Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan leitar Gunnars Svans Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gunnari Svani Steindórssyni, 43 ára karlmanni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 4.11.2021 16:25
Býst við minnisblaði frá Þórólfi um innanlandsaðgerðir í dag Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra býst við því að fá minnisblað frá sóttvarnalækni um aðgerðir innanlands í dag. Þá reiknar hún með því að ræddur verði möguleiki á hertum aðgerðum innanlands á ríkisstjórnarfundi í fyrramálið. 4.11.2021 14:42
Vill herða takmarkanir til að tryggja gleðileg jól Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður farsóttarhúsanna, segist vilja herða samkomutakmarkanir sem fyrst til að hægt verði að tryggja að landsmenn geti haldið gleðileg jól í desember. Hann segir að þau farsóttarhús sem nú séu starfrækt séu að fyllast og að álagið á kerfið sé gífurlegt. 4.11.2021 14:12
Viðar segir sig og Sólveigu Önnu hafa búið við gíslatökuástand á skrifstofum Eflingar Guðmundur Baldursson stjórnarmaður Eflingar er andsnúinn því að Agnieszka Ewa Ziółkowska varaformaður félagsins taki við formennsku í dag eftir að Sólveig Anna Jónsdóttir sagði af sér. Hann sé hins vegar í minnihluta stjórnar. 4.11.2021 14:10
Borgin setur 25 til 30 milljarða í viðhald og viðgerðir á skólahúsnæði Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að stórauka fjárframlög til viðhalds og viðgerða á skólahúsnæði í borginni. Stendur til að verja 25 til 30 milljörðum til málaflokksins sem er áætluð fjárþörf átaksins á næstu fimm til sjö árum. 4.11.2021 13:22
Bein útsending: Kynna 30 milljarða áætlun um viðhald skólabygginga í Reykjavík Oddvitar þeirra flokka sem mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur hafa boðað til blaðamannafundar í RáðhúsiReykjavíkur í dag þar sem áætlun um viðhald skólahúsnæðis í Reykjavík verður kynnt. Fundurinn hefst klukkan 13:15. 4.11.2021 12:31
Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi í Kjós í gær Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Hvalfjarðarvegi síðdegis í gær. 4.11.2021 12:21
„Mikilvægt að við sjáum smittölur strax ganga niður“ Smituðum einstaklingum fjölgar nú hratt á Akranesi og hefur bæjaráð gripið til þess ráðs að fella niður alla starfsemi í skólum á morgun. Lágmarksstarfsemi verður á öðrum stofnunum bæjarins. Bæjarstjóri segir að um sé að ræða nauðsynlega aðgerð. 4.11.2021 12:15
Erfiðasta afbrigðið til þessa 144 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær en ekki hafa fleiri greinst í þrjá mánuði. Sóttvarnalæknir hefur þungar áhyggjur af stöðunni og íhugar leiðir til að bregðast við. 4.11.2021 11:59
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður kórónuveirufaraldurinn fyrirferðarmikill. 144 greindust smitaðir í gær og verður rætt við sóttvarnalækni um stöðuna. 4.11.2021 11:37
Bein útsending: Fulltrúar stríðandi fylkinga í Eflingu mæta í Pallborðið Lagt verður til á stjórnarfundi Eflingar í dag að Agnieszka Ewa Ziółkowska varaformaður félagsins verði sett í embætti formanns til bráðabirgða í stað Sólveigar Önnu Jónsdóttur sem sagði af sér formannsembættinu á sunnudagskvöld. 4.11.2021 11:30
Óbreytt á landamærunum til 15. janúar Sóttvarnaraðgerðir á landamærunum verða óbreyttar til 15. janúar. Heilbrigðisráðherra hefur tekið þá ákvörðun að framlengja reglugerðina um sóttvarnarráðstafanir þar vegna Covid-19 en ástæðan er sögð fjölgun smita innanlands að undanförnu. 4.11.2021 11:24
144 greindust með Covid-19 í gær Alls greindust 144 með Covid-19 hér á landi í gær. Þetta staðfestir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við fréttastofu. Tæplega þriðjungur þeirra sem greindust eru á Akranesi. 4.11.2021 11:20
Ástand á Akranesi: Fimmtíu greindust og skólum lokað Alls greindust fimmtíu manns með Covid-19 á Akranesi í gær að því er Lögreglan á Vesturlandi greinir frá. Allir skólar í bænum verða lokaðir á morgun. 4.11.2021 10:51
Enn halda jöklar áfram að hopa og rýrna Veruleg leysing var á Hofsjökli á liðnu sumri og þá einkum á norðanverðum jöklinum. Þegar fulltrúar Veðurstofu Íslands fóru þangað í leiðangur dagana 19. til 22. október stóðu stikur einum til tveimur metrum hærra upp úr snjó og ís en algengast er. 4.11.2021 10:45
Hefur fyrirgefið morðingja Birnu en sökin verði aldrei afmáð Brjánn Guðjónsson, faðir Birnu Brjánsdóttur, segist hafa fyrirgefið manninum sem myrti dóttur hans. Í þeirri fyrirgefningu felist þó ekki afsökun og sök hans verði aldrei afmáð. 4.11.2021 10:33
Líkir Kveiksþættinum við viðtal RÚV við Ólaf Skúlason biskup „Hugsum okkur aðeins um. Rifjum upp viðtalið við Ólaf Skúlason biskup frá árinu 1996. Þegar þetta nýjasta viðtal verður skoðað í ljósi sögunnar, hvaða afstöðu hefðir þú viljað hafa tekið, svona eftir á að hyggja?“ 4.11.2021 09:13
Safnar gögnum fyrir hópmálsókn gegn íslenska ríkinu Þrjátíu konur hafa lýst yfir áhuga á að vera hluti af skaðabótamáli á hendur íslenska ríkinu í tengslum við aukaverkanir bóluefna gegn Covid-19. Ekki liggur fyrir hver endanlegur fjöldi verður en allar konurnar eiga það sameiginlegt að hafa lýst breytingum á tíðahring eftir að þær voru bólusettar. 4.11.2021 09:00
Aldrei meiri umferð um Hringveginn Aldrei hefur fleiri bílum verið ekið um Hringveginn í októbermánuði og jókst umferðin um nærri 32 prósent frá sama tíma í fyrra. Mesta aukningin var á Mýrdalssandi þar sem umferðin reyndist 251 prósent meiri en í fyrra. 4.11.2021 08:31
Endaði eftirförina með því að renna í hlað á lögreglustöð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti ökumanni eftirför í nótt þar sem hann stöðvaði ekki bifreið sína þrátt fyrir ábendingar lögreglu. Eftirförin hófst í Garðabæ en endaði óvænt við lögreglustöðina á Dalveginum, þar sem ökumaðurinn lagði loks bifreið sinni. 4.11.2021 06:38
„Algjör tilviljun að þessir tveir menn rákust á hvorn annan“ Þann 18. febrúar 2002 fannst karlmaður liggjandi á gangstétt í blóði sínu við Víðimel í Vesturbæ Reykjavíkur. Kona sem gekk fram á manninn taldi hann meðvitundarlausan og kallaði til lögreglu en þegar lögreglumenn komu á staðinn kom í ljós að maðurinn var látinn. 4.11.2021 06:00
Sólveig og Viðar enn einir yfirmennirnir sem fari illa með starfsmenn sína Fyrrverandi starfsmaður á skrifstofu Eflingar segir að Sólveig Anna Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson hafi tekið upp sömu misnotkun á starfsfólki og þau sögðust berjast gegn. Bæði nýir og gamlir starfsmenn á skrifstofunni hafi sömu sögu að segja um stjórnarhætti þeirra. 4.11.2021 06:00
Ung kona um samskipti sín við Þóri Sæmundsson þegar hún var 16 ára: „Ekki bara helmingi eldri en ég heldur líka frægur leikari“ Jófríður Ísdís Skaftadóttir, ung kona sem sakar leikarann Þóri Sæmundsson um að hafa notfært sér 20 ára aldursmun til að fá hana til samræðis þegar hún var 16 ára, segir í viðtali við Stundina að umtalað viðtal við Þóri á RÚV í gær hafi ýft upp sár. 3.11.2021 23:54
Vegagerð um Teigsskóg boðin út á næstu vikum Eftir tveggja áratuga deilur um Teigsskóg er komið að því að bjóða út vegagerð í gegnum skóginn umdeilda og er stefnt er að því að vinnuvélar verði komnar á svæðið síðla vetrar. 3.11.2021 22:11
Sævar um kolefnisspor vegna COP26: „60 þúsund tonn fyrir milljarða tonna eru ágæt skipti“ Kolefnisspor vegna flugferða þeirra 50 Íslendinga sem sækja yfirstandandi loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow, COP26, er á við losun sex sparneytinna, olíuknúinna bíla á ári. 3.11.2021 21:54
Trúnaðarmenn Eflingar: „Þessar árásir í fjölmiðlum eru bæði særandi og vanvirðing við störf trúnaðarmanna.“ Trúnaðarmenn Eflingar, sem lögðu fram títtrædda ályktun um meinta vanlíðan starfsfólks á skrifstofu félagsins, segja engar ásakanir að finna þar um kjarasamningsbrot „heldur beinar lýsingar á upplifunum starfsfólks“. 3.11.2021 21:09
Grunar að kuldi gæti valdið fölskum jákvæðum hraðprófum Borið hefur á því að fólk sem hefur farið í hraðpróf fyrir Covid-19 á Selfossi fái falska jákvæða niðurstöðu. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands segir getgátur um að kuldi á sýnatökustað gæti verið ástæðan. 3.11.2021 20:29
Færeyingur sem er enn að halda upp á jólin í Vestmannaeyjum Það er ekkert sem Matthilda Tórshamar í Vestmannaeyjum getur ekki gert þegar kemur að því að búa til textílverk og sauma myndir. Þá býr hún líka til mikið af fallegum hlutum úr endurunnuefni, auk þess að prjóna lopapeysur af mikilli snilld. 3.11.2021 20:10
Keflavíkurflugvöllur: Búið að grafa upp tæpa 50 þúsund rúmmetra fyrir viðbyggingu Jarðvinna vegna viðbyggingar á Keflavíkurflugvelli gengur vel, en frá því að fyrsta skóflustungan var tekin í júní hefur verið grafið út fyrir 49.000 rúmmetra holu sem verður á endanum 55.000 rúmmetrar og 7,5 metrar að dýpt. 3.11.2021 19:39
Leiðtogar Norðurlanda heita auknu samstarfi í öryggismálum Leiðtogar norrænu ríkjanna lögðu áherslu á aukið samstarf um neyðarviðbúnað og annan viðbúnað á fundi Norðurlandaráðs í dag. Ríkin búi sig undir alls konar neyðarástand og kreppur, hvort sem þær eru af völdum manna eða náttúru. 3.11.2021 19:20
„Gerendur þurfa að sýna iðrun og auðmýkt til að fá samþykki á ný“ Gerendur þurfa að sýna iðrun og auðmýkt til að hljóta samþykki á ný, segir aðjúnkt við Háskóla Íslands. 3.11.2021 19:00
Búa sig undir að setja maskínuna aftur í gang Til skoðunar er að byrja að gefa stórum hópi fólks með undirliggjandi sjúkdóma örvunarskammt af bóluefni gegn kórónuveirunni næsta mánuðinn. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir örvunarskammt bæta ónæmi gegn veirunni umtalsvert. 3.11.2021 18:56
Ummæli Viðars sorgleg og skaðleg fyrir trúnaðarmenn vinnustaða Hæstaréttarlögmaður og sérfræðingur í vinnurétti segir ummæli Viðars Þorsteinssonar, fráfarandi framkvæmdastjóra Eflingar, um trúnaðarmenn félagsins vera sorgleg. Hún telur að þau geti gert starf trúnaðarmanna á ýmsum vinnustöðum erfiðari. 3.11.2021 18:31
Alvarlegt bílslys í hálku í Kjós Tveir eru sagðir alvarlega slasaðir eftir að bíll þeirra lenti utan vegar í hálku við Félagsgarð í Kjós um klukkan fjögur síðdegis í dag. Þeir voru fluttir á slysadeild og er aðgerðum viðbragðsaðila á vettvangi lokið. 3.11.2021 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hæstaréttarlögmaður og sérfræðingur í vinnurétti segir ummæli fráfarandi framkvæmdastjóra Eflingar um trúnaðarmenn félagsins vera sorgleg og hafa möguleg áhrif á störf þeirra og vinnumarkaðinn í heild. Fjallað verður nánar um vendingar innan Eflingar í kvöldfréttum Stöðvar 2. 3.11.2021 18:06
Sjúkrahúsið á Akureyri komið á hættustig Sjúkrahúsið á Akureyri hefur verið fært af óvissustigi og upp á hættustig. Covid-sjúklingur liggur nú inni á gjörgæslu í öndunarvél vegna veikinnar. Mikið álag er á sjúkrahúsinu en enn hefur innlögn sjúklingsins ekki haft áhrif á aðra starfsemi spítalans. 3.11.2021 16:57
„Þér geta orðið á mistök í lífinu, geturðu þá aldrei komið til baka?“ Jóhann Rúnar Skúlason, sem nýverið var vikið úr landsliði Íslands í hestaíþróttum vegna kynferðisbrotadóms frá árinu 1994, er verulega ósáttur við að hafa verið vikið úr landsliðinu. Hann var dæmdur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök með þrettán ára stúlku í gáleysi um aldur hennar. Hann segist iðrast gjörða sinna en vill að það sé skýrt að hann hafi ekki fengið dóm fyrir nauðgun eins og haldið hafi verið fram í fjölmiðlum. 3.11.2021 14:58
Fjölbrautaskóla Vesturlands lokað og staðan sögð alvarleg á Akranesi Stjórnendur Fjölbrautaskóla Vesturlands (FVA) hafa ákveðið að loka skólanum og skipta yfir í fjarkennslu fram að helgi vegna kórónuveirusmita sem hafi mögulega breiðst þar út. 3.11.2021 14:56
Til skoðunar að bjóða öllum þriðja skammt bóluefnisins Líklegt er að fljótlega verði hafist handa hér á landi við að bjóða öllum örvunarbólusetningu með bóluefni Pfizer segir sóttvarnalæknir í pistli sem hann birti á covid.is. Örvunarskammturinn verði veittur að minnsta kosti fimm til sex mánuðum eftir aðra bólusetningu. 3.11.2021 14:48
Tekist á um ákvörðun bæjarstjórnar: „Margir sem fagna og aðrir sem gráta“ Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að banna lausagöngu katta í bæjarfélaginu frá 1. janúar 2025. Bæjarfulltrúi minnihlutans gagnrýnir að málið hafi ekki verið rætt almennilega og segir það hafa verið mögulegt að koma í veg fyrir bann. 3.11.2021 13:30
Fjöldi nýrra gatna og torga í höfuðborginni komnar með heiti Stálhöfði, Andvaranes, Otursnes, Blámúli, Barðmúli og Lautarmúli eru meðal nýrra götuheita í Reykjavík. Götunar sem um ræðir verða í Múlunum, Skerjafirði, og á Ártúnshöfða. 3.11.2021 13:27
Segir starfsfólk Eflingar lokað inni í skrifstofuvirki og aftengt veruleika félagsmanna Sólveig Anna Jónsdóttir segir starfsfólk Eflingar hafa þegið góð laun og haft allt til alls, „lokuð inní einhverskonar skrifstofuvirki, aftengd efnahagslegum veruleika þeirra sem greiddu félagsgjöldin“. 3.11.2021 12:49
„Við erum að stíga okkar fyrstu skref í að taka samtalið um þessi mál“ Stjórnarkona í feminíska hópnum Öfgum telur að samfélagið eigi að leggja áherslu á að fólk sem brýtur af sér eigi afturkvæmt inn í samfélagið. Gerendur í kynferðisbrotamálum þurfi hins vegar á móti að axla fulla ábyrgð og sýna iðrun. 3.11.2021 12:05
Stefnir í stóra viku í pólitíkinni Í næstu viku gæti dregið til tíðinda í stjórnarmyndunarviðræðum og líklegt er talið að Alþingi komi saman. Vinna undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa er nú á lokametrunum og greinargerð ætti að liggja fyrir á næstu dögum. Næsta vika gæti því orðið tíðindamikil á sviði stjórnmálanna. 3.11.2021 12:04
Segir framgöngu trúnaðarmanna óverjandi Framkvæmdastjóri Eflingar, sem sagði upp í kjölfar afsagnar Sólveigar Önnu Jónsdóttur, er sammála henni um það að starfsmenn félagsins hafi svipt hana ærunni opinberlega. Hann fer einnig hörðum orðum um trúnaðarmenn starfsmannahópsins. 3.11.2021 12:03
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent