Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
128 greindust smitaðir innanlands í gær Alls greindust 128 smitaðir af Covid-19 innalands í gær. Þar að auki greindust svo sex á landamærunum. Af þeim sem greindust innanlands voru 69 í sóttkví. 27.11.2021 10:48
Ævilöng svipting ökuréttinda felld niður Landsréttur hefur fellt niður ævilanga sviptingu ökuréttinda manns sem sakfelldur var fyrir að hafa verið óhæfur til að stjórna ökutæki sínu örugglega vegna áhrifa fíkniefna. 27.11.2021 09:03
Vara við frostrigningu og mögulegri flughálku Aðstæður við suður- og vesturströndina gætu gert það að verkum að von sé á frostrigningu með flughálku. Veðurstofan segir að vegfarendur á þessum slóðum ættu að hafa varan á fram eftir degi. 27.11.2021 07:15
Varð fyrir sérstökum vonbrigðum með forsætisráðherra Þrír frambjóðendur sem kærðu framkvæmd alþingiskosninganna segja það mikil vonbrigði að alþingi hafi staðfest kjörbréf allra þingmanna í gær. Það sé þó ákveðinn léttir að málinu sé lokið í bili. Einn kærenda segist sérstaklega vonsvikinn með afstöðu forsætisráðherra. 26.11.2021 23:28
Freyja sinnir nú sínu fyrsta verkefni Nýjasta varðskip Landhelgisgæslunnar, Freyja, sinnir nú sínu fyrsta verkefni en hún er með flutningaskipið Franciscu í togi áleiðis til Akureyrar. 26.11.2021 20:55
Ekið á mann við Sprengisand Ekið var á mann á miðri götu á við Sprengisand rétt í þessu. 26.11.2021 20:03
Líklegt að Framsókn fái viðbótarráðherra Æðstu stofnanir stjórnarflokkanna á milli landsfunda koma saman á morgun þar sem stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar verður kynntur og borin upp til atkvæða. Ráðherrum verður líklega fjölgað um einn og stofnað verður nýtt innviðaráðuneyti. 26.11.2021 19:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ferðabönn hafa verið sett á og hlutabréf fallið í verði um allan heim í dag vegna vaxandi áhyggja af útbreiðslu nýs mjög stökkbreytts afbrigðis kórónuveirunnar. Það hefur nú greinst í að minnsta kosti fimm löndum. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 26.11.2021 18:10
Hringveginum við Bifröst lokað vegna slyss Hringveginum var lokað við Bifröst vegna bílslyss sem varð um klukkan fimm í dag. Engin slys urðu á fólki að sögn Slökkviliðs Borgarbyggðar. 26.11.2021 17:36
Segir traustið til Ísteka brostið Forsendur sem settar hafa verið um blóðmerabúskap hefur ekki verið fylgt eftir að mati Sveins Steinarssonar formanns Félags hrossabænda. Það valdi því að traust til fyrirtækisins Ísteka sé brostið, en það kaupir allt blóð til framleiðslu frjósemislyfs sem notað er í ræktun búfjár erlendis. 26.11.2021 17:09
Læknirinn áfram í þjálfunarferli á Landspítalanum Læknir sem sætir lögreglurannsókn vegna gruns um að bera ábyrgð á dauðsföllum sex sjúklinga sem hann sinnti á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verður áfram í þjálfunar- og endurmenntunarferli á Landspítalanum. 26.11.2021 16:59
Óttast föður sinn sem eltir þær á röndum Karlmaður á Suðurnesjum hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. desember. Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis. Karlmaðurinn sætir ákæru fyrir fyrir stórfelld brot í nánu sambandi gegn fjórum dætrum sínum og fyrrum eiginkonu. 26.11.2021 16:30
Mun að óbreyttu mæla með bólusetningu fimm til ellefu ára Fyrstu skammtar bóluefnis Pfizer gegn kórónuveirunni, sem sérstaklega er gert fyrir ung börn, munu berast hingað til lands í lok desember. Sóttvarnalæknir telur líklegt að börnum á aldrinum fimm til ellefu ára verði boðin bólusetning, nema eitthvað sérstakt mæli gegn því. 26.11.2021 16:21
Telja nokkra sólarhringa í hlaup Sérfræðingar Veðurstofu Íslands búast ekki við því að fyrr en að hlaup hefjist úr Grímsvötnum í Vatnajökli fyrr en eftir nokkra sólarhringa. Íshellan þar hefur lækkað um 1,4 metra frá því hún stóð hæst og bendir það til að vatns sé byrjað að renna undir jöklinum og leiti sér að farvegi. 26.11.2021 15:52
Grunur um blóðþorra í fyrsta skipti á Íslandi Rökstuddur grunur er um blóðþorra, svonefnda ISA-veiru, í laxi í sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Veiran uppgötvaðist við krufningu og sýnatöku í kjölfar vaxandi óútskýrðra affalla í sjókví númer sjö hjá Löxum. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir fyrirtækið komið með þykkan skráp fyrir áföllum. 26.11.2021 15:20
„Kominn tími til að hann sé opinberaður“ Kona, sem hefur sakað Megas um að hafa brotið á sér kynferðislega ásamt öðrum manni, segir lagið Litlu ljót eftir Megas fjalla um ofbeldið. Hún var tvítug þegar hún kynntist Megasi en hann sextugur. 26.11.2021 14:54
Stal yfir sjötíu flöskum úr Vínbúðinni Stórtækur þjófur hefur verið sakfelldur fyrir alls 45 þjófnaði úr verslunum ÁTVR, Hagkaups, Lyfju og Elko á tæplega eins árs tímabili. Maðurinn nappaði yfir sjötíu flöskum af áfengi, aðallega sterku víni, úr Vínbúðinni. 26.11.2021 14:18
Ætla að kynna nýja ríkisstjórn á sunnudaginn Formenn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks ætla að funda með lykilfólki í flokkunum sínum á morgun og kynna fyrir þeim stjórnarsáttmála. Leggi þeir blessun sína yfir stjórnarsáttmálann verður hann kynntur fyrir þjóðinni á sunnudag. 26.11.2021 13:57
Sækja slasaðan göngumann á Strandir Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð laust eftir klukkan hálf eitt vegna göngumanns sem rann niður fjallshlíð í Norðurfirði á Ströndum og slasaðist. Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. 26.11.2021 13:33
Bein útsending: Hið umdeilda blóðmerahald á Íslandi í Pallborðinu Blóðtaka úr hryssum til framleiðslu hormóns sem notað er í búfjárrækt erlendis er eitt mesta hitamál vikunnar, eftir að alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin AWF/TBS birtu myndband um illa meðferð við starfsemina. 26.11.2021 12:36
Hin látna í Vogunum á sjötugsaldri Konan sem lést þegar strætisvagni var ekið á hana við gatnamót Gnoðarvogs og Skeiðarvogs í gær var á sjötugsaldri, af erlendum uppruna og búsett hér á landi. 26.11.2021 12:14
Eldgos í Grímsvötnum „jóker í stöðunni“ Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið stöðugt undanfarna daga og hefur hraðinn á siginu aukist töluvert. Vatn er nú byrjað að fara út úr Grímsvötnum en hefur ekki enn náð jökul jaðrinum. Prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands segir líklegt að merki um slíkt fari að sjást á mælum á næstu klukkustundum eða sólarhring. 26.11.2021 12:09
Ný ríkisstjórn á morgun eða hinn Reiknað er með að Katrín Jakobsdóttir flytji stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar á Alþingi á miðvikudag. Stjórnarsáttmáli stjórnarinnar verður annað hvort kynntur á morgun eða á sunnudag. 26.11.2021 12:01
Traustið á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu Frambjóðandi Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi segir traust sitt á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu eftir niðurstöðu kjörbréfamálsins. Hann sjái engan annan kost í stöðunni en að fara með málið alla leið til Mannréttindadómstóls Evrópu. 26.11.2021 11:52
„Fyllsta ástæða til að tapa sér ekki í umræðunni núna“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki tímabært að fara að skipuleggja hertar aðgerðir vegna fregna af nýju skæðu afbrigði kórónuveirunnar. Evrópusambandið hefur boðað flugbann frá svæðum þar sem afbrigðið hefur skotið upp kollinum. 26.11.2021 11:36
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ríkisstjórnarmyndun sem er óðum að taka á sig mynd. 26.11.2021 11:34
Galli í tillögu Svandísar hefði getað leitt til uppkosninga alls staðar nema í NV Hefði Alþingi hafnað tillögu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um uppkosningu í Norðvesturkjördæmi í heild sinni í gær hefði þurft að boða til uppkosninga í öllum kjördæmum nema Norðvesturkjördæmi. Þetta herma heimildir fréttastofu. 26.11.2021 11:08
149 greindust með Covid-19 í gær 149 greindust með Covid-19 innanlands í gær. Af þeim voru 92 fullbólusettir og 57 óbólusettir. 26.11.2021 11:00
Starfsmaður smitaður á bráðaöldrunarlækningadeild í Fossvogi Starfsmaður bráðaöldrunarlækningadeildar B4 á Landspítalanum í Fossvogi hefur greinst með Covid-19. Deildin er í sóttkví og lokað hefur verið fyrir innlagnir, að því er segir í Facebook-færslu Landspítala. 26.11.2021 09:03
Héraðsdómur segir málsmeðferð kærunefndarinnar „verulegum annmörkum háð“ Málsmeðferð kærunefndar útboðsmála, þegar hún tók fyrir mál Ísorku gegn Orku náttúrunnar og Reykjavíkurborg, var „verulegum annmörkum háð“. Þetta segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem ógilti úrskurð nefndarinnar. 26.11.2021 08:46
Kári hvetur fólk til að draga andann og bíða gagna um nýtt afbrigði Það er fræðilega mögulegt og líklega hafa menn einhverjar vísbendingar um að nýtt afbrigði SARS-CoV-2 sé meira smitandi og líklegra til að komast hjá ónæmisvörnum líkamans en það hefur alls ekki verið sannað enn sem komið er. 26.11.2021 07:58
Ekki að sjá að hlaupvatn sé komið fram í Gígjukvísl Ekki er að sjá að neitt hlaupvatn hafi komið fram í Gígjukvísl en íshellan í Grímsvötnum hélt áfram að lækka í nótt. 26.11.2021 07:40
Sjö prósent fullorðinna á Íslandi reykir Í dag reykja um 7 prósent fullorðinna á Íslandi en um er að ræða lægsta hlutfall í Evrópu. Karl Andersen, yfirlæknir á Hjartagátt Landspítalans, segir að þegar hlutfallið verði komið niður fyrir 5 prósent verði hægt að lýsa yfir sigri. 26.11.2021 07:01
3,5 stiga skjálfti við Vatnafjöll í nótt Skjálfti af stærðinni 3,5 var við Vatnafjöll um klukkan 3 í nótt á sömu slóðum og skjálfti af stærðinni 5,2 varð 11. nóvember síðastliðinn. 26.11.2021 06:26
Óku manni heim sem stóð öskrandi úti á götu Tveir voru handteknir þegar tilkynnt var um hópslagsmál í póstnúmerinu 108 í gærkvöldi. Þá var manni í annarlegu ástandi ekið heim af lögreglu eftir að tilkynning barst um að hann væri að öskra úti á götu í miðborginni. 26.11.2021 06:16
Stjórnendur Landspítala funduðu vegna lögreglurannsóknar Stjórnendur Landspítala funduðu í dag með landlækni vegna læknisins Skúla Tómasar Gunnlaugssonar sem sætir lögreglurannsókn vegna gruns um alvarleg mistök í starfi, sem talin eru hafa valdið dauðsföllum sjúklinga hans. 25.11.2021 23:43
Dagurinn snúist um að njóta með fjölskyldunni og vera þakklátur Þakkargjörðarhátíðin var haldin hátíðleg í dag og á morgun taka verslanir víða um land þátt í afsláttargleðinni sem fylgir Svörtum föstudegi. Um er að ræða einn stærsta verslunardag ársins og nýtur hann sífellt meiri vinsælda hér á landi. 25.11.2021 23:00
Smit hjá starfsmanni í Flúðaskóla Covid-smit hefur greinst hjá starfsmanni í Flúðaskóla í Hrunamannahreppi. Tekin hefur verið ákvörðun um að loka skólanum fram yfir helgi. 25.11.2021 22:02
Staðfestu kjörbréf allra þingmanna Alþingi staðfesti í kvöld kjörbréf allra þeirra 63 þingmanna sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Alþingi samþykkti tillögu meirihluta kjörbréfanefndar þess efnis og verður því ekki boðað til uppkosningar. 25.11.2021 21:35
Björgunarsveitir við öllu búnar: „Að vera ekki á ferðinni, það borgar sig aldrei“ Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Suðausturland sem tekur gildi á miðnætti. Finnur Smári Torfason hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar segir að meðlimir sveitarinnar séu við öllu búnir. 25.11.2021 21:30
Gætu borgað fyrir lyftu og viðhald með nýrri hæð Húsfélög lyftulausra fjölbýlishúsa gætu niðurgreitt uppsetningu á lyftu með því að bæta nýrri hæð ofan á hús sín, samkvæmt nýjum hugmyndum að hverfisskipulagi í Reykjavík. Markmiðið er að bæta aðgengi og gera eldra fólki kleift að búa lengur í íbúðum sínum. 25.11.2021 21:01
Í kvöld liggur fyrir hvort kosið verði aftur vegna annmarka í Norðvesturkjördæmi Ágallar í meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi voru það miklir að annað hvort ber að endurtaka alþingiskosningarnar í heild eða í Norðvesturkjördæmi samkvæmt tillögum fulltrúa í kjörbréfanefnd. 25.11.2021 20:33
Dómsmálaráðherra setur greinargerð um Hjalteyrarmálið í forgang Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hyggst setja greinargerð um Hjalteyrarmálið í forgang. Farin verði sú leið að vinna greinargerð um málið, enda hafi lagastoð skort fyrir rannsókn á málinu. 25.11.2021 19:57
Fær sjálf að taka upp nafnið Lán en hryssan ekki Hestaeigandi á Austurlandi furðar sig á því að fá ekki að nefna hryssu sína Lán. Hestanafnanefnd hafnaði nafninu vegna þess að það er hvorugkynsorð - en hægðarleikur var hins vegar að fá það samþykkt hjá mannanafnanefnd. 25.11.2021 19:12
Konan lést eftir að hafa orðið fyrir strætisvagni Konan sem lést í umferðarslysinu á gatnamótum Gnoðarvogs og Skeiðarvogs á níunda tímanum í morgun varð fyrir strætisvagni. Þetta fékk fréttastofa staðfest frá Strætó bs. 25.11.2021 18:39