Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lausaganga katta bönnuð á Akureyri Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að banna lausagöngu katta í bænum frá 1. janúar 2025. Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði fram tillögu þess efnis sem samþykkt var af sjö bæjarfulltrúum eftir langar umræður. Fjórir voru á móti. 3.11.2021 08:28
Fundu erfðagalla í sæðingahrúti sem veldur gulri fitu Í ljós hefur komið að sæðingahrútur sem átti í kringum 600 afkvæmi í vor hafi verið með erfðagalla sem gerir það að verkum að kjötfitan verður gul. Ekki er um sjúkdóm að ræða né er hættulegt að borða kjötið en það þykir ólystugt. 3.11.2021 08:07
Mál gegn meintum byssumanni fellt niður Mál gegn manninum sem sat í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa skotið úr riffli á bifreið borgarstjóra við heimili hans og á skrifstofur Samfylkingarinnar hefur verið fellt niður hjá héraðssaksóknara. 3.11.2021 07:06
Bjarni telur nýja ríkisstjórn verða myndaða í næstu viku Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segist telja að ný ríkisstjórn verði mynduð í næstu viku. Viðræðum hafi miðað vel. 3.11.2021 06:47
Að minnsta kosti sjö fluttir á bráðamóttöku í gærkvöldi og nótt vegna slysa Tveir menn voru vistaðir í fangageymslum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðin í gær sökum ástands. Annar var handtekinn í Hlíðahverfi og þar sem lögregla gat ekki komist að því hvar hann býr var hann fluttur á lögreglustöð. 3.11.2021 06:27
Eigandi rakti símann en þjófurinn þóttist eiga hann Um klukkan 17 í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að farsíma hefði verið stolið í verslunarmiðstöð í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Þremur tímum síðar hafði tilkynnandi aftur samband og hafði þá staðsett símann í Hlíðahverfinu. 3.11.2021 06:07
Segir rangt að hann hafi verið dæmdur fyrir nauðgun Jóhann Rúnar Skúlason, sem var rekinn úr landsliðinu í hestaíþróttum vegna dóms sem hann hlaut fyrir alvarlegt kynferðisofbeldi, segir það rangt að hann hafi verið sakfelldur fyrir nauðgun. Hann hafi verið dæmdur sekur fyrir að hafa samræði við barn yngri en fimmtán ára. 3.11.2021 00:09
Meira byggt í Bolungarvík en sést hefur í seinni tíð Óvenju mikil umsvif eru í húsbyggingum í Bolungarvík, bæði í íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Ráðamenn bæjarins segjast í seinni tíð ekki hafa séð annan eins fjölda umsókna um lóðir undir nýjar íbúðir. 2.11.2021 22:22
Tekur tíma að koma alls staðar upp ókyngreindum salernum Ókyngreind salerni má nú finna í um það bil þremur af hverjum fjórum byggingum Háskóla Íslands. Skólinn hefur verið gagnrýndur fyrir að bjóða ekki upp á slíkt alls staðar. 2.11.2021 22:00
Leikarinn Þórir Sæmundsson: „Fyrsta síðan á Google setur mig fram sem eitthvað skrímsli“ Leikarinn Þórir Sæmundsson segist ekki hafa fengið vinnu í fjögur ár síðan hann var rekinn úr starfi frá Þjóðleikhúsinu, eftir að upp komst að hann hafði sent ungum stúlkum kynferðislegar myndir. 2.11.2021 21:01
Takmarkanir nauðsynlegar næstu mánuði eða ár Sóttvarnalæknir telur að samkomutakmarkanir þurfi að vera við lýði næstu mánuði eða ár. Hann vill hæfilegan milliveg til lengri tíma í stað þess að vera sífellt að herða og slaka á klónni. 2.11.2021 21:00
Segir „ofbeldismenningu“ ríkja á skrifstofu Eflingar Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar, segir hálfgerða ofbeldismenningu ríkja á skrifstofu stéttarfélagsins þar sem starfsfólk telji sig geta farið fram með grófar og ósannar ásakanir. Hann telur ekki að neikvæð upplifun starfsfólks á vinnustaðnum hafi verið raunveruleg. 2.11.2021 20:22
Skora á stjórnarflokkana að taka á málefnum bráðamóttökunnar Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands skorar á formenn stjórnarflokkanna að taka á málefnum bráðamóttöku Landspítalans í stjórnarmyndunarviðræðum sínum. Meira fjármagn þurfi til að tryggja nauðsynlega mönnun og rétt flæði innan spítalans til framtíðar. 2.11.2021 18:34
Inga Sæland: Málin fari að skýrast í kringum helgina Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og fulltrúi í undirbúningskjörbréfanefnd, segir að það ætti að skýrast öðru hvoru megin við helgina hvenær nefndin gæti farið að ljúka störfum en þetta kom fram í máli hennar í Reykjavík Síðdegis í dag. 2.11.2021 18:34
Rætt um peninga og raunverulegar aðgerðir Forsætisráðherra segir jákvætt að umræðan á loftslagsráðstefnunni í Glasgow snúist að miklu leyti um peninga og raunverulegar aðgerðir. Íslenskir lífeyrissjóðir ætla að fjárfesta fyrir um sex hundruð milljarða króna í grænum lausnum á næstu níu árum. 2.11.2021 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir telur að samkomutakmarkanir þurfi að vera við lýði næstu mánuði eða ár. Hann kallar eftir umræðu á meðal stjórnmálamanna um hæfilegan milliveg til frambúðar. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 2.11.2021 18:05
Nýja varðskipið lagt af stað til Siglufjarðar Freyja, nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar, lagði af stað til Íslands frá Rotterdam í Hollandi í dag. Skipið er væntanlegt til Sigulufjarðar á laugardag en það á að leysa varðskipið Tý af hólmi. 2.11.2021 17:22
Lýsir hrottalegu ofbeldi og umsáturseinelti á Akureyri Helena Dögg Hilmarsdóttir móðir á Akureyri lýsir heimilisofbeldi og í framhaldi umsáturseinelti sem hún hafi orðið fyrir undanfarin ár. Hún lýsir lífsreynslunni sem ógeðslegri og ber starfsfólkinu í Bjarmahlíð á Akureyri afar vel söguna sem hafi reynst henni afar vel á erfiðum tímum. 2.11.2021 16:18
Sólveig segir af sér sem varaforseti ASÍ Sólveig Anna Jónsdóttir fyrrverandi formaður hefur sagt af sér sem varaforseti ASÍ og jafnframt hefur hún sagt sig frá varaformennsku hjá Starfsgreinasambandinu. 2.11.2021 16:09
Farsóttarnefnd svarar Svanhildi vegna svínaflensusamanburðar Farsóttarnefnd Landspítalans hefur birt útlistun á því hvað sé helst frábrugðið á milli svínaflensufaraldursins árið 2009 og kórónuveirufaraldursins sem geisað hefur hér frá síðasta ári, og viðbragða við þeim. 2.11.2021 15:46
Gagnrýnir 400 milljarða króna skuldir borgarinnar Fyrri umræða fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir komandi ár og fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2022-2026 fer nú fram í borgarstjórn. Stjórnarandstaðan gagnrýnir skuldastöðu Reykjavíkurborgar sem komin er yfir 400 milljarða króna. 2.11.2021 15:42
Mega skoða síma manns sem grunaður er um að hafa sent fjölmörg hótunarskilaboð Lögreglan á Suðurnesjum hefur fengið heimild til þess að fara yfir farsímagögn manns sem grunaður er um líkamsárás og umsáturseinelti. Þá telur lögregla að gögnin geti nýst í öðru sakamáli gegn manninum. 2.11.2021 14:06
Katrín á COP26: Tíminn til að skapa framtíðina er núna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vitnaði í rithöfundinn Andra Snæ Magnason er hún ávarpaði gesti á COP26-loftslagsráðstefnunni í Skotlandi í hádeginu í dag. Sagði hún tímann til að skapa framtíðina vera núna, auk þess sem hún lagði áherslu á að horft væri til kynjajafnréttis við ákvarðanatöku í loftslagsmálum. 2.11.2021 13:35
Segir ekki stórmál þó að kjörkassar utankjörfundaratkvæða hafi ekki verið innsiglaðir Formaður undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa segir að nefndin hafi kannað í hvaða kjördæmum utankjörfundaratkvæði hafi ekki verið innsigluð. Hvert utankjörfundaratkvæði sé í umslagi og því skipti öllu að umbúnaðurinn sé góður. Ótímabært sé að segja til um hvenær nefndin lýkur störfum. 2.11.2021 13:00
Ekki vilji starfsmanna að Sólveig Anna segði af sér Trúnaðarmenn hjá Eflingu segja í yfirlýsingu fyrir hönd starfsmanna stéttarfélagsins að ekki hafi verið vilji eða meining starfsmannafundar síðastliðinn föstudag að Sólveig Anna segði af sér formennsku. 2.11.2021 12:32
Umboðsmaður Alþingis kannar hvort innilokanir barna séu kerfislægur vandi Starfsmenn grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kærðir til lögreglu vegna meðferðar barns í skólanum. Umboðsmaður Alþingis er með innilokanir barna og önnur brot á réttindum þeirra til skoðunar eftir að hafa fengið fjölda ábendinga um slíkt. 2.11.2021 12:31
Agnieszka ætlar ekki að segja af sér og segir kröfu Guðmundar svívirðilega Agnieszka Ewa Ziólkowska hyggst ekki segja af sér sem varaformaður Eflingar og segir kröfu um það svívirðilega og lýsa fordómum í garð útlendinga. Guðmundur Baldursson, stjórnarmaður í Eflingu, sagði í gær að hún væri jafn ábyrg og aðrir í Eflingu og gerði því kröfu um afsögn hennar. 2.11.2021 12:17
Óljóst hvort loftslagsráðstefnan skili nægilegum árangri Umhverfisráðherra segir óljóst hvort COP26 ráðstefnan muni skila nægilegum árangri í loftslagsmálum þrátt fyrir að einhver framfaraskref verði stigin. Forsætisráðherra kynnir stefnu íslenskra stjórnvalda í dag. 2.11.2021 12:13
Búa sig undir örtröð eftir 800 metra bílaröð um helgina 800 metra löng bílaröð myndaðist í sýnatöku á Selfossi um helgina og lögregla gerir ráð fyrir mikilli örtröð í dag. 85 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þeim fjölgar sem greinst hafa með veiruna eftir legu á hjartadeild. 2.11.2021 12:09
Bein útsending: Katrín ávarpar gesti á COP26 í Glasgow Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpar gesti á COP26-loftslagsráðstefnunni í Skotlandi í hádeginu í dag. 2.11.2021 12:01
Skellti upp úr og segir Guðmund eiga að skammast sín Sólveig Anna Jónsdóttir, sem sagði af sér sem formaður Eflingar á sunnudagskvöld, segist hafa hlegið þegar hún heyrði kröfu Guðmundar Baldurssonar þess efnis að Agnieszka Ewa Ziólkowska segði af sér sem varaformaður stéttarfélagsins. Sú krafa sé fyndin þegar verk Agnieszku og Guðmundar fyrir Eflingu séu borin saman. 2.11.2021 11:44
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum höldum við áfram að tala um væringarnar innan Eflingar og ræðum meðal annars við Drífu Snædal forseta ASÍ um þetta mál sem hefur skekið verkalýðshreyfinguna síðustu daga. 2.11.2021 11:37
85 greindust innanlands í gær 85 greindust smitaðir af Covid-19 innanlands í gær. 36 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 42 prósent. 49 voru utan sóttkvíar, eða 58 prósent. 2.11.2021 11:33
Segir að auðveldlega hefði mátt leysa vandann hjá Eflingu Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segist eins og fleiri vera sleginn vegna afsagnar Sólveigar Önnu Jónsdóttur sem formanns Eflingar og uppsagnar Viðars Þorsteinssonar framkvæmdastjóra. 2.11.2021 11:25
Merkjavöruþjófar áfram í gæsluvarðhaldi Héraðsdómur Reykjaness hefur framlengt gæsluvarðhald yfir tveimur erlendum karlmönnum sem grunaðir eru um skipulagða glæpastarfsemi. 2.11.2021 11:16
Á von á því að Sólveig Anna segi af sér sem varaforseti ASÍ Drífa Snædal, forseti ASÍ, reiknar með að Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, segi af sér sem annar varaforseti ASÍ í dag. Drífa segir að afsögn Sólveigar Önnu sem formaður Eflingar hafi komið sér á óvart. Þá reiknar hún með að varaformaður félagsins taki við sem formaður. 2.11.2021 10:53
Fæðingarsprengja hjá Íslendingum Alls fæddust 1310 börn í júlí, ágúst og september árið 2021. Fæðingar á einum ársfjórðungi hafa ekki verið fleiri frá því byrjað var að taka tölurnar saman ársfjórðungslega árið 2010. Mun færri féllu frá á sama tímabili eða 580 einstaklingar. 2.11.2021 10:30
„Læknar eru að drukkna í klínískri vinnu og hafa ekki rými til vísindastarfs“ „Það vantar miklu meiri áherslu og kraft frá yfirstjórn Landspítalans að eitt af meginmarkmið spítalans sé virkilega að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð. Þá þarf náttúrulega reksturinn og annað að snúast um það að styrkja og hlúa að vísindunum. Þetta er grafalvarleg staða.“ 2.11.2021 10:00
Gera ráð fyrir miklum fjölda í sýnatökur á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi biðlar til íbúa á svæðinu að sýna tillitssemi og þolinmæði þegar þeir sækja sýnatöku í bílakjallara Krónunnar í dag. Vísar lögregla í upplýsingar frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands um að búast megi við mikilli aðsókn. 2.11.2021 08:20
Kennari og starfsmenn skóla kærðir fyrir innilokun barns Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur staðfest að embættið sé að rannsaka mál er varðar ofbeldi gegn barni í skóla á höfuðborgarsvæðinu. 2.11.2021 07:06
Mögulegt verkfall í miðri loðnuvertíð til umræðu á þingi SSÍ Að sögn Valmundar Valmundarsonar, formanns Sjómannasambands Íslands, er lítil hreyfing á kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Verkfallsboðun verði meðal þess sem rætt verður á þingi sambandsins á fimmtudag og föstudag. 2.11.2021 06:51
Hörð fimm bíla aftanákeyrsla Lögreglu barst í gær tilkynning um umferðarslys í póstnúmerinu 108 en um var að ræða harðan árekstur fimm bifreiða, það er að segja fimm bíla aftanákeyrslu. Ökumaðurinn sem var fremstur í röðinni er grunaður um akstur undir áhrifum. 2.11.2021 06:20
Sólin að setjast á stormasama, tíðindamikla, róttæka og herskáa formannstíð Sólveigar Önnu Óhætt er að segja að formannstíð Sólveigar Önnu Jónsdóttir, sem sagði af sér sem formaður Eflingar í fyrradag, hafi verið viðburðarrík þótt hún hafi aðeins setið sem formaður í þrjú ár. Sólveig Anna boðaði herskáa og róttæka stéttabaráttu frá upphafi formannstíðar hennar, sem var bæði stormasöm og tíðindamikil. 2.11.2021 06:01
Fellaskóli og Laugalækjarskóli komust í úrslit Skrekks Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sjö grunnskólar tóku þátt í kvöld og komust Fellaskóli með atriðið Hvað er að gerast sem fjallaði um Covid-19 og Laugalækjarskóli með atriðið Á bak við brosið sem fjallar líkamsvirðingu áfram í úrslit. 1.11.2021 23:57
Hyggjast laða ferðamenn að Odda á Rangárvöllum Forystumenn Oddafélagsins, sem stefna að endurreisn Odda á Rangárvöllum sem menningar- og fræðaseturs, hyggjast jafnframt gera þetta fornfræga höfuðból að ferðamannastað. 1.11.2021 22:22