Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Allt að 16 stiga hiti og frábært veður til útiveru Víðáttumikil lægð mjakast austur fyrir landið í dag og gengur því í norðan 5-13 metra á sekúndu með morgninum, hvassast vestantil. Norðanáttinni fylgir rigning eða súld og víða þoka á Norður- og Austurlandi, auk Vestfjarða, en sunnan- og suðvestantil léttir til er líður á daginn. 21.5.2022 09:22
Reykjavíkurbörn í unglingavinnunni fái launahækkun Tillaga um hækkun tímakaups unglinga í vinnuskóla Reykjavíkur var send til borgarráðs í vikunni eftir að hún var samþykkt hjá Umhverfis- og heilbrigðisráði borgarinnar. 21.5.2022 08:23
Verðhækkanir á hrávöru hafa áhrif á íslensk fyrirtæki Heimsmarkaðsverð á fóðri og hráefnum hefur hækkað um 43 prósent á rúmu ári og um 23 prósent síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Framkvæmdastjóri Reykjagarðs segir erfitt vera að gera áætlanir fram í tímann þegar óvissan er allsráðandi. 21.5.2022 08:12
Fengu áður óbirtan ljóðabálk eftir Davíð Stefánsson Nítján erinda ljóðabálkur eftir Davíð Stefánsson er nú kominn í hendurnar á Davíðshúsi sem rekið er af Minjasafninu á Akureyri. Ljóðin voru ort til æskuvinkonu Davíðs. 21.5.2022 07:44
Eldur í vinnuskúr í Elliðaárdal Klukkan rétt rúmlega hálf þrjú í nótt urðu lögreglumenn í eftirlitsferð varir við eld í Elliðaárdal. Í ljós kom að kviknað var í vinnuskúr og komu lögreglumenn að tveimur mönnum sem voru handteknir vegna gruns um íkveikju. Mennirnir voru í annarlegu ástandi og voru vistaðir í fangaklefa. 21.5.2022 07:30
Fjölskylda ráðherra vill byggja á svæði sem aðrir fengu ekki að byggja á Einkahlutafélag sem stofnað var af Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra og eiginkonu hans hefur fest kaup á einbýlishúsi og 3,2 hektara lóð í Garðabæ. Jón gekk úr eigendahóp félagsins daginn fyrir kaupin. 20.5.2022 22:56
Aldís verður sveitarstjóri í Hrunamannahreppi Aldís Hafsteinsdóttir mun taka við sem sveitarstjóri Hrunamannahrepps. Þetta kemur fram í tilkynningu frá D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra. 20.5.2022 21:23
„Fulltrúar erlendu stórfyrirtækjanna tókust bara á loft“ Forseti Íslands segir lífsreynslu útaf fyrir sig að hafa fundað með Apple, Microsoft og Amazon vestanhafs síðustu daga. Helstu sérfræðingar Íslendinga í máltækni eru hluti af sendinefnd, sem á að sannfæra stórfyrirtækin um að bjóða upp á samskipti við símana - á íslensku. 20.5.2022 21:12
Miðflokkurinn gefur Sjálfstæðismönnum sviðið í Grindavík Þrátt fyrir að Miðflokkurinn hafi unnið stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum í Grindavík um seinustu helgi er komið að Sjálfstæðisflokknum í að reyna að mynda meirihluta. Meirihlutaviðræður gengu ekki upp hjá Miðflokksmönnum. 20.5.2022 21:08
Leiðtoginn í höfuðvígi Miðflokksins Grindavík er orðin stærsta vígi Miðflokksins, og jafnframt eitt það síðasta, á sveitarstjórnarstiginu. Oddviti flokksins í bænum átti ekki von á því að flokkurinn ynni slíkan stórsigur - en telur ýmsar ástæður liggja þar að baki. 20.5.2022 20:31
Ætlar ekki að hætta fyrr en öll börn í Laugardalnum eru óhult Maður sem hefur ítrekað berað sig fyrir framan börn í Laugardalnum var í gær hnepptur í gæsluvarðhald. Móðir stelpu sem lenti í manninum segir það vera mikinn létti. 20.5.2022 20:26
Ekkert nema hryllingur bíði hennar í Grikklandi Sómölsk kona, sem vísa á úr landi á næstu dögum, segir brottvísun ógna lífi sínu. Lögmaður hennar gagnrýnir að stjórnvöld hefji nú brottvísanir á ný í stórum stíl, sem hann telur að gætu verið ólögmætar. 20.5.2022 19:00
Enn skelfur jörð á Reykjanesi Jarðskjálfti varð 6,8 kílómetra vestnorðvestur af Reykjanestá klukkan 18:33 í kvöld. Skjálftinn varð á 6,6 kílómetra dýpi og mældist 3,8 að stærð. 20.5.2022 18:58
Fólkið hafi vitað af því að dagsetningin kæmi Dómsmálaráðherra gefur lítið fyrir gagnrýni ákveðinna hópa um að nú eigi að vísa hælisleitendum úr landi í stórum stíl eftir kórónuveirufaraldurinn en hann bendir á að fólkið sem um ræðir hafi verið hér ólöglega allan þann tíma. 20.5.2022 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við yfir gang meirihlutaviðræðna í Reykjavík eins og undanfarna daga, en ekki síður stöðuna um allt land, þar sem víðast hvar er kominn öllu meiri skriður á viðræður. 20.5.2022 18:14
Gert að greiða rúmlega 36 milljóna króna sekt vegna skattsvika Kona, sem sat í stjórn einkahlutafélagsins Hæ ehf., hefur verið gert að greiða rúmlega 36 milljóna króna sekt til ríkissjóðs fyrir skattalagabrot á árunum 2016 og 2017. 20.5.2022 17:39
Þórdís Sif ekki endurráðin sem sveitarstjóri Þórdís Sif Sigurðardóttir mun ekki halda áfram sem sveitarstjóri Borgarbyggðar. Hún hefur gengt starfinu síðastliðin tvö ár. 20.5.2022 17:24
Gífurleg aukning í tilkynningum um netsvindl Tilkynningum um netárásir hefur fjölgað mikið síðustu ár samkvæmt ársskýrslu CERT-ÍS, netöryggissveitar Fjarskiptasofu. Rúm tvöföldun hefur verið í tilkynningum um netsvindl milli áranna 2020 og 2021 á sama tíma og tölvuþrjótar nota æ þróaðri aðferðir til að herja á lykilorðabanka og viðkvæm gögn. 20.5.2022 16:19
Segir starfsmenn hugsa sér til hreyfings eftir fund um útboð Framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala boðaði starfsfólk öldrunardeildar Landspítalans á Vífilsstöðum á fund og tilkynnti þeim að stæði til að bjóða starfsemina út. Trúnaðarmaður Sameykis á vinnustaðnum segir ráðamenn ekki hafa hugsað málið til enda. 20.5.2022 15:39
Oftast strikað yfir nafn Hannesar í Kópavogi Kjósendur Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi strikuðu alls sjötíu sinnum yfir nafn Hannesar Steindórssonar eða færðu hann neðar á lista í bæjarstjórnarkosninunum um liðna helgi. 20.5.2022 14:34
Bein útsending: „Why don‘t you just marry (an Icelander)?“ Norræna húsið stendur fyrir málstofu sem fjallar um málefni innfluttra listamanna og menningarstarfsmanna frá löndum utan ESB klukkan 15 í dag. Yfirskrift málstofunnar er „Why don‘t you just marry (an Icelander)?“ og verður hún í beinu streymi. 20.5.2022 14:31
„Ríkið á að auka tækifæri fólks í þessari stöðu en ekki öfugt“ Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði nýverið fram frumvarp til breytinga á löggjöf um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna. Frumvarpið felur í sér einföldun regluverks í kringum tæknifrjóvganir ásamt auknu frelsi og trausti til handa tilvonandi foreldrum sem þurfa að nýta sér tæknifrjóvgun. 20.5.2022 14:27
Útilokar ekki að apabóla berist hingað til lands Sænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að skilgreina apabólu (e. monkeypox) sem sjúkdóm sem ógn við almannaheill. Frá þessu greindi sænska ríkisstjórnin í morgun, en fyrsta tilfelli apabólu greindist í Svíþjóð í gær. 20.5.2022 13:14
Kynferðisbrotamenn reyni að nálgast börn í auknum mæli á Snapchat Ábendingum til lögreglu um meinta kynferðisbrotamenn á samskiptaforritinu Snapchat hefur fjölgað á undanförnum árum. Þetta segir lögregla sem telur óvíst hvort lögregla hafi lagalegar heimildir til að loka slíkum reikningum. 20.5.2022 12:07
Íris heldur bæjarstjórastólnum Eyjalistinn og Fyrir Heimaey undirrituðu samkomulag um meirihlutasamstarf í Vestmannaeyjum í morgun. Íris Róbertsdóttir verður áfram bæjarstjóri og Páll Magnússon verður forseti bæjarstjórnar. 20.5.2022 12:02
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um meirihlutaviðræður um allt land. 20.5.2022 11:38
Lögreglubílar skemmdir eftir eftirför Skemmdir urðu á sérsveitarbíl og lögreglubíl eftir eftirför við ökumann pallbíls sem lauk við brúna yfir Reykjanesbraut við Stekkjarbakka í morgun. Eftirför hófst eftir að ökumaður pallbílsins virti ekki stöðvunarskyldu og er hann grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. 20.5.2022 11:33
„Mikill skellur fyrir stóran hóp af fólki“ Lögmaður gagnrýnir harðlega að hefja eigi aftur brottvísanir á hælisleitendum í stórum stíl. Umbjóðendur hans hafi fest hér rætur í faraldrinum. Hann hafnar því sem hann kallar alhæfingu ríkislögreglustjóra, sem segir 250 manns dvelja hér án heimildar eftir að hafa neitað að undirgangast sóttvarnareglur. 20.5.2022 11:31
Góð stemning í BDSM-hópnum Oddviti Framsóknar á Akureyri segir viðræður Framsóknar, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Miðflokks ganga vel þó að ekki sé von á að meirihluti verði myndaður á næstunni. 20.5.2022 11:30
„Framsókn setti okkur afarkosti sem við gátum ekki sætt okkur við“ Samfylkingin sleit viðræðum við Framsóknarflokkinn um áframhaldandi meirihlutasamstarf á Akranesi í gær. Valgarður Lyngdal Jónsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir að Framsókn hafi sett flokknum afarkosti sem hann hafi ekki getað gengið að. 20.5.2022 11:01
Ásdís gerir tilkall til bæjarstjórastólsins Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi segir viðræður Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna ganga vel og að afstaða Sjálfstæðismanna sé skýr; stærsti flokkurinn eigi að fá bæjarstjórastólinn. 20.5.2022 10:55
Hrærður bæjarstjóri í Ölfusi lofar frambjóðendur í hástert Um það bil 2,5 prósent þjóðarinnar voru í framboði um síðustu helgi. Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss er afar ánægður með niðurstöðu kosninganna og hann birtir pistil á Facebooksíðu sinni þar sem hann lýkur miklu lofsorði á frambjóðendur almennt. 20.5.2022 10:53
Matvælastofnun brýnir fyrir ræktendum að fylgjast með kartöflugörðum Matvælastofnun segir nokkra hættu á kartöflumyglusmiti í sumar, útfrá sýktu útsæði frá því í fyrra en þá kom sjúkdómurinn upp á Suðurlandi. Stofnunin segir brýnt að áhugaræktendur og almenningur fylgist vel með kartöflugörðum sínum í sumar. 20.5.2022 10:40
Slitnar upp úr viðræðum á Skaganum Meirihlutaviðræður Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar á Akranesi hafa siglt í strand. 20.5.2022 09:00
Jarðskjálftavirkni heldur áfram við Svartsengi Jarðskjálftavirkni heldur áfram við Svartsengi. Í gær mældust um 370 skjálftar á svæðinu, sá stærsti klukkan rúmlega hálftólf í gærdag. Sá mældist 3,1 stig. 20.5.2022 07:38
Bílbruni í Hafnarfirði í nótt Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan hálf tvö í nótt þegar tilkynnt var um eld í bíl í Álfaskeiði í Hafnarfirði. 20.5.2022 07:34
Fjölmenni í fangageymslum lögreglu á Hverfisgötu í nótt Sjö einstaklingar gistu fangageymslurnar á Hverfisgötu í nótt, sem lögregla segir að teljist nokkuð mikið á virkum degi. Alls komu fimm fíkniefnamál upp og þá voru fjórir ökumenn stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum. 20.5.2022 07:21
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn bættu við sig eftir endurtalningu Endurtalningu atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum í Húnaþingi vestra er lokið. Ráðist var í endurtalningu þar sem aðeins munaði tveimur atkvæðum á því að N-listi Nýs afls í Húnaþingi vestra hefði náð inn þriðja manni í sveitarstjórn, á kostnað þriðja manns B-lista Framsóknarflokks og annarra framfarasinna. 19.5.2022 23:11
Mikið tjón á innviðum hugsanlegt í nýju gosi á Reykjanesi Jarðvirkni og landris sem nú á sér stað á Reykjanesi er á þannig stað að mikið tjón gæti orðið á innviðum ef eldgos hæfist þar. Íbúafundur vegna jarðskjálftahrinunnar var haldinn í Grindavík í kvöld. 19.5.2022 21:52
Dæmi um að fólk nái ekki í Neyðarlínuna á fáförnum vegum Ekkert farsímasamband er á yfir 200 kílómetrum af vegum landsins og eru dæmi um að fólk í neyð hafi ekki náð sambandi við neyðarlínuna vegna þessa. Neyðarlínan hefur hafið samstarf við þrjú farsímafyrirtæki að bæta þar úr. 19.5.2022 20:31
Þórdís Lóa segir línur fara að skýrast í Reykjavík Oddviti Viðreisnar telur að hreyfing gæti komist á meirihlutaviðræður í Reykjavík á morgun og formlegar viðræður gætu hafist eftir helgi. Hún þakkar pent fyrir áskorun oddvita Flokks fólksins um að slíta bandalaginu við Samfylkingu og Pírata en segist vera í því bandalagi af fullri alvöru. 19.5.2022 19:37
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við yfir gang meirihlutaviðræðna í Reykjavík, sem oddviti Viðreisnar telur að komist geti á skrið á morgun og eftir helgina, og öðrum meirihlutaviðræðum víðs vegar um land. 19.5.2022 18:07
Telja ekki að andlát konunnar sem fannst hafi borið að með saknæmum hætti Manneskjan sem fannst látin í fjörunni norðan Eiðsgranda í Reykjavík eftir hádegi í gær var kona. Ekki er talið að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. 19.5.2022 18:05
Flassarinn í Laugardalnum í gæsluvarðhald Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjavíkur. Maðurinn var handtekinn á íþróttasvæði í austurborginni síðdegis í gær, eftir að lögreglu barst tilkynning um mann sem væri að bera sig fyrir framan börn. 19.5.2022 17:51
Fjórtán samtök kalla eftir samráði við breytingar á útlendingafrumvarpi Rauði krossinn, ASÍ og Unicef eru meðal þeirra fjórtán samtaka sem gagnrýna stjórnvöld fyrir skort á samráði við meðferð frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga. Yfirlýsinguna sendu félögin frá sér í morgun og lýsa þar yfir áhuga og vilja á því að koma á samráði og samvinnu um mótun laga í málaflokknum. 19.5.2022 17:30