Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Í lagi að heita Haffý, Lúgó og Bæssam en ekki Laxdal Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Myrkey, Sólmáni, Haffý, Fjara, Lóley, Lúgó, Jöklar, Brim og Rósmar. Einnig Bæssam, Viola, Chris og Issa. 21.1.2022 06:51
Lögregla ítrekað kölluð út vegna láta og einstaklinga í annarlegu ástandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varði töluverðum tíma í nótt í að sinna útköllum vegna hávaðakvartana og einstaklinga í annarlegu ástandi. 21.1.2022 06:25
Rugl að sýnatökur kosti 80 til 120 milljónir á dag Kostnaður heilsugæslunnar við PCR-próf er miklu lægri en gert var ráð fyrir í byrjun faraldursins. Tæpur milljarður hefur farið í sýnatökur á höfuðborgarsvæðinu og á landamærunum. 20.1.2022 23:00
Vestfirðingar geti alls ekki beðið lengur Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokksformaður Flokks fólksins, ítrekaði á Alþingi í dag kröfur sveitastjórnarfólks á Vestfjörðum um að ráðist yrði sem fyrst í gerð jarðganga milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Hann vísaði til tíðra snjóflóða á svæðinu, sem sáust síðast um nýliðna helgi. 20.1.2022 22:17
Sviðahausapizzur í Hveragerði á bóndadaginn Veitingamaður í Hveragerði ætlar að fara alla leið á bóndadaginn, sem er á morgun, því hann verður með sviðahausapizzur fyrir þá sem þora. 20.1.2022 21:31
Ítrekaðar nauðganir hafi drepið drauminn: Lögregla hafi algjörlega klúðrað málinu Dagrún Jónsdóttir sem kærði tvo bændur fyrir ítrekaðar nauðganir þegar hún var táningur segir skelfilegt að sjá hversu lögreglan rannsakaði málið illa á sínum tíma. Ríkissaksóknari vísaði málinu frá á grundvelli þess að rannsóknin dygði ekki til sakfellingar. Eftirlitsnefnd úrskurðaði meint brot lögreglu í málinu fyrnd í desember. Hún segist hvergi nærri hætt að leita að réttlætinu. 20.1.2022 21:00
Rándýr stóll Góða hirðisins loksins kominn með heimili Saga rándýra hönnunarstólsins sem var til sölu hjá Góða hirðinum fékk farsælan endi í dag. Stóllinn hefur hlotið sannkallaða yfirhalningu og var í dag gefinn til góðgerðasamtaka. 20.1.2022 21:00
„Hvað voru skipuleggjendur að hugsa?“ Tómas Guðbjartsson læknir segir alls ekki skynsamlegt að afnema sóttvarnir með hraði. Hann skýtur á ráðherra og segir að sjá megi leifturhraða útbreiðslu nýs afbrigðis kórónuveirunnar á Evrópumótinu í handbolta. 20.1.2022 20:06
Vilja lesa fleiri en 776 þúsund setningar Stefnan er að lesa fleiri en 776 þúsund íslenskar setningar inn í snjalltæki í þriðju Lestrarkeppni grunnskólanna sem hófst í Smáraskóla í dag, en sá setningafjöldi er metið frá því í fyrra. 20.1.2022 20:00
Færri þurfa að leggjast inn vegna veirunnar Þeim hefur fækkað verulega síðustu daga sem hafa þurft að leggjast inn á Landspítalann vegna kórónuveirunnar. Þá eru veikindi þeirra sem þurft hafa að leggjast inn minni en áður. 20.1.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Það var mikið áfall að greinast með kórónuveiruna og missa af stórleiknum gegn Dönum segir landsliðsmaður sem gagnrýnir sóttvarnir á hóteli liðsins í Búdapest. Sex liðsmenn hafa nú greinst smitaðir. 20.1.2022 18:00
Gat á sjókví í Reyðarfirði Gat var á nótarpoka einnar sjókvíar Laxa fiskeldis við Vattarnes í Reyðarfirði. Fyrirtækið tilkynnti Matvælastofnun um þetta í dag en gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit með kvíum á stöðinni. 20.1.2022 17:23
Verkefnið flóknara en Kári hafði haldið Rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar á því hversu margir hafa í raun og veru smitast af kórónuveirunni á Íslandi reyndist flóknari en haldið var. Óvíst er hvenær niðurstöður liggja fyrir en Kári Stefánsson forstjóri fyrirtækisins segir að allir verði látnir vita um leið og þær eru klárar. 20.1.2022 17:16
Ekkert ferðaveður víða annað kvöld Appelsínugul viðvörun vegna veðurs tekur gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra annað kvöld. 20.1.2022 15:12
Tónlistarkennarar samþykktu nýjan kjarasamning Nýr kjarasamningur Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. 20.1.2022 14:35
Rannsókn á bruna í Brekkubæjarskóla unnin í samvinnu með barnavernd Rannsókn lögreglu á bruna í Brekkubæjarskóla á Akranesi þann 13. janúar síðastliðinn er á lokastigi. 20.1.2022 14:26
Helga vill 2.-3. sætið í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Helga Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, hefur gefið kost á sér í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fram fer dagana 3. til 5. mars næstkomandi. 20.1.2022 14:06
Þrjátíu starfsmenn Lækningar tímabundið til Landspítala Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning við Lækningu í Lágmúla um að styrkja tímabundið mönnun á Landspítala vegna Covid-19. Samningurinn kveður á um allt að þrjátíu manna liðsauka. 20.1.2022 14:01
Dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir kynþáttaníð Tveir ungir karlmenn hafa verið dæmdir í þriggja og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á annan mann vegna kynþáttar hans og húðlitar. Á meðan á árásinni stóð kölluðu þeir manninn ýmsum nöfnum vegna húðlitar hans. 20.1.2022 13:53
Súðavíkurgöng verða í næstu samgönguáætlun Innviðaráðherra segir stefnt að þvi að jarðgöng milli Súðavíkur og Ísafjarðar verði í næstu samgönguáætlun stjórnvalda. Úrbótum í vegakerfinu hafi verið raðað eftir áhættusvæðum og þau svæði væru mörg á Íslandi. 20.1.2022 13:52
Skoða sölu á Malbikunarstöðinni Höfða sem er á leið til Hafnarfjarðar Borgarráð Reykjavíkurborgar afgreiddi í dag samning um brottflutning Malbikunarstöðvarinnar Höfða frá Sævarhöfða í Reykjavík þar sem til stendur að koma á nýrri byggð. Sömuleiðis var ákveðið að kanna kosti og galla þess að selja hundrað prósenta hlut borgarinnar í Malbikunarstöðinni líkt og kveðið er á í meirihlutasáttmálanum. 20.1.2022 13:28
Skoðar frekari tilslakanir á sóttkví og einangrun Tvíbólusett börn munu mögulega sleppa við að fara í sóttkví en í skoðun er að breyta reglunum. Sóttvarnalæknir segir frekari tilslakanir á reglum um einangrun og sóttkví í vinnslu. 20.1.2022 13:01
Mátti segja að drengur hefði nauðgað henni en ekki að hann hefði nauðgað öðrum Héraðsdómur Norðurlands eystra telur að gerendum í kynferðisbrotamálum verði fært þöggunarvald yfir þolendum, með aðstoð dómsvalda, megi þolendur ekki tjá sig um reynslu sína nema þeir geti raunverulega sýnt fram á að að brotið hafi átt sér stað. 20.1.2022 12:12
Segir bólusetningu leikskólabarna hafa gengið ágætlega Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að bólusetning fimm ára barna hafi gengið ágætlega. Nákvæmar upplýsingar um mætingarhlutfall muni þó ekki liggja fyrir fyrr en í næstu viku. 20.1.2022 11:38
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verða raunir íslenska landsliðsins handbolta að sjálfsögðu fyrirferðarmiklar en fimm leikmenn liðsins hafa nú greinst með kórónuveiruna. 20.1.2022 11:30
Guðni forseti á meðal 77 ferðalanga á leið á Danaleikinn Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er á meðal 77 stuðningsmanna Íslands sem eru á leið í loftið með flugi til Búdapest í dag. Fram undan er landsleikur gegn Dönum í kvöld en um er að ræða fyrsta leik þjóðanna í milliriðli EM í handbolta. 20.1.2022 10:56
1.302 greindust innanlands 1.302 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 88 á landamærum. 20.1.2022 10:44
Sextíu prósent í yngsta aldurshópnum vilja banna sölu flugelda til einkanota Sextíu prósent Íslendinga í aldurshópnum 18 til 24 ára vilja banna sölu flugelda til einkanota. 20.1.2022 10:36
Þrjú sóttu um stöðu íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu Þrjár umsóknir bárust um embætti íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu en umsóknarfrestur rann út 14. janúar síðastliðinn. 20.1.2022 10:23
Foreldrarnir ráða en eiga að ráðfæra sig við barnið ef það er orðið 12 ára Það er mikilvægt að börn yngri en 16 ára geti leitað upplýsinga og ráðgjafar hjá heilbrigðisstarfsfólki án vitundar eða samþykkis foreldris en heilbrigðisstarfsfólk má ekki veita börnunum þjónustu eða meðferð án samþykkis forráðamanns. 20.1.2022 10:21
Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fækkar um einn milli daga 32 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19 og fækkar um einn milli daga. Líkt og í gær eru þrír á gjörgæslu, allir í öndunarvél. 20.1.2022 09:58
Keyrt á kyrrstæðan bíl á aðrein á Reykjanesbraut Sjúkrabílar Brunavarna Suðurnesja voru sendir á vettvang eftir tilkynning barst um að bíl hafi verið ekið á kyrrstæðan bíl á aðrein á Reykjanesbraut skömmu eftir klukkan hálf níu í morgun. 20.1.2022 09:06
Efna til samkeppni um tákn fyrir fjögur hýryrði Samtökin '78 blása til leitar að táknum fyrir fjögur hinsegin orð í samstarfi við málnefnd um íslenskt táknmál. Dómnefnd mun velja úr innsendum tillögum en niðurstöður verða tilkynntar 11. febrúar næstkomandi, á degi íslensks táknmáls. 20.1.2022 08:09
Rannsókn lögreglu á banaslysinu í Gnoðarvogi lokið Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn á banaslysinu sem varð á horni Gnoðarvogs og Skeiðarvogs í Reykjavík 25. nóvember síðastliðinn. Þar lést gangandi vegfarandi, kona á sjötugsaldri, eftir að hún varð fyrir strætisvagni. 20.1.2022 07:38
Forsvarsmenn verslunar og ferðaþjónustu kalla eftir bólusetningarvottorðum Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir óþol atvinnulífsins gagnvart sóttvarnaaðgerðum og örum breytingum þar á orðið mikið. 20.1.2022 06:57
Lögregla kölluð út vegna kattar „í góðum gír“ Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning á miðnætti um vælandi kött í póstnúmerinu 103. Þegar komið var á staðinn reyndist eigandinn ekki heima en kötturinn var „í góðum gír“ að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu. 20.1.2022 06:25
Vill jafna leikinn og hjálpa þolendum að rjúfa þögnina Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, tilkynnti í dag að hann vilji aðstoða þolendur kynferðisofbeldis við að losna undan trúnaðarsamningum við gerendur. Hann segist vilja jafna leikinn og hjálpa þolendum að rjúfa þögnina. 19.1.2022 23:49
Sprengingin mældist á jarðskjálftamælum: „Þetta var svaka hvellur“ Íbúar í Hvalfirði urðu varir við einhvers konar sprengingu eða skjálfta skömmu fyrir klukkan hálf sjö í kvöld. Lítill skjálfti mældist á mælum Veðurstofunnar en sprengingin var í raun á vegum byggingafyrirtækisins Borgarvirkis. 19.1.2022 22:33
„Við þurfum ekki að bíða eftir gögnum til að aflétta“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kallar eftir því að sóttvarnatakmarkanir verði endurskoðaðar í ljósi stöðu faraldursins. Ekki þurfi að bíða eftir frekari gögnum til að sjá að þróunin sé á réttri leið og ekki lengur þörf á hörðustu samkomutakmörkunum. 19.1.2022 21:59
Neita sér um að fara til tannlæknis Andlegri líðan launafólks hefur hrakað hratt síðasta árið og um þriðjungur þess er nú talinn búa við slæma andlega heilsu. Fjöldi þeirra hefur þurft að neita sér um einhvers konar heilbrigðisþjónustu vegna fjárhagsstöðu sinnar. 19.1.2022 21:00
Katrín Jakobsdóttir ekki forsætisráðherra Það getur verið flókið að heita Katrín Jakobsdóttir og það þekkir Katrín sjálf best. 19.1.2022 20:04
Hyggjast keyra ferð á Danaleik áfram: „Ég var skíthræddur um að það myndi ekki nást“ Heimsferðir og Úrval Útsýn hyggjast „keyra þetta áfram“ og halda áfram sölu á ferð til Búdapest í fyrramálið á landsleik Íslands og Danmerkur í handbolta sem fer fram á morgun. Ferðin var ákveðin með skömmum fyrirvara en áhugi er mikill. 19.1.2022 20:02
Upplýst snjallgangbraut vekur mikla lukku Nemendur og foreldrar í Melaskóla eru hæstánægðir með nýja, upplýsta snjallgangbraut við skólann. Krakkarnir upplifa sig mun öruggari í skammdeginu en áður og vilja helst að allar gangbrautir borgarinnar verði settar í þennan búning. 19.1.2022 20:00
Sakar ríkisstjórn og lífeyrissjóði um andvaraleysi gagnvart þjóðaröryggi Þingmaður Flokks fólksins gagnrýndi ríkisstjórnina og lífeyrissjóði harðlega á Alþingi í dag fyrir andvaraleysi í tengslum við sölu Símans á Mílu til erlends fjárfestingafyrirtækis sem enginn vissi hverjir ættu. Þeir sem staðið hafi á bakvið söluna væru ekki þekktir fyrir að bera hag almennings fyrir brjósti. 19.1.2022 19:20
Hinn íslenski þriðji vinningur gekk út Einn heppinn miðaeigandi vann 6.098.140 krónur í Vikingalottó í kvöld þegar hann var með fimm af sex tölum réttar og hlaut hinn íslenska þriðja vinning. Miðinn var keyptur í Lottó-appinu. 19.1.2022 19:10