Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sýndarveruleiki slær í gegn á Skriðuklaustri Sýndarveruleiki er orðin hluti af klaustursafninu á Skriðuklaustri í Fljótsdal þar sem gestir geta litið inn í klaustrin og séð það með eigin augum hvernig þau litu út að innan og utan. 17.8.2022 20:30
Víða ógerningur að fá bókaðan tíma hjá lækni Bið eftir tímum hjá heimilislæknum hefur sjaldan verið lengri á höfuðborgarsvæðinu og eru sumar heilsugæslustöðvar hættar að taka við tímabókunum. Óbókuðum komum fólks á heilsugæsluna hefur fjölgað gríðarlega milli ára. 17.8.2022 19:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bið eftir tímum hjá heimilislæknum hefur sjaldan verið lengri á höfuðborgarsvæðinu og eru sumar heilsugæslustöðvar hættar að taka við tímabókunum. Óbókuðum komum fólks hefur fjölgað gríðarlega milli ára. Farið verður yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.8.2022 18:00
Fjórtán sóttu um stöðu forstjóra Menntamálastofnunar Fjórtán einstaklingar sóttu um embætti forstjóra Menntamálastofnunar til Mennta- og barnamálaráðuneytisins. Meðal umsækjenda er Thelma Clausen Þórðardóttir, settur forstjóri Menntamálastofnunar. 17.8.2022 17:04
Tugir sækjast eftir fjórum skrifstofustjóraembættum Alls bárust Mennta- og barnamálaráðuneytinu 97 umsóknir um fjögur embætti skrifstofustjóra í nýju skipulagi ráðuneytisins. 17.8.2022 16:57
Mæla gegn því að taka hunda að gosstöðvunum Matvælastofnun (MAST) ræður fólki eindregið frá því að taka hunda og önnur dýr með að gosstöðvunum í Meradölum. Mengun getur haft afar skaðleg áhrif á dýrin. 17.8.2022 16:29
Lögðu hald á hundrað kíló af kókaíni Þrír þeirra sem handteknir voru í aðgerðum lögreglu fyrir tæpum tveimur vikum voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna stórtæks fíkniefnainnflutnings. Mennirnir eru taldir hafa flutt inn tæplega hundrað kíló af kókaíni. 17.8.2022 16:06
Með því versta sem reynslubolti á hálendinu hefur séð Töluverð ummerki eru eftir utanvegaakstur á Kverkfjallaleið norðan Vatnajökuls. Framkvæmdastjóri Ferðafélags Fljótsdalshéraðs sem man tímana tvenna segir ummerkin með þeim verstu sem hann hafi séð. 17.8.2022 15:33
Gossvæðið áfram lokað Gossvæðið í Meradölum verður áfram lokað í kvöld og í nótt. Tekin verður ákvörðun um hvenær svæðið verður opnað á fundi viðbragðsaðila klukkan hálf níu í fyrramálið. 17.8.2022 15:18
Björguðu manni úr sjónum við Garð Björgunarsveitin Ægir í Garði fékk í morgun útkall vegna manns sem talið var að væri í sjónum. Björgunarsveitin fann manninn heilan á húfi og var honum komið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. 17.8.2022 15:12
Gekk um Hafnargötu með öxi Karlmaður var í dag handtekinn fyrir aftan húsgagnaverslunina Bústoð við Tjarnargötu í Keflavík af sérsveit og lögreglunni á Suðurnesjum. Maðurinn hafði gengið eftir Hafnargötu með öxi. 17.8.2022 14:19
Segir þrot að óbreyttu blasa við Landspítalanum Forstjóri Landspítalans segir að Landspítalinn fari í þrot verði ekki brugðist við mannekluvandamálum spítalans. Staðan hafi aldrei verið jafnþung og í sumar þegar hleypa þurfti starfsfólki í langþráð frí eftir heimsfaraldurinn. 17.8.2022 13:59
Vill að Þjóðverjar byggi höfn í Vík Sveitarstjóri Mýrdalshrepps vill ráðast í hafnargerð í Vík í Mýrdal til að koma í veg fyrir umfangsmikla vikurflutninga um Suðurlandsveginn. Höfnin myndi skapa mikil tækifæri fyrir þorpið, sem er í dag eina hafnarlausa sjávarþorp landsins. 17.8.2022 13:31
Ef íslenskur ríkisborgari er myrtur erlendis hefur utanríkisráðherra ekki pólitísk afskipti Ef íslenskur ríkisborgari er myrtur erlendis hefur utanríkisráðherra almennt ekki pólitísk afskipti af málinu. Þetta segir upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins sem segir ráðuneytinu ekki heimilt að hafa afskipti af lögreglurannsókn í öðrum löndum. 17.8.2022 12:17
Gæti liðið að goslokum á næstu dögum Dregið gæti að goslokum á næstu dögum að mati eldfjallafræðings þar sem hraunflæðið nálgast lágmarksþröskuld. Lokað er inn á svæðið í dag vegna veðurs 17.8.2022 12:01
Hefur snúið við blaðinu og fær milda refsingu Karlmaður var á dögunum dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir auðgunarbrot. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn hefði snúið lífi sínu til betri vegar síðan brotin voru framin. 17.8.2022 11:59
Hrifinn af tillögum Sjálfstæðismanna Oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík líst vel á bráðatillögur Sjálfstæðismanna í leikskólamálum. Ekkert sé því til dæmis til fyrirstöðu að koma á fót bakvarðarsveit til að tryggja mönnun leikskólanna. Meirihlutinn kynnir eigin tillögur á morgun - sem að sumu leyti muni svipa til tillagna Sjálfstæðismanna. 17.8.2022 11:34
Lamaðist eftir bílslys og missti manninn sinn á sama ári Elínborg Steinunnardóttir lamaðist á vinstri hlið líkamans eftir alvarlegt bílslys árið 2020. Í maí sama ár greindist eiginmaður hennar, Þröstur Ingimarsson, með heilaæxli. Hann lést aðeins hálfu ári síðar, á meðan Elínborg lá enn inni á sjúkrahúsi. 17.8.2022 11:05
Enginn spenntur fyrir umfangsmiklum vikurflutningum um þjóðveginn Þungaflutningar yrðu mun tíðari um Suðurlandsveginn ef áform þýsks fyrirtækis ganga eftir. Vörubíll mun keyra í gegn um helstu bæi svæðisins á kortersfresti. Sveitarfélögum á svæðinu líst ekki á blikuna og setja sig upp á móti flutningunum. 17.8.2022 09:58
Ekkert útivistarveður við gosstöðvarnar í dag Lokað er inn á gossvæðið í Meradölum í dag og verða allir sem ætla Suðurstrandarveginn stoppaðir og rætt við þá. Spáð er vonskuveðri í dag, allt að 23 metrum á sekúndu ásamt talsverðri rigningu. 17.8.2022 09:56
Rúmlega þriðjungur klárar bakkalárnám á tilætluðum tíma Af þeim nýnemum sem hófu þriggja ára nám til bakkalárgráðu í háskólum á Íslandi árið 2014 kláruðu rúmlega þriðjungur það á tilætluðum tíma eða 38 prósent. Rúmlega 68,5 prósent nemenda kláruðu námið á sex árum eða skemur. 17.8.2022 09:36
Segir Bjarna sölsa undir sig annarra manna fé Formaður Sjálfstæðisflokksins tísti í gær að vandamálið með Sósíalista væri að á endanum klári þeir annarra manna fé. Gunnar Smári Egilsson, félagi í Sósíalistaflokki Íslands, segir hlutunum öfugt farið; að Sjálfstæðisflokkurinn sölsi undir sig annarra manna fé. 17.8.2022 07:53
Vilja stofna bakvarðasveit fyrir leikskólana Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu á morgun leggja fram fimm tillögur vegna stöðu leikskólamála í Reykjavík. 17.8.2022 07:15
Ungmenni létu öllum illum látum í verslunarmiðstöð Í gær barst lögreglu tilkynning um hóp ungmenna sem var til vandræða í verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu. Svo fór að einn úr hópnum réðst á lögreglumann. 17.8.2022 06:23
Dauðadæmt loforð um leikskólapláss Loforð um leikskólapláss fyrir öll tólf mánaða börn í Reykjavík var dauðadæmt frá byrjun, að mati leikskólastjóra sem ekki hefur getað boðið neinu barni fæddu 2021 pláss. Það sé enn fremur ekki endilega börnunum fyrir bestu að byrja á leikskóla 12 mánaða. 16.8.2022 21:01
Glóandi bráð úr gosinu í fyrra kreistist úr gamla hrauninu vegna þrýstings frá því nýja Bráð úr hrauninu sem rann úr eldgosinu við Fagradalsfjall í fyrra hefur kreist út um hraunið vegna þunga nýja hraunsins sem rennur úr eldgosinu í Meradölum. Þessir kraftar gera það að verkum að enn varasamara getur verið að ganga á gamla hrauninu. 16.8.2022 20:29
Skellt í lás á morgun Þeim sem ætla að skoða eldgosið í Meradölum á morgun verður snúið við þar sem svæðinu verður lokað vegna slæms veður sem ganga á yfir svæðið. 16.8.2022 19:36
Fengu ekki fullnægjandi svör á sínum tíma: „Við gerum aðra atlögu“ Lögreglan á Íslandi hefur ákveðið að gera aðra tilraun til þess að fá skýringar í máli Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur sem myrt var í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum. Ríkislögreglustjóri segir að óskað verði eftir frekari gögnum og svörum sem ekki bárust á sínum tíma. 16.8.2022 18:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögreglan á Íslandi hefur ákveðið að gera aðra tilraun til þess að fá skýringar í máli Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur sem myrt var í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum. Ríkislögreglustjóri segir að óskað verði eftir frekari gögnum og svörum sem ekki bárust á sínum tíma. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 16.8.2022 18:01
Þungir dómar fyrir grófar frelsissviptingar og líkamsárásir Þrír karlmenn voru á dögunum dæmdir til nokkuð langrar fangelsisvistar fyrir að frelsissvipta tvo menn og beita þá grófu ofbeldi. Þá var einn þeirra einnig sakfelldur fyrir að stela bíl móður annars brotaþola og peningum af bankareikningi hans. 16.8.2022 16:44
Fór að gosstöðvunum á inniskónum því gönguskórnir voru of ljótir Tugir þúsunda hafa lagt leið sína að gosstöðvunum í Meradölum frá því að eldgos hófst þar fyrir tæpum tveimur vikum. Göngufólk hefur þó verið misvel búið og sumir lagt í hann ekki betur skóaðir en í inniskóm. 16.8.2022 15:32
Íbúar áhyggjufullir vegna mögulegrar efnistöku Formaður bæjarráðs Árborgar er hræddur um að vegakerfið í sveitarfélaginu þoli ekki þann þungaflutning sem fyrirhugaður er um Suðurland vegna efnistöku á vikri á Mýrdalssandi við Hafursey. Hann segir að það þurfi í mörg horn að líta. 16.8.2022 15:20
Gunnar Smári segir Bjarna vilja Sósíalistaflokkinn feigan Gunnar Smári Egilsson, einn leiðtogi Sósíalista, hefur brugðist hart við frétt Vísis þess efnis að Bjarni Benediktsson vilji draga úr styrkjum til stjórnmálaflokka. 16.8.2022 14:35
Í áframhaldandi gæsluvarðhald grunaður um brot gegn tveimur konum Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald en grunur er um að maðurinn hafi brotið á tveimur konum í aðskildum málum um verslunarmannahelgina. 16.8.2022 14:16
Tæmdi Lebowski með prumpusprengju Óprúttinn aðili notaðist við einhverskonar prumpusprengju á Lebowski bar á laugardaginn og tæmdi staðinn á svipstundu. Eigandi barsins hvetur aðilann til að stunda iðjuna heima hjá sér frekar en á skemmtistöðum og börum. 16.8.2022 13:51
Lögreglan mun skoða gögn í máli Hrafnhildar Lilju og óska eftir upplýsingum frá Dóminíska lýðveldinu Lögreglan á Íslandi vinnur nú að því að skoða gögn í máli Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur sem myrt var í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum. Lögreglan mun senda fyrirspurnir út og óska eftir upplýsingum um málið. Þetta segir yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra sem telur lögregluna ekki hafa þær upplýsingar sem hún óskaði eftir í málinu á sínum tíma 16.8.2022 12:23
Bjarni vill draga úr opinberum styrkjum til stjórnmálaflokka Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra telur skjóta skökku við að nýstofnaðir stjórnmálaflokkar búi yfir tugmilljóna sjóðum sem eru til komnir vegna framlaga úr ríkissjóði. 16.8.2022 12:00
Ægir og Týr seldir á 51 milljón króna Líklegast er að varðskipin Ægir og Týr fari úr landi, en afsal vegna sölu ríkisins á skipunum til félagsins Fagurs ehf. var undirritað á skrifstofu Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð í Reykjavík í gær. Mögulegt er að skipunum verði breytt í farþegaskip sem gætu siglt á norðurslóðum enda gætu þau hentað vel til slíkra siglinga. Kaupverðið hljóðar upp á 51 milljón króna. 16.8.2022 11:58
Hádegisfréttir Bylgjunnar Óleyst morðmál, vikurflutningar, varðskipasala og tryggingar verða meðal umfjöllunarefna hádegisfrétta Bylgjunnar í dag. 16.8.2022 11:36
Guggan komin heim en er ekki lengur gul Hið landsfræga skip Guðbjörgin ÍS, eða Guggan, er komin aftur heim til Íslands eftir rúmlega tveggja áratuga útgerð erlendis. Guggan hefur hins vegar bæði fengið nýtt nafn, Snæfell EA, og tapað sínum einkennislit og er nú blá. 16.8.2022 11:35
Verulega dregið úr hraunflæði Verulega hefur dregið úr hraunflæði við gosstöðvarnar í Meradölum. Samkvæmt niðurstöðum flugmælinga hefur flæðið farið úr 11 rúmmetrum á sekúndu yfir í 3 til 4 rúmmetra á sekúndu. 16.8.2022 11:11
Hættir hjá Landspítala og verður leiðtogi öldrunarþjónustu hjá borginni Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri á Landspítala, hefur verið ráðin skrifstofustjóri og leiðtogi öldrunarmála hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Síðustu níu ár hefur hún starfað sem aðstoðarmaður forstjóra Landspítala og síðar framkvæmdastjóri á Landspítala. 16.8.2022 10:47
Gunni og Felix að bugast vegna hávaða frá þyrlum Gósentíð er nú hjá þyrlufyrirtækjum vegna gossins á Reykjanesi. En ekki eru allir kátir með ónæðið sem er því samfara; þeir eru reyndar fjölmargir sem vilja segja hingað og ekki lengra. Þeir Gunni og Felix skemmtikraftar eru þeirra á meðal. 16.8.2022 10:38
Myndaveisla: Gosstöðvarnar eftir tvær vikur af eldgosi Rétt tæpar tvær vikur eru liðnar síðan eldgosið í Meradölum hófst og hefur það þegar tekið talsverðum breytingum. Enn er umferð um gosstöðvarnar talsverð en ljósmyndari okkar, Vilhelm Gunnarsson, gerði sér ferð að gosstöðvunum í gær til að líta á síbreytilega náttúruna. 16.8.2022 10:28
Ákærður fyrir að stela 34 símum og greiðslukorti fjórtán ára stúlku Rétt rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu fyrir að stela samtals 34 farsímum og öðru góssi, þar á meðal greiðslukorti 14 ára stúlku. Flest brotin voru framin í íþróttaklefum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. 16.8.2022 10:16