Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Virknin komin á fullt eftir sólarhringshlé Púlsavirkni í eldgosinu við Fagradalsfjall er aftur komin á fullt eftir rúmlega sólarhrings goshlé nú fyrir helgi. Náttúruvársérfræðingur beinir því sérstaklega til fólks að fara ekki út á hraunið en talsvert hefur borið á slíku undanfarið. 17.7.2021 14:07
Andrew Douglas fyrstur í mark í Laugavegshlaupinu Breski hlauparinn Andrew Douglas kom fyrstur í mark í Laugavegshlaupinu á tímanum 4:10:38 nú um klukkan hálf tvö í dag. 17.7.2021 13:51
Talsvert veikir í farsóttarhúsi þrátt fyrir bólusetningu Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af sjö utan sóttkvíar. Mjög hefur fjölgað í farsóttarhúsi síðustu daga en á fjórða tug eru þar í einangrun vegna kórónuveirusmits. Forstöðumaður segir að fólkið sé talsvert veikt, þrátt fyrir bólusetningu. 17.7.2021 12:49
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, sjö utan sóttkvíar. Mjög hefur fjölgað í farsóttarhúsi síðustu daga og fólk þar er talsvert veikt þrátt fyrir bólusetningu, að sögn forstöðumanns. Við fjöllum um stöðu faraldursins í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf. 17.7.2021 11:50
Tólf greindust með veiruna innanlands í gær Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim voru fimm í sóttkví en sjö utan sóttkvíar. 17.7.2021 10:54
Erlendir ferðamenn hasla sér völl á Akureyri Fjöldi erlendra ferðamanna á Akureyri þetta sumarið hefur aukist gífurlega miðað við síðasta sumar. Þetta segir bæði tjaldvörður á Akureyri og starfandi forstöðumaður Sundlaugarinnar á Akureyri. 17.7.2021 10:46
Ingó sendir sjötta kröfubréfið vegna nýrra ummæla Ingólfur Þórarinson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hefur sent sjötta kröfubréfið vegna ummæla um hann á samfélags- eða fjölmiðlum. Þetta staðfestir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður Ingólfs í samskiptum við fréttastofu en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá sendingu kröfunnar. Þá staðfestir Vilhjálmur að nýja krafan sé vegna ummæla sem birt voru eftir að fyrri kröfubréf voru send. 17.7.2021 10:17
Mikill erill vegna slagsmála á djamminu Mikill erill var í miðbæ Reykjavíkur undir morgun og þurfti lögregla nokkrum sinnum að stíga inn í slagsmál sem brutust út fyrir utan skemmtistaði. Tvisvar var sjúkrabíll kallaður út að skemmtistað í nótt eftir að gestur datt og meiddi sig. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 17.7.2021 07:14
Hafði upp á stærstum hluta þýfisins af sjálfsdáðum Gunnar Sean Eggertsson, vélfræðingur á Patreksfirði, dó ekki ráðalaus þegar BMW Alpina B-10 bíll hans frá árinu 1991 var strípaður í upphafi árs. Hann lagðist í mikla rannsóknarvinnu sem varð til þess að hann endurheimti stóran hluta þýfisins þótt þjófurinn hafi bíllykilinn enn í sínum fórum. Kom hann lögreglu á snoðir um það sem virkar sem umfangsmikinn þjófnað og útflutning á þýfi. 17.7.2021 07:01
Telur þörf á úrræði fyrir þolendur utan réttarvörslukerfisins Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, telur að þörf gæti verið á einhvers konar borgaralegu úrræði fyrir þolendur vægari kynferðisbrota eða annarrar ámælisverðrar hegðunar. Margir þolendur veigri sér við að leita réttar síns og þeir sem það geri telji sig oft hlunnfarna þegar máli þeirra er lokið. 16.7.2021 20:46
Segir nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða á landamærum Yfirlæknir ónæmisfræðideildar á Landspítalanum segir nauðsynlegt að stjórnvöld grípi til aðgerða á landamærum vegna nýrrar stöðu í faraldri kórónuveirunnar hér á landi. Hann telur sterkar líkur á að fólk þurfi endurbólusetningu gegn nýjum afbrigðum á borð við hið bráðsmitandi delta afbrigði. 16.7.2021 19:30
Ómótstæðilegir hvolpar sem ekki hafa sést hér á landi áður Hundaheimurinn á Íslandi verður sífellt fjölbreyttari og fyrir skemmstu komu í heiminn fimm ómótstæðilegir hvolpar sem ekki hafa sést hér á landi áður. 16.7.2021 19:29
„Greinilega er maður ekki alveg hólpinn með bólusetningunni“ Eyjólfur Ásberg Halldórsson, sem hafði verið bólusettur gegn Covid-19, segist hafa fagnað of snemma en hann greindist með veiruna eftir að hann kom heim frá Spáni fyrr í mánuðinum. Hann hvetur fólk til að fara varlega áfram. 16.7.2021 18:43
Tveir bílar skullu saman á Mývatnsöræfum Tveir bílar skullu saman á Mývatnsöræfum í dag. Átta munu hafa verið í bílunum en við fyrstu fregnir virðist slysið ekki hafa verið eins alvarlegt og talið var í fyrstu. 16.7.2021 16:34
Smit um borð í Viking Jupiter og engum hleypt í land Eitt smit hefur verið staðfest um borð í skemmtiferðaskipinu Viking Jupiter sem liggur við höfn á Akureyri. 16.7.2021 15:53
Uppnám innan Miðflokksins eftir að Þorsteinn neitaði að víkja Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Miðflokksins neitaði að beygja sig undir þau áform, sem honum höfðu verið kynnt, að vera ekki stillt upp sem oddvita flokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar. 16.7.2021 14:36
Starfsmaður á Jómfrúnni greindist með smit Starfsmaður Jómfrúarinnar greindist með kórónuveirusmit í gær og voru 24 starfsmenn veitingastaðsins sendir í skimun vegna smitsins. Þeir hafa allir verið bólusettir líkt og sá smitaði sem mætti síðast í vinnuna á mánudag. Einn starfsmaður hefur verið sendur í sóttkví. 16.7.2021 14:16
Nýjar íslenskar kartöflur komnar í verslanir Nýjar íslenskar kartöflur eru nú komnar í verslanir, meðal annars frá bænum Auðsholti í Hrunamannahreppi skammt frá Flúðum. 16.7.2021 13:05
Leggur til að aðgerðir verði hertar á landamærum á ný Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst leggja til breytingar á sóttvarnaaðgerðum á landamærum í ljósi fjölgunar tilfella síðustu daga. Hann vinnur nú að minnisblaði til ráðherra en vill ekki gefa upp hverjar tillögur hans verða. 16.7.2021 11:51
Háskalegt að gera ekki greinarmun á lögmanni og skjólstæðingi hans Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands, segir afar mikilvægt í öllum skilningi að halda því til haga að lögmaður er eitt og skjólstæðingur hans annað. 16.7.2021 11:37
Konur hrifnari af sósíalisma en karlar Í nýrri könnun sem MMR gerði fyrir Sósíalistaflokk Íslands, kemur fram að afstaða Íslendinga er almennt jákvæðari gagnvart sósíalisma en kapítalisma. 16.7.2021 10:50
Forsetinn þakkar heilsugæslunni en segir verk að vinna í baráttu við veiruna „Kæru vinir. Bólusetningu vegna heimsfaraldurs er núna lokið í bili. Sú aðgerð tókst með eindæmum vel, meðal annars vegna þess að landsmenn áttuðu sig vel á nauðsyn þess að grípa til varna af því tagi.“ 16.7.2021 10:47
Sjö greindust með Covid-19 innanlands í gær Sjö greindust með Covid-19 innanlands í gær og voru fjórir utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. 16.7.2021 10:30
Ný könnun MMR og Moggans: Níu flokkar á þingi og ríkisstjórnin félli Ríkisstjórnin nýtur stuðnings meirihluta þjóðarinnar en næði ekki meirihluta á Alþingi í haust ef marka má nýja könnun MMR fyrir Morgunblaðið. Níu flokkar ná fólki á þing. Fylgi flokka dreifist það mikið að þrír flokkar gætu ekki náð meirihluta þingmanna og myndað meirihlutastjórn. 16.7.2021 06:50
Ölvunarónæði og hávaði í miðborginni Næturvaktin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur oft verið erilsamari ef marka má fréttaskeyti lögreglu til fjölmiðla í morgun. Vestan Elliðaár var það aðallega í miðborginni sem lögregla sinnti erindum. 16.7.2021 06:26
Fékk nóg af typpafýlunni þegar hún var tekin af sviði rétt fyrir úrslitakeppni Morfíslið fullskipað Verzlóstrákum að mæla staðfastlega gegn því í ræðukeppni að spilling þrífist á Íslandi. Þetta er pæling sem gengur alls ekki upp að mati Ilmar Maríu Arnarsdóttur, sem var svipt æskudraumnum í júní þegar henni var skipt út af sviðinu rétt fyrir úrslit Morfís. 16.7.2021 06:04
Hafnarfjarðarbær hyggst gefa nýburum krúttkörfur Nýbakaðir foreldrar í Hafnarfirði mega með haustinu vænta þess að fá svokallaða krúttkörfu frá bænum sem inniheldur allar helstu nauðsynjar fyrir barnið á borð við samfellur, smekki og bleyjur. Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður bæjarráðs í Hafnarfirði segir þetta vera leið til þess að taka á móti nýjum íbúum með táknrænni hætti en hefur verið gert hingað til. 15.7.2021 22:47
„Þessar tölur sýna það ótvírætt að bólusetningin virkar“ Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisdeild Landspítalans, segir það alveg ljóst að virkni bóluefnanna sé gríðarlega góð. 15.7.2021 21:05
Segir virkni bóluefna ekki eins góða og vonast var til Sóttvarnalæknir segir virkni bóluefna gegn kórónuveirunni ekki eins góða og vonast var til. Þá hafi heilsufar áhrif á virkni bólusetninga. Hann íhugar nú að leggja það til að allir sem koma til landsins verði krafðir um neikvætt PCR próf. Tíu fullbólusettir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru fimm utan sóttkvíar. 15.7.2021 19:31
Yfir hundrað þjófnaðir og innbrot: „Ekki auglýsa það á samfélagsmiðlum að þið séuð ekki heima“ Innbrotahrina gengur nú yfir á höfuðborgarsvæðinu og hafa yfir hundrað þjófnaðir og innbrot verið tilkynnt á síðustu tveimur mánuðum. Lögreglan biðlar til fólks að vera á varðbergi. 15.7.2021 19:15
Fimm með réttarstöðu sakbornings: Tóku efni að virði níutíu milljóna króna Fimm eru með réttarstöðu sakbornings í máli sem talið er tengjast skiplagðri kannabisframleiðslu. Lögregla hefur lagt hald á kannabisefni að virði rúmlega níutíu milljóna króna og upprætt fimm stórar kannabisframleiðslur í íbúðar- og iðnaðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. 15.7.2021 18:31
Farþegar skemmtiferðaskips hugsanlega sekir um sóttvarnabrot á Djúpavogi Aðgerðastjórn Lögreglustjórans á Austurlandi hefur hugsanlegt sóttvarnarbrot til rannsóknar eftir að farþegar skemmtiferðaskips fóru í land á Djúpavogi án leyfis. Einn farþegi skipsins greindist smitaður af Covid-19 í fyrradag. 15.7.2021 18:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við frá því að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upprætt fimm stórar kannabisframleiðslur og lagt hald á kannabis að virði hundrað milljóna. Talið er að skipulagður glæpahópur sé að verki. 15.7.2021 18:00
Yrki hlutskarpast í samkeppni um nýtt ráðhús á Akureyri Arkitektastofan Yrki-arkitektar varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um nýja viðbyggingu og endurbótum á eldra húsnæði ráðhússins. Tillaga Yrki verður tekin til frekari útfærslu. 15.7.2021 15:27
Eyjólfsbörn hlaupa til minningar um föður sinn sem féll frá fyrir skömmu Margrét Brynjólfsdóttir, sem nú syrgir eiginmann sinn sem féll frá fyrir skömmu, segir það hjálpa sér að hlaupa en öll fjölskyldan ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer 21. ágúst. 15.7.2021 14:59
Lögregla tengt innbrot í heimahús við færslur á samfélagsmiðlum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tengt innbrot í heimahús við færslur á samfélagsmiðlum þar sem íbúar greina frá því að þeir séu í fríi og þar með að heiman. Töluvert hefur verið um innbrot og þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og telur lögregla fulla ástæðu til að vera á varðbergi. 15.7.2021 14:49
Rúmlega fimm hundruð biðstöðvar Strætó fá ný nöfn Nöfnum á rúmlega 500 biðstöðvum Strætó verður breytt í næsta mánuði. Leitast hefur verið við að nýju nöfnin séu eins lýsandi og hægt er fyrir staðsetningu viðkomandi stöðva og hægt er. 15.7.2021 14:38
Vígahnötturinn sem sprakk yfir Suðurlandi sennilega á stærð við lítið hús Vígahnötturinn sem sprakk yfir Suðurlandi föstudaginn 2. júlí var líklega um sjö metrar í þvermál. Getur það samsvarað litlu tveggja hæða húsi. 15.7.2021 13:43
Níu milljarða snekkja á Pollinum Snekkjan Satori dólar nú á Pollinum í Eyjafirði við Akureyri. Snekkjan er í eigu lítt þekkts auðkýfings og hefur verið á ferð við strendur Íslands að undanförnu. 15.7.2021 13:00
Dæmdur nauðgari í gæsluvarðhaldi, grunaður um þriðju nauðgunina Kynferðisafbrotamaður sem dæmdur var í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir tvær nauðganir í síðustu viku situr í gæsluvarðhaldi grunaður um þriðju nauðgunina. 15.7.2021 12:00
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðuna á kórónuveirufaraldrinum en tíu smit greindust innanlands í gær. 15.7.2021 11:32
Aðgerðir ekki hertar: Flest smit undanfarna daga af delta-afbrigðinu Frá 1. júlí hafa 23 einstaklingar greinst með Covid-19 hér innanlands, flest af völdum delta-afbrigðisins svokallaða. Sóttvarnalæknir er ekki með tillögur að hertum sóttvarnaraðgerðum að svo stöddu, en það gæti breyst. 15.7.2021 11:30
Bólusetning með breyttu sniði í haust Í gær fór fram síðasta fjöldabólusetningin í Laugardalshöll og hér eftir verður bólusetning á höfuðborgarsvæðinu með breyttu sniði. 15.7.2021 11:29
Eldgosið legið niðri frá því snemma í morgun Eldgosið í Fagradalsfjalli féll skyndilega niður laust fyrir klukkan fimm í morgun. Þetta sýna bæði vefmyndavélar og jarðskjálftamælar. 15.7.2021 11:12
Maður látinn eftir vinnuslys í Reykjanesbæ Maðurinn sem slasaðist í vinnuslysi í Reykjanesbæ í gær er látinn. Um er ræða karlmann á fimmtugsaldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. 15.7.2021 11:08