýraníðs á næsta bæ Guðrún Jónína Magnúsdóttir bjó á árunum 2011 til 2019 nálægt bænum í Borgarfirði sem fjallað hefur verið um ítrekað nýverið vegna dýraníðs. Hún segist endurtekið hafa tilkynnt slæma meðferð á kúnum á bænum til héraðsdýralæknis og Matvælastofnunar. 21.9.2022 09:56
Úthverfatófan ekki hættuleg mönnum Tófan sem sást á flakki um Breiðholtið fyrr í vikunni hefur sést bæði í Árbænum og Grafarholti síðan þá. Dýraþjónusta Reykjavíkur segir enga ástæðu til að óttast tófuna en varar fólk þó við að reyna að klappa henni. 21.9.2022 09:09
Miklar hitasviptingar gætu fylgt haustlægð um helgina Hiti gæti náð tuttugu gráðum einhvers staðar á Austurlandi þegar haustlægð nálgast landið á laugardag. Á aðfaranótt sunnudags fara hins vegar kuldaskil yfir landið og gæti hitinn þá snarlækkað. 21.9.2022 08:44
Krabbameinsdeildin löngu sprungin og engin lausn á borðinu Krabbameinsdeild Landspítalans er löngu sprungin og engar lausnir í sjónmáli, segir Vigdís Hallgrímsdóttir, forstöðumaður krabbameinskjarna spítalans, í samtali við Fréttablaðið. Hún segir aðstöðuna á deildinni langt í frá ásættanlega og að veikt fólk geti ekki beðið. 21.9.2022 06:55
Talinn vera innbrotsþjófur en var í raun húsráðandi Klukkan hálf tíu í gær barst lögreglu tilkynning um yfirstandandi innbrot á heimili í Grafarholti. Lögreglan mætti á svæðið en þá kom í ljós að innbrotsþjófurinn var í raun húsráðandi og hafði læst sig úti. 21.9.2022 06:51
Nemendur flykkjast heim að Hólum að læra fiskeldi Sprenging hefur orðið í fjölda nemenda í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum og stunda núna um áttatíu manns nám í faginu. Samtímis fer þar fram rannsóknar- og kynbótastarf í fiskeldi. 20.9.2022 23:13
„Ég skal axla ábyrgð á þessu máli“ Þingmaður í stjórnarandstöðunni ætlar að taka ábyrgð í máli sem enginn annar virðist vilja taka ábyrgð á. 20.9.2022 21:30
Engin vindmylla eftir í Þykkvabæ Eftirstandandi vindmyllan í Þykkvabæ var felld í dag, níu mánuðum eftir að fyrri myllan var sprengd niður. Verkið gekk mun hraðar fyrir sig en síðast enda ákveðið að hvíla sprengjurnar í þetta skiptið. 20.9.2022 21:25
Evrópumálin varði mikilvæga hagsmuni almennings Samfylkingin hefur aftur sett Evrópumálin í forgang með því að setja á dagskrá Alþingis umræðu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar segir málin varða mikilvæga hagsmuni almennings og fyrirtækja í landinu. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Evrópumálin ekki vera forgangsmál. 20.9.2022 20:13
Segir offituaðgerðir geta komið í veg fyrir sjúkdóma eins og krabbamein Gríðarleg fjölgun hefur orðið á magaerma-og hjáveituaðgerðum hér á landi síðustu tvö ár. Langflestar eru framkvæmdar á einkastofu. Kviðarholssskurðlæknir á Klíníkinni segir slíkar aðgerðir geta komið í veg fyrir alvarlega sjúkdóma eins og krabbamein. Úrelt sé að segja of feitu fólki að borða minna og hreyfa sig meira. 20.9.2022 19:31
„Kannski mættu þeir sem fjölluðu um málið læra eitthvað“ Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra svarar ummælum Þórðar Snæs Júlíussonar og segist furða sig á skrifum Þórðar. Hann segist hvorki vera í liði með lögreglunni né blaðamönnum heldur lögum landsins. 20.9.2022 17:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum ræðum við við kviðarholsskurðlækni um gríðarlega fjölgun magaerma- og hjáveituaðgerða hjá Íslendingum á síðustu tveimur árum. Um þriðjungur Íslendinga er of feitur í dag. Læknirinn segir úrelt að segja feitu fólki að borða minna og hreyfa sig meira. 20.9.2022 17:59
Vilja stækka Hundavinahópinn: „Þeim mun fleiri sem við náum til, því betra er það fyrir okkar skjólstæðinga“ Hundavinir Rauða krossins leita að sjálfboðaliðum sem vilja bætast í starfið en þegar eru 42 virk pör sem sinna heimsóknum til einstaklinga og stofnana. Verkefnastjóri segir alltaf þörf á fleiri sjálfboðaliðum og eru allir og hundar þeirra, stórir sem smáir, velkomnir. 20.9.2022 17:32
MDE skeri úr um lögmæti aðgerða lögreglunnar á Norðurlandi eystra Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, hefur falið Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni sínum, að óska eftir því að Mannréttindadómstóll Evrópu skeri úr um lögmæti framgöngu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. 20.9.2022 17:30
Stórskotaliðið í Covid kemur saman á ný til að heiðra Þórólf Þríeykið verður sameinað á ný á málþingi til heiðurs Þórólfs Guðnasonar, fyrrverandi sóttvarnalæknis, í vikunni. Heilbrigðisráðherra, forstjóri Landspítala, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og nýr sóttvarnalæknir verða einnig með erindi þar sem litið verður yfir farinn veg. 20.9.2022 15:54
Tjakkurinn gerði gæfumuninn þegar seinni vindmyllan var felld Seinni vindmyllan í Þykkvabæ féll til jarðar á fjórða tímanum í dag eftir að sérfræðingar Hringrásar skáru hana í sundur. Tjakkur gerði gæfumuninn í þetta skipti. 20.9.2022 15:45
Gramsverslun á Þingeyri: „ Vonumst til að sögunni verði sómi gerður“ „Þetta er fallegt hús á sem á sína merku sögu. Við vonumst til að sögunni verði sómi gerður.“ 20.9.2022 14:54
Beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku synjað Endurupptökudómstóll hafnaði beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku á Hæstaréttardómi frá árinu 1980 þar sem Erla var dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir rangar sakargiftir í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálin. Dómstóllinn féllst ekki á það að Erla hafi verið beitt þrýstingi, líkt og hún hélt fram. 20.9.2022 14:29
Oddný tjáir sig ekki um afsökunarbeiðni Magnúsar Orra Magnús Orri Marínarson Schram, fyrrverandi alþingismaður, hefur slegið í gegn meðal Sjálfstæðismanna sem kunna sér vart læti yfir afsökunarbeiðni hans vegna hlutdeildar hans í Landsdómsmálinu. 20.9.2022 13:49
Telur hótanir Hjörleifs settar fram í „geðshræringu og vanlíðan“ Boðað hefur verið til stjórnarfundar Flokks fólksins síðdegis til að reyna að ráða fram úr vanda flokksins sem hverfist um fulltrúa hans á Akureyri. Sjálftitlaður „guðfaðir listans“ fyrir norðan hótar meiðyrðastefnu á hendur þremur konum flokksins, formanni hans og varaformanni. 20.9.2022 12:13