Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldi Oxycontin-notenda á Íslandi hefur margfaldast á síðustu tíu árum, þrátt fyrir aukna meðvitund um skaðsemi lyfjanna og hertar reglur. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum og í Kompás að loknum fréttum. 24.1.2022 18:01
Hjarðónæmi fyrir páska Sóttvarnalæknir og Kári Stefánsson telja báðir líklegt að við verðum laus við faraldurinn fyrir páska. Tillögur að afléttingaráætlun verða kynntar lok vikunnar en Kári segir ekki eftir neinu að bíða og vill afnema bæði sóttkví og einangrun. 24.1.2022 17:47
Kaflar að Fjaðrárglúfri og Hvítserk fá bundið slitlag Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í endurbyggingu tveggja kílómetra vegarkafla og lagningu bundins slitlags milli Hunkubakka og Fjaðrárgljúfurs í Skaftárhreppi. Áður var búið að klæða eins kílómetra kafla frá þjóðvegi eitt að Hunkubökkum. Þegar verkinu lýkur munu vegafarendur á hringveginum því geta komist á malbiki alla leið að þessum vinsæla ferðamannastað, sem er um tíu kílómetra vestan Kirkjubæjarklausturs. 24.1.2022 17:47
Bólusetningarvottorð grunnbólusettra aðeins tekin gild í níu mánuði Nýjar reglur um bólusetningarvottorð taka gildi eftir rúma viku en þá verða bólusetningarvottorð grunnbólusettra aðeins tekin gild í um níu mánuði frá seinni skammti. Þeir sem hafa fengið örvunarskammt fá ótímabundið bólusetningarvottorð. 24.1.2022 17:29
Afsögn formanns SÁÁ: Svaraði auglýsingu um kynlíf gegn greiðslu Einar Hermannsson hefur sagt af sér sem formaður SÁÁ. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá honum til fjölmiðla. Hann segir ástæðuna þá að hann hafi svarað auglýsingu á netinu fyrir einhverjum árum þar sem í boði hafi verið kynlíf gegn greiðslu. Það mál hafi ratað aftur upp á yfirborðið. 24.1.2022 16:57
Deilum innan Hundaræktarfélagsins vísað frá héraðsdómi Máli tveggja ræktenda gegn Hundaræktarfélagi Íslands og fulltrúum siðanefndar félagsins var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Að mati héraðsdóms voru margar dómkrafna bæði óskýrar og vanreifaðar og ræktendunum því gert að greiða félaginu málskostnað. 24.1.2022 15:31
Vill áfram leiða lista Pírata í Kópavogi Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, sækist eftir að áfram leiða lista Pírata í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara í maí. 24.1.2022 14:32
Nýja stólalyftan opnuð í febrúar ef veður leyfir Stefnt er að því ný stólalyfta í Hlíðarfjalli verði tekin í notkun um miðjan næsta mánuð, svo framarlega sem veður leyfir. 24.1.2022 14:19
Ragnhildur Steinunn breytir til hjá RÚV Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir hefur sagt upp sem aðstoðardagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV. Hún segist ætla að snúa sér aftur að dagskrárgerðinni. 24.1.2022 14:18
Fimmtán greinst í tengslum við hópsýkingu á lyflækningadeild Sex sjúklingar og níu starfsmenn hafa greinst með Covid-19 á lyflækningadeild B7 á Landspítalanum í Fossvogi á síðustu dögum þar sem nokkuð útbreidd hópsýking er komin upp. 24.1.2022 14:04
Lögreglumaður fær ekkert eftir að staða hans var auglýst vegna ítrekaðra kvartana Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af rúmlega 140 milljóna króna kröfu lögreglumanns eftir að skipun hans var ekki framlengd og staða hans auglýst laus til umsóknar. 24.1.2022 13:22
„Þetta er hún kæra móðir mín sem ég man ekki eftir að hafi blótað nokkru sinni“ Kjartan Jónsson framkvæmdastjóri og kennari segist ekki reka minni til þess að móðir hans, sem leikur í umdeildri auglýsingu Kjarnafæðis þar sem blótsyrði eru höfð uppi, hafi nokkru sinni blótað. „Þetta er hún kæra móðir mín sem ég man ekki eftir að hafi blótað nokkru sinni,“ segir Kjartan á Facebook-síðu sinni. 24.1.2022 12:57
Óttast skipsbrot rétt undan landi Lítil fyrirtæki í ferðaþjónustu sjá fram á skipsbrot rétt undan landi komi stjórnvöld ekki til móts við þau. Talskona fimm hundruð fyrirtækja samstöðuhóps furðar sig á því að styrkir vegna tekjufalls veitingastaða í samkomutakmörkunum nái ekki einnig til þeirra þar sem afbókanir hafi streymt inn. 24.1.2022 12:35
Fastur í skurði með óvirkan síma eftir bílveltu Ökumaður bíls sem valt á Bugavegi í Rangárþingi ytra í síðustu viku sat fastur í skurði í klukkutíma, þar sem hann gat ekki látið vita af sér. 24.1.2022 12:20
Leggur til breytingar á sóttkví í dag og telur hugmyndir Kára ágætar Sóttvarnalæknir hyggst leggja til tilslakanir á reglum um sóttkví í vikunni og afléttingar á samkomutakmörkunum í þeirri næstu. Hann segir hugmynd Kára Stefánssonar um að afnema sóttkví og einangrun ekki svo vitlausa en telur þó skynsamlegra að gera það í skrefum. 24.1.2022 12:11
Portúgalski flugherinn til Íslands til að sinna loftrýmisgæslu Flugsveit portúgalska hersins mun koma hingað til lands í vikunni til þess að hefja loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin mun koma hingað til lands með fjórar orrustuþotur og um 85 liðsmenn. 24.1.2022 12:11
„Þarna er ekki verið að flytja boðskap sem ég tek undir“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Arnar Þór Jónsson varaþingmann flokksins ekki vera að tala fyrir stefnu flokksins í starfi sínu fyrir samtökin Ábyrgð og frelsi. Arnar Þór hefur meðal annars lýst miklum efasemdum um að börn séu sprautuð með því sem hann kallar tilraunaefni. 24.1.2022 11:33
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni og hann inntur álits á því hvenær og hvernig skuli draga úr takmörkunum í samfélaginu. 24.1.2022 11:30
Lögreglan rannsakar mál skipstjórans á Herjólfi Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur hafið rannsókn á máli skipstjóra sem hélt áfram að sigla Herjólfi eftir að atvinnuréttindi mannsins runnu út rétt fyrir jól. 24.1.2022 11:00
1.151 greindust innanlands í gær 1.151 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 145 á landamærum. 24.1.2022 10:57
Berserkurinn á Reykjanesbrautinni hnepptur í varðhald Maður sem grunaður er um að hafa gengið berskerksgang á Reykjanesbraut í síðustu viku var úrskurðaður í gæsluvarðhald um helgina. 24.1.2022 10:16
Smitaður eftir rómantík með frúnni í útlöndum Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. 24.1.2022 09:56
Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fjölgar milli daga 38 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Fjórir eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. 24.1.2022 09:53
Willum boðar afléttingaráætlun Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra vinnur nú að aðgerðaáætlun um afléttingar á sóttvarnaaðgerðum og á von á því að hún verði kynnt fyrir lok vikunnar. Núgildandi samkomutakmarkanir gilda til 2. febrúar. 24.1.2022 09:34
Fimm „vel hæfir“ umsækjendur verið teknir í viðtöl í ráðuneytinu Fimm umsækjendur um stöðu forstjóra Landspítala, sem taldir eru „vel hæfir“ af hæfnisnefnd, hafa verið teknir í viðtöl í heilbrigðisráðuneytinu. Ekki er útilokað að fleiri viðtöl verði tekin svo ráðningarferlinu er ekki lokið. 24.1.2022 07:25
Skerðing hjá Strætó vegna sóttkvíar og einangrunar Áætlun leiðar númer 3 hjá Strætó verður skert í dag, mánudag. Í stað þess að aka á 15 mínútna fresti yfir háannatímann verður ekið á hálftíma fresti allan daginn. Ástæðan er fjöldi vagnstjóra í sóttkví eða einangrun. 24.1.2022 06:55
Allt niður í tíu stiga frost Búast má við suðvestanátt á landinu í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, í dag. Skýjað með köflum, stöku él suðvestantil en annars þurrt að kalla. Frost á bilinu núll til tíu stig, kaldast í innsveitum. 24.1.2022 06:32
Grunaður um ofsaakstur undir áhrifum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann bifreiðar eftir hraðamælingu á Reykjanesbraut í Kópavogi á ellefta tímanum í gærkvöldi. Bifreiðin mældist á 46 kílómetra hraða yfir hámarkshraða, sem er 80 kílómetrar á klukkustund, og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 24.1.2022 06:21
Mótmæltu aðgerðum stjórnvalda í friðargöngu Alþjóðleg friðarganga var haldin í miðbænum í dag á vegum samtakanna Frelsis og ábyrgðar. Þau samtök hafa gert margvíslega athugasemdir við framkvæmdir stjórnvalda í málefnum faraldursins, meðal annars við bólusetningu barna. Á meðal þeirra sem tóku til máls er Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem hefur áður boðað til mótmæla vegna bólusetninga barna í gegnum samfélagsmiðla. 23.1.2022 23:30
Þór gefur kost á sér í fyrsta sæti á Seltjarnarnesi Þór Sigurgeirsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 23.1.2022 22:19
Rúmur áratugur í Súðavíkurgöng samkvæmt áætlunum Innviðaráðherra segir verið að skoða að stofna opinbert félag um jarðgangagerð að færeyskri fyrirmynd. Þannig yrði hægt í samvinnu við aðra að grafa göng á fleiri stöðum í einu með innheimtu veggjalds. Forgangsverkefnin í vegakerfinu séu mörg og brýn. 23.1.2022 20:36
Forsendur harðra takmarkana séu brostnar Fjármálaráðherra telur forsendur fyrir hörðum samkomutakmörkunum brostnar. Í vikunni verði unnið að útfærslu afléttingaráætlunar. 23.1.2022 20:11
Willum stefnir á eigið frumvarp um neysluskammta Heilbrigðisráðherra stefnir á að leggja fram eigið frumvarp um lögleiðingu neysluskammta ávana- og fíkniefna á yfirstandandi þingi. Þó komi til greina að semja um innihald frumvarps sem þingflokksformaður Pírata mælti fyrir á Alþingi í vikunni. 23.1.2022 19:09
Náðu toppi Aconcagua Arnar Hauksson fjallamaður og Sebastian Garcia leiðsögumaður hans náðu toppi Aconcagua nú rétt upp úr klukkan sex. Fjallið er hæsta fjall heims utan Asíu. 23.1.2022 18:55
Fer fram á bætur vegna brottreksturs úr Allir geta dansað Javier Fernández Valiño, hefur stefnt RVK Studios til greiðslu eftirstöðva samnings sem gerður var við hann þegar hann var einn atvinnudansara í þáttunum Allir geta dansað. Javi, eins og hann er kallaður, var á sínum tíma látinn fara frá þáttunum „vegna óviðráðanlegra aðstæðna.“ 23.1.2022 18:39
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra telur forsendur fyrir hörðum samkomutakmörkunum brostnar. Í vikunni verði unnið að útfærslu afléttingaráætlunar. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 auk þess sem við ræddum við fólk sem tók þátt í svokallaðri alheimsfriðargöngu gegn sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. 23.1.2022 18:20
Enginn hefur þurft á gjörgæslu eftir örvunarskammt Enginn sem þegið hefur örvunarskammt bóluefnis við Covid-19 hefur þurft að leggjast inn á gjörgæslu vegna sjúkdómsins. Þá eru líkur á innlögn 85 ára einstaklings, sem hefur þegið örvunarskammt, þær sömu og 57 ára óbólusetts einstaklings. Þetta segir í niðurstöðum Covid-19 rannsóknarhóps Landspítala. 23.1.2022 18:09
Íbúum fjölgar og fjölgar í Bláskógabyggð Íbúum fjölgar ört í Bláskógabyggð eins og á Laugarvatni og í Reykholti. Þá hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikill uppgangur í garðyrkjunni eins og nú í sveitarfélaginu. 23.1.2022 16:30
Helga sækist eftir 2. sæti Helga Jóhannesdóttir, varabæjarfulltrúi og nefndarmaður í skipulagsnefnd sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ sem fer fram laugardaginn 5. febrúar. 23.1.2022 14:38
Skólasund verður valfag Skólasund verður frá og með næsta skólaári að valfagi á unglingastigi grunnskóla í Reykjavík, gegn því að nemendur standist hæfnispróf fyrir tíunda bekk. Þá geta þeir valið að fara í aðrar greinar í stað sunds. 23.1.2022 14:00
Nældi sér í Covid-19 á EM Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, fylgdi í fótspor fjölmargra landsliðsmanna í handbolta og nældi sér í Covid-19 er hann skellti sér á EM í handbolta í Ungverjalandi. 23.1.2022 13:41
Fann þjáningu foreldra í gegnum skilaboðin Geðheilsa barna virðist hafa farið versnandi síðustu mánuði ef marka má lengingu biðlista eftir sálfræðiþjónustu fyrir börn. Biðlistar hafa lengst töluvert á síðustu tveimur árum en börn geta þurft að bíða allt að ár eftir þjónustu. 23.1.2022 13:01
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Heilbrigðisráðherra kveðst hafa allar mögulegar afléttingar á samkomutakmörkunum til skoðunar. Forstjóri Landspítalans segir að ef farið verði í afléttingar þurfi að gera það í fáum en öruggum skrefum. Ástandið hefur batnað á spítalanum að sögn yfirlæknis. 23.1.2022 11:56
Blasir við að stefni í afléttingar Heilbrigðisráðherra kveðst hafa allar mögulegar afléttingar á samkomutakmörkunum til skoðunar. Forstjóri Landspítalans segir að ef farið verði í afléttingar þurfi að gera það í fáum en öruggum skrefum. Ástandið hefur batnað á spítalanum að sögn yfirlæknis. 23.1.2022 11:51
Dóra Björt gefur kost á sér áfram Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, ætlar að gefa kost á sér áfram í oddvitasæti flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. 23.1.2022 10:58